Fréttablaðið - 15.11.2003, Page 44
32 15. nóvember 2003 LAUGARDAGUR
BÓK VIKUNNAR
Harry Potter og Fönixreglan
eftir J.K. Rowling
Efasemdir um lengd bókarinnar
(rúmar 700 blaðsíður) hverfa við
lesturinn. Það er ekki annað hægt
en að lifa sig inn í þessa
æsispennandi bók, svo viðburða-
rík er hún og full af áhugaverðum
persónum. Hér mætir nýtt ill-
menni til leiks, svakalegur kven-
vargur sem gefur fyrri illmennum
ekkert eftir og stelur senunni í
mögnuðum köflum. Kannski
besta Harry Potter-bókin.
METSÖLU-
LISTI
EYMUNDS-
SONAR
Allar bækur
1. Heimur spendýranna. David
Attenborough
2. Bettý. Arnaldur Indriðason
3. Dætur Kína. Xinran
4. Hlutabréf og eignastýring. Sigurður
B. Stefánsson
5. Öxin og jörðin. Ólafur Gunnarsson
6. Annað tækifæri. James Patterson
7. Einhvers konar ég. Þráinn Bertelsson
8. Maður að nafni Dave. Dave Pelzer
9. Svo fögur bein. Alice Sebold
10. Supersex. Tracey Cox
Skáldverk
1. Bettý. Arnaldur Indriðason
2. Öxin og jörðin. Ólafur Gunnarsson
3. Annað tækifæri. James Patterson3
4. Svo fögur bein. Alice Sebold
5. Mýrin. Arnaldur Indriðason
6. Da Vinci lykillinn. Dan Brown
7. Sagan af Pi. Yann Martel
8. Synir duftsins. Arnaldur Indriðason
9. Lygasaga. Linda Vilhjálmsdóttir
10. Röddin. Arnaldur Indriðason
METSÖLULISTI BÓKABÚÐA EYMUNDSSONAR
5. - 11. NÓVEMBER
■ Bækur
Linda Vilhjálmsdóttir hefur sent frá sér sitt fyrsta
prósaverk, en áður hefur hún sent frá sér fjórar ljóða-
bækur. Bók Lindu, Lygasaga, er frásögn konu sem er
þjáð af alkóhólisma:
Saga
um lygina
Lygasaga er fyrsta prósaverkLindu Vilhjálmsdóttur en áður
hefur hún sent frá sér fjórar
ljóðabækur. Lygasaga er frásögn
konu sem er alvarlega þjáð af
alkóhólisma. Þetta er áhrifamikil
og mögnuð bók, sögð í fyrstu per-
sónu, og við lesturinn hvarflar
ekki annað að lesandanum en að
hann sé að lesa sanna sögu.
„Ég er sögumaður og sagan er
sögð frá mínu sjónarhorni en
þetta er ekki endilega sönn saga
heldur túlkun mín á uppákomum
úr lífi mínu eins og ég sá þær
meðan ég skrifaði bókina. Hún er
byggð á ævisögulegum grunni en
er í mínum huga skáldsaga vegna
þess að ég beiti aðferðum skáld-
skaparins við að segja söguna og
skálda meira að segja í eyðurnar
þar sem mér finnst það henta,“
segir Linda. „Í bókinni fer ég inn í
sjúkan hugarheim sídrukkinnar
konu. Ég held að það sé ekki mik-
ill skilningur á því hvernig lang-
drukkin manneskja hugsar. Fólk
heldur oft að það sé
hægt að
s k a m m a
drykkjumenn til
að hætta að
drekka. Það er
ekki hægt því líf
alkans gengur út á
það að blekkja
sjálfan sig og aðra.
Í bókinni er ég að
segja frá lyginni og
því hvernig hún
hleður utan á sig. En
sagan er reyndar á
fleiri en einu plani því
ég er einnig að reyna
að lýsa lífinu og tilver-
unni frá sjónarhóli barnsins.“
Sá hvar ég mundi enda
Af hverju ákvaðstu að skrifa
þessa sögu?
„Allt sem ég hef skrifað hef ég
sótt í eigin reynsluheim. Ég hef
lengi safnað í sarpinn alls konar
atvikum og sögum úr lífi mínu.
Fyrir tveimur árum byrjaði ég að
skrifa skáldsögu og var komin vel
á veg þegar ég henti handritinu.
Mér fannst ég hvorki vera með
réttan tón né frásagnaraðferð.
Það sem skipti kannski meginmáli
var að ég gerði mér grein fyrir
því að ég gat ekki haft alkóhólism-
ann í bakgrunni. Hann hefur verið
í forgrunni í öllu mínu lífi og varð
líka að vera það í sögunni.“
Goðsögnin um óhamingjusama
og drykkfellda snillinginn lifir
enn góðu lífi, þótt fáar sögur fari
af því að skáld og rithöfundar hafi
setið drukknir við skriftir. Linda
segist aldrei hafa skrifað drukkin.
„Stundum var ég að reyna að
skrifa niður setning-
ar en ég skildi þær aldrei
daginn eftir. Flestar þær hug-
myndir sem ég fékk drukkin þóttu
mér afar góðar meðan ég var að
drekka en þegar ég ætlaði svo að
fara að vinna úr þeim kom í ljós
að þær voru hriplekar og fráleit-
ar. Tómt væl og sjálfsvorkunn,“
segir hún. Þegar hún er spurð
hvort hún hafi einhvern tíma trú-
að á ímyndina um drykkfellda
snillinginn segir hún: „Þegar mað-
ur er ungur finnst manni sjarmer-
andi að klæða sig öðruvísi og
hugsa öðruvísi. Það er gott fyrir
alkóhólista að vera listamenn því
það er viðurkennt að listamenn
megi skera sig úr fjöldanum. En
með árunum fór mesti glansinn af
þessu og þegar menn eins og Dag-
ur Sigurðarson, Steinar Sigur-
jónsson og fleiri dóu á leiðinni upp
Bankastrætið sá ég hvar ég mundi
enda.“
Var komin á endastöð
Fannst þér þú verða að bjarga
lífi þínu með því að hætta að
drekka?
„Auðvitað fannst mér það. Þó
að ég hafi viðurkennt fyrir sjálfri
mér í fimmtán ár að ég væri alkó-
hólisti þá hafði ég ekki hugmynd
um hvað fólst í því orði. Eftir
þrjátíu ára drykkju var ég komin
á endastöðina en ég hélt samt
áfram að drekka án þess að vilja
það. Mér bara datt ekkert annað í
hug. Ég sá ekki neitt fram undan.
Mér fannst að mér væri ekki við-
bjargandi.“
Stíllinn í bók Lindu er sér-
kennileg blanda af vönduðum stíl
og kæruleysislegum. Linda segist
hafa verið nokkuð meðvituð um
þetta við samningu bókarinnar: „Í
köflunum þar sem ég lýsi fyllirí-
unum fer ég yfir í stíl sem er laus-
ari í reipunum og þar nota ég tal-
mál. Annars held ég að ég hafi
mótaðan stíl sem sé erfitt að brey-
ta.“
Þetta er fyrsta prósabók Lindu
en ekki sú síðasta, segir hún: „Þær
verða fleiri. Prósaformið er miklu
frjálsara form en ljóðformið. Ég
er ekki hætt að segja sögur og ég
á margar hugmyndir á lagern-
um.“
kolla@frettabladid.is
Fyrsta bindi endurminningaN ó b e l s v e r ð l a u n a h a f a n s
Gabriel Garcia Marquez hefur
fengið prýðis dóma, er sagt sneisa-
fullt af skemmtilegum sögum og
eftirminnilegum persónum og lífs-
afstaða höfundar þykir einkennast
af skemmtilegum gáska. Þessu
fyrsta bindi lýkur þegar Marquez
er 28 ára gamall blaðamaður. Bind-
in munu eiga að verða þrjú en
Marquez hefur ekki ótakmarkaðan
tíma til að skrifa þau tvö sem eftir
eru því hann er þjáður af krabba-
meini.
Í ævisögunni kemur fram aðdá-
un höfundar á William Faulkner,
Aldous Huxley,
Franz Kafka og
Virginiu Woolf.
Hann viður-
kennir í bókinni
að samtöl séu
hans veika hlið í
skáldsagnagerð
og segist hafa
skrifað Hund-
rað ára einsemd
meðan hann
hlustaði til
skiptis á tvær
plötur: A Hard
Day’s Night með Bítlunum og
prelúdíur eftir Debussy. ■
Meistaraverk skrifað
undir bítlatónlist
■ Sagt og skrifað
METSÖLU-
LISTI
BÓKABÚÐA
MÁLS OG
MENNING-
AR
Allar bækur
1. Bettý. Arnaldur Indriðason
2. Heimur spendýranna. David Atten-
borough
3. Öxin og jörðin. Ólafur Gunnarsson
4. Einhvers konar ég. Þráinn Bertelsson
5. Ísland í aldanna rás í einni bók. JPV
6. Ósköpin öll. Flosi Ólafsson
7. Að láta lífið rætast. Hlín Agnarsdóttir
8. Da Vinci lykillinn. Dan Brown
9. Frægð og firnindi. Gísli Pálsson
10. Jón Sigurðsson II. Guðjón
Friðriksson
Skáldverk
1. Bettý. Arnaldur Indriðason
2. Öxin og jörðin. Ólafur Gunnarsson
3. Da Vinci lykillinn. Dan Brown
4. Flateyjargátan. Viktor Arnar Ingólfsson
5. Grafarþögn. Arnaldur Indriðason
6. Mýrin. Arnaldur Indriðason
7. Dauðarósir. Arnaldur Indriðason
8. Ár hérans. Arto Paasilinna
9. Gæludýrin. Bragi Ólafsson
10. Borgir og eyðimerkur. Sigurjón
Magnússon
METSÖLULISTI BÓKABÚÐA MÁLS OG MENNINGAR
5. - 11. NÓVEMBER
Burrell fær
góða dóma
Royal Duty, bók Pauls Burrellsum samskipti hans við Díönu
prinsessu, fær góða dóma í Sunday
Times. Gagnrýnandinn viðurkenn-
ir að hafa haft samúð með Burrell í
málafer lum
þar sem hann
var sakaður
um að hafa
stolið eigum
prinsessunn-
ar, og segir að
þeir sem séu á
sama máli
muni örugg-
lega hafa
ánægju af
bókinni. Bókin er sögð vera næm
og blíð minningabók um sérstakt,
og stundum furðulegt, samband.
Skúrkarnir í sögunni eru ekki
breska konungsfjölskyldan heldur
fjölskylda Díönu. Þarna kemur
fram að Dodi Fayed var ekki stóra
ástin í lífi Díönu, hún hætti aldrei
að elska eiginmann sinn og þótti
vænt um drottninguna. Hún var
ekki náin bróður sínum og hafði
slitið öllum samskiptum við móður
sína.
Gagnrýnandinn segir heiðar-
leika Burrells skína í gegn á hverri
síðu. Bókin sé klassaframleiðsla.
Bókin er nú í fyrsta sæti á met-
sölulista Sunday Times yfir bækur
almenns eðlis en rúm 77.000 eintök
seldust af henni fyrstu vikuna. ■
JOHN UPDIKE
Er ekkert yfir sig hrifinn af hinum nýja
Nóbelsverðlaunahafa.
Updike ekki
hrifinn af
Coetzee
Bandaríski rithöfundurinn JohnUpdike virðist ekkert yfir sig
hrifinn af því að suður-afríski rit-
höfundurinn J.M. Coetzee hafi
hlotið Nóbelinn. Í nýlegu viðtali
sagði Updike að Nóbelsnefndin
hefði sterka hneigð til að útnefna
höfunda á sjötugsaldri. Auk þess
væri Coetzee höfundur sem
nefndinni væri að skapi; örlítið
framandi og svolítið pólitískur.
„En bara svolítið,“ segir Updike
og bætir því við að bækur
Coetzees séu ekki ákall gegn að-
skilnaðarstefnunni. ■
PAUL BURRELL
Gagnrýnandi Sunday
Times hrósar bók hans
um Díönu.
GABRIEL GARCIA
MARQUEZ
Hlustaði á A Hard
Day’s Night með
Bítlunum og
prelúdíur eftir
Debussy meðan
hann skrifaði
Hundrað ára ein-
semd.
LINDA VILHJÁLMSDÓTTIR
„Ég er sögumaður og sagan er sögð frá mínu sjónarhorni en þetta er ekki
endilega sönn saga heldur túlkun mín á uppákomum úr lífi mínu eins og ég
sá þær meðan ég skrifaði bókina. Hún er byggð á ævisögulegum grunni en
er í mínum huga skáldsaga vegna þess að ég beiti aðferðum skáldskapar-
ins við að segja söguna og skálda meira að segja í eyðurnar þar sem mér
finnst það henta.“
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/ALD
A LÓ
A
Það er gott fyrir
alkóhólista að vera
listamenn því það er viður-
kennt að listamenn megi
skera sig úr fjöldanum. En
með árunum fór mesti
glansinn af þessu og þegar
menn eins og Dagur Sigurð-
arson, Steinar Sigurjónsson
og fleiri dóu á leiðinni upp
Bankastrætið sá ég hvar ég
mundi enda.
,,
Í Bretlandi eru menn að búa sigundir að velja eftirlætisskáld-
sögu sína. Í undanúrslitum
komust 20 skáldsögur á blað og
nú er verið að sýna sérstaka
kynningarþætti um bækurnar.
Síðan velur breska þjóðin sigur-
vegara. Margir telja að úrslit séu
þegar ljós. Hringadróttinssaga
Tolkiens hljóti að vinna. Vitað er
að Tolkien-aðdáendur vinna
markvisst að því að tryggja sín-
um manni fylgi, meðal annars á
netsíðum. Þriðja og síðasta
Hringadróttinsmyndin verður
frumsýnd 17. desember, fjórum
dögum eftir að kosning um uppá-
haldsbókina fer fram, og mikil
kynningarherferð er að fara í
gang vegna myndarinnar. Bóka-
spekúlantar segja að þetta kunni
að tryggja bókinni sigur. ■
Aðdáendur
Tolkiens safna liði