Fréttablaðið - 15.11.2003, Page 24
24 15. nóvember 2003 LAUGARDAGUR
Tónlistin hennar Leoncie:
Illskilgreinan-
leg og einstæð
Á skrautlegri heimasíðu Icy Spicy Leoncie
er tónlist hennar lýst fjálglega. Hún segist
semja heildstæða hamingjuríka tónlist
sem allir geti hlustað á og dansað við.
Popp-rock sem hreinlega fái fólk til að
gleyma stund og stað – það fari í sælu-
vímu – slík eru áhrifin. Hún semur jöfnum
höndum gullfallegar melódíur sem hitta í
beint mark og smellna texta. Á síðunni er
farið mikinn og talað um að tónlist
Leoncie sé ferskur andvari og gimsteinn á
fjóshaugi í samanburði við draslið sem
einkennir vinsældarlistana. En hvað segja
tónlistarspekingar um tónlist Leoncie?
Hvernig lýsa þeir tónlistinni?
Innflytjendapopp
Magnús Kjartansson tón-
listarmaður: „Ég hef lítið
hlustað á hana. Ætli hún sé
ekki í svona einhverri hlið-
stæðri krísu hér á landi og
ef við værum að reyna að
koma okkur á markað í til
dæmis Kalkútta. Það sem
ég hef heyrt er langt í frá
að vera alvitlaust en þetta
er ekkert fyrir minn smekk. Ég er á aðeins
annarri línu ennþá. Eigum við ekki að kalla
þetta innflytjendapopp? Hún er ekki í FTT,
félagi tónskálda og textahöfunda, og þang-
að vil ég bjóða hana velkomna. Þá yrði ör-
ugglega meira gaman á fundum en er.“
Á allar
kassetturnar
Björgvin Halldórsson popp-
goð: „Ég á allar kassetturn-
ar með henni.“
Rafrænt skemmtarapopp
Eiður Arnarson hjá Skíf-
unni: „Algerlega einstakur
tónlistarmaður. Heillandi
framsetning. Þetta er svona
rafrænt skemmtarapopp.
Illskilgreinanleg sem er nú
reyndar oft aðalsmerki
góðrar tónlistar. Alltaf gam-
an þegar tónlistarmenn
leggja sig alla fram, aðdá-
unarvert, og af jafn mikilli sannfæringu.
Annað aðalsmerki góðra tónlistarmanna er
sjálfstraust og það vantar ekkert upp á það
hjá henni.“
Súkkulaðidiskó
Lísa Páls útvarps- og tónlistarmaður:
„Fyrsta sem mér dettur í hug er súkkulaði-
diskó. En ég er ekkert viss
um að það sé endilega rétt
skilgreining. Þetta er dans-
tónlist. Diskó. Mjög sérstök
og orginal. Það má sannar-
lega segja. Hún er ekki að
apa upp eitthvað sem ég
þekki. Nýtir sér diskó-
taktinn. En framsetningin
og textarnir eru hennar.
Hún er komin til ára sinna og ég myndi
fara að bítta um dress ef ég væri hún.
Finna nýjan stíl. Fá sér nýjan búning.“
Goðsögulegt fyrirbæri
Gunnar L. Hjálmarsson
poppfræðingur: „Leoncie
er einstök listakona og
verk hennar munu lifa
lengi eftir hennar dag. Hún
mun eflaust verða jafn
goðsögulegt fyrirbæri og
það sem fólk á borð við
Sölva Sólon Íslandus og
Gvendur Dúllari urðu. Tón-
listin sameinar það besta úr vestrænni og
austrænni tónlistarhefð og flutningur
hennar og sviðsframkoma eiga sér ekki
hliðstæðu. Textarnir gerast ekki persónu-
legri og má segja að líf hennar list renni
saman í eitt þar. Áfram Leoncie!“
Indverska söngkonan Leoncie hefur verið milli tann-
anna á fólki árum saman enda er hún sérstök mann-
eskja sem fer sínar eigin leiðir. Hún segir íslenskt tón-
listarfólk standa á bak við ofsóknirnar á hendur sér en
lætur ekkert á sig fá enda er bara til ein Leoncie. Hún
er Icy Spicy og stefnir á heimsfrægð:
Icy Spicy
ofsótt
á Íslandi
Söngkonan Leoncie segist hafafundið illilega fyrir kynþátta-
fordómum á Íslandi sem hafa ekki
síst kristallast undanfarið á
spjallrásum á Internetinu en þan-
nig sáu Víkurfréttir sig til dæmis
tilneyddar til þess að loka spjall-
þræði um söngkonuna eftir að Til-
veran og fleiri afþreyingarvefir
vísuðu á hann og hótanir um of-
beldi og fleira miður skemmtilegt
gusu upp í kjölfarið.
„Það hefur enginn hérna áhuga
á því að bregðast við þessum of-
sóknum en erlendis, til dæmis í
Bretlandi og Bandaríkjunum, eru
stórir hópar sem myndu gera eitt-
hvað í svona málum.“
Fer hvergi
Leoncie segir þó að það komi
ekki til greina, af sinni hálfu, að
flytja frá Íslandi en hún stefnir
engu að síður ótrauð á frægð í út-
löndum. „Það verður sýndur þátt-
ur um mig hjá Channel 4 í Bret-
landi í næstu viku. Þátturinn var
gerður hérna fyrir nákvæmlega
einu ári og heitir Leoncie frá
Sandgerdi in Iceland. Það er mik-
ill húmor í þessum þætti en mað-
ur verður að vera með ljónshjarta
til að taka svona gríni en ég er ein-
mitt þannig. Ég talaði ekkert um
rasismann í þessum þætti en nú er
ég búinn að fá nóg. Hvað getur
maður líka gert þegar lögreglan
skemmtir sér yfir þessari kyn-
þáttamismunun? Ég er bókuð í
viðtöl við erlenda fjölmiðla á
næstunni og þar ætla ég að segja
frá þeirri lífsreynslu sem ég hef
lent í hérna á Íslandi. Ég ætla að
tala vel um Íslendinga en ekki um
þetta rótgróna kynþáttahatur
hérna.“
Ofsótt af tónlistarfólk
Leoncie finnur lítið fyrir for-
dómum í heimabæ sínum: „Síðan
lagið Ást á barnum kom í útvarp-
inu hefur afbrýðisemin og brjál-
æðið verið með ólíkindum. Ég veit
hverjir eru að ofsækja mig. Þetta
er aðallega tónlistarfólk og ætt-
ingjar þess. Það eru ekki almenn-
ir Íslendingar sem hata mig. Þetta
eru tónlistarmenn og ég vil koma
því á framfæri að ég er ekki á
móti Íslendingum en það er verið
að breiða það út að ég hati 280.000
Íslendinga. Sérðu hvers konar
geðveiki þetta er? Það er verið að
leggja mig í einelti og gera árásir
á mig.“
Leoncie segist aðspurð ekki
eiga gott með að svara því hversu
almennir kynþáttafordómar séu á
Íslandi. „Fordómarnir eiga sér í
það minnsta djúpar rætur og allir
þessir nýju kynþáttahatarar eru
aldir upp af kynþáttahöturum.
Þetta veit ég fyrir víst rétt eins og
ég veit að það er litið á mig sem
ógnun. Ég er ekki að ógna neinum
og framleiði mína tónlist fyrir
mína eigin peninga.“
Diskarnir seljast
Leoncie segist ekki þurfa að
kvarta yfir viðtökunum sem hún
fær á Íslandi þó fordómarnir geri
henni lífið leitt. „Allt sem ég hef
gert hefur selst. Það eru bara ör-
fáir geisladiskar eftir. Það er fullt
af fólki sem kann að meta mig og
kaupir diskana. Ég er líka fullbók-
uð langt fram í tímann. Þetta fólk
á spjallrásunum heldur því fram
að þeir sem bóki mig geri það
bara til að gera grín, come on!
Þetta er dæmi um þessa fordóma.
Það er til fullt af frábærum
grínistum sem eru bókaðir til þess
að sjá um það.
Ég er ekki að biðja fólk um að
meta tónlistina mína. Það nægir
mér alveg að fólk erlendis kunni
að meta mig. Það er bara hér á Ís-
landi sem mér mætir ekkert nema
hatur, öfundsýki og fordómar.
Tónlistarfólk hér á Íslandi þykist
vera að gera spes tónlist og þykj-
ast vera mestu tónlistarsnillingar
í heimi og það eru þessir svoköll-
uðu tónlistarsnillingar sem eru að
ofsækja mig. En menn skulu bara
bíða og sjá því að það er sprengja
á leiðinni.“
Eru gagnrýnendur rasistar?
Leoncie hefur gefið það í
skyn að þeir sem tali illa um tón-
list sína geri það á rasískum for-
sendum en er það virkilega til-
fellið?
„Þeir dæma tónlistina mína út
frá því að ég er ekki fædd á Ís-
landi en það er eitthvað sem ég
þarf ekki að þola í Bretlandi,
Bandaríkjunum og annars stað-
ar. Þetta er tilfellið hérna og ég
veit það. Ég hef verið að tala við
erlend útgáfufyrirtæki og þar
eru menn alveg gáttaðir á því að
ég sé ekki með íslenskan útgef-
anda. Ég hef fengið fullt af
samningum í hendurnar sem ég
er að skoða og svo sjáum við
bara hvað ég vil skrifa undir.
Þessar morðhótanir og hótanir
frá þessu tónlistahatarapakki
munu ekki hafa neitt að segja og
ég mun koma því á framfæri í
viðtölum mínum við útlenda fjöl-
miðla hvernig tónlistarfólk
hérna hefur ofsótt mig í 21 ár. Ég
er hérna og látið mig í friði!“
Leoncie segist alltaf gera sitt
besta og gefur sig alla í tónlist-
ina. „Ég einbeiti mér alltaf að
sjálfri mér. En það er nánast
ómögulegt að hugsa um sjálfan
sig þegar fjöldi fólks er á hælun-
um á manni og lætur mann ekki
í friði. Ég er með stóra samninga
í gangi en ætla ekki að segja frá
þeim á Íslandi þar sem hér vill
fólk bara vinna skemmdarverk.
Bresk sjónvarpsstöð sagði orð-
rétt að Björk væri kannski
þekktari en ég en að Leoncie
væri best.“
thorarinn@frettabladid.is
LEONCIE
Segir að tenglasafnið www.tilveran.is hafi gengið sérstaklega hart fram í ofsóknum á
hendur sér. „Þeir hafa hótað mér og reynt að kúga mig til að auglýsa hjá sér. Þeir hafa
bæði sagt móðgandi hluti um mig og líka sent mér tölvupóst þar sem þeir segja að ef ég
sé klár kona skuli ég auglýsa á Tilverunni annars muni þeir alltaf gera grín að tónlistinni
minni og hvetja fólk til að halda áfram að skrifa illa um mig. Þetta er fjárkúgun og ég hef
sent þennan póst á erlenda fjölmiðla.“
Misskilningur
„Við sendum henni póst þar
sem við bentum henni á að ef
hún væri „smart“ myndi hún
notfæra sér Tilveruna til að
auglýsa sig enda yrði það
ókeypis“, segir Ísar Logi Arnar-
son hjá Tilverunni og segir það
fullkominn misskilning að með
þessari ábendingu hafi verið
gerð tilraun til að kúga Leoncie
til samstarfs við vefinn. „Við
bentum henni líka á að við
myndum halda áfram að gera
grín að henni þó hún sendi til
okkar fréttir og fréttatilkynn-
ingar þannig að þó hún hefði
áhuga á einhvers konar sam-
starfi myndum við halda okkar
stefnu. Það er líka engin spurn-
ing að það var hátindurinn á
ferli hennar að komast inn á
Tilveruna. Þetta er stærsta aug-
lýsing sem hún hefur fengið.
Það vissi enginn hver Leoncie
var áður en hún komst inn á
Tilveruna.“
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
MAGNÚS
KJARTANS-
SON
BJÖRGVIN
HALLDÓRS-
SON
EIÐUR
ARNARSON
LÍSA PÁLS
GUNNAR L.
HJÁLMARS-
SON