Fréttablaðið - 08.11.2003, Blaðsíða 46
Vikan hefur verið afskaplegaskemmtileg hjá mér og fé-
lagslífið hressilegra en í margar
vikur þar á undan,“ segir Olga
Guðrún Árnadóttir rithöfundur
sem hefur verið önnum kafin frá
því í sumar við að lesa yfir ýmsar
af jólabókum JPV útgáfunnar.
Olga Guðrún var því komin í
langþráð frí þegar hún fór um síð-
ustu helgi með góðum vinum í
sumarbústað í Grímsnesinu. „Við
borðuðum mikið, vökvuðum lífs-
blómið í hófi, sungum, spjölluð-
um, skoðuðum stjörnur og horfð-
um á norðurljósin,“ segir hún og
byrjaði svo að munda pennann
eftir helgi, bæði við þýðingar og
eigin sköpunarverk. „Las reyndar
eina próförk í vikunni, ljóðabók
eftir Ólaf Hauk Símonarson vin
minn, mér til skemmtunar.
Á mánudagskvöldið fór ég í
Gunnarshús og átti þar ánægju-
legt kvöld ásamt fleiri rithöfund-
um með Mörthu Brooks,
kanadískri jazzsöngkonu af ís-
lenskum ættum sem er jafnframt
rómaður höfundur bóka fyrir
ungt fólk. Það var mjög gaman að
hitta hana,“ segir Olga Guðrún
sem lét ekki þar við sitja heldur
fór í Borgarbókasafnið á þriðju-
dag og hlustaði á Hjört Pálsson,
Önnu Pálínu og Aðalstein Ásberg
flytja dagskrá um ljóðaþýðingar
úr sænsku. „Frábær og upp-
lýsandi skemmtun. Á miðvikudag
las ég mig hása af ljóðum Guð-
mundar Böðvarssonar og Ingi-
bjargar Haraldsdóttur. Góð ljóð
eru vítamín fyrir sálina. Maður
þarf að lesa þau upphátt fyrir
sjálfan sig.“
Á fimmtudagskvöldið fór Olga
með sínum ektamaka Guðmundi
Ólafssyni, sem um þessar mundir
sýnir leikrit sitt Tenórinn í Iðnó,
út að borða. „Tenórgengið og
makar fóru á Tjarnarbakkann og
þar borðuðum við guðdómlega
máltíð og ekki spillti útsýnið yfir
Tjörnina fyrir. Sýningin gengur
mjög vel og ég fór reyndar á
sunnudagskvöld og horfði á verk-
ið í fjórða sinn og finnst alltaf
jafn yndislegt að sjá hvað maður-
inn minn blómstrar í leik og
söng,“ segir Olga Guðrún sem lét
það eftir sér að stunda menning-
una í vikunni sem hún hefur ekki
haft tíma til svo lengi. „Ég hristi
líka rykið af líkamsræktará-
formunum og freistaði þess að fá
eitthvað út úr árskortinu sem ég
keypti í haust full bjartsýni og
góðs ásetnings,“ segir hún hlæj-
andi. ■
Augun
Hann hefur verið kenndur við
myrkrið þó ekki sjáist það á aug-
unum. Kvæntur glæsikonu sem
eitt sinn var eftirsótt sýningar-
stúlka. Yfir þeim er sérstæður
elegans og veitir ekki af því ætl-
unarverkið er risavaxið.
(Michael Howard, nýkjörinn leiðtogi
breskra íhaldsmanna)
46 8. nóvember 2003 LAUGARDAGUR
Ídag verður haldin fótboltahátíðfyrir stelpur í Egilshöll í Graf-
arvogi. Hátíðin fer fram milli kl.
13 og 18 og verður margt
skemmtilegt á boðstólum.
Knattspyrnuráð Reykjavíkur
stendur fyrir hátíðinni í sam-
vinnu við Orkuveitu Reykjavík-
ur, Egils og Mastercard. Steinn
Halldórsson frá KRR segir að há-
tíðin sé liður í útbreiðsluátaki
KRR og KSÍ. „Markmið átaksins
er að fjölga kveniðkendum í
knattspyrnu. Því það er trú okkar
að meiri þátttaka kvenna í íþrótt-
um hafi mikið forvarnargildi og
hvetji til hollra lífshátta,“ segir
Steinn og bendir á að með hverju
ári fjölgi stúlkum í fótbolta en
betur megi ef duga skal.
Í síðastliðinni viku fengu allar
stúlkur í Reykjavík á aldrinum 6
til 16 ára, plaggat af landsliðinu í
boði Heklu og kynningarbækling
þar sem fram koma æfingatímar
allra félaganna í Reykjavík
ásamt boði á hátíðina í Egilshöll.
Reykjavíkurfélögin hafa einnig
boðið öllum stúlkum að æfa frítt í
heilan mánuð í tilefni útbreiðslu-
átaksins.
Meðal efnis á hátíðinni verða
ýmsar knattþrautir, eins hver
getur haldið knettinum lengst á
lofti, skotharka stelpnanna verð-
ur mæld og í lokin fer fram
stjörnuleikur á milli Reykjavíkur
og landsbyggðarinnar sem þær
Helena Ólafsdóttir og Halldóra
Björk Sigurðardóttir hafa valið.
Allar stelpur á grunnskóla-
aldri eru hvattar til að mæta og
skemmta sér og kynnast fótbolt-
anum af eigin raun. ■
Fótbolti
HÁTÍÐ
■ Í dag klukkan 13-18 verður fótbolta-
háfíð í Egilshöll í Grafarvogi fyrir stúlkur á
grunnskólaaldri. Meðal annars fer fram
leikur á milli landsbyggðarinnar og
höfuðborgarinnar.
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Tangi
Í Danmörku
Leikurinn fór 8-3
Vikan sem var
OLGA GUÐRÚN ÁRNADÓTTIR
■ Rithöfundurinn borðaði guðdómlegan
mat, naut náttúrunnar í sumarbústað og
hristi rykið af líkamsræktarkortinu sínu.
STELPUM FJÖLGAR
Þeim fjölgar ár frá ári stelpunum
sem leggja fyrir sig fótbolta.
Allar stelpur í fótbolta!
Glæsilegir ítalskir leðurhornsófar
Sprengitilboð 70.000,- kr. afsláttur
Model IS 26.
Hornsófi
2 sæti+horn+2 sæti
Verð áður 239.000,- stgr.
Sprengitilboð
aðeins 169.000,-
Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-16 og sunnudaga 13-16
gæða húsgögn
Bæjarhrauni 12, Hf.,
sími 565-1234
Taldi stjörnur og
horfði á norðurljósin
OLGA GUÐRÚN ÁRNADÓTTIR
Hún hefur verið önnum kafin í allt haust við að lesa jólabækur fyrir útkomu. Hún gat loks
slakað á í vikunni og naut þess sannarlega.
Skákdrottningin unga, ReginaPokorna og ofurstórmeistar-
inn Ivan Sokolov
ætla að láta sjá
sig í verslunum
Hagkaups í
Kringlunni og
Smáralind í dag
þegar liðsmenn
Hróksins kynna
skákspilið, Hrók-
inn - tafl með tilbrigðum, fyrir
gestum og gangandi klukkan 13-
17. Spilið þykir sameina á
skemmtilegan hátt auðuga mögu-
leika skáklistarinnar og óútreikn-
anleika spilanna en það geta allt
að fjórir tekist á í einu í spilinu.
Þess er skemmst að minnast að
þingmennirnir Sigurður Kári
Kristjánsson og Guðlaugur Þór
Þórðarson lögðu kollega sína
Mörð Árnason og Katrínu Júlíus-
dóttur að velli yfir spilinu sem
segja má að opni nýja vídd í
skáklistinni, því auðvitað þarf að
hugsa fyrir mörgu, þegar and-
stæðingarnir eru orðnir þrír í
einu.
Hún er traustasti og besti vin-ur minn,“ segir Heimir Jón-
asson, dagskrárstjóri Stöðvar 2,
um konuna sína, Berglindi Magn-
úsdóttur. „Yndislegasta mann-
eskja sem ég hef hitt. Skapstór
og skemmtileg.“ Berglind er nú í
fæðingarorlofi og bíða þau Heim-
ir eftir að fjölga mannkyninu
með erfingja sem verður blanda
af þeim báðum.
■ Konan mín
Fréttiraf fólki
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Foreldrar -
Stöndum saman
Styðjum börnin
okkar í að afþakka
áfengi og önnur
vímuefni
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
LD
ÍS