Fréttablaðið - 08.11.2003, Side 42
■ ■ KVIKMYNDIR
Sjá www.kvikmyndir.is
Sambíóin Kringlunni, s. 588 0800
Sambíóin Álfabakka, s. 587 8900
Háskólabíó, s. 530 1919
Laugarásbíó, s. 553 2075
Regnboginn, s. 551 9000
Smárabíó, s. 564 0000
Sambíóin Keflavík, s. 421 1170
Sambíóin Akureyri, s. 461 4666
Borgarbíó, Akureyri, s. 462 3500
16.00 Mynd Hrafns Gunnlaugsson-
ar, Hrafninn flýgur frá árinu 1984, verð-
ur sýnd á vegum Kvikmyndasafns Ís-
lands í Bæjarbíói, Strandgötu 6, Hafnar-
firði.
Miðaverð er 500 krónur.
■ ■ TÓNLEIKAR
12.00 Hádegisdjass Jazzhátíðar
Reykjavíkur verður á Hótel Borg með
Hljómsveit Ragnheiðar Gröndal. Með
söngkonunni efnilegu leika bróðir henn-
ar Haukur altósaxófónleikari, Jón Páll
Bjarnason gítaristi, Róbert Þórhallsson
á bassann og Eric Qvick á trommur.
13.00 Hausttónleikar verða í nýju
húsnæði Tónlistarskólans á Akureyri
að Hvannavöllum 14, 2. hæð. Nemend-
ur sýna afrakstur haustsins. Allir vel-
komnir.
15.00 Seinni kvikmyndatónleikar
Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Kvik-
myndasafns Íslands í Háskólabíói.
Sýndar verða myndirnar „Járnsmiðurinn”
(1922) eftir Buster Keaton, „Draugafár”
(1920) með Harold Lloyd og „Ævintýra-
maðurinn” (1917) eftir meistara
Chaplin.
15.15 Kammerhópurinn Camer-
arctica leikur Kvartett fyrir endalok tím-
ans eftir Olivier Messiaen í Borgarleik-
húsinu. Kvartettinn var saminn í fanga-
búðum nasista í seinni heimsstyrjöldinni
og frumfluttur þar af Messiaen og með-
föngum hans.
17.00 Guðný Einarsdóttir organisti
leikur orgelverk eftir Nicolaus Bruhns,
Jan Pieterzoon Sweelinck, Dietrick
Buxtehude, Johann Sebastian Bach og
Felix Mendelssohn á Tónlistardögum í
Dómkirkjunni í Reykjavik. Aðgangseyrir
er 1000 krónur.
17.00 Raddir þjóðar á Jazzhátíð
Reykjavíkur í Norræna húsinu. Þar spil-
ar Sigurður Flosason á saxófóna, klarí-
nettur og flautu, Pétur Grétarsson sér
um slagverkið.
17.00 Kvennakór Suðurnesja
heldur tónleika ásamt Lögreglukór
Reykjavíkur í Ytri-Njarðvíkurkirkju.
20.30 Útgáfutónleikar Hilmars
Jenssonar verða á Nasa á Jazzhátíð
Reykjavíkur. Með honum spila Herb Ro-
bertson á trompet, Andrew D’Angelo á
saxófóna og klarínettur, Trevor Dunn á
bassa og Jim Black á trommur.
22.00 Stern/Thoroddsen kvartett-
inn spilar á NASA á Jazzhátíð Reykjavík-
ur. Leni Stern, gítar og söngur, Björn
Thoroddsen, gítar, Paul Socolow, bassi
og Ben Perowsky, trommur.
23.59 Fönksveitin Jagúar heldur
uppi fjörinu á Jazzhátíðardansleik á
NASA.
■ ■ LEIKLIST
14.00 Lína Langsokkur eftir Astrid
Lindgren á stóra sviði Borgarleikhúss-
ins.
14.00 Dýrin í Hálsaskógi eftir
Thorbjörn Egner á stóra sviði Þjóðleik-
hússins.
20.00 Farsinn Öfugu megin upp í
á stóra sviði Borgarleikhússins.
20.00 Ástarbréf verður sýnt í Ketil-
húsinu á Akureyri.
20.00 Kvetch eftir Steven Berkoff á
litla sviði Borgarleikhússins.
20.00 20.00 100 prósent hitt með
Helgu Brögu í Ými við Skógarhlíð.
20.00 Ríkharður þriðji eftir Willi-
am Shakespeare á stóra sviði Þjóðleik-
hússins.
20.00 Tenórinn, nýtt leikrit eftir
Guðmund Ólafsson, verður sýnt í
Iðnó.
20.00 Erling með Stefáni Jónssyni
og Jóni Gnarr í Loftkastalanum.
20.00 Leikfélag Hafnarfjarðar
sýnir í Hafnarfjarðarleikhúsinu dagskrá
með níu íslenskum stuttverkum sem
ber nafnið „Í boði leikfélagsins”. Ekkert
verkanna er yfir 15 mínútna langt og
flest þeirra samin af félögum í leikfélag-
inu.
■ ■ LISTOPNANIR
13.00 Hestamannafélagið Faxi og
Héraðsskjalasafn Borgarfjarðar opna
sýningu í Safnahúsi Borgarfjarðar í til-
efni af norræna skjaladeginum, sem er
sameiginlegur kynningardagur skjala-
safna á Norðurlöndunum. Til sýnis verð-
ur úrval skjala úr skjalasafni hesta-
mannafélagsins ásamt myndum og
munum sem gefa innsýn í sjötíu ára
sögu félagsins. Sýningin stendur til 3.
desember.
15.00 Tvær sýningar verða opnaðar
í Listasafninu á Akureyri. Í austur- og
miðsal safnins sýnir Eggert Pétursson
málverk undir heitinu Blómróf, en í vest-
ursal hefur kanadíski listamaðurinn
Aaron Michel komið fyrir innsetningu á
skúlptúrum og teikningum sem hann
kallar Minningar og heimildasöfn. Sýn-
ingunum standa til 14. desember. Safn-
ið er opið 12-17 alla virka daga.
15.00 Sigríður Jóhannsdóttir og
Leifur Breiðfjörð opna sýningu í Vestur-
sal Gerðarsafns í Kópavogi. Sýningin
nefnist Mannamyndir. Á henni eru 21
veflistarverk sem þau hafa unnið á und-
anförnum árum. Safnið er opið 11-17
alla daga nema mánudaga.
16.00 Anna Snædís Sigmarsdóttir
grafíker, sýnir olíuþrykk í sýningarsalnum
Íslensk grafík, Hafnarhúsinu (hafnar-
megin) Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík.
Anna Snædís vinnur með hluti heimilis-
ins sem eru sýnilegir en umbreytir þeim
í hin huldu veröld. Sýningin stendur til
23. nóv. og er opin 14-18 fim.-sun.
16.00 Myndlistamaðurinn Haf-
steinn Michael sýningu á dvergum í
Klefanum, Nonnabúð, Laugavegi 11.
Sýningin er opin á verslunartíma og
stendur til 3. desember.
17.00 Tvær einkasýningar verða
opnaðar í Gallerí Skugga, Hverfisgötu
39. Á jarðhæð sýnir Ágústa Oddsdóttir
verkið „365 sinnum” sem vísar til um-
gengni við jörðina. Í kjallaranum sýnir
Margrét O. Leópoldsdóttir innsetning-
una „Sjógangur” þar sem brugðið er
upp sjónarhorni á hafið.
18.00 Myndlistarmenn opna
vinnustofu sína á Laugavegi 25, þriðju
hæð, fyrir gestum og gangandi. Alla vik-
una til laugardagsins 15. nóvember
verður vinnustofan opin klukkan 14-19.
Listamennirnir eru Melkorka Huldu-
dóttir, Baldur Geir Bragason, Sigríður
Dóra Jóhannsdóttir, Markús Þór Andr-
ésson, Arnfinnur Amazeen, Þuríður
Sigurðardóttir og Þórdís Claessen.
20.00 Georg Hilmarsson opnar
myndlistarsýningu í húsnæði Greindar
ehf. að Grensásvegi 7.
■ ■ SKEMMTANIR
20.00 100 prósent hitt með
Helgu Brögu í Ými við Skógarhlíð.
23.00 Hljómsveitirnar Lokbrá og
Noise spila á Grand Rokk.
Á Pravda verður groovebandið
Multiphones með Bigga Nielsen í far-
arbroddi fyrri hluta kvölds og svo verða
Dj’s Balli og Tommi á neðri hæðinni og
DJ Áki á efri hæðinni.
Plötusnúðarnir Exos, Vector, Thom-
as THX og Bjossi Brunahani spila á
techno-kvöldi á Vídalín.
Hljómsveitin Tilþrif verður í Lundan-
um í Vestmannaeyjum.
Hljómsveitin Tvö dónaleg haust
spilar á Castro í Reykjanesbæ.
Hinn eini sanni Viðar Jónsson
skemmtir í Shooters.
Dúettinn Acoustics skemmtir á Ara í
Ögri.
Hermann Ingi jr. spilar á Café Catal-
ina í Kópavogi. Frítt inn.
Hljómsveitin Sixties spilar á Players
í Kópavogi.
Geirmundur Valtýsson og hljóm-
sveit hans halda sveiflunni á Kringlu-
kránni.
Rut Reginalds syngur á Græna
hattinum, Akureyri.
Pétur Sturla niðri og Rally-Cross
uppi á Laugavegi 22.
Timbur og Stál blúsa feitt á Kránni,
Laugavegi 73.
Írafár ætlar að skemmta landan-
um langt fram eftir nóttu á Gauknum
ásamt DJ Rikka.
Á litla sviðinu í Broadway verður
Le’Sing, leiksýning þar sem leikarar,
söngvarar og grínistar skemmta og
þjóna gestum.
Sváfnir Sigurðarson trúbador
skemmtir á Café Aroma í verslunarmið-
stöðinni Firði, Hafnarfirði.
Hljómsveitin Douglas Wilson með
stórsöngvaranum Stebba Jak í farar-
broddi skemmtir á Odd-Vitanum, Akur-
eyri.
Land og synir skemmtir í Sjallan-
um, Akureyri.
■ ■ FYRIRLESTRAR
14.00 Arnar Halldórsson efna-
fræðingur ver doktorsritgerð sína sér-
42 8. nóvember 2003 LAUGARDAGUR
hvað?hvar?hvenær?
5 6 7 8 9 10 11
NÓVEMBER
Laugardagur
Árið 1940 sat franska tón-skáldið Olivier Messiaen í
fangabúðum nasista í Slésíu. Þar
samdi hann undurfagurt tónverk
sem hann nefndi Kvartett fyrir
endalok tímans. Þetta verk verð-
ur flutt á Nýja sviðinu í Borgar-
leikhúsinu klukkan korter yfir
þrjú í dag.
„Það eru miklar pælingar í
orðunum og mikil fegurð í tónun-
um,“ segir Örn Magnússon pí-
anóleikari um tónverkið sem
hann flytur ásamt kammerhópn-
um Camerarctica.
„Þetta er eitt vinsælasta
kammerverk 20. aldar og einn af
hornsteinum kammertónlistar-
innar. Þarna er á ferðinni mjög
nýstárleg tónlist og ég get
ímyndað mér að hún hafi þótt
það enn frekar á þessum tíma en
nú.“
Örn segir það kosta töluverða
glímu fyrir hljóðfæraleikarana
alla að takast á við þetta mikla
verk.
„Jú, þetta er snúið stykki. Það
eru aðstæður í þessum verkum
sem maður hittir ekki á hverjum
degi, svo sem feikilega hægir
kaflar og fleira sem er mjög sér-
stakt í kammerlitteratúrnum.
Við erum held ég öll að flytja það
í fyrsta sinn.“
Messiaen frumflutti verkið í
fangabúðunum ásamt nokkrum
samfanga sinna í byrjun árs
1941. Aðstæðurnar hafa óneitan-
lega sett sinn svip á verkið.
„Þessi titill er alveg ótrúlegur.
Í þessu verki er hann að gera
ákveðnar tilraunir með tímann.
Tíminn er alltaf svo stór þáttur í
allri tónlist. Þegar maður er bú-
inn að spila tónverk þá er það
farið. Það hverfur í tímanum.
Þetta er öfugt við málverk, sem
stendur áfram eftir að listamað-
urinn hefur lokið við það.“
Örn segir líka mikið af himni
og fuglum í þessu sérstæða tón-
verki. „Enda er það helst þetta
tvennt sem menn í fangabúðum
njóta af náttúrunni, himinsins og
fuglasöngsins.“ ■
Tónverk úr fanga-
búðum nasista
Laugardagur 08.11. kl. 20 uppselt
Föstudagur 14.11 kl. 20 uppselt
Laugardagur 22.11. kl. 20 örfá sæti laus
Föstudagur 28.11. kl. 20 örfá sæti laus
Ósóttar pantanir seldar daglega.
■ TÓNLEIKAR KVARTETTINN Á ÆFINGUHildigunnur Halldórsdóttir fiðluleikari, Örn
Magnússon píanóleikari, Sigurður Halldórsson
sellóleikari og Ármann Helgason klarínettuleik-
ari flytja Kvartett fyrir endalok tímans eftir
Messiaen í Borgarleikhúsinu í dag.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M