Fréttablaðið - 15.11.2003, Blaðsíða 6
6 15. nóvember 2003 LAUGARDAGUR
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 75,48 -0,46%
Sterlingspund 127,49 -0,12%
Dönsk króna 11,96 0,38%
Evra 88,97 0,38%
Gengisvísitala krónu 125,30 0,11%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 425
Velta 5.778 milljónir
ICEX-15 1.993 -0,5%
Mestu viðskiptin
Pharmaco hf. 995.439.199
Sölumiðstöð Hraðfrystih. hf.
327.400.000
Eimskipafélag Íslands hf. 257.921.896
Mesta hækkun
Fiskeldi Eyjafjarðar hf. 5,88%
Bakkavör Group hf. 1,08%
Landsbanki Íslands hf. 0,88%
Mesta lækkun
Sæplast hf. -4,41%
Opin Kerfi Group hf. -2,22%
Eimskipafélag Íslands hf. -1,45%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ* 9.846,6 0,1%
Nasdaq* 1.956,1 -0,6%
FTSE 4.397,0 0,6%
DAX 3.797,4 0,8%
NK50 1.302,9 0,0%
S&P* 1.057,7 -0,1%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
Veistusvarið?
1DV kom út í gær eftir hlé á útgáfunni.Hverjir eru ritstjórar DV?
2Ekki eru allir sammála um hvernigstjórnarfar sé heppilegast fyrir hina
„frelsuðu“ þjóð Íraka. Hver er landstjóri
þar?
3Á hverju Norðurlandanna hafa kýrn-ar lengsta spena?
Svörin eru á bls. 51
Blóðbankinn fimmtíu ára:
Stórafmæli fagnað
HEILBRIGÐISMÁL Það var margt
um manninn í Blóðbankanum í
gær, þegar fagnað var 50 ára
starfsafmæli hans með opnu
húsi. Þar gafst blóðgjöfum og
öðrum velunnurum bankans
tækifæri til að fagna tímamótun-
um. Þeir sem gáfu blóð fengu
rauða rós frá blómabændum.
Í tilefni afmælisins hafa full-
trúar Og Vodafone og Blóðbank-
ans skrifað undir samkomulag
sem felur í sér stuðning Og
Vodafone við kynningar-, útgáfu-
og fræðslustarf Blóðbankans
næstu þrjú árin.
Blóðbankinn safnar árlega
15.000 einingum blóðs. Virkir
blóðgjafar eru 10.000 og um það
bil 25 prósent af íslenskum blóð-
gjöfum eru konur.
Á síðasta ári fékk Blóðbank-
inn að gjöf frá Rauða krossi Ís-
lands glæsilegan blóðbankabíl,
sem hefur styrkt starf bankans
við blóðsöfnun og öflun nýrra
blóðgjafa.
Nú í nóvember er fyrirhugað
að hefja söfnun sjálfboðaliða í
svonefnda beinmergsgjafaskrá,
sem er samstarfsverkefni með
norsku beinmergsgjafaskránni
og hefur hlotið stuðning nor-
rænu ráðherranefndarinnar. ■
Allt að tvöfalt
hærra lyfjaverð
Vandi sá sem steðjar að Tryggingastofnun ríkisins vegna aukinna lyfjaút-
gjalda stafar að stórum hluta af tilfærslu yfir í dýrari lyf. Þá eru einstök lyf
miklu dýrari í smásölu á Íslandi en á hinum Norðurlöndunum.
ÚTGJALDAAUKNING Við samanburð
á smásöluverði tíu útgjalda-
mestu lyfja hjá Tryggingastofn-
un við það sem gerist á Norður-
löndum kemur í ljós að verðmun-
urinn er rúmlega 93 prósent þar
sem hann er mestur. Þar er um
að ræða magalyfið Losec sem
kostar rúmar 10.000 krónur í Sví-
þjóð en rúmar 20.000 krónur hér
á landi. Verðmismunur á öðrum
lyfjum af þessum tíu tegundum
hleypur á bilinu 9,4-48,7 prósent.
Aðrar samanburðartölur sýna,
svo ekki verður um villst, að á Ís-
landi er smásöluverð tiltekinna
lyfja mun hærra en á hinum
Norðurlöndunum.
Karl Steinar Guðnason, for-
stjóri Tryggingastofnunar, nefnir
sem dæmi um aukin lyfjaútgjöld
stofnunarinnar að ný, dýr blóð-
þrýstingslyf hafi hækkað útgjöld
stofnunarinnar um 55 milljónir
króna á síðasta ári. Hann segir að
gömlu ódýru þvagræsilyfin
hefðu dugað jafnvel fyrir meiri-
hluta sjúklinga. Hann bendir
jafnframt á að í Kaupmannahöfn
hafi læknar náð niður kostnaði
vegna blóðfitulækkandi lyfja um
40 prósent með því einu að ávísa
í auknum mæli á ódýrasta blóð-
fitulækkandi lyfið. Hins vegar
hafi útgjöld TR vegna blóðfitu-
lækkandi lyfja aukist um tæpar
130 milljónir milli áranna 2001 og
2002. Í árslok hafi þau numið um
460 milljónum
króna. Hann tel-
ur að mögulegt
sé að lækka þessi
útgjöld um 180
milljónir á árs-
grundvelli, sé
reiknað með
sama sparnaði og
í Danmörku.
Karl Steinar
segir dæmin
sanna að yfirvöld
verði að auka eft-
irlit með kaupum
á þeim vörum
sem greitt sé fyr-
ir með almanna-
fé. Málum sé
þannig háttað að
lyfjafyrirtækin
sjái nær alfarið um að uppfræða
lækna um ný lyf sem sett séu á
markað. Sem mótvægi gegn því
þurfi samstillt átak yfirvalda og
lækna svo efla megi skynsamlegt
val á lyfjum. Þá þurfi að athuga
hvort dreifikerfi lyfja, bæði í
heildsölu og smásölu, sé ekki of
dýrt hér á landi.
jss@frettabladid.is
Flugmaður lést:
Hjartaáfall í
lendingu
DANMÖRK Flugmaður tyrkneskrar
farþegavélar fékk hjartaáfall í
lendingu á flugvellinum í Billund
á Jótlandi.
Að sögn Jyllandsposten átti at-
vikið sér stað 4. júní þegar tóm
farþegaþota frá Ankara kom til
lendingar í Billund. Flugmaður á
sextugsaldri sat við stýrið þegar
vélin lenti. Eftir lendingu sat hann
þögull í sæti sínu og hægði ekki á
vélinni. Flugstjórinn uppgötvaði,
sér til skelfingar, að félagi hans
sat meðvitundarlaus við stýrið og
tók því stjórnina í sínar hendur.
Flugmaðurinn lést á leið á
sjúkrahús. ■
GRUNAÐUR HRYÐJUVERKAMAÐUR
Lögreglan í Jakarta fann hryðjuverkalista í
herbergi Azahari bin Husins.
Hryðjuverkaótti í
Indónesíu:
Fundu lista
skotmarka
JAKARTA Lögreglan í Indónesíu er
sögð hafa fundið lista yfir hryðju-
verkaskotmörk við leit í herbergi
sem leigt var af grunuðum
hryðjuverkamanni á flótta. Á
meintum skotmarkalista, sem lek-
ið var til indónesískra fjölmiðla
um miðja vikuna, eru sögð nöfn
bandarískra banka og hótela auk
alþjóðlegra skóla í Jakarta.
Lögreglan hefur ekki fengist
til þess að staðfesta hvaða skot-
mörk eru á listanum en varar við
því að sá grunaði, sem nefndur er
Azahari bin Husin, gæti látið til
skarar skríða í febrúar þegar
hálft ár er liðið frá sprengju-
árásinni á Marriott-hótelið í
Jakarta. ■
VERSLUNARMIÐSTÖÐ í stærsta
skýjakljúfi í heimi, í Taipei í
Taívan, hefur verið
opnuð almenningi.
Byggingin, sem er
508 metra há, verður
ekki vígð í heild
sinni fyrr en seint á
næsta ári. Kostnaður
við bygginguna er
áætlaður í kringum
130 milljarða ís-
lenskra króna.
Jöfnunarsjóður:
Uppgjör tefst
SVEITARFÉLÖG Endurskoðun og upp-
gjör Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga
vegna úthlutunar tekjujöfnunar-
framlaga til sveitarfélaga á þessu
ári mun ekki fara fram fyrr en
eftir miðjan desember.
Starfsmenn sjóðsins funduðu í
vikunni með fulltrúa frá Hagstof-
unni og kom í ljós að upplýsingar
um endanlegar íbúatölur 1. des-
ember árið 2002 liggja ekki fyrir
fyrr en á fyrrgreindum tíma.
Samkvæmt tillögu ráðgjafar-
nefndar sjóðsins fær Akureyrar-
bær hæsta framlagið, um 103
milljónir króna, og Reykjanesbær
er næstur með 59 milljónir.
BLÓÐGJÖF
Óskar Magnússon forstjóri innsiglaði
samkomulag Og Vodafone og
Blóðbankans með því að gefa blóð.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
KARL STEINAR GUÐNASON
Lyfjafyrirtæki sjá nær alfarið um að fræða
lækna um ný lyf sem koma á markaðinn.
VERÐSAMANBURÐUR
- á smásöluverði tíu útgjaldamestu lyfja TR
Smásöluverð Mismunur á
m.vsk. smásöluverði
Ísland Danmörk
Seretide 60 stk. 7.344 6.325 16,1%
Zocor 98 stk. 17.811 14.860 19,9%
Zarator 100 stk. 19.217 16.158 18,9%
Efexor 98 stk. 14.277 13.046 9,4%
Vioxx 98 stk. 16.630 14.123 17,8%
Seroxat 60 stk. 9.107 6.807 33,8%
Zyprexa 56 stk. 36.534 30.339 20,4%
Ísland Noregur
Nexium 56 stk. 6.676 4.490 48,7%
Ísland Svíþjóð
Losec 100 stk. 20.578 10.653 93,2%
■ Asía