Fréttablaðið - 15.11.2003, Blaðsíða 40
■ Maður að mínu skapi
28 15. nóvember 2003 LAUGARDAGUR
Borgartún 30
Félag járniðnaðarmanna, Félag iðn- og tæknigreina, Trésmiðafélag
Reykjavíkur og Samiðn, samband iðnfélaga hafa flutt starfsemi
sína á 6. hæð í Borgartúni 30 í Reykjavík.
Af því tilefni er félagsmönnum og fjölskyldum þeirra boðið að kynna
sér nýja aðstöðu félaganna og þiggja veitingar
sunnudaginn 16. nóvember frá kl. 14 til 17.
OPIÐ
HÚS
Samiðn
Fyrsti maður sem kemur uppi íhugann í þessu sambandi er
Stjáni Stuð, útvarpsmaðurinn
snjalli á X-inu,“ segir Þorsteinn
Guðmundsson leikari og rithöf-
undur um þann mann sem hann
hefur helst í hávegum. Aðdáun
Þorsteins á Stjána er skýlaus:
„Mér finnst hann alveg frábær.
Hann er einn mesti karakter í út-
varpi sem um getur og reyndar
hefur hann komið aðeins fram í
sjónvarpi þar sem hann hefur gert
góða hluti. Stjáni Stuð er algerlega
hann sjálfur alltaf og heillandi
sem slíkur. Áberandi hvað hann
leggur hjartað í það sem hann ger-
ir og það er til fyrirmyndar.“
Þorsteinn man eftir Stjána Stuð
á Rótinni í gamla daga þegar hann
var að byrja í útvarpi. „Ég hafði
aldrei heyrt svona óvenjulegan út-
varpsmann. Það eru til svona
módel af útvarps- og sjónvarps-
mönnum. Fastmótuð hugmynd
sem margir virðast bara ganga
bara í líkt og í björg. Þetta á við
um ýmis störf: Svona á þetta að
vera og ekki öðru vísi. En ekki
Stjáni, hann er orginal maður og
það skín í gegn. Þegar hann byrj-
aði breytti hann því hvernig við
hugsum um dagskrárgerð í út-
varpi, kannski ekki sá eini sem
það hefur gert, en mjög afgerandi
á því sviði.“
Fyrir margt löngu starfaði Þor-
steinn sem verkstjóri í bæjarvinn-
unni og þegar illa viðraði gerði
hann sér oft ferð á Rótina með
vinnuhópinn. „Við fengum að
koma í stúdíóið til Stjána. Þar
fengum við jafnvel óskalag. Og
þetta lyfti deginum.“
Leikarinn og atvinnumaðurinn
Þorsteinn telur ljóst að Stjáni hafi
haft afgerandi áhrif á líf hans. „Ég
held að hann hafi breytt hugsun-
argangi mínum og þar með mínu
lífi og viðhorfi til lífsins. Ég vil
óska Stjána Stuð velfarnaðar í
starfi og vonast til að ég fái að sjá
sem mest til hans og heyra í fram-
tíðinni.“ ■
Letizia Ortiz, unnusta Spánarprins, má þola smásjá
fjölmiðlanna um þessar mundir:
Kærasta Spánar-
prins gagnrýnd
Kærasta krónprins Spánar, hinfráskilda 31 árs gamla Letizia
Ortiz er undir smásjá fjölmiðla
þar í landi. Konungsfjölskyldan
tók henni fagnandi en fjölmiðlar
hafa lagt í ítarlega rannsókn á lífi
hennar. Umfjöllunin gengur það
langt að ein sjónvarpsstöðin hefur
sýnt myndir af rúminu sem hún
svaf í þegar hún var í brúðkaups-
ferð með fyrsta eiginmanni sín-
um.
Meðlimir konungsfjölskyld-
unnar eru strangtrúaðir kaþólikk-
ar en hafa ekki sett það fyrir sig
að Ortiz er fráskilin og kirkjan
horfir sömuleiðis framhjá hjóna-
bandinu en Ortiz gifti sig ekki í
kirkju. Ortiz var 18 ára bók-
menntanemi þegar hún varð ást-
fangin af kennara sínum og giftist
honum eftir tíu ára samband. Þau
skildu ári seinna. Hann hefur ekki
tjáð sig opinberlega um samband
þeirra. Nær allt annað í fortíð Ort-
iz hafa fjölmiðlar grafið upp. Ort-
iz virðist hins vegar hafa lifað fyr-
irmyndarlífi og það eina nei-
kvæða sem fjölmiðlar hafa getað
velt sér upp úr eru neikvæðar um-
sagnir fyrrum vinnufélaga og
kunningja sem segja hana metn-
aðargjarna. Varla mikið
skammaryrði um nútímakonu.
Gagnrýnd fyrir rangan
klæðaburð
Ortiz hefur meðal annars verið
gagnrýnd fyrir rangan klæðaburð
en hún var í hvítri Armani buxna-
drakt þegar parið tilkynnti um
trúlofun sína. Spánskar tískulögg-
ur segja að hún hefði átt að geyma
hvíta litinn fyrir brúðkaupsdag-
inn og hefði auk þess átt að vera
kvenleg og klæðast kjól eða pilsi.
Það gangi ekki að bæði prins og
prinsessa séu í buxum. Einnig var
kvartað undan því að hún hefði
staðið til hægri við prinsinn, en
það er víst brot á hirðsiðum. Siða-
meistarar segja þetta hafa borið
vitni um stjórnsemi hennar og
hún verði að læra að vera hæver-
skari. Hún var meira að segja
gagnrýnd fyrir að snerta hár sitt
við athöfnina. „Höfum við
nokkurn tíma séð drottningu sner-
ta hár sitt?“ var spurt í einu dag-
blaðanna. Opinberlega lætur Ort-
iz ekki á neinu bera þótt gagnrýn-
in hljóti að taka á hana. Hún virð-
ist einfaldega ekki geta gert nokk-
uð rétt. Unnusti hennar, prinsinn,
segist hins vegar ekki vera í
nokkrum vafa um að hún verði
fyrirmyndardrottn-
ing. Parið mun gift-
ast snemma á
næsta sumri. ■
LETIZIA ORTIZ
Hún hefur meðal
annars verið gagn-
rýnd fyrir að vera í
hvítri drakt þegar
hún og Filip Spánar-
prins tilkynntu um
trúlofun sína.
ÞORSTEINN OG
STJÁNI STUÐ
Stjáni er sá maður
sem Þorsteinn hef-
ur helst í hávegum,
algerlega hann
sjálfur og heillandi
sem slíkur.
Stjáni stuð á X-inu er í miklum metum hjá Þorsteini Guðmundssyni leikara, rit-
höfundi og sjónvarpsmanni:
Breytti íslensku útvarpi