Fréttablaðið - 23.11.2003, Qupperneq 40
40 23. nóvember 2003 SUNNUDAGUR
Stigamet Keflvíkinga
KÖRFUBOLTI Keflvíkingar voru í stuði
í undanúrslitaleik Hópbílabikarsins
gegn Tindastól og höfðu þegar upp
var staðið bætt sitt eigið stigamet í
keppni hinnar fjögurra fræknu um
12 stig, skoruðu 126 stig á 40 mínút-
um eða meira en þrjú stig á hverri
mínútu. Leikinn unnu þeir með 25
stigum, 126-101. Keflvíkingar skor-
uðu sjö þriggja stiga körfur í fjórða
leikhluta og brutu 30 stiga múrinn í
fyrsta (35), öðrum (32) og fjórða
leikhluta (36) og fengu auk þess 65
stig frá bekknum í þessum leik,
fjórum stigum meira en frá byrjun-
arliði sínu.
Enginn lék betur en Magnús Þór
Gunnarsson sem skilaði 32 stigum,
sex stoðsendingum og þremur
stolnum boltum á 27 mínútum af
bekknum en Magnús hitti meðal
annars úr átta af 12 þriggja stiga
skotum og skoraði fimm þrista í
fjórða leikhlutanum einum.
Derrick Allen var líka traustur
hjá Keflavík og skoraði 29 stig og
tók níu fráköst, Nick Bradford var
með 21 stig, sjö fráköst og sex
stoðsendingar og Sverrir Þór Sverr-
isson skoraði 12 stig, tók níu fráköst
(sjö í sókn) og gaf fjórar stoðsend-
ingar á 24 mínútum. Hjá Tindastól
skoraði Nick Boyd 27 stig og tók 13
fráköst (sjö í sókn), Adrian Parks
gerði 18 og tók fimm sóknarfráköst,
Clifton Cook var með 17 stig, 10
stoðsendingar og sex fráköst og
Friðrik Hreinsson skoraði 17 stig og
fimm þrista þar af 14 stig og fjóra
þrista í síðasta leikhlutanum. ■
Páll hetja Njarðvíkinga
KÖRFUBOLTI Páll Kristinsson var
hetja Njarðvíkinga í framleng-
ingunni þegar þeir unnu Grindvík-
inga með einu stigi, 87-86, í fyrri
undanúrslitaleik Hópbílabikarsins
en hann gerði þá sjö af 10 stigum
liðsins. Það var hins vegar Brandon
Woudstra sem bæði jafnaði leikinn
fyrir Njarðvík með tveimur víta-
skotum í venjulegum leiktíma og
gulltryggði síðan sigurinn í fram-
lengingunni með því að setja annað
víta sinna niður og koma Njarðvík í
fjögurra stiga forskot, 87-83, en
dugði ekki taplausu toppliði Inter-
sportdeildarinnar að Páll Axel Vil-
bergsson setti niður þrist á lokasek-
úndu leiksins.
Páll Kristinsson var stigahæstur
Njarðvíkinga með 19 stig og sjö frá-
köst og Brandon Woudstra var með
17 stig og Friðrik Stefánsson skoraði
14 stig. Þeir Brenton Birmingham
og Egill Jónasson voru síðan báðir
nálægt þrefaldri tvennu, Brenton
skoraði 13 stig, tók níu fráköst og
gaf níu stoðsendingar auk fjögurra
stolna bolta en Egill skoraði átta
stig, tók átta fráköst og setti nýtt
met í keppni hinna fjögurra fræknu
með því að verja níu skot Grindvík-
inga.
Hjá Grindavík skoraði Darrel
Lewis 25 stig og tók 15 fráköst þar af
11 í sókn og landi hans Dan Trammel
var með 14 stig, 16 fráköst og fimm
varin skot. Þá skoraði Páll Axel Vil-
bergsson 22 stig og tók sex fráköst
og Helgi Jónas Guðfinnsson var með
12 stig og fjórar stoðsendingar. ■
Úrslitaleikur Hópbílabikars karla í körfubolta:
Upprisa Njarðvíkinga
KÖRFUBOLTI Njarðvíkingar áttu
bæði upphafs- og lokaorðið í úr-
slitaleik Hópbílabikarsins í gær
og það dugði ekki Keflvíkingum
að vinna 27 mínútur þar á milli
með 26 stiga mun, 74-49. Njarð-
víkingar sem komust í 10-0 í
upphafi leiks og unnu síðan
fjórða leikhlutann 31-9 og leik-
inn, 90-83, og fyrirtækjabikar
KKÍ þar með í annað sinn á
þremur árum. Það var 19 ára
gutti úr Njarðvíkunum, Guð-
mundur Jónsson, sem gerði úts-
lagið á æsispennandi lokakafla
en hann gerði 15 af 23 stigum
sínum í síðasta leikhlutanum og
dró þá vagninn en strákurinn
skoraði 11 stigum fleira heldur
en Brandon Woudstra (4) og
Brenton Birmingham (0) til
samans í fjórða leikhlutanum .
Brenton gerði reyndar útslagið í
lokin þegar hann varði þriggja
stiga skot Fals Harðarsonar í
stöðunni, 85-83, náði sjálfur frá-
kastinu og sendi á Guðmund
Jónsson frían í hraðaupphlaupi
sem gulltryggði sigurinn.
Eins og áður sagði var Guð-
mundur Jónsson maður leiksins,
skoraði 23 stig á 28 mínútum og
nýtti átta af 13 skotum sínum en
eins var Friðrik Stefánsson
mjög sterkur undir körfunni (17
stig, 14 fráköst, fimm varin
skot) og Brandon Woudstra skil-
aði sínu með nánast sóknarleik
liðsins á sínum öxlum allan tím-
ann. Brandon spilaði allan leik-
inn og var með 21 stig, níu frá-
köst og fimm stoðsendingar og
það gerði honum lífið erfitt að
bæði Páll Kristinsson og Brent-
on Birmingham hittu afar illa
(gerðu 11 stig og hittu aðeins úr
þrjú af 22 skotum saman) en
þeir tóku saman 21 fráköst og
spiluðu sterka vörn.
Hjá Keflavík voru þeir
Derrick Allen (23 stig, 10 frá-
köst, fimm varin) og Nick Brad-
ford (20, stig, níu fráköst, sex
stoðsendingar) í aðalhlutverkum
og þá skilaði fyrirliðinn Gunnar
Einarsson vissulega sínu (17 stig,
níu fráköst). Aðalskyttur liðsins
brugðust hins vegar og liðið mis-
notaði meðal annars 15 af 16
þriggja stiga skotum sínum í
seinni hálfleiknum. Það munaði
líka mikið um að missa Derrick
Allen út af með fimm villur þeg-
ar 6:34 voru eftir en liðið var þá
sex stigum yfir, 76-70. Barátta og
sigurvilji Njarðvíkinga bar þá
hreinlega ofurliði í lokin en
Njarðvíkingar tóku 20 af 29 frá-
köstum í boði í síðasta leikhlutan-
um á sama tíma og aðeins þrjú af
19 skotum Keflvíkinga skiluðu
sér rétta leið ofan í körfuna. ■
Forsetabikarinn í golfi
Alþjóðaliðið setti met!
GOLF Alþjóðaliðið í golfi tók sig
heldur betur saman í andlitinu í gær
eftir heldur dapran dag á föstudag
og vann alla sex leiki sína gegn
Bandaríkjamönnum í Forsetabik-
arnum. Þar með setti alþjóðaliðið
met, því þetta er í fyrsta sinn síðan
leikjunum var fjölgað í sex á dag
sem annað liðið nær fullkomnum
degi. Bandaríkjamenn hafa tvisvar
afrekað það að vinna alla leiki dags-
ins, árin 1994 og 1999, en þá voru
spilaðir fimm leikir á dag. Þótt allir
liðsmenn alþjóðaliðsins hafi staðið
sig vel voru þeir Vijay Singh og
Retief Goosen fremstir meðal jafn-
ingja. Þeir léku óaðfinnanlegt golf,
náðu m.a. fugli á síðustu fimm hol-
unum í einvígi sínu gegn Tiger
Woods og Charles Howell III og
unnu sannfærandi sigur. Banda-
ríkjamenn áttu veika von um vinn-
ing í síðasta hollinu þar sem Justin
Leonard og Chris DiMarco sóttu
hart að Mike Weir og Robert Allen-
by í lokin, en tæplega 30 metra pútt
kórónaði frábæran dag alþjóðaliðs-
ins og verðugan sess í sögubókun-
um. Með þessari frábæru frammi-
stöðu hefur alþjóðaliðið náð þriggja
vinninga forskoti á Bandaríkja-
menn og stendur með pálmann í
höndunum fyrir endasprettinn í
dag. Þá verður leikinn einmenning-
ur og alþjóðaliðinu nægja fimm
vinningar af tólf mögulegum til að
tryggja sér Forsetabikarinn. ■
GUÐMUNDUR JÓNSSON
Hinn 19 ára gamli Guðmundur Jónsson skoraði 15 stig í fjórða leikhlutanum, sex stigum
fleira en allt Keflavíkurliðið.
NJARÐVÍK-KEFLAVÍK 90-83
(19-29, 35-49, 59-74)
STIG NJARÐVÍKUR:
Guðmundur Jónsson 23
Brandon Woudstra 21
Friðrik Stefánsson 17
Egill Jónasson 10
Páll Kristinsson 6
Brenton Birmingham 5
Ólafur Aron Ingvason 4
Halldór Karlsson 4
STIG KEFLAVÍKUR:
Derrcik Allen 23
Nick Bradford 20
Gunnar Einarsson 17
Magnús Þór Gunnarsson 9
Falur Harðarson 8
Jón Nordal Hafsteinsson 6
FYRIRTÆKJAMEISTARAR KKÍ
1996-2003:
1996 Keflavík
1997 Keflavík
1998 Keflavík
1999 Tindastóll
2000 Grindavík
2001 Njarðvík
2002 Keflavík
2003 Njarðvík
VIJAY SINGH
Alþjóðaliðið fagnaði sigri í gær.