Fréttablaðið - 13.09.2003, Side 29
30 13. september 2003 LAUGARDAGUR
ÁSTHILDUR HELGADÓTTIR
Setur landsleikjamet í dag þegar Ísland
mætir Pólverjum á Laugardalsvelli. Ásthild-
ur leikur sinn 54. landsleik.
Fótbolti
hvað?hvar?hvenær?
10 11 12 13 14 15 16
SEPTEMBER
Laugardagur
HNEFALEIKAR „Ef ég tapa þá hætti
ég,“ sagði hnefaleikakappinn
Oscar De La Hoya sem berst við
Shane Mosley um heimsmeist-
aratitla WBA og WBC í veltivigt
í Las Vegas í nótt. „Ég hef aldrei
æft jafn mikið og fyrir þennan
bardaga og hvert sæki ég hvatn-
inguna ef ég tapa þegar ég er í
toppformi?“
Oscar De La Hoya hefur sigr-
að í 36 af 38 bardögum á atvinnu-
mannaferli sínum, þar af 29 sinn-
um með rothöggi. De La Hoya
tapaði fyrir Felix Trinidad í Las
Vegas í september 1999 og Shane
Mosley í Los Angeles í júní árið
eftir. Hann tapaði báðum bardög-
unum á dómaraúrskurði eftir
tólf lotur. ■
Mikilvægt að vinna sér
inn stigin sem í boði eru
FÓTBOLTI „Það er ekki hægt að setja
sér nein markmið nema að klára
okkar heimaleiki,“ sagði Helena
Ólafsdóttir, þjálfari A-landsliðs
kvenna. „Það er mjög mikilvægt
að við mætum brjálaðar í okkar
heimaleiki og vinnum okkur inn
þau stig sem í boði eru. Með það í
huga förum við í leikinn.“
Íslendingar mæta Pólverjum á
Laugardalsvelli í undankeppni
Evrópukeppni kvennalandsliða í
dag. „Ég kíkti aðeins á Pólverjana
á myndbandi í vikunni,“ sagði Hel-
ena. „Það var leikur við Rússa sem
þær töpuðu 6-0. Þær lágu mikið í
vörn í þeim leik. Þær voru ekki í
því að spila svæðisvörn en voru
meira í því að elta, fannst mér. En
þetta var voðalega lítið marktækur
leikur að sjá.“
Pólverjar hafa einnig leikið gegn
Ungverjum á heimavelli, liði sem
Íslendingar unnu 4-1 í Laugardaln-
um fyrr í sumar. „Þær töpuðu líka
2-0 fyrir Ungverjum,“ sagði Helena,
„svo ég geri ráð fyrir að eftir þessa
tvo leiki í keppninni reyni þær að
laga varnarleik sinn eftir að hafa
fengið á sig átta mörk.“
Rússarnir náðu tveggja marka
forystu gegn Pólverjum á fyrstu
níu mínútum og unnu að lokum 6-
0. „Það er það sem við þurfum að
passa okkur á, að mæta þessu liði
af krafti strax frá fyrstu mínútu
þannig að þær finni það að þær
eigi ekki möguleika,“ sagði Hel-
ena Ólafsdóttir landsliðsþjálfari.
Edda Garðarsdóttir var í byrj-
unarliðinu gegn Frökkum á mánu-
dag en hún kemst ekki í leikinn
gegn Pólverjum. „Ég er ekki búin
að ákveða byrjunarliðið endan-
lega það er ýmislegt óljóst ennþá.
Edda verður ekki með svo það
kemur í það minnsta einn nýr leik-
maður inn. Áherslur verða
kannski örlítið aðrar en á móti
Frökkunum.“
Leikurinn verður fjórði leikur
Íslendinga í keppninni. Íslending-
ar unnu Ungverja 4-1 í sumar,
gerðu 1-1 jafntefli við Rússa í síð-
asta mánuði en töpuðu 0-2 fyrir
Frökkum á mánudag. Pólverjar og
Íslendingar mætast aftur í
Bydgoszcz í Póllandi eftir hálfan
mánuð. ■
Fyrri tímatakan á Monza:
Montoya
með besta
tímann
FORMÚLA Kólumbíumaðurinn Juan
Pablo Montoya á BMW-Williams
náði besta tímanum í
fyrri tímatökunni á
Monza-brautinni á
Ítalíu í gær. Rubins
Barrichello á Ferrari
varð annar og sam-
herji hans Michael
Schumacher þriðji.
Athygli vakti að Christiano da
Matta á Toyota náði fjórða sætinu
en hann var að keyra í fyrsta sinn
á Monza-brautinni. ■
Knattspyrnustjóri
ágústmánaðar:
Wenger
verð-
launaður
FÓTBOLTI Arsene Wenger hjá
Arsenal var útnefndur knatt-
spyrnustjóri ágústmánaðar í
ensku úrvalsdeildinni. Arsenal er
á toppi deildarinnar með fullt hús
stiga eftir fjórar umferðir og hef-
ur ekki byrjað tímabilið jafn vel í
56 ár. Liðið mætir Portsmouth í
deildinni í dag.
Teddy Sheringham var út-
nefndur leikmaður mánaðarins en
hann hefur farið mikinn í liði
Portsmouth og skorað fjögur
mörk í fjórum leikjum. ■
11.50 Formúla 1. Bein útsending á
RÚV frá tímatöku fyrir kappaksturinn í
Monza á Ítalíu.
13.25 Football Week UK (Vikan í
enska boltanum) á Stöð 2.
13.25 Bein útsending frá leik Bor-
ussia Dortmund og Werder Bremen á
RÚV.
13.50 Bein útsending frá leik
Charlton Athletic og Manchester
United á Stöð 2.
14.00 Haukar og HK keppa á Ás-
völlum í lokaumferð 1. deildar karla.
14.00 Breiðablik leikur við Stjörn-
una á Kópavogsvelli í lokaumferð 1.
deildar karla.
14.00 Afturelding mætir Njarðvík
á Varmárvelli í lokaumferð 1. deildar
karla.
14.00 1. deildarmeistarar Keflavík-
ur fá Víkinga í heimsókn í lokaumferð
1. deildar karla.
14.00 Þór og Leiftur/Dalvík keppa
á Akureyrarvelli í lokaumferð 1. deildar
karla.
15.20 Sýndir verða valdir kaflar á
RÚV úr leik á EM í fótbolta sem fram fór
í vikunni.
15.50 Bein útsending á RÚV frá
leik Íslendinga og Pólverja í und-
ankeppni Evrópumóts kvenna í fótbolta.
16.30 Haukar mæta portúgalska
félaginu CD de Sao Bernardo-Aveiro í
undankeppni Meistaradeildar Evrópu í
handbolta.
17.00 Trans World Sport (Íþróttir
um allan heim) á Sýn.
17.30 Þór/KA/KS og Sindri mæt-
ast á Þórsvelli í keppni um sæti í Lands-
bankadeild kvenna á næsta ári.
18.00 Útsending frá leik Charlton
Athletic og Manchester United á Sýn.
01.00 Bein útsending á Sýn frá
hnefaleikakeppni í Las Vegas. Á meðal
þeirra sem mætast eru Oscar de la
Hoya og Shane Mosley.
HANDBOLTI „Það er mjög mikið í
húfi og menn gera sér grein fyrir
því. Það er konfektmoli í boði,“ seg-
ir Viggó Sigurðsson, þjálfari
Hauka, sem leika í dag gegn portú-
galska félaginu CD de São Bern-
ardo-Aveiro í undankeppni Meist-
aradeildar Evrópu. Leikurinn verð-
ur á Ásvöllum og hefst klukkan
16.30.
Sigri Haukar Portúgalana kom-
ast þeir í Meistaradeildina og leika
í riðli með Barcelona frá Spáni,
Magdeburg frá Þýskalandi og
Vardar Skopje frá Makedóníu. „Við
setjum bara stefnuna á að komast
áfram og að enda í þriðja sæti rið-
ilsins því þá höldum við áfram og
förum í Evrópukeppni bikarhafa.“
„Það var svolítið erfitt að fá
myndband af þeim frá því í ár en
við fengum spólu frá því í fyrra.
Þetta er lið sem við ættum að ráða
við miðað við þá reynslu sem við
höfum undanfarin ár.“
Íslandsmótið hefst á þriðjudag
en portúgalska deildin hefst um
næstu helgi. „Liðin standa jafnt að
vígi hvað það varðar. Undirbúning-
ur okkar hefur gengið mjög vel og
allir eru heilir. Nýi leikmaðurinn,
Dalius Rasikevicius, stendur sig
mjög vel og ég er ágætlega bjart-
sýnn á þetta.“
Félagið sem tapar í viðureign
Hauka og São Bernardo leikur við
Panellinios frá Aþenu í bikar-
keppni Evrópska handknattleiks-
sambandsins. „Það lokast engar
dyr í sjálfu sér,“ sagði Viggó Sig-
urðsson, „en við höfum metnað á að
komast í Meistaradeildina og það
er engin spurning um það að við
ætlum að komast þangað.“ ■
Undankeppni Meistaradeildar Evrópu:
Mikið í húfi
fyrir Hauka
HAUKAR
Íslandsmeistarar Hauka leika gegn portúgalska félaginu CD de São Bernardo-Aveiro
á Ásvöllum í dag.
Íslendingar leika gegn Pólverjum í dag í undankeppni Evrópukeppni kvennalandsliða.
Leikurinn verður á Laugardalsvelli og hefst klukkan 16. Ísland er með fjögur stig eftir þrjá leiki.
LANDSLIÐSÆFING
Íslenska kvennalandsliðið á æfingu í gær
fyrir leikinn gegn Pólverjum. Með sigri geta
Íslendingar náð Rússum að stigum, en
Rússar eru í efsta sæti riðilsins.
BYRJUNARLIÐ ÍSLANDS:
Markvörður:
Þóra B. Helgadóttir
Varnarmenn:
Málfríður Sigurðardóttir
Erla Hendriksdóttir
Íris Andrésdóttir
Björg Ásta Þórðardóttir
Tengiliðir:
Hólmfríður Magnúsdóttir
Ásthildur Helgadóttir (fyrirliði)
Laufey Ólafsdóttir
Margrét Lára Viðarsdóttir
Framherjar:
Olga Færseth
Hrefna Jóhannesdóttir.
STAÐAN Í 3. RIÐLI
Rússland 3 2 1 0 10:2 7
Frakkland 2 2 0 0 6:0 6
Ísland 3 1 1 1 5:4 4
Ungverjaland 4 1 0 3 4:11 3
Pólland 2 0 0 2 0:8 0
Leikir Íslands í 3. riðli
Ísland - Ungverjaland 4-1
Rússland - Ísland 1-1
Frakkland - Ísland 2-0
Næstu leikir í 3. riðli
27. sept. Pólland - Ísland
15. nóv. Frakkland - Pólland
DE LA HOYA OG MOSLEY
Oscar De La Hoya, umboðsmaðurinn
Bob Arum og Shane Mosley.
Oscar De La Hoya:
Hættir ef
hann tapar
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M