Fréttablaðið - 12.08.2003, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 12.08.2003, Blaðsíða 8
8 12. ágúst 2003 ÞRIÐJUDAGUR FERÐALÖG „Ég hef ekki orðið vör við að ferðamenn í Reykjavík séu að villast mikið,“ sagði Tinna Pét- ursdóttir, starfsmaður hjá Upp- lýsingamiðstöð ferðamanna í Að- alstræti. „En margir kvarta aftur á móti yfir veðrinu hér, það virð- ist koma mörgum í opna skjöldu, og eins heyri ég marga kvarta yfir dýrtíðinni, hvað allt kosti nú mik- ið hérna.“ Dóra Magnúsdóttir, verkefna- stjóri markaðs- og ferðamála hjá Upplýsingamiðstöðinni, tekur í sama streng. „Við höfum ekki fengið mörg erindi þess efnis að ferðafólk hér innan bæjarmarka villist mikið. Auðvitað er talsvert um að ýmis kort séu dregin upp hér og þar í bænum en það er líka einkenni ferðamanna hvar sem er í heiminum. „Héðan úr farfuglaheimilinu er ákaflega auðvelt að komast á alla þá staði sem heilla hvað mest innan borgarmarkanna,“ sagði Markús Einarsson, framkvæmda- stjóri hjá Bandalagi íslenskra far- fugla. „Fyrir mitt leyti eru allar samgöngur og merkingar mjög góðar fyrir það fólk sem gistir hér í Laugardalnum og ég hef ekki heyrt kvartanir þess efnis að hér sé erfitt að rata.“ ■ ERLENT „Ég er nú svo heppinn að vera vanur talsverðum hitum en vissulega er þetta heitara en gengur og gerist,“ sagði Carmel Abdallabadi, arabískur nemi sem búsettur er í Porto í Portúgal, en þar hefur hitinn hangið í 35 stig- um undanfarið. „Það er allt meira og minna skrælnað af þurrki sem er óvenju- legt vegna þess að við erum við Atlantshafið og venjan er að heyra kvartanir yfir miklum rign- ingum en nú er mikið í húfi að það rigni sem allra fyrst.“ Skógareldar á þremur stöðum í Portúgal hafa valdið miklum erf- iðleikum í þessu fátækasta ríki innan Evrópusambandsins. Kostn- aður við björgunarstörf er kom- inn í 950 milljón evrur, um 8,4 milljarða íslenskra króna, og lítið hefur enn gengið að slökkva eldana. Samgöngur hafa farið úr skorðum, fleiri hundruð íbúar hafa misst heimili sín og að minnsta kosti 15 manns hafa látist af völdum eldanna. Hafa portú- gölsk stjórnvöld óskað eftir auk- inni aðstoð frá Evrópusamband- inu vegna þessa og auk þess hafa 800 hermenn verið kallaðir frá friðarstörfum í Bosníu og Austur- Tímor til að aðstoða slökkvilið við að hefta framgang skógareld- anna. Nýjustu spár veðurfræðinga á meginlandi Evrópu eru ekki góðar Mánudaga til Föstudaga Laugardaga kl: 12:00 til 16:00 Opnunartími í sumar: Sími: 514-4407 kl: 13:00 til 18:00 Evrópa skrælnar Bjartsýnustu veðurfræðingar í Evrópu lofa lækkandi hitatölum eftir eina viku í fyrsta lagi. Aðrir búast við áframhaldandi hitum fram í september. Hitarnir eru nú farnir að hafa gífurleg áhrif, meðal annars á fjárhag Portúgala, en barátta þeirra við skógarelda kostar milljarða króna. TROÐFULLAR STRENDUR VALENCIA Sala á vatni og viftum hefur aldrei verið meiri á Spáni. JÓHANNES PÁLL PÁFI Biður fólk að taka undir með sér og biðja fyrir regni. FRÁ DANMÖRKU Steikjandi hiti var þar eins og annars staðar í Evrópu. Ríki sem leyfa maríúana: Stefnt fyrir hæstarétt BANDARÍKIN Kalifornía og önnur ríki sem leyfa notkun marijúana til læknismeðferðar brjóta lög, að sögn háttsetts erindreka innan Bush-stjórnarinnar. Hefur alríkis- stjórnin höfðað mál gegn fimm aðilum sem framleiða hamp, sem marijúana er framleitt úr, í Kali- forníuríki og er vonast til að Hæstiréttur Bandaríkjanna dæmi í eitt skipti fyrir öll í málinu. „Læknar sem mæla með og skrifa upp á marijúanaskammt handa sjúklingum sínum geta al- veg eins skrifað upp á heróín eða LSD,“ sagði lögmaður alríkis- stjórnarinnar, Theodore Olson. ■ HASS Í LÆKNINGASKYNI Nokkrum ríkjum í Bandaríkjunum hefur verið stefnt fyrir að leyfa notkun marijúana í lækningaskyni. Mikill fjöldi ferðamanna í höfuðborginni: Fúlir yfir veðrinu og verðinu HVAR ERU EGILSSTAÐIR? Sífellt fjölgar þeim ferðamönnum sem leita aðstoðar upplýsingamiðstöðva víðs vegar í bænum. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M Foreldrar Elskum börnin okkar. Veist þú hvar barnið þitt er í kvöld? EINHÆF TÓNLIST „Þetta sumar er að verða eins og bekkjarafmæli sem ætlar engan endi að taka og það hlýt- ur að vera bara tímaspursmál hvenær 14 fóstbræður komi saman á ný.“ Guðmundur Andri Thorsson í Fréttablaðinu 11. ágúst. NÁÐI EKKI AÐ BJARGA MÁLUNUM „Þetta var frekar klúðurslegt. Ég sá að hann ætl- aði að gefa fyrir og lagði af stað en svo snerist sendingin og ég náði ekki aftur í tæka tíð til að bjarga málunum.“ Kristján Finnbogason, markvörður KR, í Morgunblaðinu 11. ágúst. Orðrétt

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.