Fréttablaðið - 31.12.2003, Side 2

Fréttablaðið - 31.12.2003, Side 2
2 31. desember 2003 MIÐVIKUDAGUR „Ætli það sé ekki gáfulegra ef fólk skilur litlu bílana eftir heima. Þá er allt i himnalagi og við komumst leiðar okkar.“ Ásgeir Eiríksson er framkvæmdastjóri Strætó bs. Strætisvagnar áttu erfitt með að komast leiðar sinnar í fannferginu í fyrradag. Spurningdagsins Ásgeir, þarf ekki bara að senda vagn- ana í upphækkun hjá Bílabúð Benna? Áramótabrennur: Sautján brennur á höfuðborgarsvæðinu ÁRAMÓT Eldvarnareftirlitinu hefur verið tilkynnt um sautján ára- mótabrennur á höfuðborgarsvæð- inu. Stærsta brennan verður á Geirsnefi eins og venja er til. „Mönnum greinir á um hversu lengi þetta hefur verið. Þetta eru 40 eða 50 ár,“ segir Jón Bergvins- son en þetta er í ellefta skiptið sem hann sér um brennuna við Ægi- síðu. „Ég gæti trúað að það hafi verið um fimm þúsund manns sem komu árið 2000 en ég gæti trúað að í meðalári komi ríflega þrjú þús- und. Þetta hefur verið mjög vel sótt,“ segir hann. Hann segir að umsjónarmenn brennunnar fylgist með því að gestir gæti varúðar og beinir þeim tilmælum til fólks að vera ekki með skotelda í kringum brennuna. „Það er allt í lagi að fólk sé með blys og stjörnuljós en annars treystum við helst á dómgreind borgaranna og að þeir fari varlega og sýni aðgæslu,“ segir hann. Kveikt verður í flestum brenn- unum skömmu eftir kvöldmatar- leytið, eða klukkan 20.30, en fyrsta brennan sem tendrað verð- ur í er í landi Úlfarsfells. Í henni verður kveikt klukkan 16 í dag. ■ BRUSSEL, AP Evrópusambandið ákvað að herða öryggisreglur í höfuðstöðvum sínum í Brussel í Belgíu eftir að nokkrir evrópskir embættismenn höfðu fengið send- ar bréfasprengjur. Romano Prodi, forseti fram- kvæmdastjórnar Evrópusam- bandsins, slapp án teljandi meiðs- la þegar hann opnaði bréfa- sprengju sem send var á heimili hans í Bologna á Ítalíu á laugar- daginn. Á mánudaginn stöðvaði hollenska lögreglan sprengju sem send hafði verið Jürgen Storbeck, yfirmanni Evrópulögreglunnar, Europol, í Haag. Í gær og í fyrra- dag voru sams konar pakkar send- ir á skrifstofu Jean-Claudes Trichet, bankastjóra evrópska seðlabankans, og á skrifstofur Eurojust. Talið er að allir pakkarnir hafi verið póstlagðir í Bologna. Grunur leikur á að áður óþekkt samtök stjórnleysinga hafi sent sprengj- urnar. Hópurinn hefur lýst ábyrgð á hendur sér vegna tveggja mis- heppnaðra sprengjutilræða gegn Prodi og borið því við að hann væri fulltrúi nýskipunar Evrópu. ■ Í SÓTTKVÍ Riðukjöti var dreift til átta ríkja í Bandaríkjunum. Afleiðingar kúariðunnar: Neita að aflétta banni JAPAN Japanskir embættismenn tilkynntu bandarískum starfs- bræðrum sínum í gær að alltof snemmt væri að aflétta innflutn- ingsbanninu á nautakjöti, sem sett var vegna kúariðusmitsins sem greindist í Bandaríkjunum fyrr í mánuðinum, en Japanar eru langstærstu innflytjendur nauta- kjöts frá Bandaríkjunum og meðal rúmlega tuttugu þjóða sem settu innflutningsbann. Í upphafi innkölluðu bandarísk stjórnvöld kjöt sem dreift var til fjögurra ríkja í Bandaríkjunum, eftir að meintri riðukú hafði verið slátrað og var þar um að ræða Oregon, Kaliforníu, Nevada og Washington. Nú er komið í ljós að kjöt frá sama sláturhúsi var líka flutt til Alaska, Havaí, Montana og Idaho og er nú reynt að hafa uppi á því. ■ DEAN HARÐLEGA GAGNRÝNDUR Howard Dean, sem þykir líkleg- astur til að hljóta tilnefningu demókrata sem frambjóðandi flokksins í kosningunum á næsta ári, er harðlega gagnrýndur af keppinautum sínum fyrir að segja að flokkinn vanti sárlega sterka forystu. Dean sagði nýlega að Terry McAuliffe, formaður flokksins, hefði ekki staðið undir væntingum. EFREDÍN BANNAÐ Í BNA Heil- brigðisyfirvöld í Bandaríkjunum hafa bannað sölu á jurtalyfinu efredíni sem meðal annars hefur verið notað til grenningar og af íþróttamönnum. Ástæðan fyrir banninu er að nokkur dauðsföll hafa verið rakin til notkunar lyfs- ins og einnig skaðlegar aukaverk- anir. Yfirvöld segja að bannið sé vel ígrundað og byggt á niður- stöðum vísindalegra rannsókna. JARÐARFÖR Þrír herskáir Palestínumenn og tveir óbreyttir borgarar féllu í loftárás Ísraela á Gaza-borg á jóladag. Loftárás á Gazaströnd: Tíu manns særðust GAZABORG, AP Að minnsta kosti tíu manns særðust þegar ísraelski her- inn skaut tveimur flugskeytum á bifreið á Gazaströndinni, að sögn palestínskra sjónarvotta. Sjúkra- húsyfirvöld segja að tveir hinna særðu séu í lífshættu. Atvikið mun hafa átt sér stað skammt frá Sheikh Radwan hverf- inu sem er eitt af höfuðvígum Hamas-samtakanna. Lyfsalinn Raouf Musalam, sem var vitni að árásinni, segir að herþyrlurnar hafi sveimað yfir bifreiðinni í um það bil tvær mínútur á meðan veg- farendur reyndu að koma særðum til hjálpar. ■ BARNAVERND „Það að stelpur séu að þjónusta stráka, til dæmis með munnmökum, er eitthvað sem þær halda að eigi einfaldlega að gera og láta sig hafa, án þess að hugsa út í hvað þær eru að gera,“ segir Bryndís Guðmundsdóttir, uppeld- isfræðingur og deildarsérfræð- ingur hjá Barnaverndarstofu. Í viðtali blaðsins við Mumma í Götusmiðjunni í gær kom fram að æ algengara er orðið meðal ung- linga sem koma í meðferð þar, að þeir hafi selt sig, ekki einungis fyrir dópi, heldur einnig fyrir nauðsynjum, mat, húsaskjóli og þvílíku. Mummi sagði að sívax- andi harðneskju gætti í heimi þessara unglinga og væri þetta eitt dæmi um þróunina. Bryndís segist verða vör við það í sínu starfi að viðhorf ung- linga til kynlífs hafi breyst mjög. „Við vitum, að í gegnum tíðina hafa verið stelpur sem hafa selt sig, eða þá að strákar, jafnvel eldri afbrotamenn, hafi selt þær. Þetta hefur verið til staðar síðan ég byrjaði í þessu starfi 1977. Ég tel að þessi siðferðismörk og blygð- unarmörk hafi breyst, mjög til hins verra. Mér finnst ekki rétt að orða það svo að kynlífið sé frjáls- ara, ég tel að það sé orðið hömlu- lausara. Okkar stúlkur lenda verst í því af öllum, en ég held að þetta sé til staðar miklu víðar í sam- félaginu.“ Bryndís undirstrikar að þetta sé einungis byggt á sínu mati og starfsreynslu, en ekki vísindaleg- um könnunum. Hún bendir jafnframt á að ekki þyki tiltökumál þótt unglingar og ungmenni gangi um hálfnakin. Að sínu mati sé ekki nærri nóg um að tískufrömuðir og verslanir séu dregin til ábyrgðar fyrir hversu „kynvædd“ börn hér á landi séu orðin. „Mér finnst að það þurfi að taka á þessu,“ segir Bryndís. „Það þurfi að styðja foreldra til að segja nei. Ég tel að ákveðin íhalds- semi í siðferðis- og kynferðis- málum sé af hinu góða.“ Hún bendir á að skoða þurfi málið í víðara samhengi þegar rætt sé um breytt viðhorf barna og unglinga til kynlífs. Spyrja megi til dæmis hvort börn séu að upplifa eitthvað óæskilegt inni á sínum heimilum. „Þetta er íhugunarefni,“ segir Bryndís og bætir við að siðferði- leg mörk eigi að vera skýr og að þeim megi ekki raska of mikið. jss@frettabladid.is Hömlulausara og grófara kynlíf Viðhorf unglinga til kynlífs hefur gjörbreyst á síðustu árum, að áliti uppeldisfræðings og deildar- sérfræðings hjá Barnaverndarstofu. Það virðist orðið sjálfsagt í ákveðnum hópum þeirra að lifa kynlífi af einhverju tagi. Það kynlíf virðist vera grófara og hömlulausara. MYNDARLEG BRENNA Brennan á Geirsnefi er stærsta áramótabrennan. ÁRAMÓTABRENNUR Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU KVEIKT KLUKKAN 16 Í landi Úlfarsfells KVEIKT KLUKKAN 20 Í tjaldstæðinu við Varmá í Mosfellsbæ Haukabrennan við Ásvelli í Hafnarfirði KVEIKT KLUKKAN 20.30 Geirsnefsbrennan Í gömlu haugunum í Gufunesi Við Leirubakka/Breiðholtsbraut Við Suðurfell Við Ægisíðu Við Skildinganes Við Suðurhlíðar, neðan við Fossvogskirkjugarð Við Fylkisvöll Vestan Laugarásvegar gegnt Valbjarnarvelli Við Fólksvang á Kjalarnesi Milli Dalsmára og Fífuhvammsvegs í Kópavogi Á bökkunum sunnan Gestshúss í Bessastaðahreppi KVEIKT KL. 21 Á Valhúsahæð á Seltjarnarnesi Á Arnarneshæð í Garðabæ ■ Bandaríkin Fimm ára drengur: Drepinn af hundum RÚMENÍA, AP Fimm ára rúmenskur drengur var bitinn til bana af tveimur hundum á heimili ætt- ingja sinna í borginni Constanta við Svartahaf. Amma drengsins særðist þegar hún reyndi árang- urslaust að bjarga honum. Barnið opnaði búr úti í garði og hleypt hundunum út. Þeir réðust á drenginn og bitu hann á hálsinn. Ömmu hans tókst eftir harða bar- áttu að loka hundana inni í búrinu og kalla eftir aðstoð. Drengurinn var fluttur á sjúkrahús en var látinn þegar þangað kom. Hundarnir eru í eigu guðföður barnsins. ■ PRODI OG FRÚ Romano Prodi, forseti framkvæmdastjórn- ar Evrópusambandsins, og kona hans, Flavia Franzoni, ræða við blaðamenn. Bréfasprengjur sendar til evrópskra embættismanna: Öryggisreglur hertar eftir árásir Forstjóri Pharmaco: Nýtti sér kauprétt VIÐSKIPTI Róbert Wessmann, for- stjóri lyfjafyrirtækisins Pharmaco, keypti í gær 377.089 hluti í félagi sínu á genginu 2,6545. Lokagengi bréfa í fyrirtækinu í gær var 41,9. Samningurinn er þannig að Róbert getur ekki selt hluti sína nú þegar, en verðmæti samningsins, miðað við gengi bréfanna í gær, er um fimmtán milljónir króna. Eftir viðskipti gærdagsins er heildareign Róberts í Pharmaco tæplega 27 milljónir hluta. Verð- mæti hlutar hans í félaginu er því um 1.100 milljónir króna. ■

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.