Fréttablaðið - 25.10.2003, Side 40
Þetta eru verk sem ég vann fyrirári síðan og þau fjalla öll um
varðveislu fegurðar,“ segir ljós-
myndarinn Börkur Sigþórsson sem
opnar í dag sýningu á verkum sínum
á Thorvaldsens bar. „Þetta er fram-
hald af pælingum sem ég hef verið í
síðan ég byrjaði að taka myndir. Það
varð á sínum tíma allt vitlaust þegar
ég tók myndir fyrir skólablað
Menntaskólans í Reykjavík þar sem
vel útlítandi krakkar voru í sjálfs-
morðsstellingum. Þessi sýning fjall-
ar um það sama, útlitsdýrkun-
ina í samfélaginu sem er
stundum á svolítið sjúklegu
stigi. Það er ein fyrirsæta,
Lúlla, á öllum myndunum og
myndirnar eru vísun í Mjall-
hvítarævintýrið; Mjallhvít er
of fögur til að henni sé fargað
og fegurðin er því lokuð inni í
glerkistu.“
Börkur hefur auglýsinga-
ljósmyndun að aðalstarfi:
„Manni gefast ekki mörg
tækifæri til að sýna verk sín annars
staðar en í auglýsingadálkum fjöl-
miðlanna og því ákvað ég að þiggja
boð um að halda sýningu á Thor-
valdsens. Mörg af mínum uppá-
haldsverkum hef ég hvergi birt og
ætla því að nýta tækifærið núna,“
segir Börkur sem er maðurinn á
bakvið linsuna í allmörgum vel
þekktum auglýsingaher-
ferðum og stefnir á leik-
stjórn í framtíðinni. „Ég
dvaldi í sumar í Los Angeles
við nám í tónlistarmynd-
bandagerð. Í næstu viku
leikstýri ég myndbandi fyrir
hljómsveitirnar Mínus og
Quarashi.“
Börkur var tilnefndur
til Edduverðlaunanna
ásamt Birni Thors fyrir
tónlistarmyndband sem
þeir gerðu fyrir hljómsveitina
Maus: „Ég er núna kominn inn
sem leikstjóri hjá Saga Film og
stefni á að einbeita mér meira
að leikstjórn í framtíðinni.“
Opnun á ljósmyndasýningu
Barkar er á Thorvaldsensbar kl.17.
00 í dag og sýningin stendur til 22.
nóvember. ■
40 25. október 2003 LAUGARDAGUR
Pondus eftir Frode Øverli
Fréttiraf fólki
Aðdáendum Pamelu Andersonbrá heldur í brún þegar hún
sást drekka áfengi í
sænskum sjón-
varpsþætti. Stúlk-
an hefur haldið
því fram að hún
eigi aðeins um
10 ár eftir
ólifað vegna
veikinda
sinna og
hefur hald-
ið því
fram að
hún hafi
tileinkað sér
heilsusamlegra
lífsfar í von um
að auka lífslíkur
sínar. Aðdáend-
ur hafa áhyggj-
ur af því að þetta
sé ekki satt og að
Pamela fari fyrr í
gröfina en hún þyrfti.
Sjónhverfingarmaðurinn DavidBlaine segist vera reiðubúinn
til þess að fara láta sér fasta
fæðu til munns aftur. Líkami
hans hefur
jafnað sig
merkilega
fljótt eftir
sjálfsprísund
hans í plast-
búrinu sem
hékk í krana
við hlið
Tower Bridge í London í 44 daga.
Þá lét hann sér aðeins vatn til
munns og eftir slíka meðferð
þarf líkaminn tillögunartíma.
Nýja plata Britney Spears ersögð vera kynlíf, kynlíf og
aftur kynlíf, samkvæmt MTV, í
það minns-
ta. En þetta
er plata
sem ferðast
allt frá
hiphoppi og
yfir í reg-
gae, eins og
fram kemur í
dómum um
plötuna. Þá eru
lög eins og
Outrageous,
Showdown, Boom
Boom og Brave New
Girl sögð sanna það
fyrst og fremst að
Britney ætli að
selja sig sem kyntákn og
losa sig við skólastelpuímyndina.
Ný sjónvarpsmynd um fyrrumleikarann og Bandaríkjafor-
setann Ron-
ald Reagan
hefur verið
harðlega
gagnrýnd.
Kvikmynda-
gerðamenn-
irnir eru
sagðir hafa
bætt inn
slagorðum, ræðum og atriðum
sem eiga sér enga stoð í raun-
veruleikanum. Með aðalhlutverk
í myndinni fara James Brolin og
Judy Davis.
Of fögur til að
henni sé fargað
Fegurð
BÖRKUR SIGÞÓRSSON
■ Gerir útlitsdýrkun samfélagsins að
viðfangsefni í ljósmyndasýningu sem
hann opnar á Thorvaldsens bar í dag.
BÖRKUR
SIGÞÓRSSON
Starfar við
auglýsingaljós-
myndun og leik-
stjórn
MJALLHVÍT
Þótti of falleg til að henni
væri fargað og fegurð
hennar var römmuð inn í
glerkistu. Lúlla er fyrir-
sætan sem prýðir ljós-
myndir Barkar.
Ó, Tína!Ó, Jói! TÍNA??! Ég meinaTanja! Tóta?
Tobba?
Tolla?
Trína?
Sigfríður?