Fréttablaðið - 13.09.2003, Síða 34
14.00 BUBBI, Guðbjörn Gunnars-
son skúlptúristi, og Jóhann G. Jóhanns-
son, myndlistar- og tónlistarmaður, opna
samsýningu í Húsi málaranna, Eiðistorgi.
Allir velkomnir. Sýningin stendur yfir til
28. september og er opin fimmtudaga
til sunnudags frá kl. 14-18.
Mæja, myndlistarkona, sýnir málverk
sín í Hitaveitu Suðurnesja í Hafnarfirði
en sýningin ber heitið Losti & Þrá. Sýn-
ingin er opin alla virka daga frá 8:00-
16:00.
16.00 Kvikmyndasafn Íslands
sýnir myndina, Á hjara veraldar, eftir
kvikmyndagerðarkonuna Kristínu Jó-
hannesdóttur í Bæjarbíó, Strandgötu 6,
Hafnarfirði.
■ ■ SÝNINGARLOK
Nú um helgina er síðasta sýningar-
helgi á myndlistarverkum Péturs Más
Gunnarssonar í Gallerí Dvergi. Pétur Már
útskrifaðist árið 2002 frá Myndlistardeild
LHÍ og er þetta önnur einkasýning hans.
Sýningarstaðurinn er við Grundarstíg 21
í Reykjavík og er opið klukkan 17-19 til
og með sunnudegi.
Síðasta sýningarhelgi Sjafnar Har í
Art Gallery Icelandic á Skólavörðurstig
25a. Opnunartími virka daga 12-18,
lau.12-16 og sun. 14-18.
Þrettán plús þrjár kallast sýning
sem hefur staðið yfir í Lystigarðinum
Akureyri og er haldin til heiðurs konun-
um sem gerðu garðinn fyrir 91 ári síðan.
Sýningunni lýkur sunnudaginn 14. sept-
ember, og er því hver að verða síðastur
að sjá hana. Aðsókn hefur verið með
eindæmum góð og hafa hundruðir
gesta komið og notið garðsins og fjöl-
margir lýst ánægju sinni með framtakið.
Sýnendur eru 13 norðlenskar listakonur
og þrjár frá Færeyjum og vinna þær verk
sín í: textíl, leir, tré, grafík, stein o.fl.
■ ■ FÉLAGSLÍF
11.00 Útimarkaður í Mosskógum
Mosfellsdal. Á markaðnum verða seldar
lífrænt ræktaðar vörur og blóm, en upp-
skriftir og góð ráð eru gefin í kaupbæti,
einnig verður seldur fiskur úr Þingvalla-
vatni. Boðið er upp á kaffi og kökur og
létt spjall. Allir velkomnir.
■ ■ SKEMMTANIR
Dúettinn Acoustics spilar á Ara í
Ögri í kvöld.
Trúbadorinn Ingi Valur spilar á Kaffi
Aroma, verslunarmiðstöðinni Firði.
Dj Master verður á Kaffi Amster-
dam
HÓD verður á Kaffi Kúltúr, Hverfis-
götu 18
Í svörtum fötum heldur ball á nýja
skemmtistaðnum Kastró, í Reykjanes-
bæ.
Hermann Ingi Jr. spilar á Catalina,
Hamraborg 11, Kópavogi.
Dj Nico spilar í Egilsbúð, Neskaup-
stað.
Hljómsveitin Tvö dónaleg haust
verður á Fat Sam’s, Gylfaflöt 5.
Dj Valdi verður á Felix í kvöld.
Hilmar Sverrisson og félagar spila á
Fjörukránni.
Dj Tweek heldur uppi fjörinu á
Glaumbar.
23.00 Rokkararnir í Mínus og
Maus verða á Grand Rokk í kvöld.
Hljómsveitin molesting mr. bob spilar á
undan herlegheitunum. Húsið opnar kl.
22.30.
Rokkhljómsveit Rúnars Júlíusson-
ar spilar á Græna hattinum, Akureyri.
Stórsveit Ásgeirs Páls sér um fjörið
á Gullöldinni.
KK og Maggi Eiríks verða með tón-
leika í Hótel Höfn.
Atli skemmtanalögga verður á
Hverfisbarnum í kvöld.
Sálin hans Jóns míns verður með
ball í Höllinni, Vestmannaeyjum.
Jói verður með létta tónlist á Kaffi
Læk í kvöld.
Solla söngfugl og Njalli í Holti
spila á Kaffi Strætó.
Finnski tónlistarmaðurinn Jori Hulk-
konen leikur deephouse-tónlist á Kapi-
tal í kvöld. Dj Bjössi hitar upp.
Danni Tsjokkó trúbador spilar á
Kránni, Laugavegi 73.
Sigga Beinteins, Grétar Örvarsson
og Kristján Grétarsson verða á Kringlu-
kránni í kvöld.
Gullfoss og Geysir halda uppi
dansstuðinu á Leikhúskjallaranum í
kvöld.
Dans Sagaklass verður á Odd-vit-
anum, Akureyri.
Spútnik verður á Players í Kópa-
vogi í kvöld.
Hljómsveitin Sixties heldur uppi
fjörinu á Ránni, Reykjanesbæ.
Hljómsveitin Paparnir verður á Sjall-
anum, Akureyri.
The Hefners leika á Sjallanum, Ísa-
firði.
Kvöldskemmtun með Halla og
Ladda verður í Stapanum, Reykjanes-
bæ, í kvöld. Brimkló verður með ball á
eftir. Fólk er hvatt til þess að hafa sam-
band við Stapann í síma 421 2526 og
tryggja sér miða í tíma.
LAUGARDAGUR 13. september 2003
■ MYNDLIST
35
„Við borðum mikilvægustu
máltíð dagsins oft á dag“
„Ég borða mikilvægustu máltíð
dagsins strax eftir útsendingu“
Mikilvægasta máltíð dagsins
LEIKLIST Dýrin í Hálsaskógi verður
frumsýnt í Þjóðleikhúsinu í dag.
Leikritið, sem er eftir Thorbjörn
Egner, hefur í gegnum tíðina notið
ómældra vinsælda barna á öllum
aldri. Margir muna eftir Sigga
Sigurjóns í hlutverki Mikka refs
en nú leikstýrir hann sýningunni
og að þessu sinni er það Þröstur
Leó Gunnarsson sem ætlar að
borða allar piparkökurnar hans
Hérastubbs bakara. Það þykir at-
hyglisvert að barnabókahöfundur-
inn og teiknarinn Brian Pilkington
sér um leikmyndina en þetta er í
fyrsta sinn sem Pilkington vinnur
að leikmynd í leikhúsi. Sýningin er
sýnd á Stóra sviði Þjóðleikhússins
og foreldrar eru hvattir til að
mæta með yngstu kynslóðina og
leyfa krökkunum að njóta boð-
skaparins. ■
STEFÁN JÓNSSON
Fer með aðalhlutverkið í leikritinu Erling
sem frumsýnt verður í Loftkastalanum í
kvöld. Leikritið er samstarfsverkefni Sagnar,
framleiðslufyrirtækis Baltasar Kormáks, og
Leikfélags Akureyrar. Erling var frumsýnt í
Freyvangi á Akureyri á fimmtudagskvöldið
og áætlað er að sýna Erling jöfnum hönd-
um á Akureyri og í Reykjavík. Frumsýningin
hefst kl. 20.00 en leikstjóri sýningarinnar
er Benedikt Erlingsson.
Yfirlitssýning á verkumlistakonunnar Júlíönu
Sveinsdóttur (1889-1966)
verður opnuð á Listasafni
Íslands í dag. Júlíana til-
heyrir brautryðjendum ís-
lenskrar málaralistar en
hún var ein af fyrstu konun-
um hér á landi sem gerðu
málaralist að sínu ævistarfi.
Júlíana bjó í Danmörku
meirihluta ævi sinnar en á
sínum tíma vakti hún þar at-
hygli bæði fyrir framúr-
stefnuleg fataefni og list-
rænan myndvefnað. Til
marks um stöðu Júlíönu í
danska listaheiminum hlaut
hún hin virtu Eckersbergs-
verðlaun árið 1947. Júlíana
fór einnig árið 1951 sem
fulltrúi Dana á IX ítalska
þríæringinn í Mílanó og vann þar
gullverðlaun fyrir vefnað. Á sýn-
ingu Listasafns Íslands eru yfir
100 verk, málverk og vefnaður,
sem varpa ljósi á feril þessa merka
brautryðjanda íslenskrar mynd-
listar. Í tilefni sýningarinnar gefur
Listasafn Íslands út bók með
greinum um ævi og list Júlíönu
Sveinsdóttur og verður bókin
myndskreytt fjölda ljósmynda af
verkum Júlíönu. Sýningin stendur
til 26. október. ■
ATLI RAFN SIGURÐARSON
Fer með hlutverk Lilla klifurmúsar í Dýrunum í Hálsaskógi sem verður frumsýnt í Þjóðleik-
húsinu í dag.
Öll dýrin í skóginum
Brautryðjandi
í málaralist
UNDIR SKIPHELLUM, 1953
Málverk eftir íslensku listakonuna Júlíönu
Sveinsdóttur.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
MATSEÐILL
Forréttur
Steikt hörpuskel með engifer og
lerkisveppum
Aðalréttur
Ofnbakað lambafillet með gljáðu
rótargrænmeti, rosti kartöflum og
madeirasósu
Eftirréttur
Volga súkkulaðiterta með
vanillusósu
Verð kr. 3.500.
Jörgen Svare,
Björn Thorodd-
sen og Jón
Rafnsson
leika Jazz fyrir mat-
argesti Hótel Borgar
frá kl: 19.30 - 21.00
Borðapantanir í síma
551 1247 - Hótel Borg
✓