Fréttablaðið - 12.08.2003, Blaðsíða 6
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 78,55 0,63%
Sterlingspund 125,66 -0,25%
Dönsk króna 11,91 -0,08%
Evra 88,55 -0,09%
Gengisvísitala krónu 126,23 0,57%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 202
Velta 3.015 milljónir
ICEX-15 1.555 -0,02%
Mestu viðskiptin
Landsbanki Íslands hf. 360.488.074
Kaupþing Búnaðarbanki hf. 133.102.770
Skeljungur hf. 114.733.208
Mesta hækkun
Framtak Fjárfestingarbanki hf. 4,08%
Íslenski hugbúnaðarsjóðurinn 3,90%
Landsbanki Íslands hf. 3,88%
Mesta lækkun
Og fjarskipti hf. -2,57%
Eimskipafélag Íslands hf. -1,60%
Bakkavör Group hf. -1,44%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ: 9194,2 0,0%
Nasdaq: 1660,0 1,0%
FTSE: 4176,7 0,7%
DAX: 3339,6 0,2%
NK50: 1242,5 0,0%
S&P: 978,6 0,1%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
6 12. ágúst 2003 ÞRIÐJUDAGURVeistusvarið?
1Æðsti maður sjávarútvegsmálaEvrópusambandsins flutti erindi í
Háskóla Reykjavíkur. Hvað heitir hann?
2Formaður Landssambands smábáta-eigenda vill að forsætisráðherra
grípi í taumana í línuívilnunarmálinu.
Hvað heitir hann?
3Hverjir sigruðu í bikarkeppni Frjáls-íþróttasambands Íslands?
Svörin eru á bls. 25
SJÁVARÚTVEGUR Franz Fischler, sem
fer með sjávarútvegs- og land-
búnaðarmál í framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins, segir sam-
bandið og Íslendinga halda fram
sömu sjónarmiðum varðandi frí-
verslun með fisk og lækkun land-
búnaðarstyrkja. Evrópusamband-
ið og Íslendingar muni leggja
áherslu á sömu þætti á fundi Al-
þjóða viðskiptastofnunarinnar.
Þetta var meðal þeirra mála sem
Fischler og Árni Mathiesen sjáv-
arútvegsráðherra ræddu á fundi
sínum. Fischler segist hins vegar
hafa orðið fyrir vonbrigðum með
afstöðu Íslendinga varðandi
kolmunnaveiðar.
Ekki hefur náðst samkomulag
meðal ríkja sem stunda veiðarn-
ar og ákváðu ríkin og Evrópu-
sambandið kvóta sína einhliða.
Alþjóða hafrannsóknarráðið tel-
ur kolmunnastofnin ofveiddan.
Árni Mathiesen segist sannfærð-
ur um að niðurstaða muni fást í
málinu. Íslendingar og Evrópu-
sambandið muni ná samkomulagi
um kolmunnann, svo sem eins og
náðst hafi í öðrum ágreinings-
málum Íslendinga og Evrópu-
sambandsins. ■
Lystarstol unglinga
vaxandi vandamál
Lystarstol er nú þriðja alvarlegasta heilbrigðisvandamál unglings-
stúlkna í Ástralíu. Meðalaldur lystarstolssjúklinga er 12 ár en var 14 og
1/2 ár í fyrra. Dæmi eru um fjögurra ára lystarstolssjúklinga.
SYDNEY, AP Sjúklegt lystarleysi eða
lystarstol hefur hrjáð mjög ung
börn, allt niður í átta ára gömul,
að sögn ástralskra lækna. Þá er
vitað um eitt tilfelli þar sem fjög-
urra ára gamalt barn þjáðist af
lystarstoli.
Samkvæmt könnun sem samtök
á s t r a l s k r a
barnalækna létu
gera hefur með-
alaldur unglinga
sem þjást af
s j ú k d ó m n u m
lækkað ört. Árið
2001 var meðal-
aldurinn 14 og
1/2 ár en var í
fyrra kominn
niður í 12 ár.
Samkvæmt könnuninni er börn-
um frá velmegandi miðstéttarfjöl-
skyldum hættast við átröskun.
„Þetta eru fjölskyldur sem
gera óhóflegar kröfur til sjálfra
sín,“ segir prófessor Michael
Cohen, einn þeirra sem gerðu
könnunina.
Hann segir að átröskun megi
ekki einungis rekja til einhæfrar
myndar sem fjölmiðlar drógu
lengi vel upp af grannvöxnum
konum, sífellt auknar kröfur dag-
legs lífs bitni á báðum kynjum
með þessum hætti.
„Þeim finnst þau vera of feit og
lýsa löngun til að líkjast fyrirsæt-
um og leikurum,“ segir Sloane
Madden, barnageðlæknir sem
stjórnaði rannsókninni.
Átröskun er nú þriðja alvarleg-
asta heilbrigðisvandamál Ástralíu
hjá stúlkum 18 ára og yngri og
fylgir fast á hæla ofnæmis og
asma. Átröskun er einnig ört vax-
andi vandamál hjá unglingspiltum.
Ein af hverjum 250 unglings-
stúlkum yngri en 18 ára þjáist af
átröskun og um það bil einn af
hverjum 1.000 unglingspiltum.
Sjúkdómurinn getur valdið
varanlegu heilsutjóni ef hann
leggst á unglinga á þessum aldri.
Hætta er á ófrjósemi, beinþynn-
ingu auk þess sem átröskun dreg-
ur úr vexti og í verstu tilfellum
dregur sjúkdómurinn unglingana
til dauða. ■
Evrópusambandið:
Hvalveiðar
viðkvæmar
HVALVEIÐAR Franz Fischler, sem fer
með sjávarútvegsmál í fram-
kvæmdastjórn ESB, segir ekkert
launungarmál að hvalveiðar séu
viðkvæmt mál meðal aðildarríkja
Evrópusambandsins. „Evrópu-
sambandið er sem slíkt ekki aðili
að Alþjóða hvalveiðiráðinu.“
Varðandi vísindaveiðar Íslend-
inga sagði Fischler ekki um neina
opinbera afstöðu sambandsins að
ræða. „Meginreglan er að við við-
urkennum vísindaveiðar. Hvert
og eitt ríki ESB er ábyrgt fyrir
hvalastofnum. Eins og staðan er
núna bönnum við hvalveiðar inn-
an sambandsins.“ ■
ÁRNI MATHIESEN OG FRANZ FISCHLER
Íslendingar og ESB eiga samleið gagnvart
Alþjóða viðskiptastofnuninni. Ágreiningur
er um veiðar á kolmunna.
Neitar sök:
Óhræddur
við dauðann
BALÍ, AP Meintur skipuleggjandi
hryðjuverkaárásanna á Balí í
október á síðasta ári hélt fram
sakleysi sínu þegar hann mætti
fyrir rétt í gær. Saksóknarar
halda því fram að Imam Samudra
hafi verið heilinn á bak við árás-
irnar og ráðið og þjálfað aðra
þátttakendur.
Samudra, sem er 33 ára gamall
indónesískur kaupmaður, lýsti því
yfir fyrir rétti að hann hefði ekki
átt aðild að árásunum. Hann sagð-
ist þó ekki óttast það að verða
dæmdur til dauða þar sem hann
hefði ávallt lifað í samræmi við
kenningar Islam og vilja Allah. ■
+13 +15
+17
+14
+13
+15
+16
+16
+15
Svæði þar sem búast má við talverðri vætu eru skyggð á kortinu. Minniháttar úrkoma er táknuð með dropum. Hitatölur sýna hæstu hitagild.
HORFUR Á
BJÖRTU VEÐRI
Horfur dagsins eru
býsna jákvæðar.
Bjart í flestum
landshlutum, síst
þó á Suðaustur-
landi. Vindurinn
hreyfist vart víðast
hvar auk þess sem
horfur eru á mildu
veðri. Ég hygg því
að veðrið verði
ekki til að ergja
landann þennan
daginn. Nú nálgast
berjatínslutíminn
og veðrið í dag er
ekta fínt í slíkt þó
ekki sé nema til að
athuga sprettuna.
Alltaf gaman í
góðu veðri.
Kaupmannahöfn 25°C skýjað
London 30°C léttskýjað
París 38°C skýjað
Berlín 32°C heiðskírt
Algarve 33°C heiðskírt
Mallorca 29°C heiðskírt
Torrevieja 32°C heiðskírt
Krít 28°C heiðskírt
Kýpur 29°C skýjað
Róm 31°C þrumur og rign.
New York 28°C alskýjað
Miami 28°C þrumur og rign.
Fimmtudagur
Miðvikudagur
+14
+14 +14
+13
+16
+14
+14
+13
+14
+14
+12
+15
Hægviðri
Hægviðri
Hægviðri
Hæg breytileg átt
Hæg breytileg átt um allt land.
Þykknar upp síðdegis.
Víða strekkingur, einkum á Austurlandi.
Hægur
vindur
Hægviðri
Hægviðri
Hægviðri
Hæg breytileg átt
Hæg breytileg átt
Hægur
vindur
MÁLSVÖRN
Imam Samudra las málsvörn sína fyrir
indónesíska dómara í réttarsalnum í Den-
pasar á Balí.
ÁTRÖSKUN
Barnalæknar í Ástralíu hafa vaxandi áhyggjur af átröskun meðal ungra barna. Meðalald-
ur lystarstolssjúklinga er nú kominn niður í 12 ár en dæmi eru um að fjögurra og átta
ára gömul börn hafi þjáðst af lystarstoli.
Verð á mann frá 19.500 kr.
Óendanlegir möguleikar!
Alltaf ód‡rast á netinu
„Þeim finnst
þau vera of
feit og lýsa
löngun til að
líkjast fyrir-
sætum og
leikurum.
MIKIL UMFERÐ Á FISKIDEGINUM
MIKLA Lögreglan á Dalvík sagði
að umferð hefði gengið að óskum
í bænum en rúmlega 20 þúsund
gestir sóttu Dalvík heim um helg-
ina. Umferð gekk mjög hægt fyrir
sig en flestir voru rólegir og tóku
lífinu með ró. Dalvíkurlögreglan
tók einnig þátt í að bjarga tveimur
fjallgöngumönnum sem slösuðust
í Svarfaðardal. Báðir voru fluttir
með þyrlu á Fjórðungssjúkrahúsið
á Akureyri og var annar þeirra út-
skrifaður strax en hinn fór í að-
gerð á ökkla sem tókst vel og er
hann á batavegi. ■
■ Lögreglufréttir
Fundur Fischlers og sjávarútvegsráðherra:
Kolmunninn
er þrætuepli