Fréttablaðið - 31.12.2003, Side 25
25MIÐVIKUDAGUR 31. desember 2003
Söfnun í bálkesti hófst á mánu-daginn og hætt verður að taka
á móti efni þegar þeir eru orðnir
hæfilega stórir eða í síðasta lagi
klukkan 14 á gamlársdag.
Um hádegi á gamlársdag verð-
ur olía sett á bálkestina og frá
þeim tíma verður einn starfsmað-
ur á vakt til klukkan 20.30, en þá
verður kveikt í brennum. Frá kl.
20.30 til miðnættis verður
brennustjóri ásamt aðstoðar-
manni á vakt til miðnættis. Gert
er ráð fyrir að fjórir vatnsbílar
fari út um klukkan 2 aðfaranótt
nýársdags og hefji slökkvistarf
og föstudaginn 2. janúar hefst síð-
an hreinsun brennubotna.
1) Við Ægisíðu, stór brenna.
2) Skerjafjörður gegnt Skildinganesi
44-46, lítil brenna.
3) Við Suðurhlíðar, neðan við Foss-
vogskirkjugarð, lítil brenna.
4) Vestan Laugarásvegar móts við Val-
bjarnarvöll, lítil brenna.
5) Geirsnef, stór brenna.
6) Við Suðurfell, stór brenna.
7) Fylkisbrennan, stór brenna.
8) Gufunes við gömlu öskuhaugana,
stór brenna.
9) Leirubakki v/ Breiðholtsbraut, lítil
brenna.
10) Kléberg á Kjalarnesi, lítil brenna.
11) Úlfarsfell, lítil brenna.
Bálið verður kveikt í öllum brenn-
unum klukkan 20.30.
Bálkestir um áramót:
Ellefu áramótabrennur í Reykjavík
SJÁ BÁLIÐ BRENNUR...
Kveikt verður í brennum á höfuðborgarsvæðinu klukkan 20.30.
1
2
3
4
5
7
6
9
8
11
10