Fréttablaðið - 12.08.2003, Side 10

Fréttablaðið - 12.08.2003, Side 10
Verðum við ekki að skoða alvar-lega hvort ekki sé nauðsynlegt að bæta vegi á Íslandi; lagningu vega, vegamerkingar og öryggi vegfarenda? Og þegar við höfum skoðað þetta alvar- lega ættum við að framkvæma: Bæta vegina og breikka, malbika Kjöl og Sprengisand, fjölga umferðarmerkjum og hvaðeina sem eykur öryggi. Við berum ábyrgð á lífi erlendra ferða- manna sem koma hingað frá löndum þar sem umferðarmál eru í þokka- legu lagi. Við getum því ekki boðið þeim upp á vegakerfi sem er sniðið að þörfum þaulkunnugra. Sú skoðun er merkilega hávær í íslensku samfélagi að tíð umferða- róhöpp erlendra ferðamanna séu fyrst og fremst þessum ferða- mönnum sjálfum að kenna. Þeir kunni ekki að aka í lausamöl, þeir kynni sér ekki nægjanlega vel að- stæður áður en þeir leggja af stað og gæti sín ekki nógu vel. Þetta er dálítið billeg skoðun. Auðvitað hefði sá sem keyrir út af átt að gæta sín betur. Það liggur í hlutar- ins eðli. En íslenskir vegir eru miklu verr merktir, miklu mjórri og með miklu fleiri slysagildrum en svo að nokkur maður geti í raun varað sig á þeim. Allra síst fólk sem er vant því að mjóir malar- vegi seu vel merktir og að það sé varað í tíma við öllum hættum. Með auknum ferðamannastraumi landa á milli verða Íslendingar að laga vegakerfið sitt að því sem tíðkast í nágrannalöndunum. Víðast erlendis eru bílstjórar varaðir við hættum í tíma; þeir eru hvattir til að draga úr hraða, þeim er tilkynnt hversu kröpp beygjan fram undan er, hversu langt fram undan hún er og hversu löng beygj- an sjálf er. Ef ákveðinn kafli er varasamur gilda aðrar hraðatak- markanir á honum en þjóðvegum almennt. Íslenska vegakerfið miðar hins vegar við þá sem keyra vegina daglega og þekkja þá eins og lófann á sér; bæði við bestu aðstæður og eins þær verstu. Þeir sem ekki eru aldir upp á viðkomandi vegarspotta geta síðan sjálfum sér um kennt að vera að þvælast eftir þeim. Íslenska vegakerfið ber vott um undarleg mein í þjóðarsál Ís- lendinga; annars vegar að við eig- um í raun ekkert gott skilið og hins vegar ótti við framsýni. Við eigum ekki að laga okkur að vondu vegakerfi heldur eigum við að leggja vegi sem mæta þörfum okkar – og gesta okkar – næstu áratugina. Í hvert sinn sem vegur er bættur eykst umferðin. Það er því kominn tími á hraðbraut frá Reykjavík til Akureyrar og veg sem er líkur núverandi vegi norð- ur ætti að leggja yfir Kjöl. ■ Meint verðsamráð olíufélag-anna á Íslandi er eins og barnaleikur í samanburði við hið formlega samráð um heimsmark- aðsverð á olíu sem fram fer innan OPEC. En aðalmunurinn er sá að á Íslandi er verðsamráð bannað með lögum meðan á heimsmark- aðnum gilda aðeins lögmál hins sterka: Þar er leyfilegt að gera það sem menn komast upp með að gera, eins og dæmin sanna. Áhugi á Mið-Austurlöndum Margir telja að heimsmarkaðs- verð á olíu mundi lækka úr 32 dollurum á tunnu niður í milli 10 og 12 dollara ef venjuleg mark- aðslögmál giltu á þessum markaði í staðinn fyrir verðsamráðið í OPEC (Samtökum olíuútflutnings- ríkja). Það er ekki að ástæðulausu sem Bandaríki Norður-Ameríku láta sig málefni Mið-Austurlanda miklu varða. Í þeim heimshluta eru tveir þriðju hlutar af þeim olíulindum jarðarinnar sem um er vitað og um það bil 40% af öllu jarðgasi í heiminum. „Óskynsamlegt að loka augunum...“ Þrátt fyrir þetta heldur Morti- mer B. Zuckerman, aðalritstjóri U.S. News, því blákalt fram í leið- ara að olíuhagsmunir hafi ekki ráðið ferðinni þegar Bandaríkja- menn gerðu innrás í Írak – ekki frekar en gróðasjónarmið hafi ráðið ferðinni þegar ráðist var inn í hið fátæka og olíulausa Afganistan. Zuckerman viður- kennir þó að varðandi Írak væri óskynsamlegt af Bandaríkja- mönnum „að loka augunum fyrir hagsmunum okkar“. Bandaríkjamenn flytja inn 55% af þeirri olíu sem þeir þurfa á að halda. Zuckerman bendir á að varlegt sé að treysta á hina spilltu harðstjóra sem í augnablikinu ráða ríkjum í Sádí-Arabíu, þar sem 10 þúsund prinsar og prinsessur sólunda þjóðarauðn- um. Enda telja Bandaríkjamenn að margt bendi til þess að stjórnin þar sé ekki eins saklaus af því að bera einhverja ábyrgð á hryðju- verkunum 11. september og hún vill vera láta. Framtíðarauður Írak á framtíðina fyrir sér sem olíuframleiðsluland. Í svipinn gæti landsframleiðslan þar verið um 3 milljónir tunna á dag. Með því að fjárfesta um það bil 40 milljarða dollara í framleiðslunni gæti magnið verið komið upp í um 6 milljónir tunna á dag innan 5 ára, og eftir 10 ár gæti Írak verið orðið helsta olíuframleiðsluríki heimsins og gefið af sér 10 til 12 milljón tunnur á dag. Enginn veit hversu mikla olíu gæti verið að finna í Írak. Enn er eftir að rann- saka um 90% landsins. Engar nýjar olíustöðvar hafa verið reist- ar síðustu 20 árin. En margt bend- ir til þess að ófundnar olíulindir þar geti gefið af sér um 200 millj- arða tunna af hágæða olíu með lágmarkstilkostnaði. Blóð og peningar Það er því ekki að furða að Zuckerman skuli komast að þeirri niðurstöðu í leiðara sínum að óvarlegt sé fyrir Bandaríkjamenn að blanda erlendum olíufélögum í málið. „Við höfum eytt of miklu blóði og peningum þarna... ...við ættum að halda fast við að stýra hinni mikilvægu efnahags- og stjórnmálaþróun varðandi Írak,“ segir Zuckerman – en vill þó engu að síður meina að olíuhagsmunir hafi ekki ráðið því að Bandaríkja- menn lögðu landið undir sig. ■ Úti í heimi ■ U.S. News telur innrásina í Írak gerða af mannúðarástæðum. Mín skoðun GUNNAR SMÁRI EGILSSON ■ skrifar um íslenska þjóðvegi. 10 12. ágúst 2003 ÞRIÐJUDAGUR Útgáfufélag: Frétt ehf. Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson Ritstjórnarfulltrúar: Reynir Traustason og Steinunn Stefánsdóttir Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Suðurgötu 10, 101 Reykjavík Aðalsími: 515 75 00 Símbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is Rafpóstur auglýsingadeildar: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Frétt ehf. Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf. Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð- borgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á lands- byggðinni. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 Ég er heppinn ungur maður. Éghef eins og flestir aðrir Íslend- ingar alist upp við allsnægtir. Mig hefur aldrei skort vatn, mat eða húsaskjól og fjölskylda mín hefur ávallt verið til staðar fyrir mig. Ég hef, án endurgjalds, getað fengið þá menntun sem ég vildi hljóta og ég hef ætíð getað leitað læknis án þess að þurfa að fórna til þess nein- um öðrum gæðum. Mér skilst að í samanburði við 75% jarðarbúa megi segja að ég hafi fæðst í þak- íbúð heimsins með silfurskeið í munni. Ég hef aldrei þurft að þola hörmungar stríðs, hungurs eða kúgunar. Ég hef ekki verið pyntað- ur eða settur í fangelsi vegna skoð- ana minna. Þessu er ég feginn og mér finnst í alvöru sárt að horfa upp á hlutskipti ýmissa síður lán- samra bræðra minna í fjarlægum löndum. Vídeókynslóðin Ef ég á að vera alveg hreinskil- inn verð ég að viðurkenna að ég á mjög erfitt með að setja mig í spor þess fólks sem mænir á mig af sjónvarpsskjánum og blaðaljós- myndum. Þetta er fjarlægur veru- leiki fyrir mig sem er að reyna að ákveða hvort ég eigi að fara á línu- skauta eða taka spólu. Ég er af vídeókynslóðinni. Ég hafði ekkert Víetnamstríð til að berjast gegn. Tilraunir mínar til að gerast komm- únisti runnu út í sandinn með Glasnost og Perestroiku. Það var enginn Hitler eða Stalín fyrir okkar kynslóð að sameinast gegn, Mand- ela eða Havel til að frelsa. Þetta var allt búið þegar ég komst loks til vits og ára. Vondu karlarnir sem eftir voru réðu ríkjum í löndum sem voru of fjarlæg til að snerta okkur. Vondu karlarnir í okkar heimshluta virtust hafa horfið af sjónarsvið- inu. Eða hvað? Í aðalhlutverki eru... Ég hélt áfram að horfa á sjón- varpið. Ég viðurkenni fúslega að þetta efni, sem mestallt er fram- leitt í Bandaríkjunum, er uppistað- an í þekkingu minni á því hvernig heimurinn virkar, hvað er rétt og hvað rangt og hverjir eru vondir og hverjir góðir. Öll réttardraman, lögguþættirnir, stríðsmyndirnar – í þeim hef ég orðið mér úti um þá litlu réttlætiskennd sem ég bý þó yfir. Þetta allt væri kannski ekki í frásögur færandi nema vegna þess að þessi fyrrnefnda bíóréttlætis- kennd mín bærði á sér um daginn meðan ég var að horfa á kvöldfrétt- irnar. Eitthvað var ekki eins og það átti að vera. Fyrst var það frétt um að frið- samir mótmælendur hefðu verið fjarlægðir af lögreglu á Austurvelli af því að henni fannst þeir ekki eiga heima þarna. „Hmm“, hugsaði ég. „Julia Roberts og Brad Pitt myndu leika mótmælendurna og Geir Jón, yfirlögregluþjónn, yrði leikinn af Gary Oldman.“ Næst var það frétt um „Frelsun Íraks“ þar sem hinir frelsuðu Írakar voru komnir í skæruliðastríð gegn setuliði Bandaríkjanna. Aftur „hmm“ og ég hugsaði með mér: „Myndi Mel Gib- son ekki leika einn af skæruliðun- um ef þetta væri stórmynd sumars- ins? Og myndu þeir ekki fá ein- hvern breskan leikara til að leika landstjóra nýlenduherranna Bandaríkjamanna? Svona upp á rétta illskuhreiminn?“ Af hverju er enginn að tala um þetta? Undir lok fréttatímans voru svo sýndar myndir frá herstöð Banda- ríkjanna í Guantanamoflóa á Kúbu þar sem fangar frá Afganistan eru geymdir hlekkjaðir í búrum með hauspoka allt niður í 13 ára gamlir. Þeir verða ekki dæmdir í dómsöl- unum sem ég þekki svo vel úr „Law & Order“ og „Matlock“. Ríkisstjórn Bush vill ekki taka sénsinn á að veita þeim slíka lagavernd. Þetta fólk á að dæma í herrétti og svo jafnvel taka af lífi í dauðaklefa sem verið er að byggja samkvæmt fréttinni. Nú var ég alveg viss um að þetta væri eitthvað öfugsnúið. Ef þetta væri bíómynd væri engin spurning hverjir væru góðir og hverjir vondir. Hverjir eru vondu kallarnir? Í u.þ.b. hálfa mínútu var ég til- búinn í að gera allt! Í eitt augnablik þyrmdi yfir mig alls kyns hugsun- um. Er þetta ekki mín ríkisstjórn sem á hlut að öllum þessum aðgerð- um? Rámar mig ekki í að þessi sama ríkisstjórn hafi sett hug- leiðsluhópinn Falun Gong, kúgaðan af Kínverjum, í varðhald í grunn- skóla á Suðurnesjum í fyrra? Ég velti því fyrir mér hvort við Íslend- ingar værum ekki lengur góðu karlarnir. Erum það við sem erum vondu karlarnir? Ég klóraði mér í kollinum smá stund en rölti svo út á leigu og valdi mér spólu. ■ Um daginnog veginn ANDRÉS JÓNSSON ■ formaður ungra jafn- aðarmanna veltir fyrir sér hverjir eru góðir og hverjir vondir. ■ AF NETINU Um lögmál hins sterka Við eigum betri vegi skilið ■ Íslenska vega- kerfið ber vott um undarleg mein í þjóðar- sál Íslendinga; annars vegar að við eigum í raun ekkert gott skilið og hins vegar ótti við framsýni. Horft í gegnum heimilislausa „Það er dapurlegt um að litast á Austurvelli þessar vikurnar. Fyrir utan einstaka túrista sem virðir fyrir sér skemmdarverk íslenskra ungmenna á hinni stórmerku ljós- myndasýningu sem nú stendur yfir kúra rónar á bekkjum og und- ir runnum. Það er varla hægt að gæða sér á ís í rólegheitum með börnunum þegar á næsta bekk liggur hjálparlaus og útúrdrukk- inn maður. Búin að missa frá sér þvag og liggur í eigin uppköstum og getur sig ekki hreyft. Einhvern- veginn fer mesti ljóminn af sunnudagsgöngutúr fjölskyldunn- ar við slíka sjón. Hversu hégóm- legt sem það kann að hljóma þá er gott að fegurðarskyni borgar- anna sé misboðið. Það er senni- lega gott merki. Það segir það eitt að við erum ekki orðin vön þessu. Víðast í stórborgum er- lendis hættir fólk að taka eftir þessu lánlausa fólki og horfir í hina áttina eða hreinlega í gegn- um hina heimilislausu.“ ANNA SIGRÚN BALDURSDÓTTIR Á KREML.IS UM ÚTIGANGSFÓLK Í REYKJAVÍK. Skemmdarfýsn ungs fólks „Með ólíkindum er, að ekki skuli unnt að sýna hér á Austurvelli í hjarta Reykjavíkur hinar ein- stæðu ljósmyndir franska loft- myndatökumannsins vegna skemmdarfýsnar ungs fólks. Var sagt frá þessu í fréttum [...] og jafnframt skýrt frá því, að erlend- ir ábyrgðarmenn sýningarinnar væru að velta fyrir sér að taka hana niður, fyrr en ætlað er vegna þessa. Þeir hefðu aldrei áður kynnst slíkri framgöngu við lista- verkin, sem hafa verið sýnd víða um lönd.“ BJÖRN BJARNASON Á HEIMASÍÐU SINNI, BJORN.IS, UM SKEMMDARVERK Á ÚTISÝNINGU Á AUSTURVELLI. Erum við vondu kallarnir? Dæmi um verð: Áður Nú Kaðlapeysa 6900.- 1.900.- + ein frí Tunika 4100.- 1.200.- + ein frí Hörjakki 5.200.- 900.- + ein frí Hörpils 5.500.- 900.- + ein frí Sumarkjóll 4.900.- 1.100.- + ein frí Buxur 4.400.- 900.- ÚTSALA - ÚTSALA 70-90% afsláttur Síðumúla 13, 108 Reykjavík, sími 568 2870 Opið frá kl. 10-18

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.