Fréttablaðið - 23.11.2003, Side 41
41SUNNUDAGUR 23. nóvember 2003
Frábær frammistaða
Haukar náðu stigi gegn sterku liði Barcelona
HANDBOLTI Íslandsmeistarar
Hauka tryggðu sér í gær þriðja
sætið í B-riðli meistararadeild-
arinnar í handknattleik og þar
með sæti í Evrópukeppni bikar-
hafa þegar þeir gerðu jafntefli
við stórlið Barcelona á útivelli,
27-27. Fáir áttu von á því að
Haukarnir myndu sækja gull í
greipar Börsunga, en með
skynsömum leik og frábærri
markvörslu Birkis Ívars Guð-
mundssonar, að ógleymdum
frábærum stuðningi um 200
áhangenda sem fylgdu liðinu
frá Íslandi, tókst þeim að sækja
stig. Haukarnir sýndu andstæð-
ingum sínum enga virðingu í
gær og hefðu reyndar með smá-
heppni haft sigur í leiknum, en
jafntefli er ásættanlegt og vel
það og sýnir það og sannar að
Hafnfirðingarnir eiga fullt er-
indi í þessa keppni.
Birkir Ívar Guðmundsson
átti eins og áður segir stórleik í
markinu og varði 18 skot, mörg
hver úr dauðafærum, en annars
áttu allir leikmenn liðsins skín-
andi leik. Alexandr Shamkuts
var þeirra markahæstur með
sex mörk en Andri Stefan skor-
aði þó mark leiksins - hann
skeiðaði upp völlinn á lokasek-
úndunum og skoraði með skoti
fyrir aftan bak, 27-27.
Haukarnir eru sem fyrr seg-
ir öruggir í 3. sæti riðilsins og
hafa þar með tryggt sér sæti í
Evrópukeppni bikarhafa og
Magdeburg á sigurinn vísan í
riðlinum, en Alfreð Gíslason og
lærisveinar hans fá Vardar í
heimsókn í dag.
Tvö efstu liðin, Magdeburg
og Barcelona, hafa þegar
tryggt sér sæti í 16-liða úrslit-
um meistaradeildarinnar. ■
Óbreytt staða á toppnum í Englandi
Arsenal, Chelsea og Man. United unnu öll leiki sína
KNATTSPYRNA Staða efstu liðanna
í ensku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu breyttist lítið í gær.
Arsenal heldur toppsætinu eftir
góðan útisigur á Birmingham, 3-
0, þar sem þeir Freddie Ljung-
berg, Dennis Bergkamp og Ro-
bert Pires skoruðu mörkin.
Birmingham var inni í leiknum
þar til um 10 mínútur voru til
leiksloka, en þá skoraði Berg-
kamp sitt fyrsta mark á þessari
leiktíð og Pires kláraði svo leik-
inn í blálokin. Chelsea er í öðru
sæti sem fyrr eftir torsóttan sig-
ur á Southampton á útivelli, 1-0.
Sigurmarkið í leiknum kom úr
óvæntri átt, en það skoraði bak-
vörðurinn Mario Melchiot. Eið-
ur Smári Guðjohnsen var í byrj-
unarliði Chelsea og átti þokka-
legan leik. Manchester United
fékk Blackburn í heimsókn í
gær og hafði þar sigur, 2-1.
Ruud Van Nistelrooy og Kleber-
son komu United í 2-0, en
Kleberson var að skora sitt fyrs-
ta mark fyrir United, og Brett
Emerton minnkaði muninn um
miðjan síðari hálfleikinn.
Arsenal, Chelsea og Man.
United eru öll í hnapp í efstu
þremur sætunum og Charlton er
svo í fjórða sætinu, níu stigum á
eftir Man. United, eftir 1-1 jafn-
tefli gegn Leicester í gær. Eldri
kynslóðin lét til sín taka í þess-
um leik því Les Ferdinand skor-
aði mark Leicester og Paolo Di
Canio jafnaði metin fyrir
Charlton. Lið Newcastle virðist
vera að vakna til lífsins eftir
heldur dapra byrjun, en í gær
unnu Skjórarnir öruggan sigur á
Manchester City á St. James
Park, 3-0. Shola Ameobi kom
heimamönnum á bragðið og
markahrókurinn Alan Shearer
sá svo um afganginn. Newcastle
hefur þokað sér hægt og bítandi
upp töfluna og er nú í 6. sæti úr-
valsdeildarinnar. Bolton átti
ekki í teljandi vandræðum með
heillum horfið lið Leeds United
og vann dýrmætan sigur 2-0.
Kevin Davies og Stelios Gianna-
kopoulos skoruðu mörkin fyrir
Bolton. Everton hafði betur
gegn Úlfunum, 2-0, þar sem þeir
Tomasz Radzinski og Kevin Kil-
bane skoruðu með þriggja mín-
útna millibili og Úlfarnir eru því
enn í fallsæti ásamt Leeds og
Aston Villa, sem reyndar á leik
til góða og getur skutlað Black-
burn aftur fyrir sig. Loks gerðu
Middlesbrough og Liverpool
markalaust jafntefli í leik sem
þótti lítið fyrir augað. ■
Níu marka
tapleikur
HANDBOLTI Íslenska kvennalandsliðið
í handknattleik náði ekki að fylgja
eftir góðri byrjun í undanriðli EM á
Sikiley, en eftir sigur á Portúgölum
á föstudag mætti íslenska liðið
Makedóníu í gær og mátti sætta sig
við níu marka tap, 23-32. Hrafnhild-
ur Skúladóttir skoraði tíu mörk fyr-
ir Ísland í gær, Dagný Skúladóttir
skoraði fjögur mörk, Jóna Margrét
Ragnarsdóttir, Inga Fríða Tryggva-
dóttir og Brynja Steinsen skoruðu
tvö mörk hver og Hafdís Hinriks-
dóttir, Harpa Melsted og Hanna G.
Stefánsdóttir skoruðu eitt mark
hver. Berglind Hansdóttir varði níu
skot í markinu og Helga Torfadóttir
varði sex skot. ■
LEIKIR
10.00 Keppni í 3. deild Íslands-
mótsins í innanhússknattspyrnu hefst í
Austurbergi.
16.00 HK keppir við ÍBV í Digra-
nesi i í suðurriðli RE/MAX-deildar karla
í handbolta.
17.00 Grótta/KR keppir við Þór
Ak. á Seltjarnarnesi i í norðurriðli
RE/MAX-deildar karla í handbolta.
19.15 FH keppir við ÍR í
Kaplakrika i í suðurriðli RE/MAX-deild-
ar karla í handbolta.
SJÓNVARP
10.30 President’s Cup (Forseta-
bikarinn) á Sýn. Bein útsending frá
keppninni um Forsetabikarinn í golfi
sem fram fer í Suður Afríku.
12.30 Boltinn með Guðna Bergs
á Sýn. Umfjöllun um leiki laugardags-
ins í ensku úrvalsdeildinni i knatt-
spyrnu.
13.30 President’s Cup (Forseta-
bikarinn) á Sýn. Bein útsending frá
keppninni um Forsetabikarinn í golfi
sem fram fer í Suður Afríku.
16.30 Enski boltinn á Sýn. Bein
útsending frá leik Aston Villa og
Tottenham.
17.00 Markaregn á RÚV. Sýndir
verða valdi kaflar úr leikjum 13. um-
ferðar í þýska fótboltanum.
18.55 Hnefaleikar á Sýn. Á meðal
þeirra sem mætast eru Oscar de la
Hoya og Shane Mosley.
21.00 Boltinn með Guðna Bergs
á Sýn. Umfjöllun um leiki helgarinnar í
ensku úrvalsdeildinni i knattspyrnu.
21.30 Helgarsportið á RÚV. Farið
yfir íþróttaviðburði helgarinnar innan-
lands og erlendis.
22.00 UEFA Champions League
á Sýn. Fréttaþáttur um meistaradeild
Evrópu í knattspyrnu
22.55 Enski boltinn á Sýn Leikur
dagsins endursýndur.
hvað?hvar?hvenær?
20 21 22 23 24 25 26
NÓVEMBER
Sunnudagur
ÚRSLIT GÆRDAGSINS:
Man.Utd.-Blackburn 2-1
- Nistelrooy (24.), Kleberson (38.) - Em-
erton (62.)
Birmingham-Arsenal 0-3
- Ljungberg (4.), Bergkamp (80.), Pires
(88.)
Everton-Wolves 2-0
- Radzinski (16.), Kilbane (19.)
Leeds-Bolton 0-2
- Davies (16.), Giannakopoulos (17.)
Leicester-Charlton 1-1
- Ferdinand (39.) - Di Canio vsp. (84.)
Newcastle-Man. City 3-0
- Ameobi (57.), Shearer (77. & 85.)
Southampton-Chelsea 0-1
- Melchiot (47.)
Middlesbrough-Liverpool 0-0
STAÐAN Í DEILDINNI:
Arsenal 13 10 3 0 28 10 33
Chelsea 13 10 2 1 27 9 32
Man.Utd. 13 10 1 2 25 8 31
Charlton 13 6 4 3 20 16 22
Birmingham 13 5 5 3 11 11 20
Newcastle 13 5 4 4 19 18 19
Fulham 12 5 3 4 22 18 18
Man. City 13 5 3 5 22 18 18
Liverpool 13 5 3 5 18 14 18
Southampton 13 4 5 4 10 8 17
Portsmouth 12 4 3 5 17 16 15
Middlesbr. 13 4 3 6 11 15 15
Bolton 13 3 6 4 11 19 15
Everton 13 3 4 6 15 17 13
Leicester City 13 3 3 7 20 2 12
Tottenham 12 3 3 6 11 16 12
Blackburn 13 3 2 8 18 24 11
Aston Villa 12 2 5 5 9 15 11
Wolves 13 2 4 7 8 26 10
Leeds 13 2 2 9 11 33 8
DENNIS BERGKAMP
Skoraði sitt fyrsta mark fyrir Arsenal á leik-
tíðinni er hann skoraði eitt þriggja marka
liðsins í 3–0 sigri á Birmingham í ensku
úrvalsdeildinni í gær.