Fréttablaðið - 15.11.2003, Page 47
Syngur um sjálfsfróun
FÓLK Lag af nýrri breiðskífu
Britney Spears hefur valdið
henni miklum roða í kinnum upp
á síðkastið. Ástæðan er sú að
lagið Touch of My Hand, sem er
að finna á nýrri breiðskífu henn-
ar In the Zone, fjallar um sjálfs-
fróun. Þar með hefur stúlkan
opnað fyrir það að fjölmiðlar
spyrji hana spjörunum úr um þá
unaðslegu athöfn.
„Það er mjög jákvætt að láta
stundum eftir sér kynferðis-
lega,“ sagði Britney í viðtali við
The New York Daily News.
„Þetta er bara hluti af lífinu.
Strákar geta talað um þetta. Af
hverju geta stelpur það ekki?
Þetta er jákvæður hlutur. Ég
held að ef stelpur segist ekki
gera þetta, þá séu þær að ljúga.“
Í viðtalinu var hún einnig
spurð að því hvort henni líkaði
það að vera á lausu. „Þegar
maður er einn áttar maður sig á
því hvað það er sem gerir mann
í rauninni hamingjusamann. Þá
er auðveldara að gefa af sér.
Þegar maður kemst í rétta
skapið þá kveikir það á strákn-
um líka. Svo maður á bara að
reyna að gleðja sjálfan sig og
leyfa þeim svo að fylgja manni
eftir.“ ■
Óperuleikstjóri beraði bossann
Gerald Thomas, óperuleik-
stjóri í Rio de Janeiro í Brasil-
íu, hefur verið ákærður fyrir
ósæmilega hegðun á almanna-
færi eftir að hann beraði bossa
sinn fyrir framan áhorfendur.
Atvikið átti sér stað eftir
frumsýningu Thomas á verk-
inu Tristan og Ísold eftir
Wagner í Theatro Municipal-
leikhúsinu í Ríó. Húsið var
troðfullt af áhorfendum sem
létu í ljós óánægju sína að
lokinni sýningunni með því að
púa óspart. Það telst varla
skrýtið því á sýningunni
stundaði ein kvenpersónan
sjálfsfróun á sófa auk þess
sem sálfræðingurinn Sigmund
Freud var látinn sniffa kókaín
í gríð og erg.
Thomas, sem segir að sýn-
ingar sínar snúist ekki um
raunsæi, varð æfur vegna
hinna slæmu viðbragða og
brást við með því að fletta bux-
unum niður um sig og bera
bossann á miðju leiksviðinu.
Athæfið var umsvifalaust
tilkynnt til lögreglunnar. Á
Thomas yfir höfði sér annað
hvort sekt eða fangelsisdóm. ■
XXX ROTTWEILER
Hundarnir rappa og árita diska í Smára-
lindinni í dag.
Nýr diskur
ERPUR EYVINDARSON
■ Í nýrri heimildarmynd sem kemur út í
dag er skyggnst bak við tjöldin og sýnt
hvaða áhrif frægðin hafði á rapparana.
Erpur segir bransaliðið í bænum vera
tóma sultuhunda.
sem er náttúrlega tómir sultu-
hundar upp til hópa,“ segir Erpur
en nákvæmari lýsingar á þroska-
ferli rapparanna er að finna í
myndinni sjálfri.
Ein af athyglisverðari uppá-
komum í Rokkstjörnum Íslands er
samskipti Rottweilerhundanna
við Árna Johnsen: „Það er korters
atriði á disknum þar sem sýnt er
frá því þegar við byrjum að taka
lagið á Þjóðhátíð í Vestmannaeyj-
um. Árni Johnsen heyrir að hon-
um sé ekki boðið, kippir okkur úr
sambandi og það verður uppþot í
kjölfarið.“
Diskurinn inniheldur öll sjö
tónlistarmyndbönd Rottweiler,
þar af tvö sem sjónvarpsstöðvarn-
ar hafa ekki viljað sýna: „Stefnan
var að gera þrennu af myndbönd-
um sem ekki fá spilun. Það fyrsta
var við lagið Sönn íslensk sakamál
en það myndband er mjög ofbeld-
isfullt, það næsta var við lagið
Blautt malbik en þar er klám-
kóngurinn Ron Jeremy í stjörnu-
hlutverki og það þriðja á að vera
mjög pólitískt og tilgangurinn er
að láta banna það líka.“
Salan á disknum hefst klukkan
14.00 í BT í Smáralind í dag.
Rottweilerhundarnir mæta á
svæðið til að rappa og árita diska
og verður afhent platína fyrir sölu
á fyrstu plötunni. ■
BRITNEY SPEARS
Talar nú um lítið annað en
sjálfsfróun í viðtölum.
Líður greinilega vel
þegar hún er ein.
Skrýtnafréttin
BERAÐI BOSSANN
■ Óperuleikstjóri í Brasilíu beraði boss-
ann framan í áhorfendur sína.
LAUGARDAGUR 15. nóvember 2003 35