Fréttablaðið - 15.11.2003, Blaðsíða 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Bakþankar
REYNIS
TRAUSTASONAR
Þegar báturinn sigldi út fjörð-inn stóð gömul kona í fjör-
unni og veifaði. Þeir sem stóðu
næstir á fjörukambinum merktu
að á hvarmi gömlu konunnar
glitraði tár. Hikandi lyfti hún
einnota myndavél og smellti af
mynd. Hún þurrkaði sér um
augun og lyfti myndavélinni aft-
ur og það heyrðist smellur.
Svartfuglar í stefnu bátsins tóku
sig þunglamalega á loft og flugu
með bægslagangi til hafs.
Gamla konan í fjörunni stóð
grafkyrr og fylgdist með bátn-
um fjarlægjast. Um borð var
búslóð þriðja og fjórða ættliðs
hennar á leið til Reykjavíkur
þar sem kvikmyndahúsin, veit-
ingastaðirnir, bíóin og líkams-
ræktarstöðvarnar biðu þess að
þeir brottfluttu birtust og fylltu
sali með glaðværum hlátrasköll-
um.
FÓLKSFLUTNINGAR af lands-
byggðinni stóðu sem hæst. Það
hafði breiðst út á meðal lands-
byggðarfólks eins og eldur í
sinu að lífsfyllingin yrði höndl-
uð í leikhúsum og kvikmynda-
húsum syðra fremur en fátæk-
legum félagsheimilum lands-
byggðarinnar. Fæstir settu á
vogarskálarnar þann munað
sem felst í því að vera daglega í
samgangi við fólk sem þekkist.
Þúsundir streymdu því suður
þar sem atvinnutækifærin hlutu
að bíða í röðum, ólíkt því sem
gerðist í þorpunum þar sem val-
ið stóð gjarnan um það eitt að
fara á sjóinn eða vinna í frysti-
húsi.
VERÐFALL varð á fasteignum í
dreifbýlinu. Í skiptum fyrir fer-
metra og sjálfstæði hlaust að-
gangur að gylltum sölum borg-
arinnar. Þá var ólíkt skárra að
hafa aðgang að tískuverslunum í
stað þess að sætta sig við fá-
brotið úrvalið í kaupfélaginu. En
hinir brottfluttu gleymdu því
gjarnan að mikil fjárútlát fylgja
því að vera stöðugt á randi á
milli skemmtistaða. Það kostar
meira að segja þó nokkra pen-
inga að sækja kvikmyndahús;
sérstaklega ef fólk fer oft. Í
þorpunum er oftast maður
manns gaman.
ÞEGAR báturinn hvarf fyrir nes
við vestanverðan fjörðinn á leið
sinni suður til fyrirheitna lands-
ins gekk konan hægum skrefum
heimleiðis með myndavélina í
hendinni. Hún settist niður í eld-
húsinu þangað sem barnabörnin
höfðu komið daglega um árabil
til að fá jólaköku og kakó. Ekk-
ert heyrðist nema tifið í eldhús-
klukkunni. Þorpið var ekki samt
í hennar huga.
Brottflutt
Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 18:30 | www.ikea.is
ÍS
LE
NS
KA
A
UG
LÝ
SI
NG
AS
TO
FA
N
EH
F/
SI
A.
IS
IK
E
22
46
2
11
.2
00
3
©
In
te
r
IK
EA
S
ys
te
m
s
B.
V.
2
00
3
Jólabæklingur IKEA
Þitt eintak bíður þín á Netinu
...er kominn!
www.IKEA.is