Fréttablaðið - 25.10.2003, Qupperneq 16
16 25. október 2003 LAUGARDAGUR
■ Nýjar bækur
■ Andlát
Hinrik fimmti, hinn ungi kon-ungur Englands, vinnur
ásamt mönnum sínum frækinn
sigur á Frökkum í bardaganum
við Agincourt í norðanverðu
Frakklandi. Þetta gerðist 25. októ-
ber árið 1415 og er bardaginn ekki
síst frægur fyrir fjálglegar lýs-
ingar Shakespeares á atburða-
rásinni í leikritinu Hinrik fimmti.
Þetta var í miðju hundrað ára
stríðinu, sem þá geisaði milli Eng-
lendinga og Frakka.
Hinrik fimmti hafði farið með
11 þúsund hermenn yfir Ermar-
sund tveimur mánuðum fyrr og
byrjaði á að ráðast á bæinn
Harfleur í Normandí. Eftir fimm
vikna bardaga höfðu Englending-
ar þar sigur úr býtum, en voru þá
búnir að missa helming manna
sinna.
Konungurinn ungi ákvað þá að
halda heim á leið með hrakið lið
sitt, en mætti 20 þúsund manna
herliði á leiðinni þegar komið var
að Agincourt. Þrátt fyrir mann-
fæð unnu Englendingar engu að
síður sigur og þykir það eitt mesta
hernaðarafrek sögunnar.
Englendingar misstu nokkur
hundruð menn en Frakkar nokkur
þúsund.
Fimm árum síðar var Hinrik
fimmti orðinn konungur í Frakk-
landi, en dó reyndar tveimur árum
síðar úr smitsótt einhverri. ■
Jóhann Gunnar Friðriksson, Hólabraut,
Keflavík, lést fimmtudaginn 23. október.
Gudmund Knutsen, dýralæknir, Fjólu-
götu 3, Akureyri, lést mánudaginn 20.
október.
■ Jarðarfarir
■ Tilkynningar
11.00 Agnes Sigurðardóttir, frá Mána-
skál, verður jarðsungin frá Hösk-
uldsstaðarkirkju.
13.30 Björgvin Kristinn Guðjónsson frá
Þorlákshöfn, Hringbraut 50,
Reykjavík, verður jarðsunginn frá
Þorlákskirkju.
14.00 Ragnar Már Hansson, rafvirkja-
meistari, Aðalgötu 9, Siglufirði,
verður jarðsunginn frá Siglufjarð-
arkirkju.
14.00 Hannes Þorbergsson, Háeyrar-
völlum 48, Eyrarbakka, verður
jarðsunginn frá Eyrarbakkakirkju.
INGIBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR
Hún var kjörinn varaformaður ASÍ á þingi
samtakanna í gær.
??? Hver?
Formaður Landssambands verslunar-
manna og varaformaður ASÍ.
??? Hvar?
Ég er stödd á landsfundi ASÍ.
??? Hvaðan?
Úr vesturbænum í Reykjavík.
??? Hvað?
Landsþing ASÍ er haldið árlega og eru
rúmlega 260 fulltrúar frá stéttarfélögum
víðs vegar um landið.
??? Hvernig?
Baráttan fer fram í stéttarfélögunum á
hverjum stað en við sameinumst í land-
samböndunum og í Alþýðusambandinu
stillum við saman strengi.
??? Hvers vegna?
Vegna þess að á þinginu eru bækur
bornar saman og baráttan undirbúin.
??? Hvenær?
Þingið hófst á fimmtudag og lýkur í dag.
■ Persónan
Ég hlakka alltaf til þessa dags oglít svo á að afmælisdaginn sé
minn dagur,“ segir Þorfinnur
Ómarsson, sem er að dusta af sér
ferðarykið í dag eftir ferð til
Brussel á vegum Vestrænnar sam-
vinnu í herbúðir NATO.
Þorfinnur er 38 ára og hefur
ekki ákveðið hvernig hann ætlar
að verja deginum en hann hafi
ákveðið að koma kærustu sinni á
óvart í kvöld. „Ég á allt eins von á
að hún komi mér á óvart líka,“ seg-
ir hann hlæjandi og vonar að það
takist. „Þessi dagur er sá eini á öllu
árinu sem maður á fyrir sig, má
gera hvað sem er og allir verða að
taka tillit til manns og veita sér-
staka athygli. Maður er nokkurs
konar stjarna dagsins. Ég held að
allir hafi gaman af því, að minnsta
kosti innst inni,“ segir Þorfinnur,
sem verður með útvarpsþátt sinn,
Í vikulokin, í dag klukkan 11 eins
og aðra laugardaga.
Fyrir skömmu tók Þorfinnur
við verkefnastjórnun í Hagnýtri
fjölmiðlun við Háskóla Íslands.
Hann segir ýmsar breytingar á
döfinni sem ekki er vert að ræða
að sinni. „Jú, ég hef gaman af að
vera kominn inn í háskólasamfé-
lagið. Mín kennslureynsla er frá
því ég kenndi í Menntaskólanum í
Hamrahlíð 21 árs gamall, tveim-
ur-þremur árum eldri en nemend-
urnir,“ segir hann kíminn. „Það er
ekki hægt annað en hafa gaman
af þessu. Það er rétt hægt að
ímynda sér hvort ekki er fjör á
kaffistofunni með Hannesi Hólm-
steini og fleiri góðum mönnum,“
segir Þorfinnur, sem á endalaus
áhugamál og fjarri lagi að hann
hafi tíma til að sinna þeim öllum.
„Matseld er eitt af þeim. Ég hef
svakalega gaman af að elda og
bjóða fólki. Ég sé ekki eftir þrem-
ur stundum í að elda mat sem tek-
ur eina stund að borða,“ segir
Þorfinnur Ómarson, sem hefur
þann veikleika að flækja málin
þegar hann eldar einfaldan kvöld-
verð eins og ýsu og kartöflur. ■
Afmæli
ÞORFINNUR ÓMARSSON
■ Er 38 ára í dag og ætlar að koma kær-
ustu sinni á óvart í kvöld. Hann á allt
eins von á að hún komi honum líka á
óvart á afmælisdaginn enda er þetta
hans dagur.
PABLO PICASSO
Á þessum degi árið 1881 fæddist einn
merkasti listamaður heims.
25. október
■ Þetta gerðist
1949 You’re Breaking My Heart með
Vic Damone er á toppi banda-
ríska listans.
1955 Örbylgjuofninn var kynntur í
Ohio-ríki í Bandaríkjunum. Fyrsti
ofninn var frá Tappan-fyrirtækinu
og átti að kosta 1.200 dollara en
það tók hann aðeins 22 sekúnd-
ur að linsjóða egg.
1962 John Steinbeck fékk bókmennta-
verðlaun Nóbels.
1964 Kaunda nær völdum í Zambíu.
1983 2.000 bandarískir hermenn ráð-
ast inn í Grenada.
1984 Evrópa sendir neyðaraðstoð til
Eþíópíu.
1995 Cliff Richard verður sir Cliff Rich-
ard.
ORRUSTAN VIÐ AGINCOURT
■ Á þessum degi sigruðust fáliðaðir og
hraktir Englendingar á fjölmennum her
Frakka í norðanverðu Frakklandi.
25. október
1415
Stjarna dagsins
ÞORFINNUR ÓMARSSON
Hann hefur ánægju af afmælisdegi sínum og finnst afmælis-
dagar til þess gerðir að njóta þeirra og vera stjarna dagsins.
ENGLENDINGAR OG FRAKKAR
Hinrik fimmti vann frækinn sigur á Frökk-
um í orrustunni við Agincourt.
Englendingar sigra Frakka
Bókaútgáfan Salka hefur gef-ið út bókina Kynjaverur í
Kverkfjöllum
eftir Iðunni
Steinsdóttur. Í
fréttatilkynn-
ingu segir að
skelfilegir at-
burðir gerist í
Kverkfjöllum
og þá reyni á
baráttuvilja
landvættanna
og samstöðu. Búi Kristjánsson
myndskreytti bókina, sem er
48 bls.
Fréttablaðið býður lesendumað senda inn tilkynningar um
dánarfregnir, jarðarfarir, afmæli
eða aðra stórviðburði. Tekið er á
móti tilkynningum á tövupóst-
fangið tilkynningar@fretta-
bladid.is. Ef óskað er eftir
jarðarfarar- eða andlátsauglýs-
ingu má senda texta í slíkar
auglýsingar á auglysingar-
@frettabladid.is.
Allsherjar leikhúsupplifun,“segir Ármann Guðmundsson
hjá Bandalagi íslenskra leikfélaga
en það heldur hátíð í Borgarleik-
húsinu í dag.
Margt smátt heitir hátíðin en
þar sýna 9 áhugaleikfélög víðs
vegar að af landinu 21 leikrit.
„Langflest eru þetta nýleg ís-
lensk leikverk,“ segir Ármann en
leikfélögin sem standa að á hátíð-
inni eru Freyvangsleikhúsið,
Hugleikur, Leikfélag Dalvíkur,
Leikfélag Fljótsdalshéraðs, Leik-
félag Hafnarfjarðar, Leikfélag
Kópavogs, Leikfélag Mosfells-
sveitar, Leikfélagið Sýnir og Leik-
hópurinn Vera, Fáskrúðsfirði.
Eftir að sýningum lýkur verða
stuttar umræður um hátíðina. Að
því búnu verður slegið upp balli
fyrir alla hátíðargesti á Nýja sviði
Borgarleikhússins. Stuttverkahá-
tíðin Margt smátt hefst klukkan
17 og kostar miðinn 1.900 krónur.
21 leikrit –
9 leikhópar
HJARTAÐ ER AÐEINS VÖÐVI
Myndin er úr einu leikverkanna, sem
nefnist Hjartað er aðeins vöðvi.
Tímamót
LEIKRIT
■ Áhugaleikfélög víðs vegar að af land-
inu sýna í Borgarleikhúsinu 21 stutt leik-
verk sem eru á bilinu 3-15 mínútur að
lengd.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T