Fréttablaðið - 25.10.2003, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500
Tónlist 42
Leikhús 42
Myndlist 42
Íþróttir 38
Sjónvarp 44
LAUGARDAGUR
Meðallestur fólks
á landinu öllu
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í sept. ‘03
68%
50%
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
M
O
R
G
U
N
B
LA
Ð
IÐ
D
V
23%
HANDBOLTI Norðanliðin verða í
sviðsljósinu í REMAX-deildinni í hand-
bolta karla í dag, þó í sitt hvorum lands-
hlutanum sé. KA-menn fara suður og
mæta Frömurum klukkan 16.30. Á sama
tíma taka Þórsarar á móti Aftureldingu
fyrir norðan.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
ÚRKOMUSVÆÐI NÁLGAST Þegar
líður á daginn bætir í alla helstu veður-
þætti, það er úrkomu, vind og hita. Engin
læti þó. Legg til að göngutúrinn verði far-
inn fyrri partinn í dag. Sjá síðu 6
25. október 2003 – 262. tölublað – 3. árgangur
OLÍUMÁL Áhugi Ríkislögreglustjóra í
rannsókninni á meintu samráði olíu-
félaganna beinist einkum að for-
stjórum, fjármála- og innkaupa-
stjórum og markaðs- og sölustjórum
bæði í smásölu og til stórnotenda. Í
tilkynningu Ríkislögreglustjóra til
stjórna og stjórnarformanna olíufé-
laganna um að opinber rannsókn á
þeim sé hafin vegna ætlaðra brota á
samkeppnislögum, er beðið um upp-
lýsingar um hverjir gegndu helstu
stjórnunarstöðum hjá þeim frá 1993
til 2001, stjórnskipulag félaganna og
hverjir gátu skuldbundið þau sam-
kvæmt innri reglum.
Rannsóknin verður sjálfstæð
en ákvörðunin um að hefja hana
byggði á gögnum sem Samkeppn-
isstofnun aflaði í sinni rannsókn,
bæði því sem fram kom í frumat-
hugun og úr seinni hluta athugun-
ar sem búast má við að verði
kynnt málsaðilum í næsta mánuði.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins kemur fjölmargt fram í
síðari hlutanum til viðbótar við
það sem fram kom í sumar. Í bréfi
sem Samkeppnisstofnun sendi
fyrr á árinu til málsaðila kemur
fram að meint brot olíufélaganna
virðist í meginatriðum hafa falist
í samráði um gerð tilboða, mark-
aðsskiptingu og verðsamráði í
sölu á eldsneyti á flugvöllum,
verðsamráði og markaðsskiptingu
í sölu á eldsneyti til erlendra
skipa, almennu samráði um verð-
lagningu á eldsneyti og smurolíu
og öðrum aðgerðum sem geta haft
áhrif á verð þessara vara.
Í aðalatriðum hefur samráðið
falist í samráði um innkaup og
verðlagningu á bensíni og olíu,
smurolíu, gasi, frostlegi, rúðu-
vökva, samráði um að veita afslátt
til viðskiptavina, leggja á þá gjöld
eða um að draga úr framboði eða
takmarka þjónustu við þá.
Þá hefur verið rannsökuð mark-
aðsskipting og eftir atvikum verð-
samráð vegna sölu til stærri við-
skiptavina eða á einstökum land-
svæðum. Meðal þessara viðskipta-
vina eru ÍSAL, Norðurál, Kísiliðjan
og íslenska járnblendifélagið, Flug-
leiðir, Landhelgisgæslan, dóms-
málaráðuneytið, Reykjavíkurborg,
Vestmannaeyjabær, SR mjöl, SBK
og Áhaldahús Keflavíkur. Ennfrem-
ur er grunur um samráð vegna sölu
á Raufarhöfn, Grindavík, Ísafirði,
Stykkishólmi og í Austur-Skafta-
fellssýslu. Þá er uppi grunur um
samráð vegna sölu á samreknum
bensínstöðvum og skiptingu á sölu-
svæðum, um samkomulag um að
reyna ekki að ná viðskiptum við-
skiptavina sem samningsbundnir
eru öðru olíufélagi.
kgb@frettabladid.is
Sjá síður 2 og 8
● rekur flótta varnarliðsins
Stefán Pálsson:
▲
SÍÐA 28
Lætur ekki
deigan síga
● starfsfólkið getur varla unnið
Ólafur Elíasson:
▲
SÍÐA 46
Sólverkinu líkt við
fíkniefni
● verður 38 ára í dag
Þorfinnur Ómarsson:
▲
SÍÐA 16
Kemur kærustunni
á óvart
Athyglin beinist að
æðstu stjórnendum
Ríkislögreglustjóri rannsakar ætluð brot forráðamanna olíufélaganna. Um er að ræða sjálfstæða
rannsókn sem byggir á gögnum Samkeppnisstofnunar.
Sigurður Pétursson:
Ísmaður í heimsfréttir
Sigurður Pétursson, öðru nafni Ísmað-
urinn, er með heimspressuna á hælun-
um eftir að hann drap hákarl með ber-
um höndum. . ▲
SÍÐA 26
Fékk ógeð á körlum
LANDAMÆRI Fimm pólskir Sígaunar
voru stöðvaðir í Leifsstöð í fyrra-
kvöld grunaðir um að hafa ætlað
að komast ólöglega inn í landið.
Fólkið kom með flugi frá Dan-
mörku en það voru óeinkennis-
klæddir lögreglumenn hjá lög-
reglunni á Keflavíkurflugvelli
sem tóku Sígaunana til yfir-
heyrslu. Við eftirgrennslan kom í
ljós að fólkið hafði ekki landvist-
arleyfi hér á landi. Upphaflega
bar fólkið, þrír karlmenn og tvær
konur, því við að það vildi sækja
um pólitískt hæli á Íslandi en við
yfirheyrslur dró það þá umsókn
til baka og var sent aftur úr landi
í gærdag, áleiðis til Póllands.
Aukning hefur orðið á þeim
sem reyna að komast inn í landið
til að vinna án þess að hafa at-
vinnuleyfi. Allt árið í fyrra var 60
manns vísað frá landamærunum
en nú þegar hefur 64 verið vísað
frá. En tveir annasömustu mánuð-
irnir eru eftir.
„Það er aukinn þrýstingur á
landamærin. Fólk virðist í aukn-
um mæli sækja í atvinnu hér án
þess að hafa tilskilin leyfi,“ seg-
ir Jóhann R. Benediktsson,
sýslumaður á Keflavíkurflug-
velli. ■
Lögreglumenn í Leifsstöð stöðvuðu fimm manns:
Sígaunar sendir úr landi
VAFASAMAR UPPLÝSINGAR
Bandarísk þingnefnd sem hefur athugað
störf leyniþjónustustofnana í aðdraganda
innrásarinnar í Írak átelur þær fyrir óvönd-
uð vinnubrögð. Vafasamar heimildir hafi
verið notaðar og stuðst við einstakar heim-
ildir í mikilvægum málum. Sjá síðu 2
DÆMDUR ÖÐRU SINNI Karlmaður
hefur verið dæmdur til fjögurra mánaða
fangelsisvistar fyrir að hafa barnaklám undir
höndum. Hann hefur áður verið dæmdur
fyrir kynferðisbrot á tveimur ungum piltum.
Sjá síðu 2
150.000 KRÓNA LÁGMARKS-
LAUN Samningamenn BSRB munu krefj-
ast þess að lágmarkslaun verði 150.000
krónur þegar viðræður hefjast um nýja
kjarasamninga. Þetta er meðal þess sem
var samþykkt á þingi þess í gær. Sjá síðu 4
Kona sem starfaði við símavændi í
Reykjavík segir frá reynslu sinni í
viðtali við Fréttablaðið.
SÍÐA 18
▲
Símavændiskona:
SKÓGARELDAR Í KALIFORNÍU Slökkviliðsmenn geta lítið aðhafst vegna mikilla elda sem hrakið hafa þúsundir frá heimilum sínum.
Lögregluyfirvöld hafa lokað af stórum hluta þeirra hraðbrauta sem liggja frá Los Angeles til Las Vegas vegna eldanna.
Skógareldar í Kaliforníu:
Ógna
byggðum
KALIFORNÍA, AP Mikið lið slökkviliðs
og björgunarfólks hefur lítið get-
að aðhafst annað en fylgt fólki frá
heimilum sínum vegna skógar-
elda sem loga víða í Kaliforníu.
Fjöldi fólks hefur þurft að yfir-
gefa heimili sín tímabundið en
miklir vindar gera það að verkum
að ómögulegt er að ráða niðurlög-
um eldsins.
Lögregla hefur þurft að loka
tveimur hraðbrautum sem liggja
frá suðurhluta Kaliforníu til Las
Vegas í Nevada vegna eldanna.
Ekki er talið að hægt verði að
ráða niðurlögum eldanna fyrr en
vinda lægir á svæðinu. ■AP
/M
YN
D
Námuslys í Rússlandi:
Lítill tími
til bjargar
RÚSSLAND, AP Fjölmennar björgun-
arsveitir vinna hörðum höndum
að því að bjarga 46 námuverka-
mönnum sem festust í námu í suð-
urhluta Rússlands.
Verkamennirnir voru að vinnu
sinni 800 metra undir yfirborði
jarðar þegar gangnaopið fylltist
af vatni frá nálægu vatnsbóli. Þeir
eru án rafmagns og mennirnir
hafa litlar sem engar vistir eða
mat. Vegna loftleysis í göngunum
var talið vænlegt að bora sérstök
loftgöt niður til þeirra til að halda
þeim á lífi þar til björgunarsveitir
geta grafið niður að þeim.
Námuslys eru afar tíð í
Rússlandi. Tvisvar til þrisvar á
ári berast fréttir af mannskæðum
námuslysum. ■