Fréttablaðið - 13.09.2003, Side 22
LAUGARDAGUR 13. september 2003
■ Sagt og skrifað
23
Murakami
slær í gegn
Japanski rithöfundurinn HarukiMurakami kom, sá og sigraði á
bókmenntahátíðinni sem lýkur í
dag. Murakami á fjölda aðdáenda
hér á landi og þess má geta að síð-
ustu tólf mánuði
seldust helmingi
fleiri eintök af
verkum hans í
bókabúð Máls og
menningar á
Laugavegi en af
verkum hins al-
þjóðlega metsölu-
höfundar Johns
Grishams. Salan
hefur enn aukist
eftir komu
Murakamis hingað til lands og
þegar hann áritaði bækur sínar í
bókabúð Máls og menningar síð-
astliðið þriðjudagskvöld myndað-
ist löng röð í versluninni. Troð-
fullt var á hádegisspjalli Muraka-
mis í Norræna húsið og sömuleið-
is þegar hann hélt fyrirlestur í
Háskólanum. Eftir þann fyrirlest-
ur rigndi fyrirspurnum yfir
Murakami frá ungum og áhuga-
sömum lesendum hans sem eru
greinilega gjörkunnugir verkum
hans. Þær frábæru móttökur sem
Murakami fékk hér á landi munu
hafa komið honum mjög á óvart. ■
Útgáfustjóri
ratar í
skáldsögu
Á síðustu bókmenntahátíð varmeðal gesta breski rithöfund-
urinn Magnus Mills, höfundur
hinnar bráðskemmtilegu skáld-
sögu Taumhald á skepnum. Magn-
us Mills er nú að
vinna að nýrri
bók og þar kem-
ur fyrir persóna
sem heitir í höf-
uðið á Snæbirni
Arngrímssyni,
hinum íslenska
útgefanda höf-
undarins. Snæ-
björn gaf Mills
góðfúslegt leyfi
til notkunar á
nafni sínu en enn
hefur ekkert frést af því af hvaða
tagi þessi sögupersóna er eða hvert
hlutverk hennar í sögunni er. ■
Höfundur nýrrar bókar umStalín leitaði víða fanga, meðal
annars í skjalasafni rússneska
Kommúnistaflokksins. Þar er meðal
annars að finna persónuleg bréf
Stalíns til eiginkonu sinnar, Nadyu.
Bréf Stalíns til Nadyu sýna að sam-
band þeirra var erfitt þótt ástin
væri fyrir hendi. Hjónin voru and-
stæður og hæfðu hvort öðru engan
veginn. Hann var afar greindur en
einmana, kaldlyndur og óhamingju-
samur og gat ekki sinnt Nadyu sem
var sjálfhverf, þjáðist af þunglyndi
og átti vanda til móðursýkiskasta. Í
bók Montefiores kemur fram að
Stalín hafi átt í ástarsambandi við
svilkonu sína eftir að eiginkona
hans fyrirfór sér.
Hjónabandsharmleikur
Hinn 8. nóvember 1932 voru
Stalínhjónin í boði sem haldið var til
að fagna 15 ára byltingarafmælinu.
Nadya, sem nær aldrei var prúðbú-
in og málaði sig ekki, hafði breytt út
af venju og klætt sig upp og farðað
sig. Stalín veitti þeirri breytingu
enga athygli heldur daðraði við eig-
inkonu eins vinar síns. Þegar Stalín
bað menn að skála fyrir tortímingu
óvinaríkisins lyfti kona hans ekki
glasi sínu og kastaði hann appel-
sínuberki í átt til hennar og kallaði:
„Hei, þú! Fáðu þér í glas!“ „Ég heiti
ekki hei,“ er hún sögð hafa svarað
og þaut út og hrópaði: „Þegiðu! Þeg-
iðu!“ Eiginkona Molotovs, Polína,
fór á eftir Nadyu og róaði hana.
Nadya hélt síðan heim og skaut sig.
Stalín var í miklu uppnámi eftir
dauða Nadyu og hótaði að fremja
sjálfsmorð. Það kom í hlut bróður
Nadyu, Pavels, og eiginkonu hans
Zhenyu að hughreysta Stalín.
Zhenya varð ástkona Stalíns.
En þegar Zhenya kynnti Svet-
lönu, dóttur Stalíns, fyrir ungum
gyðingi og Stalín frétti af því tryllt-
ist hann. Zhenya var handtekin.
Dóttir hennar Kira var sömuleiðis
handtekin og einnig Anna, systir
Zhenyu.
Zhenya var dæmd í tíu ára fang-
elsi og reyndi að fremja sjálfsmorð
í einangrunarvist með því að borða
steina. Anna missti vitið í Gúlaginu.
Dóttir Zhenyu fékk fimm ára fang-
elsi. Árið 1953 var Zhenyu sleppt.
„Svo Stalín bjargaði okkur loksins,“
sagði hún við dóttur sína þegar þær
hittust eftir langan aðskilnað.
„Bjáninn þinn,“ sagði dóttir hennar,
„Stalín er dauður.“
Zhenya var ætíð sannfærður
stalínisti og minntist Stalíns með að-
dáun allt þar til hún lést árið 1974. ■
SÍMINN INTERNET
… á enn meiri hra›a fyrir sama ver›
Vi›skiptavinir Símans fá nú háhra›a internettengingu me›
1536 Kb/s flutningshra›a á sama ver›i og 512 Kb/s kostu›u á›ur.
Ekkert stofngjald til og me› 20. september.
flú getur gert fla› hvar sem erflrá›laust internet
Kynntu flér sérsni›nar internetlausnir
í næstu verslun Símans og á siminn.is.
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
|
Y
D
D
A
/
s
ia
.i
s
N
M
1
0
1
7
5
Tilbo› á flrá›lausu Interneti:
A›eins 2.490 kr.
Innifali›: • Beinir (router) me› flrá›lausum sendi
• firá›laust netkort í fartölvu
• Smásía
Tilbo›i› mi›ast vi› 12 mána›a áskrift a› ADSL 1500
tengingu hjá Símanum Internet.
ATH.
Áskriftarlei›in ADSL 512 ver›ur felld ni›ur og
núverandi áskrifendur a› fleirri lei› færast
sjálfkrafa í ADSL 1500.
ADSL 1500
SNÆBJÖRN Í
BJARTI
Ein persónan í bók
Mills heitir í höfuðið
á Snæbirni.
HARUKI
MURAKAMI
Kom sá og sigraði
MAGNUS MILLS
Vinnur að nýrri bók.
ÁSAMT ÁSTKONU SINNI
Stalín ásamt ástkonu sinni, Zhenyu. Hún
lenti í ónáð en hélt lífi.
Ný bók um Stalín, The Court of the Red Tsar,
eftir Simon Sebag Montefiore hefur hlotið prýðisdóma gagnrýnenda.
Ástin við hirð Stalíns