Fréttablaðið - 12.08.2003, Blaðsíða 31
ÞRIÐJUDAGUR 12. ágúst 2003 19
Skrýtnafréttin
Þær verða varla breskari el-ektrósveitirnar en Audio
Bullys. Eins og nafnið gefur til
kynna er þetta svolítið ruddaleg
tónlist og reykjarmökkurinn svífur
yfir allri plötunni. Textarnir fjalla
svo sumir um vonleysi atvinnu-
leysis og brostna drauma.
Það tók mig smá tíma að venjast
þessu og platan pirraði mig heldur
mikið í fyrstu en svo fór hún að
vinna aðeins á við hverja hlustun.
Þetta eru mestmegnis einfaldar
forritanir og lögin ekkert sérstak-
lega melódísk. Allt er lagt í það að
hljóma sem svalast og gefa skít í
flest allt sem getur talist siðmennt-
að. Útsetningar minna um margt á
Streets, en textar eru verri og öngl-
ar laganna ekki nærri því eins
beittir. Þar af leiðandi á þessi sveit
líklegast ekki eftir að ná mikið
lengra upp á yfirborðið en þessa
blaðagrein, a.m.k. í þetta skiptið.
Eftir að eyrun hafa vanist tónin-
um er alveg hægt að hafa gaman af
þessu á köflum en þetta skilur lítið
sem ekkert eftir sig. Það bara vant-
ar eitthvað upp á. Grúvin eru mörg
fín og maður byrjar að heillast með
en svo nær ekkert laganna al-
mennilegu flugi. Kannski ættu fé-
lagarnir bara frekar að leita sér að
vinnu í staðinn fyrir að væla um
gras og yfir atvinnuleysi sínu á
plasti? Þá gætu hjólin farið að rúlla
almennilega.
Birgir Örn Steinarsson
Umfjölluntónlist
Bitlausir
hljóðkúgarar
Íraskur maður sem viðurkennirað hafa hnuplað rúmi fyrrum
einræðisherrans Saddams
Husseins segir að húsgagnið hafi
bjargað ástarsambandi sínu.
Kærasta hans varð svo uppnumin
af uppátæki hans að hún lét undan
þrýstingi hans um að giftast sér.
Omar Heder braust inn í fimm
hæða kastala Saddams Husseins
daginn sem bandarískir hermenn
réðust inn í Bagdad og hnuplaði
rúminu, sem er úr mahónítré, dýn-
unni og rúmfötunum. Heder er 35
ára og segir að kærastan hafi látið
sig bíða eftir svörum um giftingu í
ein 10 ár. Heder tók einnig marm-
araborð, silkináttslopp, inniskó,
nokkrar gylltar skápahurðir og
vasa. Það tók hann fjórar klukku-
stundir að ná rúminu af festingum
sínum.
„Þegar kærastan mín sá rúmið
leit hún á það sem merki frá Guði
um að við ættum að gifta okkur
eftir allt saman,“ sagði Heder í
blaðaviðtali. „Ég er mjög ham-
ingjusamur. Örlögin hafa loksins
verið góð við mig og rúm Saddams
hefur hjálpað mér að verða betri
maður.“ ■
RINGÓ Í STUÐI
Ringó Starr, fyrrverandi trommari
Bítlanna, var í góði stuði á tónleik-
um sem haldnir voru á Soo Pass
búgarðinum í Detroit í Bandaríkj-
unum á dögunum. Hljómsveit
hans, All Starr Band, hélt þar
lokatónleika á sérstakri sveitatón-
listarhátið sem þar var haldin.
FÓLK Leikarinn Gregory Hines lést á
laugardag í Los Angeles eftir bar-
áttu við krabbamein. Hann þótti af-
bragðs steppdansari og átti farsæl-
an feril sem sviðsleikari á Broad-
way auk þess að leika í kvikmynd-
um. Þekktustu myndir hans eru lík-
legast „White Nights“, „The Cotton
Club“ og „Running Scared“. Hines
var aðeins 57 ára gamall.
Hines komst fyrst í sviðsljósið
sem barn þegar hann steppdansaði
ásamt bróður sínum Maurice. Þeir
komu oft fram í sjónvarpi ásamt
föður þeirra snemma á sjöunda
áratuginum og ferðuðust á milli
borga með atriðið „Hines, Hines
and Dad“.
Á áttunda áratuginum reis
frægðarsól hans á Broadway þegar
hann lék í söngleikjunum „Eubie!“,
„Comin’ Uptown“ og „Sophisticated
Ladies“. Hann var tilnefndur til
Tony-verðlaunanna fyrir þá alla.
Fljótlega fékk hann sitt fyrsta kvik-
myndahlutverk en það var í mynd
Mel Brooks, „History of the World,
Part 1“, þar sem hann var ráðinn til
þess að hlaupa í skarðið fyrir Ric-
hard Pryor. Stærsta kvikmyndahlut-
verk hans var á móti rússneska
dansaranum Mikhail Baryshnikov
árið 1985. Aðdáendur sjónvarps-
þáttarins Will & Grace muna svo ef-
laust eftir Hines í hlutverki skrif-
stofustjórans Ben Doucette. ■
Rúm Saddams
bjargaði ástarsambandi
SADDAM
Einræðisherrann átti margar eiginkonur.
Kannski hefur hluti af kynorku hans smitast
yfir á Omar Heder sem stal rúminu hans.
Stjörnufall í Hollywood:
Gregory Hines látinn
GREGORY HINES
Þótti einn efnilegasti
steppdansari
Hollywood.
HLJÓMAR
Halda tónleika í Bragganum á Hólmavík
um næstu helgi.
Tónlistarveisla
á Hólmavík:
Hljómar í
Bragganum
TÓNLIST Gömlu kempurnar í Hljóm-
um og Ríó Tríói hafa aldeilis ekki
sungið sitt síðasta þrátt fyrir fjöl-
mörg ár í bransanum. Sveitirnar
munu troða upp á tónleikum sem
verða haldnir í Bragganum á
Hólmavík um næstu helgi.
Auk þeirra munu trúbadorinn
Halli Reynis, KK og Magnús Ei-
ríksson koma fram, að því er sagði
á bb.is.
Bragginn var reistur sem her-
mannabraggi að Reykjum í Hrúta-
firði í seinni heimstyrjöldinni. Árið
1946 var hann rifinn og fluttur til
Hólmavíkur. Árið 1998 hófust end-
urbætur á Bragganum og lauk
þeim á síðasta ári. ■
JÓNSI Í SVÖRTUM FÖTUM
Er gestaþátttakandi í Fear Factor FM 957 á
Menningarnótt.
Menningarnótt:
Sveitaball í
Hljómskála-
garðinum
TÓNLIST Frá kl. 16 á menningarnótt,
eða menningardaginn í rauninni,
geta aðdáendur Hreims í Landi og
sonum og Jónsa Í svörtum fötum
horft á þá spreyta sig í keppninni
Fear Factor FM 957 í Hljómskála-
garðinum, en útvarpsstöðin hefur
verið á þeytingi um landið með
þessa keppni í tengslum við Sumar-
djamm FM 957. Ásamt þessu sprel-
li verða nokkrar vinsælar hljóm-
sveitir með hljóðkerfin í lagi í
Hljómskálagarðinum. Þetta eru
bönd eins og Land og synir og
Skítamórall. Uppreisn sveitaballs-
ins í Hljómskálagarðinum, hljómar
nógu vel til að geta orðið ágæt
skemmtun fyrir aðdáendur þessara
hljómsveita. ■
AUDIO BULLYS: Ego War