Fréttablaðið - 13.09.2003, Side 6
6 13. september 2003 LAUGARDAGUR
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 79,25 -0,23%
Sterlingspund 126,21 -0,34%
Dönsk króna 11,9 -0,87%
Evra 88,39 -0,83%
Gengisvístala krónu 125,84 -0,06%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 402
Velta 4.649 milljónir
ICEX-15 1.801 0,84%
Mestu viðskiptin
Íslandsbanki hf. 878.142.094
Eimskipafélag Íslands hf. 371.464.757
Kaupþing Búnaðarb. hf. 303.620.336
Mesta hækkun
Landsbanki Íslands hf. 2,97%
Sjóvá-Almennar tryggingar hf. 2,56%
Kaupþing Búnaðarbanki hf. 0,23%
Mesta lækkun
Vátryggingafélag Íslands hf. -3,23%
Samherji hf. -2,55%
Síldarvinnslan hf. -2,44%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ* 9.405,6 -0,6%
Nasdaq* 1.831,3 -0,8%
FTSE 4.237,8 -0,1%
DAX 3.495,2 -2,0%
NK50 1.401,1 0,2%
S&P* 1.012,1 -0,4%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
Veistusvarið?
1Hvað heitir utanríkisráðherra Svíasem myrt var í vikunni?
2Hvaða erlendur forsætisráðherra héltþví fram á fimmtudaginn að Benito
Mussolini hefði ekki drepið neinn?
3Hvað heitir núverandi DragdrottningÍslands?
Svörin eru á bls. 38
HVALVEIÐAR „Ríkin sem undirrituðu
mótmælin eru öll innan Alþjóða-
hvalveiðiráðsins,“ sagði Stefán
Ásmundsson úr sjávarútvegs-
ráðuneytinu um mótmælabréf
það við hvalveiðum sem 23 ríki
skrifuðu undir og afhentu íslensk-
um stjórvöldum.
„Belgar eru reyndar nýkomnir
þar inn og Kenýa hefur ekki at-
kvæðisrétt innan ráðsins en að
öðru leyti eru þetta sömu ríki og
hafa áður lagt fram mótmæli.“
Stefán segir það misskilning að
bréfið sem afhent var hafi verið
harðort. „Það varð ekki lesið að
mótmælin hafi verið sérstaklega
harðorð. Fyrst og fremst eru ríkin
23 andsnúin vísindaveiðunum og
harðar er ekki komist að orði.
Þess er óskað að Íslendingar hætti
þessum veiðum og dregið í efa að
vísindarannsóknir sem þessar séu
nauðsynlegar. Þetta hefur allt
komið fram áður á fundum með
Alþjóðahvalveiðiráðinu og við
erum einfaldlega ósammála þess-
ari gagnrýni.“ ■
Sólarhringsvaktir
ekki óalgengar
Formaður félags ungra lækna segir málssókn gegn Landspítala – Háskólasjúkrahúsi
vera í undirbúningi. Unglæknarnir krefjast þess að njóta sömu réttinda og
aðrir hópar þjóðfélagsins hafa um lágmarkshvíld.
HEILBRIGÐISMÁL „Við erum að
sækja rétt okkar samkvæmt lög-
unum,“ sagði Oddur Steinarsson,
formaður ungra lækna, en þeir
hyggjast lögsækja Landspítala –
Háskólasjúkrahús vegna brota á
lögum um lágmarkshvíld.
„Málsóknin er tvíþætt. Annars
vegar er tekið á lögunum um lág-
markshvíld, sem gilda um allar
aðrar stéttir í landinu en okkur, og
eins er ekki sátt um túlkun á
kjarasamningum.“
Oddur segir ekki óalgengt að
ungir læknar séu á sólarhrings-
vöktum. „Það eru dæmi þess að
læknar starfi allt að 26 tíma á sól-
arhring. Það fer eftir því á hvaða
deild viðkomandi læknir starfar
hvort hann fær einhverja hvíld á
þeim tíma. Sumir fá það, aðrir
ekki, og á mörgum stöðum eru
einfaldlega ekki neinar aðstæður
til að hvíla sig. Þar kemur að þess-
ari túlkun á kjarasamningum sem
við viljum skoða betur. Það er
engum manni boðlegt að vinna
erfitt starf heilan sólarhring án
þess að hafa aðstöðu til að setjast
niður og hvíla lúin bein.“
Málsókninni er beint að Land-
spítala – Háskólasjúkrahúsi en
Oddur segir að brotið sé gegn
ungum læknum á fleiri stöðum.
„Við lítum á þennan vinnustað
sem prófstein. Ef málið gengur
okkur í hag verður næsta skref að
skoða aðra staði.“
Jóhannes M. Gunnarsson,
lækningaforstjóri Landspítala –
Háskólasjúkrahúss, segir að
gangi kröfur unglækna eftir þýði
það mikla uppstokkun innan spít-
alanna. „Það þyrfti að hliðra mik-
ið til innanhúss og að líkindum
bæta við fjölda nýrra starfs-
manna. Þetta mál hefur vafist fyr-
ir okkur lengi en það hefur ávallt
strandað á því að engin lausn hef-
ur fundist sem allir geta sætt sig
við.“
Jóhannes sagði að reynsla
Dana af styttum vinnutíma að-
stoðarlækna væri ekki góð. „Það
hefur slæm áhrif á allt nám ungu
læknanna. Hugmyndin hingað til
hefur verið sú að mesta reynslan
gefist þegar einn og sami læknir-
inn fær sem mestan tíma með sín-
um sjúklingum. Það sem gerist ef
þetta gengur eftir er að læknirinn
missir öll tengsl við sjúklinginn.
Einn og sami sjúklingur gæti því
átt von á að þrír mismunandi
læknar sinntu honum hvern dag.“
albert@frettabladid.is
HVALVEIÐAR
Öll ríkin sem skrifuðu undir
áskorun til stjórnvalda um að
hætta veiðunum hafa áður
lagt fram svipuð mótmæli.
Áskorun ríkjanna 23 um að Ísland hætti hvalveiðum:
Allt komið fram áður
LANDSPÍTALI – HÁSKÓLASJÚKRAHÚS
Ungir læknar eru ósáttir við langan vinnudag á spítalanum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Úrvalsvísi-
talan hækkar
VIÐSKIPTI Úrvalsvísitala Kauphall-
ar Íslands rauf 1.800 stiga múrinn
í gær. Vísitalan hækkaði um
0,84% en hún hækkaði mikið í vik-
unni. Mikil hækkun vísitölunnar
var í ágústmánuði og síðustu vik-
una hækkaði hún um 3,5%. Vísi-
talan hefur hækkað um rúm 33%
frá áramótum. ■