Fréttablaðið - 08.11.2003, Qupperneq 6
6 8. nóvember 2003 LAUGARDAGUR
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 76.72 0.38%
Sterlingspund 127.71 -0.10%
Dönsk króna 11.8 0.21%
Evra 87.7 0.19%
Gengisvístala krónu 124,68 0,55%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 460
Velta 7.895 milljónir
ICEX-15 1.957 0,68%
Mestu viðskiptin
Kaupþing Búnaðarbanki hf. 872.514.325
Pharmaco hf. 854.958.203
Tryggingamiðstöðin hf. 544.410.000
Mesta hækkun
Tryggingamiðstöðin hf. 3,45%
Pharmaco hf. 3,34%
Og fjarskipti hf. 3,20%
Mesta lækkun
Sláturfélag Suðurlands svf. -8,18%
Eimskipafélag Íslands hf. -2,19%
Líftæknisjóðurinn hf. -2,00%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ* 9.849,9 -0,1%
Nasdaq* 1.981,8 0,3%
FTSE 4.376,9 1,2%
DAX 3.782,6 1,3%
NK50 1.364,6 0,3%
S&P* 1.056,0 -0,2%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
Veistusvarið?
1Heimamenn á Vopnafirði keyptu ný-lega upp ráðandi hlut í stærsta fyrir-
tæki þorpsins af Eskju frá Eskifirði. Hvað
heitir fyrirtækið?
2Í hvaða landi mun Ásatrúarsöfnuður-inn senn hljóta sess sem viðurkennt
sjálfstætt trúfélag?
3Mónakó vann stærsta sigur sem unn-ist hefur í Meistaradeild Evrópu gegn
Deportivo á miðvikudag. Hvernig fór leik-
urinn?
Svörin eru á bls. 46
MENNING Margt manna mætti til
opnunar Draugasetursins á
Stokkseyri í gær. Safnið var opn-
að með því að höggvið var á blóði
roðinn líknarbelg. Athygli vakti
að séra Kristinn Ágúst Friðfinns-
son, sóknarprestur í Hraungerðis-
prestakalli, annaðist þann gjörn-
ing en þess er skemmst að minn-
ast að biskup Íslands veittist að
safninu. Auk Kristins var Sigurð-
ur Sigurðarson, vígslubiskup í
Skálholti, viðstaddur.
„Við töldum við hæfi að nota
sigurkuflinn en honum fylgir sú
náttúra að það sem fætt er í sig-
urkufli er fætt til mikillar gæfu.
Því fylgir skyggnigáfa og fullom-
in vörn gegn galdri og hvers kyns
fordæðu,“ segir Bjarni Harðar-
son, ritstjóri og draugafræðingur.
Draugasetrið á Stokkseyri opn-
aði í gær klukkan 15. Meðal þeirra
sem tóku til máls var Sigurður
Sigurðarson vígslubiskup.
Biskupi Íslands, Karli Sigur-
björnssyni, var boðið til opnunar-
innar en hann afþakkaði boðið.
„Hann bað fyrir góða kveðju til
setursins en gat því miður ekki
verið viðstaddur þar sem hann er
erlendis. Þetta var mikilvæg
sáttahönd Draugasetursins og
biskups,“ segir Bjarni. ■
Haldlítil rök fyrir
breytingunum
SAMGÖNGUR „Samkvæmt okkar
mati þýðir þetta allt að 40% hækk-
un þungaskatts á einstökum leið-
um,“ segir Óskar Óskarsson, deild-
arstjóri innanlandsdeildar Sam-
skipa-Landflutninga. Fjármálaráð-
herra hyggst leggja fram nýtt
frumvarp til laga
um breyttan þunga-
skatt í því skyni að
auðvelda kaup al-
mennings á bifreið-
um með dísilvél í
stað bensínvéla. Til
að mæta tekjutapi
ríkisins vegna þessa
verða lögð aukin gjöld á flutninga-
bíla sem eru yfir 10 tonn að þyngd.
Óskar segir að samkvæmt laus-
legum útreikningum geti þetta þýtt
um og yfir 5% hækkun á flutnings-
gjaldi. „Þetta hefur tvímælalaust
bein áhrif á allan rekstur og kemur
einna verst út fyrir landsbyggð-
ina.“
Þorleifur Þór Jónsson, hagfræð-
ingur Samtaka ferðaþjónustunnar,
segir rök fjármálaráðherra fyrir
hækkun þungaskattsins haldlítil.
„Eina ástæðan sem tilgreind er í
frumvarpinu er sú að gjaldskrá
þungaskatts hafi síðast verið breytt
árið 1999 og vísitalan hafi hækkað
um 20% síðan þá. Staðreyndin er
hins vegar sú að tekjur ríkissjóðs af
þungaflutningum hafa engu að síð-
ur hækkað um 40% á sama tíma. Í
fjárlagafrumvarpi 1999 var gert
ráð fyrir 3.500 milljónum króna í
þungaskatt. Reyndin varð sú að
þungaskattur það árið færði ríkis-
sjóði 4.050 milljónir. Þarna er mun-
ur upp á hálfan milljarð.“
Þorleifur segir að í fjárlaga-
frumvarpi fyrir árið 2004 sé gert
ráð fyrir að tekjur af þungaskatti
verði 5.573 milljónir og séu frum-
vörpin 1999 og 2004 borin saman sé
um 60% hækkun á þungaskatti að
ræða.
Frumvarp varðandi hækkun á
olíuverðsgjaldi er til skoðunar í
þingflokkum en þar er um að
ræða 8% hækkun á vörugjaldi
eldsneytis. Er sú hækkun ætluð til
að dekka það tekjutap sem ríkið
verður fyrir gangi áætlanir eftir
um fjölgun dísilbifreiða í almenn-
ingseigu.
albert@frettabladid.is
FALLINNA FÉLAGA MINNST
Bandarískur hermaður stendur við riffla og
hjálma sem stillt var upp til minningar um
þá 16 hermenn sem fórust þegar Chinook
þyrla hersins var skotin niður nærri Fallu-
jah í Írak á mánudag.
Herþyrla hrapaði
við Tíkrít:
Sex fallnir
TÍKRIT, AP Sex hermenn létust þeg-
ar bandarísk Blackhawk herþyrla
hrapaði nálægt herbúðum Banda-
ríkjamanna við Tikrit í Írak í gær-
morgun. Talsmaður hersins full-
yrti að sex menn hefðu farist þeg-
ar þyrlan hrapaði. Ekki liggur fyr-
ir hvort hún var skotinn niður eða
hrapaði vegna vélarbilunar.
Þá féll einn bandarískur her-
maður og að minnsta kosti sex
særðust í fyrirsáti uppreisnar-
manna í austurhluta Mósúl í gær-
morgun.
Þrír bandarískir hermenn til
viðbótar særðust svo í sprengju-
árás við hótel í miðborg Mósúl. ■
Áhrif veðurfars:
Minni mjólk
LANDBÚNAÐUR Mjólkurframleiðsla
minnkaði verulega milli október-
mánaðar í fyrra og á þessu ári.
Samdrátturinn nemur 7,6% og
kemur fram á vef Landssambands
kúabænda að skýringuna sé vafa-
lítið að finna í snöggum veður-
farsbreytingum í byrjun mánað-
arins. Þær munu víða hafa orsak-
að minnkandi nyt hjá kúm.
Mjólkurframleiðslan í septem-
ber var nokkuð meiri en árið áður
og framleiðsla það sem af er árinu
því aðeins 2,3% minni en í fyrra. ■
Tannlæknafélagið:
Árni
Johnsen réði
úrslitum
KOSNING Atkvæði Árna Johnsen réði
því að tveir frambjóðendur voru
hnífjafnir í kjöri til formanns Tann-
læknafélags Íslands.
Um 220 manns sóttu aðalfund fé-
lagsins í fyrrakvöld og tókust fylk-
ingar að baki Ingunnar Friðleifs-
dóttur og Heimis Sindrasonar hart
á. Ingunn og Heimir fengu jafn-
mörg atkvæði, en einn kaus Árna,
sem hvorki er tannlæknir né var
hann í framboði. Hlutkesti réð því
að Heimir verður næsti formaður. ■
Prestur hjó á blóðugan líknarbelg:
Vígslubiskup við
opnun draugasafns
SÉRA
KRISTINN
Séra Krist-
inn Ágúst
Friðfinsson,
sóknar-
prestur í
Hraungerð-
ispresta-
kalli, hjó á
líknarbelg
við opnun
Draugaset-
ursins á
Stokkseyri
í gær.
Myrti þrjú börn sín:
Börn haldin
illum anda
TEXAS, AP Dómstólar í Texas hafa
fundið 23 ára karlmann sekan um
að hafa myrt þrjú stjúpbörn sín.
John Allen Rubio og sambýlis-
kona hans Angela Camacho játuðu
að hafa kæft börnin, stungið þau og
höggvið höfuðin af þeim. Þau sögðu
lögreglunni að börnin, sem voru
tveggja mánaða, eins árs og þriggja
ára, hefðu verið haldin illum anda.
Það tók kviðdómendur átta
klukkustundir að kveða upp úr-
skurð. Ekki liggur fyrir hvort
Rubio verður dæmdur til dauða eða
í lífstíðarfangelsi.
Dómstólar eiga eftir að úr-
skurða um sakhæfi Camacho. ■
Fólk í ferðamennsku og flutningageiranum telur rök fjármálaráðherra
fyrir hækkun þungaskatts á hóp- og flutningabifreiðar haldlítil og segir
breytinguna gera allan rekstur flóknari og erfiðari.
HÆRRI SKATTAR
Nýtt frumvarp eykur skattálögur á hóp- og flutningabifreiðar.
■
Þetta hefur tví-
mælalaust bein
áhrif á allan
rekstur og kem-
ur einna verst
út fyrir lands-
byggðina.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/I
N
G
Ó