Fréttablaðið - 12.08.2003, Blaðsíða 11
Samkvæmt umfjöllun í fjölmiðl-um síðustu mánuðina virðist
Leikfélag Reykjavíkur eiga í mikl-
um vanda og reynt hefur verið að
telja almenningi trú um að sá vandi
sé algjörlega og einungis innanhúss.
Það er alrangt.
Hið rúmlega hundrað ára Leikfé-
lag Reykjavíkur hefur aðsetur í
Borgarleikhúsinu og skilar af sér
jafn metnaðarfullu og árangursríku
starfi og álíka kompaní annars stað-
ar í heiminum. Á landsvísu nægir að
benda á að á síðasta leikári voru
fjórar af þeim fimm sýningum sem
tilnefndar voru sem besta sýning í
Grímuverðlaununum á fjölum
Borgarleikhússins. Glæsilegur list-
rænn árangur samhliða því að
áhorfendatölur fóru hækkandi, ís-
lenskri leikritun var gert hátt undir
höfði og íslensk sviðslist varð eftir-
sótt útflutningsvara, svo ekki sé tal-
að um met í fjölda viðburða í húsinu
og allt innan fjárhagsramma.
Menning kostar
Hver er þá vandinn? Jú, menn-
ing kostar. Það fjármagn sem borg-
in leggur til leikhússins er ekki
nægilegt. Þjóðleikhúsið (sem lendir
hér í samanburðinum því þar fer
fram mjög áþekk starfsemi) fær
rúmlega tvöfalda upphæð til síns
reksturs á við L.R. – og mætti þó við
meiru. Sannleikurinn er að á árun-
um 1992 til 2002 hækkaði framlag
borgarinnar til leikhússins síns að-
eins um 4% að raungildi á meðan
launakostnaður hefur hækkað á
sama tíma um 30% að raungildi.
„Vá, eru leikarar þá svona mold-
ríkir?“ kynni einhver að spyrja.
Bara ef svo væri. Í janúar árið 2001
voru byrjunarlaun leikara í Borgar-
leikhúsinu 106 þúsund krónur á
mánuði en eru nú komin upp í 180
þúsund og það eftir fjögurra ára há-
skólanám og inni í þessari tölu eru
sýningar um kvöld og helgar ásamt
æfingum á virkum dögum. Leikarar
skammast sín fyrir að segja frá
þessu en hér er það upplýst. Öllum
ætti því að vera ljóst að þótt launa-
kostnaður við leikhúsið hafi hækkað
eru starfsmenn hússins ekki ofsæl-
ir af launum sínum enda eru þessar
hækkanir rétt í takt við almenna
kaupmáttaraukningu í landinu.
Fjárhagsvandi leikhússins birt-
ist vissulega innan veggja hússins
við Listabraut en hann ber að leysa
í ráðhúsinu. Borgaryfirvöld verða
að gera upp við sig hver metnaður
þeirra er í menningarmálum. Er
Borgarleikhúsið leikhús borgarinn-
ar eða aðeins leikhús í borginni? Ef
ráðamenn vilja yfirleitt kannast við
krógann þá hætta þeir að heimta
lausnir eins og uppsagnir og útleig-
ur, það er fullreynt og lengra verður
ekki komist, ólin hefur verið þrengd
að innsta gati og núverandi stjórn-
endur hússins hafa sýnt fulla
ábyrgð í rekstri, fjárhagslega sem
og listrænt. Boltinn er hjá borginni.
Það er sama hversu margar lausnir
stjórnmálamenn og dægurspeking-
ar leggja fram, þær koma alltaf til
með að kosta það sama og síðasta
leikár því þar er einfaldlega botn-
inn.
Vandi Borgarleikhússins er
vandi borgarinnar og ef stjórarnir
við Tjörnina hafa metnað til að
Reykjavík standi undir nafni sem
höfuðborg brúa þeir í minnsta lagi
þetta 26% bil sem upp á vantar milli
rétt tæplega eðlilegs launaskriðs og
fjárframlags til LR. ■
11ÞRIÐJUDAGUR 12. ágúst 2003
Afgreiðslutími
allra verslana Hörpu Sjafnar!
Alla virka daga kl. 8–18 og
laugardaga kl. 11–15.
Helgarvakt
í Skeifunni 4.
Opið laugardaga kl. 11–18
og sunnudaga kl. 13–18.
Skeifan 4
Reykjavík
Sími 568 7878
Snorrabraut 56
Reykjavík
Sími 561 6132
Stórhöfði 44
Reykjavík
Sími 567 4400
Austursíða 2
Akureyri
Sími 461 3100
Hafnargata 90
Keflavík
Sími 421 4790
Dalshraun 13
Hafnarfirði
Sími 544 4414
Austurvegur 69
Selfossi
Sími 482 3767
Bæjarlind 6
Kópavogi
Sími 544 4411
599kr. lítrinnm.v. 10 lítra dós
672kr
.
lítrinn
789 kr. lítrinn
399kr. lítrinn
Stórafsláttur af útimálningu og viðarvörn
SUMARTILBOÐ
Hroki
hvalveiði-
manna
Einar Steinþórsson skrifar:
Ég hef sjaldan orðið vitni aðöðrum eins hroka og kom
fram í Kastljósþætti sjónvarps-
ins á sunnudagskvöld.
Þar var rætt við Kristján
Loftsson, forstjóra Hvals hf.,
sem gerði út hvalveiðiskipin sem
nú liggja við Ægisgarð í Reykja-
víkurhöfn, og Guðmund Gests-
son, framkvæmdastjóra Hval-
stöðvarinnar ehf., sem gerir út
hvalaskoðunarskipið Hafsúluna.
Kristján Loftsson gekk svo
fram af mér að ekki verður orða
bundist. Hann náði á 15 mínútum
að tala niður til Flugleiða, Jóns
Karls Ólafssonar, formanns Sam-
taka ferðaþjónustunnar, Ás-
björns Björgvinssonar, stofnanda
og forsvarsmanns hins merka
hvalasafns á Húsavík, allra fyrir-
tækjanna sem eru búin að byggja
upp þá grein innan ferðaþjónust-
unnar sem örast hefur vaxið á
undanförnum árum, eða hvala-
skoðunina, og ekki nóg með það,
heldur talaði hann niður til allrar
ferðaþjónustunnar á Íslandi.
Ekki var hægt að skilja hann
öðruvísi en að íslensk ferðaþjón-
usta væri einhvers konar auka-
búgrein sem ekki skipti neinu
máli og væri nánast haldið uppi
af styrkjum hins opinbera.
Kristján talaði af slíkri lítils-
virðingu um þessa næststærstu
atvinnugrein þjóðarinnar að það
er með ólíkindum. Samtök ferða-
þjónustunnar hafa lýst yfir
áhyggjum af fyrirhuguðum „vís-
indaveiðum“ og hvatt stjórnvöld
til þess að fórna ekki meiri hags-
munum fyrir minni.
Ef illa fer getur hvalaskoðun
lagst af, ferðamönnum fækkað
og ímynd Íslands skaðast mikið.
Hætta er á viðskiptabanni frá
m.a. Bandaríkjunum og á því að
mótmæli erlendis muni skaða
okkar útflutning.
Þetta eru atriði sem hægt er
að deila um, en ekkert af þessu
virðist skipta máli, því hrokinn
er slíkur að Íslendingar skulu
hefja hvalveiðar hvað sem það
kostar. ■
■ Bréf til blaðsins
Umræða
BERGUR ÞÓR
INGÓLFSSON
■
skrifar um rekstrar-
vanda Leikfélags
Reykjavíkur.
Leikhús borgarinnar...?