Fréttablaðið - 08.11.2003, Side 2
2 8. nóvember 2003 LAUGARDAGUR
„Ég bjó í Hamraborginni í mörg ár.
Það er fínt að búa í blokk.“
Deilt er um byggingu háhýsa í Kópavogi. Flosi
Eiríksson er oddviti minnihlutans í bæjarstjórninni
og vill ekki blokkir í landi Lundar.
Spurningdagsins
Flosi, viltu ekki búa í blokk?
Norðurljós
á bláþræði
VIÐSKIPTI Bankarnir sem standa að
sambankaláni Norðurljósa eru
reiðubúnir að stefna fyrirtækinu
í gjaldþrot fyrir áramót náist
ekki samningar um að leysa úr
skuldastöðu félagsins.
Skuldir Norðurljósa nema 6,9
milljörðum króna og þolinmæði
lánardrottna er á þrotum sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðs-
ins. Eigið fé félagsins er uppurið
að sögn Sigurðar G. Guðjónsson-
ar forstjóra.
Stjórn félagsins ætlar að legg-
ja tillögu fyrir hluthafafund í
næstu viku um að
færa hlutafé niður
um 80% og afla
nýs hlutafjár. Með
því yrði afskrifað-
ur rúmur 1,3 millj-
arður króna. Sig-
urður segir að á þessu ári hafi
komið um 500 milljónir króna inn
í reksturinn frá núverandi eig-
endum.
Nokkrir öflugir fjárfestar
hafa sýnt áhuga á að eignast hlut
í Norðurljósum en það stendur
bæði í lánardrottnum og hugsan-
legum fjárfestum að félög Jóns
Ólafssonar muni áfram eiga hlut
í félaginu. Hann nýtur ekki
trausts, sagði heimildarmaður
innan bankakerfisins.
Fréttablaðið greindi frá því í
síðasta mánuði að breskur kaup-
sýslumaður, Marcus Evans, hefði
gert tilboð í Norðurljós og verið
reiðubúinn að greiða milljarð
króna fyrir gegn því að hluti
skulda yrði felldur niður. Tilboð-
ið þótti ekki trúverðugt.
Nýtt hlutafé þarf að vera hátt á
annan milljarð króna. Þykir lík-
legt að Kaupþing-Búnaðarbanki,
stærsti lánardrottinn og
næsstærsti hluthafi Norðurljósa,
reyni nú að ná saman hópi fjár-
festa til að tryggja sína hagsmuni
og framtíð Norðurljósa.
Hvorki lánardrottnar né þeir
sem kæmu nýir að félaginu hefðu
áhuga á að rekstur stöðvaðist og
því verður reynt til þrautar að ná
samningum fram til áramóta.
Rekstur hefur gengið ágætlega að
undanförnu og tekjur ársins eru
um sex milljarðar.
Félag Jóns Ólafssonar á nú
62% hlutafjár Norðurljósa. Verði
hlutaféð fært niður á hann enn
12,4%. Talið er að lífeyrissjóðir
séu ófúsir til að afskrifa hlutafé á
meðan Jóni yrði gefinn kostur á
að fara með peninga út úr félag-
inu. Sigurður G. Guðjónsson segir
mikilvægast að meta vandlega
hvaða kostir séu í stöðunni og
sleppa því hvaða persónur sé um
að ræða.
Ekki náðist í Jón Ólafsson.
kgb@frettabladid.is
Tvö fjölbýlishús voru rýmd vegna hættu á aurskriðu:
Íbúar voru sendir á hótel
ALMANNAVARNIR „Ef við hefðum
sjón eins og kötturinn hefðum við
ekki rýmt húsin,“ segir Halldór
Halldórsson, bæjarstjóri á Ísa-
firði, en tvö fjölbýlishús voru
rýmd í fyrrinótt vegna hugsan-
legrar hættu á aurskriðu úr snjó-
flóðavarnargörðum sem unnið er
að fyrir ofan bæinn.
Íbúarnir fóru á hótel þar til að
búið væri að ganga úr skugga um
að ekki væri hætta á ferðum.
„Þetta var þannig að lögreglan
kallaði á bæjarverkfræðing og
hann hringdi í mig af staðnum um
klukkan hálf fjögur um nóttina.“
Halldór segir að snjóflóðavarnar-
garðurinn sjálfur sé massífur úr
hörðum kjarna en fyrir innan
hann er búið að ýta jarðveginum
sem áður hafði verið fjarlægður,
aftur að garðinum. Því er moldin í
óþjöppuðum haugum fyrir innan
garðinn. Hann segir að vegna
mikillar úrkomu í nótt voru þeir
hræddir um að hugsanlega gætu
myndast stíflur og að mikið fljóð
gæti orðið ef þær myndu bresta.
„Klukkan tíu um morguninn sáum
við betur hvernig ástandið var og
afléttum hættuástandinu.“ Hall-
dór segir að ekki sé reiknað með
því að snjóflóðavarnargarðar
skapi hættu en þar sem þetta er
vinnusvæði hafi komið upp þessi
sérkennilega staða. ■
VINNUBÚÐIR FOSSKRAFTS
Vegur að búðunum fór í sundur þegar
Jökulsá í Fljótsdal flæddi yfir bakka sína.
Vatnavextir við
Kárahnjúka:
Veginum
lokað
KÁRAHNJÚKAR Miklir vatnavextir
voru á vinnusvæðinu við Kára-
hnjúka fram eftir degi í gær. Ein-
hverjar skemmdir urðu á nýjum
Fljótsdalsvegi upp að Kárahnjúk-
um en þær voru smávægilegar og
vinnuflokkar lagfærðu veginn
jafnóðum.
Leó Sigurðsson, öryggisfulltrúi
hjá Impregilo, sagði að vegurinn
hefði aldrei verið í hættu en til ör-
yggis hefði almennri umferð ver-
ið tímabundið vísað frá. Engin
hætta var heldur á ferðum í þeim
vinnubúðum sem reistar hafa ver-
ið fyrir starfsmenn.
Vinnubúðir Fosskrafts sem
liggja á bökkum Jökulsár í Fljóts-
dal voru umluktar vatni en voru
ekki í hættu. ■
BAKKAÐI Í ÍRAKSMÁLI
Abdullah Gul, utanríksiráðherra Tyrklands,
þykir hafa beðið nokkurn hnekki en hann
neyddist til að hætta við áform sín um að
senda tyrkneska hermenn til Írak.
Áform Tyrkja um
friðarhæslu í Írak:
Hættir við
ANKARA, AP Tyrkneska ríkisstjórnin
ætlar ekki að senda hermenn til
friðargæslu í Írak, líkt og áður
hafði verið ákveðið. Ástæðan er
eindregin andstaða innan fram-
kvæmdaráðs Íraks og ekki síður
andstaða meðal almennings í Tyrk-
landi.
Tyrkneska þingið samþykkti í
síðasta mánuði tillögu utanríkis-
ráðherra landsins um þátttöku í
friðargæslu og uppbyggingu
Íraks. Til stóð að senda þangað allt
að 10.000 tyrkneska hermenn og
var undirbúningur vel á veg kom-
inn.
Erdogan, forsætisráðherra
Tyrklands, segir að Tyrkir hafi
aldrei lofað að senda herlið til
Íraks heldur aðeins sagst ætla að
íhuga það.
Þá sagði Erdogan að Tyrkir
myndu engu að síður taka myndar-
legan þátt í uppbyggingu Íraks. ■
Ítalska lögreglan:
Íslendingar
tengjast
barnaklámi
BARNAKLÁM Tvö barnaklámsmál
hafa komið upp á Ítalíu sem Ís-
lendingar tengjast.
Á vefútgáfu dagblaðsins
Ditario kemur fram að lögreglan í
Palermo á Ítalíu hafi sett upp
barnaklámssíðu á Internetinu í
byrjun sumars. Vefsíðan var gerð
sem gildra fyrir þá sem hlaða eða
kaupa barnaklám á Netinu. 68
manns bitu á agnið og þeirra á
meðal eru 62 Ítalir, þrír Þjóðverj-
ar, einn Íslendingur, Pólverji og
Ungverji.
Heimildir Fréttablaðsins
herma, að lögreglan í Reykjavík,
rannsaki eldra barnaklámsmálið
sem upphófst í Feneyjum. Íslend-
ingur er talinn tengjast málinu.
Það er sambærilegt því sem kom
upp í Palermo.
Smári Sigurðsson, hjá alþjóða-
deild ríkislögreglustjóra, segir
barnaklámsmálið sem upphófst á
Ítalíu vera til rannsóknar, og hafi
það borist til þeirra í sumar. ■
BANKAR Stóru viðskiptabankarnir
þrír hafa hagnast um tæpa 1,3
milljarða króna á mánuði frá ára-
mótum samkvæmt uppgjörum
þeirra fyrir fyrstu níu mánuði
ársins.
Kaupþing-Búnaðarbanki hagnað-
ist mest eða um rúma fimm millj-
arða króna. Íslandsbanki kemur
næstur með fjóra milljarða í
hagnað. Landsbankinn skilaði 2,5
milljarða króna hagnaði fyrstu
níu mánuðina.
Arðsemi eiginfjár bankanna
var mest hjá Íslandsbanka eða
31,3 prósent. Kaupþing-Búnaðar-
banki og Landsbankinn voru með
um 21 prósent arðsemi eigin fjár.
Mesta hagnaðaraukningin er hjá
Landsbankanum eða 69 prósent
miðað við fyrstu níu mánuðina í
fyrra.
Heildareignir bankanna nema
nú 1.325 milljörðum króna. Kaup-
þing-Búnaðarbanki er með mestu
eignirnar eða 541 milljarð króna.
Rekstrarumhverfi banka hefur
verið hagfellt að undanförnu og
flest bendir til þess að árið verði
metár í rekstri fjármálafyrir-
tækja. ■
OFAN SELJAHVERFIS
Halldór Halldórsson segir að ekki sé reikn-
að með að snjóflóðavarnargarðar skapi
hættu.
EES svæðið stækkar:
Undirritun
á þriðjudag
EES SVÆÐIÐ Samningur á milli EFTA
þjóðanna og Evrópusambandsins
um stækkun Evrópska efnahags-
svæðisins verður undirritaður á
þriðjudaginn. Þetta kemur fram í
fréttatilkynningu frá utanríkis-
ráðuneytinu.
Til stóð að undirrita samninginn,
sem fjallar um stækkun svæðisins
vegna fjölgunar þjóða í Evrópu-
sambandinu, þann 14. október. Ekk-
ert varð af þeirri undirritun þar
sem fulltrúar Liechtenstein neituðu
að skrifa undir vegna óuppgerðra
mála á milli Liechtenstein annars
vegar og Tékklands og Slóvakíu
hins vegar. ■
Lánardrottnar hafa tapað þolinmæði gagnvart Norðurljósum.
Nýir fjárfestar hafa ekki áhuga á samstarfi við Jón Ólafsson.
Stefnir í gjaldþrot fyrir áramót ef samningar nást ekki.
Á SKRIFSTOFU NORÐURLJÓSA
Stjórn Norðurljósa ætlar að leggja tillögu fyrir hluthafafund um að færa hlutafé niður um
80% og afla nýs hlutfjár.
■
Nýtt hlutafé
þarf að vera
hátt á annan
milljarð króna.
Bankarnir græða:
Hagnaður á
tólfta milljarð
HAGNAÐUR BANKANNA
Banki milljarðar króna
Kaupþing Búnaðarbanki 5
Íslandsbanki 4
Landsbankinn 2,5
Samtals 11,5
Deilur um þjóðlendur:
Málið til
Hæstaréttar
ÞJÓÐLENDUR Héraðsdómur
Suðurlands hafnaði kröfum rík-
isins um ógildingu á úrskurði
óbyggðanefndar varðand þjóðlen-
dur.
„Þetta er í raun einungis áfanga-
sigur,“ segir Margeir Ingólfsson,
formaður byggðaráðs Bláskóga-
byggðar. Óbyggðanefnd komst að
þeirri niðurstöðu að land innan
landamerkja jarða bænda í upp-
sveitum Árnessýslu teljist ekki til
þjóðlendna eins og ríkið hélt fram.
■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T