Fréttablaðið - 13.09.2003, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 13.09.2003, Blaðsíða 1
íslenskur her út í hött Haraldur Páll Sigurðsson: ▲ SÍÐA 18 Barðist í Ródesíu berst við shane mosley í kvöld Oscar de la Hoya: ▲ SÍÐA 30 Hættir ef hann tapar og er afmælisbarn dagsins í dag Andrea Gylfadóttir: ▲ SÍÐA 12 Varð fertug í fyrra lést í gærmorgun Johnny Cash: ▲ SÍÐA 32 Kántríkóngurinn allur MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500 Tónlist 34 Leikhús 34 Myndlist 34 Íþróttir 30 Sjónvarp 36 LAUGARDAGUR GAF SIG FRAM VIÐ LÖGREGLU Kosta Seferi, al- banskur flóttamað- ur sem sótti um hæli hér á landi fyrir mánuði, gaf sig fram við lög- reglu síðdegis í gær. Maðurinn kom hingað með fjölskyldu sinni, konu og tveimur börnum, með Norrænu í júlí. Sjá síðu 2. KAUPA DANSKT MATVÆLAFYR- IRTÆKI Larsen Group, sem er félag í eigu Sindra Sindrasonar, fyrrverandi for- stjóra Pharmaco, Eiríks Sigurðssonar sem átti 10-11 búðirnar og Sighvatar Bjarnason- ar, fyrrverandi forstjóra Vinnslustöðvarinnar, hefur fest kaup á danska matvæla- og sjáv- arafurðafyrirtækinu Larsen. Sjá síðu 2. LAUN SJÓMANNA LÆKKA Laun sjómanna á tveimur togurum HB hafa lækk- að um fjórðung frá áramótum. Verðlækkanir og sterkari króna spila saman við úrskurð um að skiptaverð fyrir hluta afla ráðist ekki lengur af markaðsverði. Sjá síðu 4. ÚTÚRSNÚNINGAR HJÁ RÁÐ- HERRA Formaður Vélstjórafélags Íslands segir það útúrsnúninga og vesaldóm hjá samgönguráðherra að segja gagnrýni sína á siglingastjóra ómálefnalega. Vill mæta Sturlu opinberlega. Sjá síðu 8. LANDSLEIKUR Í LAUGARDAL Íslendingar leika gegn Pólverjum í dag í undankeppni EM kvennalandsliða. Leik- urinn verður á Laugardalsvelli og hefst klukkan 16. Einnig verður lokaumferðin leikin í 1. deild karla í knattspyrnu. Þá ræðst hvort Víkingur eða Þór á Akureyri fylgir Keflavík upp í Landsbankadeildina. DAGURINN Í DAG VEÐRIÐ Í DAG ÁFRAM RIGNING Í borginni og sunn- an til á landinu verður áfram rigning. Úr- komuminna verður annars staðar. Vindur skaplegur. Sjá síðu 6. Innheimti 178 milljónir ólöglega Reykjanesbær hefur innheimt 178 milljónir króna í ólöglegt fráveitugjald. Gjaldið er til upp- byggingar á fráveitukerfi. Bæjarstjórinn segir erfitt að fá stöðugt mismunandi úrskurði í málinu. STJÓRNSÝSLA Reykjanesbæ er óheimilt að leggja á sérstakt frá- veitugjald samkvæmt niðurstöðu Úrskurðarnefndar um hollustu- hætti og mengunarvarnir. Hugsanlegt er að Reykjanes- bær þurfi að e n d u r g r e i ð a álagt fráveitu- gjald fjögur ár aftur í tímann. Eldri greiðslur eru fyrndar. Endurgreiðslan myndi nema um 120 milljónum króna. Bærinn gæti til dæmis brúað bilið með því að hækka hið eiginlega og löglega holræsagjald. Árni Sigfússon bæjarstjóri seg- ir hins vegar óvíst hver viðbrögð bæjarins verða. „Það er erfitt að vera í því hlutverki að fá stöðugt úrskurði sem stangast á. En við munum að sjálfsögðu fara yfir þetta og tryggja að hér sé farið að lögum,“ segir bæjarstjórinn. Sigurjón Kjartansson, íbúi í Reykjanesbæ, kærði fráveitu- gjaldið til úrskurðarnefndarinnar í nóvember 2000. Nefndin taldi þá að bænum væri heimilt að inn- heimta gjaldið. Sigurjón leitaði til Umboðsmanns Alþingis sem sagði gjaldið ólöglegt. Sigurjón óskaði þá eftir að úrskurðarnefndin tæki málið fyrir aftur og hefur nefndin nú úrskurðað að fráveitugjaldið sé ólöglegt. Reykjanesbær hefur frá árinu 1997 innheimt 6 þúsund króna árlegt gjald af öllum fast- eignum vegna kostnaðar við hönn- un og byggingu útrása og dælu- og hreinsistöðva. Sigurjón Kjartans- son taldi gjaldið ekki vera þjón- ustugjald heldur skattheimtu sem Reykjanesbær hefði engar heim- ildir fyrir. Bærinn ætti að nota venjubundnar skatttekjur í upp- byggingu skólphreinsunarkerfis- ins. Frá árinu 1997 hafa verið inn- heimtar 178 milljónir króna í frá- veitugjöld í Reykjanesbæ. Heild- arframkvæmdum er ólokið. Um síðustu mánaðarmót stóð kostnað- urinn í 496 milljónum. Reykjanesbær sagði gjaldið mundu verða fellt niður þegar stofnkostnaður væri að fullu greiddur: „Frá þeim tíma þegar rekstur hefst er gert ráð fyrir að rekstrar- kostnaður verði greiddur af álögðu holræsagjaldi,“ sagði bærinn í svari til úrskurðarnefndar. Að sögn úrskurðarnefndar er ákvæði í lögum um tekjustofna sveitarfélaga skýrt hvað varðar setningu gjaldskráa. Gjald megi aldrei vera hærra en sem nemur kostnaði við veitta þjónustu: „Gjaldtaka af því tagi sem tengist í engu veittri þjónustu fær því ekki stoð í ákvæðinu.“ gar@frettabladid.is AP /M YN D 13. september 2003 – 220. tölublað – 3. árgangur SYRGJA LINDH Tár blikuðu á hvörmum þeirra þúsunda manna sem tóku þátt í friðargöngu sem haldin var í Stokkhólmi í gær í minningu Önnu Lindh, utanríkisráðherra Svíþjóðar. Stuðmenn í Danmörku: Upptökur í Tívolí KAUPMANNAHÖFN Stuðmenn eru komnir til Kaupmannahafnar þar sem tekin verða upp atriði í nýja kvikmynd, Í takt við tímann. Eins og í Með allt á hreinu leik- stýrir Ágúst Guðmundsson. Í gær voru leikarar og leikstjóri að und- irbúa tökur í Tívolíinu. Um 600 manns komu gagngert frá Íslandi til Kaupmannahafnar til að mæta á tónleika Stuðmanna í Tívolíinu. ■ „Gjaldtaka sem tengist í engu veittri þjónustu fær því ekki stoð. SVÍÞJÓÐ, AP Þúsundir tóku þátt í frið- argöngum sem haldnar voru í Gautaborg og Stokkhólmi í gær til minningar um Önnu Lindh, utanrík- isráðherra Svíþjóðar, sem var myrt í fyrradag. Göran Persson forsætisráðherra fór fyrir friðargöngu í Stokkhólmi sem lauk með samkomu á Sergels- torgi. Þar þakkaði Persson viðstöddum fyrir að hafa tekið afstöðu með lýð- ræðinu gegn ofbeldinu og sagði að með þáttöku í kosningum til Evruað- ildar á sunnudag heiðruðu Svíar á vissan hátt minningu Lindh. Á samkomunni á Sergelstorgi flutti Eva Dahlgren nokkur lög í minningu Önnu Lindh. Samkomunni var sjónvarpað beint um öll Norður- löndin og víða um Evrópu. Í fyrrakvöld komu rúmlega 1.000 manns saman í tveimur stærstu kirkjum Svíþjóðar til að minnast Önnu Lindh. Ráðherrar voru við- staddir samkomurnar. Um gervalla Svíþjóð voru í gærkvöld fyrirhugað- ar bænastundir og friðarsamkomur í minningu Önnu Lindh. nánar bls.2 Fjölmenn friðarganga í Stokkhólmi í gær: Þúsundir minntust Önnu Lindh debenhams S M Á R A L I N D Herranærbuxur og -sokkar 3 fyrir 2 gildir frá fimmtudegi til sunnudags. Davíð Oddsson: Hættir eftir eitt ár Poppdrottningin Madonna gefur út barnabók á mánudaginn. Madonna: ▲ SÍÐA 19 Gefur út barnabók ▲ Davíð Oddsson lætur af embætti forsætisráðherra eftir eitt ár. Hvað einkennir Davíð og störf hans? SÍÐUR 14 og 15 STUÐMENN MÆTTIR Jakob Frímann Magnússon og Egill Ólafs- son að freista inngöngu í Tívolí.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.