Fréttablaðið - 08.11.2003, Blaðsíða 8
8 8. nóvember 2003 LAUGARDAGUR
Líking við vændi
„Væru ekki allir ánægðir ef
námuverkamennirnir misstu
vinnuna og þyrftu ekki framar
að krafsa upp kolamola mörg
hundruð metra undir yfirborði
jarðar? Nei, reyndar ekki. Þeir
fyrstu sem yrðu óánægðir væru
kolanámumennirnir sjálfir.“
Vefþjóðviljinn, 7. nóvember, um
vændisfrumvarpið.
Bora bora
„Tvenn jarðgöng eru þess vegna
svarið við samgönguvanda okk-
ar Vestfirðinga.“
Ólína Þorvarðardóttir, Bæjarins besta,
7. nóvember.
Rýkur úr hausunum?
„Háskólavæðing gæti hæglega
orðið stóriðja okkar Vestfirð-
inga.“
Einar K. Guðfinsson alþingismaður,
Fréttablaðið 7. nóvember.
Orðrétt
STJÓRNMÁL Sex sóttu um starf
ráðuneytisstjóra í sjávarútvegs-
ráðuneytinu en umsóknarfrestur
rann út á miðvikudag.
Starfið er laust frá áramótum
en þá hverfur Þorsteinn Geirsson,
sem nú gegnir því, aftur til starfa
í dómsmálaráðuneytinu. Umsækj-
endurnir eru Dagur Björn Agn-
arsson sjávarútvegsfræðingur,
Stefán Eiríkur Stefánsson, véla-
verkfræðingur og líffræðingur,
Valgerður Kristjánsdóttir fram-
kvæmdastjóri, Viðar Helgason
fiskifræðingur og Vilhjálmur Eg-
ilsson, hagfræðingur og fyrrver-
andi alþingismaður.
Vilhjálmur Egilsson sagði af
sér þingmennsku þegar hann var
ráðinn til þess að gegna störfum á
vegum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
en hann hefur átt sæti í stjórn
sjóðsins. Íslendingar eru fulltrúar
síns kjördæmis í sjóðnum fram til
1. janúar 2004.
„Ég reikna nú með því að ég
verði ekki virkur í pólitíkinni með
sama hætti. Ég mun starfa í því í
samræmi við þau störf sem ég tek
að mér,“ segir Vilhjálmur að-
spurður um hvort hann hafi í
hyggju að hætta afskiptum af
flokkapólitík.
Reiknað er með að sjávarút-
vegsráðherra tilkynni um ráðn-
ingu á næstu vikum. ■
Félag raungreinakennara í framhaldsskólum:
Mótmæla styttingu
framhaldsskólans
SKÓLAMÁL Aðalfundur Fé-
lags raungreinakennara í
framhaldsskólum hefur
samþykkt ályktun þar sem
áformum um styttingu
náms til stúdentsprófs er
harðlega mótmælt.
Raungreinakennarar
telja að ákvörðunin hafi
ekki verið undirbúin
nægjanlega vel og segja
að eðlilegra hefði verið að
endurskoða öll skólastig
frá leikskóla til framhaldsskóla.
Raungreinakennarar minna á orð
fyrrum menntamálaráðherra frá
árinu 2001 þar sem áhyggjum var
lýst yfir því hve fáir íslenskir nem-
endur útskrifist úr raungreinafög-
um.
Telja raungreinakennarar að
stytting náms til stúdents-
prófs stríði gegn því
markmiði að auka ásókn
íslenskra stúdenta í
áframhaldandi nám í
raungreinum. Kennarar-
nir benda aukinheldur á
að reiknilíkan mennta-
málaráðuneytisins, sem
er grundvöllur fjárveit-
inga til skólanna, hafi leitt
til þess að erfitt sé fyrir
skólana að gefa góðum
nemendum kost á að ljúka námi á
þremur árum.
Kennararnir beina því til ríkis-
stjórnarinnar að hugmyndum um
styttingu stúdentsprófs verði
frestað þar til frekari vinna við fag-
lega úttekt á hugmyndinni hefur
farið fram. ■
Fjármögnun Altech:
Í viðræðum
við Transal
VIÐSKIPTI Fyrirtækið Altech er enn
í viðræðum við bresk-rússneska
álframleiðandann Transal um
kaup á verulegum hluta í fyrir-
tækinu af Jóni Hjaltalín Magnús-
syni, forstjóra fyrirtækisins. Fyr-
irtækið leitar eftir 100 miljóna
króna fjármögnun.
Starfsmönnum hjá Altech hef-
ur fækkað verulega frá því í sum-
ar, eftir að samningi við ástralskt
álver var rift. Starfsmenn eru nú
fimm en voru 25. Jón Hjaltalín
segir að fyrirtækið muni í aukn-
um mæli nýta sér verktaka. Með-
al framtíðaráforma fyrirtækisins
er aðild að álveri við Húsavík. ■
ARIZONA, AP Bandaríkjastjórn
bráðvantar þýðendur og túlka til
að fara í gegnum skjöl og hljóð-
upptökur sem gætu innihaldið
upplýsinga um fyrirhugaðar
hryðjuverkaárásir og annað sem
ógnar öryggi þjóðarinnar.
Verið er að leita að sérfræðing-
um með tungumálakunnáttu til að
fara yfir leyniskjöl jafnt sem per-
sónuleg gögn. Að sögn yfirvalda
hafa safnast fyrir heilu bílhlössin
af gögnum sem ekki hefur tekist
að ráða fram úr. Einkum er sóst
eftir þýðendum með sérþekkingu
á vísindum, læknisfræði, stjórn-
málum, hernaði og hryðjuverkum
sem skilja tungumál á borð við
arabísku, farsi og pashto. Síðari
tungumálin tvö eru meðal annars
töluð í Íran og Afganistan. Stjórn-
völd kanna bakgrunn allra þeirra
sem sækja um sem þýðendur.
Ásókn í nám í arabísku jókst
verulega í Bandaríkjunum eftir
hryðjuverkaárásirnar 11. septem-
ber. Nemendum fjölgaði úr 5000 í
10.000 frá 1998 til 2002. ■
PARÍS, AP Jean-Pierre Raffarin, for-
sætisráðherra Frakklands, til-
kynnti að níu milljörðum evra
yrði varið næstu fjögur og hálft ár
til málefna aldraðra og öryrkja, til
viðbótar því sem fjárlög gera ráð
fyrir. Þetta eru tæpir átta hund-
ruð milljarðar króna. Fjármunun-
um verður meðal annars varið í að
efla öryggisnet fyrir aldraða og
öryrkja svo neyðarástand, líkt og
skapaðist í hityabylgjunum í
Frakklandi í sumar, endurtaki sig
ekki. Rúmlega 14.800 Frakkar lét-
ust í hitabylgjunum, stærstur
hlutinn eldra fólk og sjúkt.
Raffarin hyggst fjármagna
aukin framlög til aldraðra og ör-
yrkja með því að afnema frí opin-
berra starfsmanna á annan í
hvítasunnu. Fyrirtæki hafa þó
frelsi til að velja einhvern annan
lögboðinn frídag. Áætlað er að
framleiðni fyrirtækja aukist um
0,3% með afnámi frís á annan í
hvítasunnu og verða fyrirtæki að
greiða sem svarar 0,3% af launum
starfsfólks í sérstakan sjóð.
Franska þingið á enn eftir að
leggja blessun sína yfir tillögur
Raffarins en lítillar fyrirstöðu er
að vænta þar. ■
Sex sóttu um stöðu:
Vilhjálmur Egilsson
meðal umsækjenda
VILHJÁLMUR EGILSSON
Vilhjálmur er meðal sex umsækjenda um
stöðu ráðuneytisstjóra í sjávarútvegsráðu-
neyti.
Bandaríkin:
Atvinnuleysi
minnkar
WASHINGTON, AP Atvinnuleysi
minnkaði um 0,1% í Bandaríkjun-
um í októbermánuði. Það mælist
nú 6%.
Bandaríska atvinnumálaráðu-
neytið greindi frá því í gær að í
síðasta mánuði hefðu störfum
fjölgað um 126 þúsund, sem er
miklu meira en sú 50 þúsund
starfa aukning sem spáð hafði
verið. Mikil uppsveifla hefur ver-
ið á bandaríska atvinnumarkað-
num síðustu þrjá mánuði. Í sept-
ember urðu til 125 þúsund ný
störf og í ágúst fjölgaði störfum
einnig töluvert meira en spáð
hafði verið. Þetta er viðsnúninur
því sex mánuði þar á undan hafði
atvinnuleysi aukist jafnt og þétt.
Enn eru 8,8 milljónir manna án
atvinnu í Bandaríkjunum og þar
af hafa um tvær milljónir verið án
vinnu í sjö mánuði. ■
SIGURÐUR Þ.
RAGNARSSON
Formaður Félags raun-
greinakennara í fram-
haldsskólum.
SAMEINUÐU ARABÍSKU FURSTADÆMIN
Bandaríkjastjórn vantar sérfræðinga sem geta ráðið fram úr gögnum á arabísku.
Bandaríkjastjórn auglýsir eftir þýðendum:
Vantar sérfræðinga
sem skilja arabísku
Franska ríkisstjórnin hyggst leggja af frídag
í þágu öryrkja og aldraðra:
Skilar 9 milljörðum
evra í ríkiskassann
AUKIN FRAMLÖG TIL ALDRAÐRA OG ÖRYRKJA
Jean-Pierre Raffarin, forsætisráðherra Frakklands, leggur til að annar dagur hvítasunnu
verði ekki lengur almennur frídagur. Þannig nást tekjur upp á tæpa tvo milljarða evra á ári
sem lagðar verða til málefna aldraðra og öryrkja.
Flottar
úlpur
Kringlunni
Tilboð
um helgina
15%
afsláttur
af úlpum