Fréttablaðið - 08.11.2003, Síða 40
40 8. nóvember 2003 LAUGARDAGUR
Ýmsir ættu að vera farnir aðkannast við andlit Guðjóns
Rudolf en hann hefur vakið mikla
athygli í myndbandi við lagið
Hvar er húfan mín: „Lagið er
framlag mitt til bindindisbaráttu
landsmanna. Í textanum vaknar
drykkjusjúkt skáld í sófanum
heima hjá sér og kemst að því að
hann er búinn að týna húfunni
sinni og ýmsu fleiru. Bjórinn og
viskíið er uppurið og þegar hann
lítur í kringum sig sér hann að
konan hans er farin líka. Mynd-
bandið er kannski meira í gríni
gert en er ætlað að sýna fram á
hvað það getur farið illa þegar
dottið er í það.“
Guðjón vinnur tónlist sína
með Þorkeli Atlasyni og eru þeir
báðir búsettir í Danmörku: „Kon-
urnar okkar ráða búsetunni eins
og öllu öðru. Við erum að vinna
hérna úti og enginn á fylleríi
enda er svo mikið af bjór hér í
Danmörku að maður missir lyst-
ina á að drekka hann,“ segir Guð-
jón en leiðir hans og Þorkels lágu
saman af tilviljun: „Það vildi
bara svo til að hann býr í næsta
húsi. Þorkell er tónskáld en ég er
trúbador og sjálflærður alþýðu-
tónlistarmaður og okkur líkar vel
að vinna saman.“
Kapparnir gáfu út plötuna,
Minimania 17. júní síðastliðinn:
„Platan er gefin út í Danmörku af
litlu forlagi sem heitir Musik
Press en 12 Tónar sjá um dreif-
inguna á Íslandi. Minimania inni-
heldur fjölbreytt efni og á henni
spilum við ýmsa mögulega al-
þýðutónlist,“ segir Guðjón en
tvíeykið hefur verið tilnefnt til
tónlistarverðlauna í Danmörku:
„Við erum tilnefndir til Verdens
musik prisen eða heimstónlistar-
verðlaunanna en þau eru veitt er-
lendum tónlistarmönnum sem
eru búsettir í Danmörku. Við höf-
um nóg að gera við spilamennsk-
una í Skandinavíu en við spiluð-
um síðast heima á Íslandi í
tengslum við Airwaves-hátíðina,“
segir Guðjón Rudolf að lokum. ■
Minimania
GUÐJÓN RÚDOLF
OG ÞORKELL ATLASON
■ Guðjón er orðinn kunnur landsmönn-
um eftir að hafa birst í tónlistarmynd-
bandi við lagið, Hvar er húfan mín. Hann
segir lagið vera framlag sitt til bindindis-
baráttu landsmanna.
Fréttiraf fólki
Fimm ára strákur tók á mótisystir sinni þegar fæðing hófst
skyndilega í baðherbergi fjöl-
skyldunnar. Drengurinn sem heit-
ir Connor Young og er frá Irvine
hljóp upp á efri hæð hússins þeg-
ar hann heyrði móður sína,
Debbie, hrópa. Fæðingin tók að-
eins nokkrar mínútur en móðirin
sagðist eftir á ekki hafa gert sér
grein fyrir að hún væri komin
meira en átta mánuði á leið.
Connor talaði við móður sína
og hjálpaði henni að halda ró með-
an hann losaði naflastrenginn sem
vafinn var um háls barnsins.
Hann vafði svo handklæði utan
um litlu systur sína til að henni
yrði ekki kalt, og hringdi því næst
í ömmu sína og tilkynnti henni að
mamma hans hefði fætt barn í
baðherberginu.
Amman hringdi samstundis á
sjúkralið sem innan nokkurra
mínútna komu á staðinn og fundu
Connor þar sem hann annaðist um
móður sína sem var mjög brugðið
en hamingjusöm um leið, og litlu
systurina sem hefur fengið nafnið
Courtney. Bæði móður og barni
heilsaðist vel.
Farið var með mæðgurnar á
nærliggjandi sjúkrahús en Connor,
sem er flogaveikur, var sendur til
ömmu sinnar. Móðirin hefur látið
hafa eftir sér að hún hefði ekki
komist í gegnum fæðinguna án
litlu stjörnunnar sinnar.■
Hringadróttinsleikarinn Or-lando Bloom ætlar að vera
meðframleiðandi og fara með
aðalhlutverkið í
myndinni Haven.
Um er að ræða
glæpamynd sem
gerist á Cayman-
eyjum. Bill Paxton og
Gabriel Byrne verða í
hinum aðalhlutverkun-
um. Bloom er sjóðheitur
þessa dagana, því nýverið
samþykkti hann að leika í
mynd Ridley Scott,
Kingdom of Heaven.
Upptakaka af Marilyn Monroe íbúðarferð hefur fundist á háa-
lofti einu í Flórída. Myndin var
tekin fyrir 50
árum af manni
að nafni Peter
Mangone. Hann
hafði setið
lengi um gyðj-
una fyrir utan
hótelið hennar
árið 1955 þegar
hún var 29 ára gömul. Í myndinni
blæs Monroe kossi í átt að
myndavélinni og fer síðan að ver-
sla með táninginn Mangone og
myndavélina hans í eftirdragi.
Breska popphljómsveitin Suedehefur ákveðið að hætta störf-
um. Samkvæmt tilkynningu á
heimasíðu hennar ætla meðlimir
sveitarinnar að fara hver í sína
áttina eftir að
tónleikaferð
um Evrópu
lýkur um
miðjan næsta
mánuð. Suede
sló í gegn árið
1993 með sam-
nefndum
frumburði sínum. Sveitin mætti
fersk til leiks árið 1996 með plöt-
unni Coming Up og gaf út tvær
plötur eftir það. Nú er sagan sem
sagt öll.
Tónlistarmaðurinn Moby ætlar ífebrúar að gefa út sína aðra
plötu undir dulnefninu Voodoo
Child. Síðasta
plata hét The
End of Every-
thing og var
gefin út árið
1996. Nýja
platan kemur
til með að heita
Baby Monkey
og verður
danstónlist þar
í fyrirrúmi.
Chris Martin, söngvari í Cold-play, segir að nýjasta mynd
kærustu sinnar
Gwyneth Pal-
trow, sé besta
mynd hennar
til þessa.
Myndin heitir
Sylvia og seg-
ist Martin hafa
horft á hana að
minnsta kosti
tíu sinnum al-
gjörlega dol-
fallinn.
UNGABARN
Móðir Courtney litlu gerði sér ekki grein
fyrir að hún væri komin átta mánuði á
leið.
Skrýtnafréttin
■ Fimm ára snáði tók á móti systur sinni
á baðherbergi fjölskyldunnar
Losaði naflastrenginn og róaði mömmu
TVÍEYKIÐ Á BAK VIÐ MINIMANIA
Guðjón Rudolf og Þorkell Atlason
hafa verið tilnefndir til heimstón-
listarverðlauna í Danmörku fyr-
ir diskinn Minimania.
Drykkjusjúkt
skáld týnir húfu
Hljómsveitin Sigur Rós fékkverðlaun fyrir besta mynd-
bandið á evrópsku MTV-tónlistar-
verðlaunahátíðinni sem var hald-
in í Edinborg í Skotlandi.
Myndbandið er við upphafslag
síðustu plötu sveitarinnar, ( ).
Leikstjórinn, Floria Sigismondi,
tók á móti verðlauna-
gripnum úr höndum
leikkonunnar Minnie
Driver ásamt þeim
Georgi og Orra úr Sigur
Rós.
Annars var það Justin
Timberlake sem var sig-
urvegari hátíðarinnar.
Kappinn var valinn besti
karlkyns flytjandinn,
besti popparinn og átti
bestu plötuna, Justified.
Christina Aguilera, sem
var kynnir kvöldsins, var
valinn besti kvenkyns
flytjandinn og bar þar sigurorð af
dívunum Beyonce Knowles, Kylie
Minogue, Madonna og Pink.
Timberlake, sem sigraði Craig
David, Eminem, Robbie Williams
og Sean Paul í keppni um besta
karlflytjandann, var hæstánægð-
ur með kvöldið. „Ég hefði aldrei
getað ímyndað mér að
kvöldið ætti eftir að vera
eins fullkomið,“ sagði
Timberlake.
Beyonce Knowles fékk
verðlaun fyrir besta lag-
ið, Crazy in Love. Auk
þess var hún valinn besti
R&B flytjandinn. Þakkaði
hún kærasta sínum Jay-Z
er hún tók á móti verð-
laununum.
Íslandsvinirnir í Cold-
play héldu uppi heiðri
Evrópubúa er þeir voru
valdir besta hljómsveitin.
Eminem var valinn besti rappar-
inn fimmta árið í röð og The
White Stripes sigraði í flokknum
besti rokkflytjandinn. ■
Tónlistarverðlaun MTV:
Þrenna hjá Timberlake
KNOWLES
Beyonce Knowles var kynþokkafull þegar
hún steig á svið og söng verðlaunalagið
Crazy in Love.
SIGUR RÓS
Fengu verðlaun fyrir besta myndbandið,
sem er stríðsádeila og sýnir börn að leik
með gasgrímur.
TIMBERLAKE
Justin Timberlake
heldur stoltur af verð-
laununum sínum
þremur sem hann
hlaut á MTV-tónlistar-
hátíðinni.