Fréttablaðið - 31.12.2003, Page 40

Fréttablaðið - 31.12.2003, Page 40
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 Bakþankar SIGURJÓNS M. EGILSSONAR Gleðilegt ár! Jólastyrkur Íslandsbanka 2003 rennur til Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra. Prikið er komið niður Þegar tvö ár koma saman, þá eruáramót. Þetta þykir sennilega engum fyndið nema ef vera skyldi Guðna Ágústssyni landbúnaðar- ráðherra sem hefur farið um sveitir og sali og sagt brandara með þessum hætti. Margnotaður brandari er ekki fyndinn, bara alls ekki. Samt heldur Guðni áfram og minnir helst á mann sem stendur glaður og horfir til himins löngu eftir að rakettan er sprungin og prikið liggur brennt á jörðinni. Brandarar ráðherrans minna um margt á rakettuna, hún er sprungin og prikið er komið niður. ÞAÐ ERU FLEIRI sem hafa hagað sér eins og rakettan og talið sjálfum sér trú um að ljósin á himnum yrðu eilíf. Meira bar á þannig fólki á þessu ári en stundum áður, ekki síst þar sem kosið var til þings á vormánuð- um. Sumir frambjóðenda trúðu því sem flokkur sagði þeim að segja og lofuðu og lofuðu. Það fer oft þannig að þegar mikið stendur til eru fyrir- ætlanir mannanna stundum svo miklar að þær eru mönnunum langt- um fremri og þeir sem ætla um of verða að sætta sig við að hafa sagt langtum meira en þeir eru menn til að standa undir. Þannig liggja mörg kosningaloforð eins og brunnið rakettuprik. SVO ERU AÐRIR sem skynja ekki, líkt og ráðherrann með uppurið brandarasafnið, að þeir hafa gert nóg, sagt nóg og allir aðrir en þeir sjá að prikið liggur skemmt á jörð- inni og hefur lokið sínu hlutverki, þó gerandinn standi hnarreistur og horfi til himins þó þar sé engin rakettuljós að sjá lengur. Þverskallast við og bendir á dökkan himininn og sér svo sem bjarma, bjarma sem er löngu dáinn. Sumum gengur illa að kyngja eigin mistökum. SVO ERU ÞEIR sem eru sérfræð- ingar og skjóta aftur og aftur upp rógsrakettum þar sem fórnarlömbum er enginn griður gefinn. Blossinn brennur fljótt og þrátt fyrir að aug- ljóst sé að verið sé að bera fólk röngum sökum er ekkert gefið eftir, frekar bætt í og í augnablik getur það hent að fórnarlömb lyganna liggi eins og brunnið rakettuprik. En það varir aðeins í augnablik. Lygarinn mun liggja lengur, eins og ónýtt prik. Þar sem tveir illir koma saman eru unnin vond verk. ■ www. .is Taktu þátt í spjallinu á ... www.gunnimagg . i s Trúlofunar- og giftingarhringir 20% afsláttur í takmarkaðan tíma

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.