Fréttablaðið - 15.11.2003, Side 4
4 15. nóvember 2003 LAUGARDAGUR
■ Lögreglufréttir
Á að flytja Landhelgisgæsluna til
Suðurnesja?
Spurning dagsins í dag:
Hvernig líst þér á nýtt DV?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
65,3%
22%
Nei
12,7%Veit ekki
Já
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
Þriðja ránið í Kópavogi síðan í sumar:
Ýtti starfsmanni og tók peningana
RÁN Ungur maður rændi verslun
11-11 í Þverbrekku í Kópavogi í
fyrrakvöld. Að sögn Friðriks
Smára Björgvinssonar, yfirlög-
regluþjóns í Kópavogi, kom ræn-
inginn inn í verslunina, stjakaði
við starfsmanni sem stóð við aðra
sjóðsvél verslunarinnar, tók þaðan
peninga og hélt á brott.
Lögreglan leitar ræningjans
enn. Hann var klæddur í svarta
úlpu með loðkraga, snjáðar galla-
buxur og í hvítum strigaskóm.
Hann huldi ekki andlit sitt og var
ekki með höfuðfat. Ekki er ná-
kvæmlega vitað hversu mikla pen-
inga maðurinn tók en upphæðin er
talin vera óveruleg. Myndbands-
upptökukerfi er í versluninni og
eru myndirnar notaðar við rann-
sókn málsins.
Tvö önnur rán hafa verið fram-
in í Kópavogi frá því um miðjan
júní. Í fyrri ránunum tveimur var
starfsmanni ógnað með hnífi en
þau voru framin í söluturninum
Biðskýlinu við Kópavogsbraut.
Þýfi úr þeim ránum er samanlagt
hátt í 90.000 krónur. Öryggis-
myndavél var á staðnum en lög-
reglan hefur ekki eftirlátið fjöl-
miðlum myndir til birtingar. Öll
ránin þrjú eru óupplýst. ■
DÓMSMÁL Hæstiréttur úrskurðar
innan skamms í máli sem Jón
Baldvin Hannibalsson sendiherra
og eiginkona hans, Bryndís
Schram, höfðuðu gegn Ríkisend-
urskoðun vegna varðveislu gagna
sem tengjast greiðslu þeirra
hjóna á kostnaði vegna veislu-
halda við fimmtugsafmæli Bryn-
dísar í júlí árið 1988.
Jón Baldvin gegndi embætti
fjármálaráðherra þegar veislan
var haldin, en rúmlega ári eftir
hana, þegar hann
var orðinn utanrík-
isráðherra, komu
fram getgátur um
að hann hefði mis-
notað risnuheimild-
ir ráðuneytisins.
Jón Baldvin
óskaði eftir því að
Ríkisendurskoðun
kannaði hvort
ástæða væri til að
rengja það að greiðsla veislu-
fanganna hefði verið með eðlileg-
um hætti og sendi meðal annars
afrit af gögnum sem sýndu
hvernig kostnaður vegna fimm-
tugsafmælis Bryndísar var
greiddur, en þau gögn taldi Jón
Baldvin vera einkagögn. Ríkis-
endurskoðun taldi ekkert óeðli-
legt við greiðsluna og sendi nið-
urstöðuna til utanríkisráðuneyt-
isins. En í ágúst 2001 óskaði Jón
Steinar Gunnlaugsson hæstarétt-
arlögmaður eftir ljósriti af gögn-
unum, samkvæmt upplýsingalög-
um. Stofnunin vísaði á utanríkis-
ráðuneytið, en gögnin var ekki að
finna í skjalasafni þess og komst
úrskurðarnefnd um upplýsinga-
mál að þeirri niðurstöðu að málið
varðaði fjármálaráðuneytið, ekki
utanríkisráðuneytið.
Héraðsdómur Reykjavíkur
komst að þeirri niðurstöðu í fyrra
að afhenda skyldi fjármálaráðu-
neytinu gögnin, en Jón Baldvin og
Bryndís krefjast þess að Hæsti-
réttur felli þá ákvörðun úr gildi.
Hjónin byggja kröfu sína meðal
annars á því að þetta varði einka-
hagi þeirra, skjölin séu ekki opin-
ber skjöl.
Lögmaður Jóns Baldvins og
Bryndísar benti á það fyrir
Hæstarétti að kostnaðurinn við
fimmtugsafmælið hefði verið
greiddur af þeim en ekki íslenska
ríkinu og pappírarnir vörðuðu því
einkahagi þeirra og rétt þeirra til
þess að njóta friðhelgi. Ákvörðun
héraðsdóms fæli aftur á móti í sér
skerðingu á þeim grundvallar-
rétti. Lögmaður Ríkisendurskoð-
unar krefst þess að dómur héraðs-
dóms verði staðfestur þar sem
ekki sé um einkaskjöl að ræða og
afhending þeirra sé liður í því að
fjármálaráðuneytið geti gegnt
upplýsingaskyldu sinni.
bryndis@frettabladid.is
TVEIR HANDTEKNIR VEGNA
KIRKJUBRUNA Tveir karlmenn á
þrítugsaldri hafa verið handteknir
grunaðir um að hafa kveikt í
Gjerpen-kirkju, 850 ára gamalli
steinkirkju í bænum Skien í Nor-
egi. Mönnunum er einnig gefið að
sök að hafa krotað á veggi kirkj-
unnar. Vitni komu lögreglu á spor
mannanna, sem báðir hafa áður
komist í kast við lögin.
HERMENN FÓRUST Í SPRENGINGU
Fjórir hermenn létust og að
minnsta kosti átta særðust þegar
sprengja sprakk í húsi í Ingusetíu-
héraði í Rússlandi. Hermennirnir
voru í eftirlitsferð um húsið. Þetta
var þriðja árásin á rússnesk yfir-
völd í héraðinu í þessari viku. Talið
er að uppreisnarmenn hafi komið
sprengjunni fyrir.
Átökin í Írak:
Felldu sjö
skæruliða
ÍRAK, AP Bandarísk þyrlusveit
felldi í fyrrakvöld sjö íraska
skæruliða þar sem þeir voru að
undirbúa eldflaugaárás á banda-
ríska herstöð í norðurhluta Íraks
nálægt borginni Tikrit.
Auk þeirra sjö sem féllu særð-
ist einn skæruliði í árásinni og
annar komst undan á flótta. Að
sögn talsmanns bandaríska hers-
ins í Tikrit voru mennirnir að und-
irbúa eldflaugaárás við tjaldbúðir
sínar rétt norður af Tikrit, en
seinna fundu bandarískir her-
menn að minnsta kosti 600
sprengjuflaugar í nálægum jarð-
byrgjum og á flutningavagni við
tjaldbúðirnar. ■
Menningardagar:
Innsýn í heim
heyrnarlausra
BLÓÐBANKINN Betri tengsl menn-
ingarheima og það að veita heyr-
andi fólki innsýn í heim heyrnar-
lausra er megintilgangur menn-
ingardaga, sem hófust á Sam-
skiptastöð heyrnarlausra í gær.
Helstu liðir menningardaganna
eru myndlistarsýning heyrnar-
lauss myndlistarmanns og útgáfa
íslenskra þjóðsagna á táknmáli.
Um er að ræða tíu þjóðsögur, sem
Samskiptamiðstöð gefur út á
myndbandi. Þetta er menningar-
efni sem heyrnarlaus börn hafa
ekki haft aðgang að til þessa. ■
Mjólkurvörur:
Aukin sala
NEYTENDUR Mjólkursala jókst í síð-
asta mánuði frá fyrra ári og
næstu mánuðum á undan.
Þetta kemur fram í yfirliti
sem samtök afurðastöðva í
mjólkuriðnaði hafa tekið saman.
Í yfirlitinu kemur fram að
neysluaukning varð í flestum
vöruflokkum ferskvöru. Skyr
heldur áfram að seljast vel. Sala
þess jókst um 24% miðað við
sama tíma og í fyrra. Hins vegar
dróst sala á nokkrum vöruflokk-
um, svo sem osti, saman.
Ef horft er til síðustu þriggja
mánaða nemur söluaukningin
3,4%. ■
VERKFALL Í SELLAFIELD Um 300
starfsmenn kjarnorkuendur-
vinnslustöðvarinnar í Sellafield í
Bretlandi boðuðu til átta klukku-
stunda verkfalls í gær vegna
deilna um 2.000 punda launamis-
mun milli verkamanna og ann-
arra starfsmanna. Þetta er fyrsta
verkfall verkamanna stöðvarinn-
ar í 26 ár.
KJARNORKUÚRGANGUR Í NÁTT-
ÚRUPERLU Ítölsk stjórnvöld
hafa valið stað í nágrenni
strandbæjarins Scanzano á Suð-
ur-Ítalíu til þess að urða kjarn-
orkuúrgang, en bærinn og ná-
grenni hans eru rómuð nátt-
úruperla. Náttúruverndarsinnar
hafa fordæmt þessa ákvörðun
stjórnvalda og segja að úrgang-
urinn haldi geislavirkni næstu
150 þúsund árin.
VIÐSKIPTI Nýir 5.000 króna seðlar
fara í umferð á mánudag. Eldri
seðlar verða áfram löglegir en
þeir fara smám saman úr umferð.
Þetta er meðal annars gert vegna
þess að peningafölsun hefur auk-
ist hér á landi.
Núverandi útgáfa seðilsins er
frá árinu 1986 og hefur hann ekk-
ert breyst á þeim tíma. Nýi seðill-
inn er öruggari en sá sem fyrir er.
Auðveldara verður að greina nýja
seðilinn og þá um leið erfiðara að
falsa hann.
Tryggvi Pálsson, fram-
kvæmdastjóri fjármálasviðs
Seðlabanka Íslands, segir að frá
árinu 1996 hefur fölsunum fjölg-
að. „Á síðasta ári komu 28 mál til
kasta lögreglu vegna falsana á ís-
lenskum peningaseðlum. Þrettán
einstaklingar komu við sögu í
sautján málum sem voru kærð.“
Tryggvi sagði að ekki hefði verið
um háar upphæðir að ræða.
Hinn nýi 5.000 króna seðill er
nánast eins og hinn eldri. Mis-
munurinn felst meðal annars í
fleiri öryggisþáttum eins og
gylltri málmþynnu, nýju vatns-
merki og öryggisþráðum í lit-
brigðum. Þá eru á seðlinum reitur
sem sést í útfjólubláu ljósi og
fleiri öryggisþættir sem eru að-
eins greindir með sérstökum bún-
aði. ■
■ Evrópa
■ Evrópa
11-11 ÞVERBREKKU
Ræninginn huldi ekki andlit sitt.
NÝR 5.000 KRÓNA SEÐILL
Rúmlega ein milljón seðla er í umferð af eldri gerð 5.000 króna seðilsins. Prentaðar hafa
verið tvær milljónir nýrra seðla og er kostnaðurinn rúmlega 23 milljónir. Kynningarefni um
nýja seðilinn verður sent á öll heimili.
Nýr 5.000 króna seðill:
Falsanir
kalla á
nýjan seðil
Í TIKRIT
Bandaríkjamenn
hafa hert sókn-
ina gegn skæru-
liðum í Írak og
felldu sjö úr
þeirra liði í ná-
grenni Tikrit í
fyrrakvöld.
Telja brotið á rétti
sínum til einkalífs
Jón Baldvin Hannibalsson og Bryndís Schram eiga enn í málaferlum.
Áfram er deilt um áfengiskaup vegna fimmtugsafmælis Bryndísar árið
1988 og niðurstöðu Hæstaréttar að vænta.
■
En í ágúst 2001
óskaði Jón
Steinar Gunn-
laugsson
hæstaréttarlög-
maður eftir
ljósriti af gögn-
unum, sam-
kvæmt upplýs-
ingalögum.
JÓN BALDVIN HANNIBALSSON
Jón Baldvin og Bryndís Schram krefjast þess að Hæstiréttur ógildi ákvörðun héraðsdóms
um að fjármálaráðuneytið fái afhent gögn varðandi áfengiskaup í fimmtugsafmæli hennar.
LENTI UTAN VEGAR Bíll lenti utan
vegar á Laugavatnsvegi skammt
frá Svínavatni í gær án þess að
meiðsl yrðu á fólki. Bíll skemmd-
ist töluvert og var fluttur á brott
með dráttarbíl.
FJÖGUR INNBROT Fjögur innbrot
voru tilkynnt til lögreglunnar í
Reykjavík í gærmorgun. Tvö inn-
brotanna voru í fyrirtæki, eitt í
einbýlishús og það fjórða í bifreið.