Fréttablaðið - 13.09.2003, Blaðsíða 12
12 13. september 2003 LAUGARDAGUR
■ Andlát
■ Afmæli
Lúðvík J. Kr. Magnússon, frá Bæ í Reyk-
hólasveit, lést þriðjudaginn 2. septem-
ber. Útför hans fór fram í kyrrþey.
Vallaður Pálsson, Dvergabakka 30,
Reykjavík, lést fimmtudaginn 11. sept-
ember.
Þorbjörg Valdimarsdóttir, Selfossi, lést
miðvikudaginn 10. september.
Eiríkur Elisson, Bláskógum 8, Egilsstöð-
um, lést miðvikudaginn 10. september.
Kristinn Hansen, Santa Fe, Nýju
Mexíkó, er látinn.
13.30 Jóhanna Guðmundsdóttir frá
Hurðarbaki, Birkivöllum 10, Sel-
fossi, verður jarðsungin frá Sel-
fosskirkju.
14.00 Eggert Thorberg Guðmundsson
frá Melum, Háeyrarvöllum 28,
Eyrarbakka, verður jarðsunginn frá
Eyrarbakkakirkju.
14.00 Svanhvít Magnúsdóttir frá
Brennistöðum, Útgarði 6, Egils-
stöðum, verður jarðsungin frá Eg-
ilsstaðakirkju.
14.00 Óskar Ingi Magnússon, bóndi,
Brekku, Skagafirði, verður jarð-
sunginn frá Sauðárkrókskirkju.
14.00 Sigrún Lúðvíksdóttir, Fífilgötu 10,
Vestmannaeyjum, verður jarð-
sungin frá Landakirkju.
14.00 Soffía Vilhjálmsdóttir, Skeggja-
götu 12, Reykjavík, verður jarð-
sungin frá Oddakirkju á Rangár-
völlum.
14.00 Gísli Ketilsson, Hellissandi, verður
jarðsunginn frá Ingjaldshólskirkju.
■ Jarðarfarir
Jón Þórarinsson tónskáld er 86 ára.
Jón Ásgeir Sigurðsson fréttamaður er
61 árs.
Herluf Clausen athafnamaður er 59
ára.
Arvid Kro, bóndi á Lómatjörn, er 51 árs.
Percy B. Stefánsson skrifstofumaður er
56 ára.
Valgerður Guðnadóttir söngkona er 27
ára.
GUÐMUNDUR HALLDÓRSSON
Heldur fund um helgina.
??? Hver?
„Fyrrum skipstjóri í Bolungarvík. Er kom-
inn á eftirlaun en ræ einn á trillu.“
??? Hvar?
„Heima í Bolungarvík.“
??? Hvaðan?
„Ég er fæddur og uppalinn Ísfirðingur
en hef búið í Bolungarvík í 40 ár.“
??? Hvað?
„Þegar kvótakerfið var sett á í upphafi
áttu byggðirnar stjórnarskrárvarin rétt-
indi á veiðunum en löggjafinn lögver
aðeins útgerðarmanninn. Þannig tekur
hann af byggðunum og færir útgerðar-
manninum. Útgerðarmaðurinn getur
hagrætt í sínum rekstri á kostnað fólks-
ins en vegna þess að Alþingi lögvarði
útgerðarmanninn ber Alþingi að rétta af
þegar fer að halla á byggðirnar. Baráttan
stendur um að viðurkenndur sé réttur
byggðarinnar til að fá að nýta nálæg
fiskmið eins og við getum með vistvæn-
um veiðarfærum.“
??? Hvernig?
„Við þrýstum á með þessum fundi að
staðið verði við gefin loforð.“
??? Hvers vegna?
„Þetta er komið í gegnum báða
stjórnarflokkana er í stjórnarsáttmála
og þess vegna segjum við orð skulu
standa. Davíð Oddsson lofaði þessu á
frægum fundi á Ísafirði. Hans eigin
orð. Allir sem koma á fundinn ganga
undir borða með hans eigin orðum.
Því miður hefur Davíð ekki svarað
boði okkar um að koma á fundinn en
það hefði verið gaman að sjá hann
ganga undir borðann.“
??? Hvenær?
„Í íþróttahúsinu á Ísafirði á morgun
kl. 14. Við höfum áður haldið fund
vegna svipaðs máls sem var stærsti
fundur sem haldinn hefur verið á
Vestfjörðum og reiknum með miklum
fjölda á fundinn.“
■ Persónan
Ég hef ekki hugleitt neitt hvaðég geri en það er aldrei að vita
nema ég borði góðan mat,“ segir
Andrea Gylfadóttir söngkona,
sem er 41 árs í dag. Hún segir eig-
inmann sinn, Einar Rúnarsson
sviðsstjóra, vera að störfum í
Borgarleikhúsinu og því viti hún
ekki enn með hverjum hún hugs-
anlega fari út, ef af því verði.
Andrea hélt vel upp á daginn
fyrir ári síðan þegar hún varð
fertug. Þá komu til hennar um
sjötíu gestir og skemmtu sér hið
besta. „Veislan var í Viðey og þar
grilluðum við pylsur og sitthvað
gott og það var mjög gaman,“
segir hún og bætir við að mikið
hafi verið sungið og spilað enda
gott veður. Hún segir að í gegn-
um tíðina hafi hún gert sér daga-
mun þennan dag en það hafi oft-
ast spilast eftir eyranu hverju
sinni en ekki endilega verið
ákveðið.
Andrea er mikið fyrir róleg-
heit og finnst best af öllu að draga
sig í hlé þegar hún eigi frí og fara
eitthvað í sumarbústað og hafa
það náðugt. „Ég hef líka gaman af
að lesa og hlusta á tónlist og á trú-
lega disk við hvert tækifæri. Allt
eftir því hvað á við hverju sinni. Á
náttborðinu er ég alltaf með
nokkrar bækur og gríp niður í
einhverri þeirra. Sumar bækur
les ég á hinn bóginn í einum rykk
og sleppi þeim ekki fyrr en ég hef
klárað,“ segir hún.
Í haust eru fyrirhugaðir tón-
leikar Todmobile með Sinfóníu-
hljómsveitinni og segir Andrea
nóg að gera að undirbúa þá. „Það
er ekkert smá verk að útsetja
fyrir öll þau hljóðfæri sem fylgja
fjölmennri sinfóníuhljómsveit.
En þetta er ógurlega gaman og að
öllum líkindum verður frumflutt
nýtt lag á þessum tónleikum,“
segir Andrea Gylfadóttir. ■
ROALD DAHL
Rithöfundurinn Roald Dahl fæddist árið
1916 en lést 1990. Frægust verka hans
er auðvitað barnabókin Kalli og sælgæt-
isgerðin sem börn á Íslandi þekkja mjög
vel, sem og börn úti um allan heim. Tim
Burton ætlar að kvikmynda söguna á
næstunni en hann er þekktur fyrir
myndir á borð við Batman, Beetlejuice,
Apaplánetuna og Sleepy Hollow.
13. september
1663 Fyrsta alvarlega þrælauppreisn-
in í Bandaríkjunum hófst á
þessum degi í Virginíu-fylki.
1971 Fjöldamorð í Attica-fangelsinu.
1789 Bandaríkin tóku sitt fyrsta lán.
1963 My Boyfriend’s Back með The
Angels var á toppi bandaríska
listans.
1969 John Lennon og Yoko Ono
kynntu Plastic Ono Band á tón-
leikum. Eric Clapton spilaði á
gítar.
1996 Tupac Shakur dó, 6 dögum eftir
að hann var skotinn 6 sinnum.
1998 Mel B og Jimmy Gulzarof giftu sig.
1998 Bandaríski stjórnmálamaðurin
George Wallace deyr.
■ Þetta gerðist
Vonir um frið í Palestínu og Ísr-ael eru frekar daufar í dag og
nýjustu fréttir herma að Ísraelar
vilji vísa Yasser Arafat úr landi. En
á þessum degi fyrir 20 árum hittust
forsætisráðherra Ísraels, Yitzhak
Rabin, og PLO-leiðtoginn Yasser
Arafat í Hvíta húsinu og tókust svo
í hendur upp á nýtt friðarsam-
komulag fyrir utan húsið og heim-
urinn fagnaði.
Samkomulagið þá hljómaði á þá
leið að Ísraelar myndu fara af
Gaza-svæðinu og Vesturbakkanum
með heri sína í apríl 1994 og kosn-
ingar yrðu svo haldnar á svæðinu
fljótlega eftir það en öllu þessu átti
svo að vera lokið með friði og sjálf-
stæði fyrir febrúar 1999.
Þetta samkomulag varð að veru-
leika eftir fundi deiluaðila í Noregi
fyrr um árið og sá fundur er stund-
um kallaður Oslóarsamkomulagið
en þar var einmitt aðalsamning-
maður Palestínumanna maður að
nafni Ahmed Qureia, arftaki
Mahmouds Abbas.
En þegar leiðtogarnir tveir tók-
ust í hendur fyrir framan Hvíta
húsið var það Bill Clinton sem
stjórnaði athöfninni fyrir framan
boðsgesti. Við hlið þeirra stóðu
Jimmy Carter og George Bush
eldri. Í ræðu sinni sagði Clinton að
friður biði þeirra hugrökku handan
við hornið. ■
ARAFAT OG RABIN
Tókust í hendur upp á Oslóarsamkomu-
lagið svokallaða á þessum degi fyrir 10
árum.
RABIN OG ARAFAT
■ tóku í hönd hvers annars á þessum
degi fyrir framan Hvíta húsið fyrir 10
árum. Átti það að marka upphaf friðar-
ferlis en svo fór sem fór.
13. september
1993
Friðarsáttmáli Ísraels og Palestínu
Varð fertug í fyrra
Afmæli
ANDREA GYLFADÓTTIR
■ hélt upp á fertugsafmælið sitt í fyrra.
Hún ætlar að hafa hægt um sig í ár.
ANDREA GYLFADÓTTIR
Er að undirbúa tónleika
með Todmobile og Sinfón-
íuhljómsveit Íslands.
Stubbanáttföt
stærðir 74-116 - Frábært verð
Mikið úrval af sængurgjöfum
Opnunartími
laugardag
10-16
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
LD
A
LÓ
A