Fréttablaðið - 25.10.2003, Síða 4
4 25. október 2003 LAUGARDAGUR
■ Ísrael
Er mikið sterahneyksli í
uppsiglingu í íþróttaheiminum?
Spurning dagsins í dag:
Leiðir rannsókn á meintu olíusamráði
til dóma yfir einstaklingum?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
12,4%
87,6%
Nei
Já
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
■ Asía
ÁRSÞING Auka á atvinnuleysisbæt-
ur stórlega og lágmarkslaun á
samningstíma næstu kjarasamn-
inga verði ekki lægri en 150 þús-
und krónur. Þetta er meðal fjöl-
margra ályktana 40. þings Banda-
lags starfsmanna ríkis og bæja en
þinginu lauk í gær.
Ögmundur Jónasson, formaður
BSRB, segir kröftuga umræðu
hafa farið fram á þinginu um ýmis
brýn þjóðfélagsmál. „Við höfum
tekið á fjölmörgum málum og far-
ið víða. Launamálin er einn mikil-
vægasti þátturinn og þrátt fyrir
að samningar flestra aðildarfé-
laga okkar losni ekki fyrr en und-
ir lok næsta árs, er kominn víga-
hugur í mannskapinn. Hugmynd-
in um 150 þúsund króna lág-
markslaun er engin fjarstæða og
eina fólkið sem gagnrýnir slíkt er
venjulega fólk sem er sjálft með
margföld slík laun.“
Skattamál voru meðlimum
BSRB hugleikin. „Núverandi
skattakerfi er komið í öngstræti
og þörf er á nýjum áherslum og
nýrri hugsun. Kanna þarf betur
hvort að hægt sé að jafna og bæta
kjör fólks með skattakerfið að
vopni.“
Stjórn BSRB var endurkjörin
en ekkert mótframboð barst gegn
sitjandi fulltrúum. ■
Ábending upplýsti
átta ára gamalt rán
LÖGREGLUMÁL Samkvæmt heimild-
um Fréttablaðsins lést einn grun-
aðra í Skeljungsráninu í Lækjar-
götu eftir að hafa verið boðaður
til skýrslutöku hjá lögreglu.
„Við vorum byrjaðir á málinu,
en náðum ekki að yfirheyra hann.
Hann var látinn þegar að því
kom,“ segir Hörður Jóhannesson,
yfirlögregluþjónn í Reykjavík.
Maðurinn lést sviplega og bár-
ust lögreglu upplýsingar í kjölfar
andlátsins sem
beindu grun að
tveimur öðrum
mönnum. Annar
mannanna hafði
ekkert komið við
sögu lögreglu áður
en hinn lítið. Maðurinn sem lést
glímdi við veikindi og óreglu.
Ránið var með þeim hætti að
tveir menn réðust á tvær konur
sem fluttu rúmar fimm milljónir
króna í reiðufé og ávísunum fyr-
ir Skeljung í Íslandsbanka á
Lækjargötu í febrúar 1995.
Mennirnir tveir stukku út úr stol-
inni bifreið á meðan sá þriðji beið
átekta í bílnum. Eftir að hafa
slegið aðra konuna í höfuðið
flúðu mennirnir með ránsfenginn
í bílinn og óku á brott.
Í byrjun þessa árs fékk Lög-
reglan í Reykjavík ábendingu
sem kom henni á spor ræningj-
anna. Fram að því hafði málið
verið lagt til hliðar óupplýst.
„Okkur bárust mjög áreiðanlegar
vísbendingar sem við skoðuð-
um,“ segir Hörður.
Tveir menn og ein kona hafa
verið yfirheyrð vegna málsins.
Mennirnir eru fæddir 1963 og
1965, en konan 1966. Konan er
sökuð um að hafa tekið við og
notað hluta ránsfengsins. Játn-
ingar liggja fyrir að hluta til en
önnur atriði eru óljós og telur
lögregla mögulegt að þau verði
aldrei upplýst að fullu. Málið er
þó í aðalatriðum upplýst.
Hörður segir ræningjana að-
eins hafa getað notað hluta af
ránsfengnum, en ekki er ljóst
hve stór hluti var reiðufé.
Bifreiðin og taskan sem inni-
hélt ránsfenginn fundust sköm-
mu eftir að ránið var framið en
mennirnir voru á bak og burt.
Leit lögreglu að ræningjunum
var án árangurs þar til henni
barst ábending síðasta vetur.
jtr@frettabladid.is
TÍU FÓRUST Í ELDFLAUGAÁRÁS
Tíu manns létu lífið þegar eld-
flaugum var skotið á pallbíl í
norðurhluta Afganistan. Á meðal
fórnarlambanna voru tvö börn.
Tveir farþegar lifðu árásina af.
Áætlað er að árásarmennirnir
hafi verið hátt í tíu talsins.
ÞRIÐJUNGUR UNDIR FÁTÆKRA-
MÖRKUM Sameinuðu þjóðirnar
hafa þungar áhyggjur af vaxandi
fátækt í Úsbekistan. Hátt í þriðj-
ungur þjóðarinnar lifir undir fá-
tækramörkum og er óttast að inn-
an skamms muni 63% lands-
manna búa við sára fátækt. SÞ
hvetja úsbesk stjórnvöld til að
reyna að draga úr atvinnuleysi og
bæta aðgang þegnanna að læknis-
þjónustu og menntun.
FLAKIÐ FLUTT BURT
Ljósmyndararnir þrír tóku myndir af lífvana
líkömum Díönu prinsessu og Dodi Fayed í
flaki bifreiðarinnar.
Mynduðu Díönu:
Dregnir fyr-
ir dómstóla
BRETLAND Þrír ljósmyndarar hafa
verið dregnir fyrir rétt í París,
ákærðir fyrir að taka myndir á
vettvangi þegar Díana prinsessa
og Dodi Fayed létust í bílslysi
árið 1997.
Þremenningarnir tóku myndir
af Díönu og Dodi í bifreið þeirra
fyrir og eftir slysið. Mohammed
Al Fayed, faðir Dodi Fayed,
kærði ljósmyndarana á grund-
velli laga um friðhelgi einkalífs-
ins. Hann hafði áður reynt að fá
þó sótta til saka fyrir manndráp á
þeim forsendum að þeir hefðu
ekki sinnt þeirri skyldu sinni að
aðstoða hina slösuðu.
Ljósmyndararnir eiga yfir
höfði sér allt að eins árs fangelsi
eða rúmlega fjögurra milljóna
króna sekt verði þeir fundnir
sekir. ■
FÖL OG FROST VIÐ KÁRAHNJÚKA
Hópur viðskiptavina Landsbanka Íslands
hélt í kynnisferð þangað.
Boðsferð Landsbankans:
Kárahnjúkar
skoðaðir
FERÐALÖG Landsbanki Íslands bauð
viðskiptavinum og áhrifamönnum
austur á Egilsstaði til fræðslu,
fundar og skoðunarferðar á vinnu-
svæði virkjanaframkvæmda við
Kárahnjúka.
Bankinn kynnti starfsemi sína á
Austurlandi og fyrirsjánlegar
breytingar sem verða á starfsemi
bankans á þeim slóðum þegar stór-
framkvæmdir á svæðinu ná fullum
krafti. Sá uppgangur sem þar á sér
stað vegna stóriðjuframkvæmda
býður upp á ný tækifæri og voru
þau kynnt þeim 200 gestum sem
boðið var með. ■
ÍSRAELSKIR HERMENN DREPNIR
Tveir herskáir Palestínumenn
gerðu árás á landnemabyggð gyð-
inga á Gaza-
ströndinni og
skutu til bana
þrjá ísraelska
hermenn þar
sem þeir lágu
sofandi í her-
búðum. Tveir
aðrir Ísraelar
særðust í
árásinni. Her-
menn eltu annan árásarmanninn
uppi og skutu hann til bana.
Hamas og samtökin Íslamskt
Jihad lýstu ábyrgð á árásinni á
hendur sér.
EINN AF LEIÐTOGUM JIHAD
HANDTEKINN Leyniþjónusta ísra-
elska hersins handtók einn af
leiðtogum samtakanna Íslamskt
Jihad í sælgætisverslun í borg-
inni Ramallah. Osama Barham
hafði verið í felum í þrjú ár.
Hann er sakaður um aðild að fjöl-
da hryðjuverkaárása.
LANDNEMABYGGÐIR STÆKKAÐAR
Ísraelsk stjórnvöld hafa gefið
leyfi fyrir byggingu 300 nýrra
heimila í landnemabyggðunum á
hernumdu svæðum Palestínu.
Þessi ákvörðun brýtur í bága við
vegvísinn til friðar þar sem kveðið
er á um að Ísraelar hætti að stæk-
ka landnemabyggðir sínar á Vest-
urbakkanum og Gaza-ströndinni.
SAMNINGAFUNDUR „Þarna er deilt
um almenn atriði kjarasamninga,“
segir Þórir Einarsson ríkissátta-
semjari en heldur hefur dregið
sundur með deilendum í kjaradeilu
flugvirkja. Hafa þeir boðað verk-
fall aðfaranótt þriðjudags ef ekki
hefur samist fyrir þann tíma. Ef af
verkfalli verður mun millilanda-
flug Icelandair leggjast niður.
„Staðan er einfaldlega sú að
ekkert hefur gengið saman. Þess
vegna sleit ég fundi til að menn átti
sig á alvöru málsins.“
Þórir mun gefa deilendum tóm
til að hugsa sinn gang en hann hef-
ur boðað nýjan sáttafund fyrir há-
degi í dag. „Við munum hittast
hvort sem þokast hefur í stöðunni
eður ei. Að öðru leyti er vonlaust að
ráða eitthvað í stöðuna. Menn eru í
skotgröfum og langur vegur eftir
enn.“ ■
Fjölmargar ályktanir á nýafstöðnu þingi BSRB:
Lágmarkslaun
verði 150 þúsund
ÖGMUNDUR JÓNASSON
Segir mörg mikilvægt mál hafa verið
rædd á 40. þingi BSRB.
Einn þriggja manna sem grunaður er um Skeljungsránið í Lækjargötu
fyrir átta árum lést eftir að hafa verið boðaður í skýrslutöku hjá lögreglu.
Ábending til lögreglu kom henni á spor þriggja manna í byrjun árs.
ÍSLANDSBANKI Í LÆKJARGÖTU
Tveir menn réðust á tvær konur á vegum Skeljungs þegar þær fluttu fé í Íslandsbanka
í Lækjargötu. Þriðji maðurinn beið í stolnum bíl.
■
Okkur bárust
mjög áreiðan-
legar vísbend-
ingar sem við
skoðuðum.
Kjaradeilda flugvirkja:
Nýr fundur í dag
ÞÓRIR EINARSSON
Annar samningafundur með flugvirkjum
verður haldinn í dag.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/
VI
LH
EL
M
Bankar:
Rakalausar
ásakanir
VIÐSKIPTI Samtök banka og verð-
bréfafyrirtækja gagnrýna Neyt-
endasamtökin harðlega í nýrri
skýrslu sem samtökin sendu frá
sér í gær.
„Ályktanir Neytendasamtak-
anna um að stóran hluta hagnaðar
bankanna megi rekja til óeðlilega
mikils vaxtamunar og sívaxandi
tekna af þjónustugjöldum sem við-
skiptavinum er gert að greiða
standast engan veginn,“ segir
skýrslunni.
Þar segir að 77% hagnaðar megi
rekja til mikils og óvenjulegs gengis-
hagnaðar. Þá skili aukin þjónusta við
fagfjárfesta sér í auknum tekjum. ■