Fréttablaðið - 13.09.2003, Blaðsíða 18
LAUGARDAGUR 13. september 2003
■ Plötukassinn minn
19
Frá og með 1. október 2003 skal heildarfjárhæð hverrar kröfu eða reiknings
greidd með heilli krónu, í samræmi við reglugerð sem gefin var út af
forsætisráðuneytinu 1. október 2002.
Bankar og sparisjóðir vilja vekja athygli viðskiptavina sinna á því að ekki verður hægt að taka á
móti færslum með aurum, sem berast bankakerfinu
eftir 1. október n.k. Til að minnka líkur á að slíkt
komi upp skal fyrirtækjum og einstaklingum sem
senda út kröfur bent á að gera viðhlítandi ráðstafanir í tölvukerfum sínum. Fjárhæð með 1 til 49
aurum skal færð niður í næstu heilu krónu, en fjárhæð með 50 aurum eða meira skal hækkuð í
næstu heilu krónu.
F
í
t
o
n
F
I
0
0
7
8
1
0
Niðurfelling
aura
Frá og með 1. október
Upphæð reiknings
kr. 10.245,44
Guðmundur Jónsson, gítarleik-ari Sálarinnar hans Jóns
míns, er mjög nýjungagjarn og
var ekki lengi að skipta út plötu-
safninu fyrir diskana. Gömlu vín-
ylplöturnar eru því allar í geym-
slu ásamt gamla plötuspilaranum.
Diskarnir eru svo um 400 talsins.
Gummi hefur verið aðdáandi
U2 frá því að hann féll fyrir lag-
inu „New Year’s Day“ árið 1983.
Frá því hefur hann keypt sér nær
allar plötur sveitarinnar og segir
þær aldrei hafa valdið vonbrigð-
um. „Ég heyrði lagið fyrst með
hljómsveit Eiríks Haukssonar,
Deild 1. Þá var ég að spila með
hljómsveit minni Kikk og varð
hrifinn. Mér finnst U2 enn vera á
siglingu, sem er mjög erfitt þegar
band er búið að vera svona lengi
að og orðið svona vinsælt.“
Pabbi Gumma ól hann upp á
Django Reinhardt en í gegnum
móður sína lærði hann að
meta kántrímenn á borð
við Jim Reeves. Þetta
situr enn í honum og
seinna kynntist hann
djössurunum Chet
Baker og Oscar Pet-
ersen og kántrí-
kóngnum Johnny
Cash. Fyrsta
sveitin sem hann
féll fyrir sem
unglingur var þó
Slade. „Það var á
þeim tíma sem
glam-rokkið var á
fullu með David
Bowie og félögum. Ég reifst og
skammaðist um það í mörg ár að
Slade væri miklu betri en Bítlarn-
ir. Ég er kannski aðeins farinn að
slaka á því á seinni árum.“
Síðar gekk hann í gegnum ýmis
tímabil, þ.á.m Pink Floyd, fusion
og Frank Sinatra. Gummi nefnir
Elton John, Ryan Adams og Bruce
Springsteen sem dæmi um góða
lagahöfunda.
Í kringum þann tíma sem Sálin
vann lögin með Sinfóníusveit Ís-
lands hlustaði hann mikið á tón-
listina úr Gladiator eftir Hans
Zimmer, Beach Boys og „Best of“
plötu Bjarkar sem hann segir nán-
ast hafa verið fasta í tækinu frá
útgáfudegi.
Af því sem er í gangi í dag seg-
ist hann frekar laðast að rokkinu
en R&B-inu. Nefnir sveitirnar
Audioslave og Queens of the Stone
Age sem dæmi um eðal-
rokk. „Ég er nú að verða
svolítið þreyttur á
R&B. Orðinn leiður
á allri ímyndinni í
kringum hana og
svoleiðis. Mér
finnst hljómur-
inn svo sem ágæt-
ur en þetta eldist
alveg rosalega illa.
Síðast fílaði ég TLC
plötuna „Fanmail“
og svo eitt lag með
Nelly í fyrra,“ segir
Gummi. ■
GUÐMUNDUR JÓNSSON
Pabbi Gumma ól hann upp á
Django Reinhardt en í gegnum
móður sína lærði hann að
meta kántrímenn á borð
við Jim Reeves.
Slade betri
en Bítlarnir
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/B
ILLI
Mikil leynd hvílir yfir nýrribarnabók poppdrottningar-
innar Madonnu, sem kemur í búðir
um allan heim á mánudag. Hvorki
hún né útgefendur hafa viljað gefa
nokkuð upp um efni bókarinnar.
Þetta er fyrsta bókin af fimm sem
Madonna hyggst skrifa.
Það er ahyglisvert að áður lýsti
hún því yfir að hún myndi aldrei
skrifa barnabók. Það hefur greini-
lega breyst. Hún segir sjálf að
tvær ástæður séu fyrir því að hún
hafi ákveðið að ráðast í verkefnið,
en alls verða bækurnar fimm. „Í
fyrsta lagi á ég tvö börn núna og
þau veita mér gríðarlegan inn-
blástur,“ segir Madonna í viðtali
sem var tekið við hana af þessu til-
efni. „Og í öðru lagi er ég á and-
legri vegferð um lífið þessa dag-
ana og hef lært margt merkilegt,
meðal annars hvað það er þýðing-
armikið að deila uppgötvunum
sínum og upplýsa fólk. Börn eru
að eðlisfari opin og tilbúin að
nema nýjar upplýsingar og því
ákvað ég að deila reynslu minni og
þekkingu fyrst með þeim.“
Madonna hefur sagt að þessi
fyrsta bók fjalli um öfund og af-
brýðissemi og hvað þessar tilfinn-
ingar geti valdið miklum ónauðsyn-
legum skaða í lífi fólks. Hún hafn-
ar því ekki að hún sæki þá vit-
neskju í eigin reynslu: „Þegar ég
var barn upplifði ég mikla afbrýð-
issemi og öfund. Ég öfundaði hinar
stelpurnar af því að eiga mömmu,
af því að vera sætari en ég eða eiga
meira dót. Það var ekki fyrr en ég
óx úr grasi sem ég gerði mér grein
fyrir því hvað þessar tilfinningar
eru skaðlegar og mikil tímaeyðsla.
Núna er ég auðvitað hinum megin
við borðið, fólk öfundar mig og
kemur þess vegna illa fram við mig
og litlar stelpur öfunda dóttur mína
og vilja ekki leyfa henni að vera
með í leikjum.“
Smá hjálp frá dótturinni
Dóttir Madonnu, Lola, mun hafa
hjálpað henni mikið við skrif bók-
arinnar og Madonna segir framlag
hennar ómetanlegt. „Hún tók mik-
inn þátt í sköpuninni. Hún sagði
mér hvenær sagan væri orðin leið-
inleg. Hún bað um að stelpurnar
gerðu ákveðna hluti, það sem henni
sjálfri finnst skemmtilegast að
gera og hún valdi myndirnar með
mér.“
Árið 1992 setti Madonna allt á
annan endann með myndabókinni
SEX, sem er nokkuð langt frá því
að vera barnabók. Það virðist því
sem Madonna hafi vent kvæði
sínu í kross. Aðspurð um þær
breytingar sem orðið hafa á lífi
hennar segir Madonna einfald-
lega að hún sjái núna heiminn og
hlutverk sitt í honum í allt öðru
samhengi en áður. Að taka óvænt
skref er þó greinilega ekki eitt-
hvað sem Madonna veigrar sér
við að gera, eins og ferill hennar
sýnir, en henni hefur margoft tek-
ist að koma á óvart. Hún hefur
áður sagt að hún vilji ekki hugsa
of mikið um afleiðingar görða
sinna, en nú segir hún að það hafi
breyst. „Þegar ég átti börnin mín
vöknuðu svo margar spurningar
sem ég þurfti að fá svör við,“ seg-
ir Madonna. „Ég fann svörin þeg-
ar ég byrjaði að ástunda Kaballah
fyrir sjö og hálfu ári. Ég gerði
mér grein fyrir að orð mín og
gerðir hafa áhrif og að ég fæ það
til baka sem ég læt frá mér, gott
og slæmt. Ég gerði mér ljóst sam-
hengi mitt við sjálfa mig og heim-
inn.“
Ástin sigrar
Madonna segir að það mikil-
vægasta sem börn geti lært sé að
við séum „öll tengd andlega og sál-
arlega og við verðum að elska og
annast hvort annað sama hvað taut-
ar og raular. Að hugsanir okkar, orð
og gjörðir hafa raunverulega áhrif
á fólkið í kringum okkur. Að ein
hugsun getur breytt heiminum. Að
ástin sigrar, í alvörunni.“
Edda gefur út bókina hér á landi
og Silja Aðalsteinsdóttir þýðir. Á
mánudagskvöld klukkan átta munu
Edda og Penninn Eymundsson
halda veisu í tilefni af útgáfunni.
Páll Óskar mun skemmta
gestum og afhjúpa
bókastafla með þessari
nýjustu afurð
Madonnu á slaginu
átta. Börn verða
leyst út með gjöfum.
gs@frettabladid.is
MADONNA
Vefurinn hennar Karlottu,
Bangsímon, Lísa í Undra-
landi, Narníubækurnar og
Leynigarðurinn voru uppá-
haldsbækurnar hennar í
bernsku. Nú gefur hún út
sína eigin barnabók.
Fyrsta barnabók Madonnu verður gefin út á þrjátíu tungumálum í hundrað löndum á mánudaginn.
Mikil leynd hvílir yfir bókinni en hún ber nafnið Ensku rósirnar:
Vill deila reynslu sinni með börnum
Þegar ég var barn
upplifði ég mikla af-
brýðissemi og öfund. Ég öf-
undaði hinar stelpurnar af
því að eiga mömmu, af því
að vera sætari en ég eða
eiga meira dót. Það var ekki
fyrr en ég óx úr grasi sem ég
gerði mér grein fyrir því
hvað þessar tilfinningar eru
skaðlegar og mikil tíma-
eyðsla.
,,