Fréttablaðið - 06.01.2004, Side 4

Fréttablaðið - 06.01.2004, Side 4
4 6. janúar 2004 ÞRIÐJUDAGUR Ætlar þú í líkamsrækt á næstu vikum til að ná þér í form eftir jólahátíðarnar? Spurning dagsins í dag: Hvað finnst þér um endurgreiðslu KB banka á þjónustugjöldum? Niðurstöður gærdagsins á www.frett.is 38,2% 40,1% Nei 21,8%Fer frekar út að skokka Já Kjörkassinn Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun frétt.is ■ Flugeldar Bókunarkerfi Iceland Express hrundi vegna álags: Gefa þúsund sæti FLUG „Við opnuðum fyrir tilboðið klukkan tvö í dag og það hefur allt verið brjálað,’’ segir Ólafur Hauksson, upplýsingafulltrúi Iceland Express. „Það er ókeyp- is að fljúga frá Íslandi á þriðju- dögum og laugardögum í janúar, febrúar og mars til London og Kaupmannahafnar. Það eina sem þarf að greiða er flug- vallarskatturinn sem er 2.410 kr. Fólk getur keypt sér bakaleið eins og því hentar. Með þessu erum við að þakka fyrir frábær- ar móttökur sem við höfum fengið síðan við hófum starf- semi.“ Erfitt var að komast inn á heimasíðu Iceland Express í gær vegna mikils álags. Í gær- kvöldi var hins vegar reiknað með því að kerfið myndi komast fljótlega í lag. Ólafur reiknaði með að þau þúsund sæti sem í boði eru myndu klárast fljótt. Hann átti jafnvel von á að félag- ið myndi bæta við einhverjum sætum. ■ Heilahimnubólga greinist hjá Alcan Allt starfsfólk Alcan í Straumsvík verður bólusett við heilahimnubólgu C eftir að tveir starfsmenn veiktust. Haraldur Briem sóttvarnalæknir segir sjaldgæft að tvö tilfelli komi upp á sama vinnustað. HEILBRIGÐISMÁL Tveir starfsmenn álvers Alcan í Straumsvík urðu al- varlega veikir í síðustu viku og greindust með heilahimnubólgu C. Allt starfsfólk álversins, um fimm hundruð manns, verður bólusett og hófust bólusetningar í gær að tilstuðlan landlæknis- embættisins. Mennirnir sem veiktust eru vinnufélagar og unnu á sama verkstæði. Haraldur Briem sóttvarnalæknir segir fátítt að fleiri en eitt tilfelli heilahimnubólgu C komi upp á sama vinnustað. Hann segir einnig sjald- gæft að sjúkdómurinn leggist á eldra fólk. „Ákveðið var að bólusetja allt starfsfólk í álver- inu. Eins hefur nánustu ættingj- um og samstarfs- mönnum þeirra sem veiktust ver- ið gefið fyrir- byggjandi sýkla- lyf.“ Haraldur segist vongóður að bólusetning dugi til að koma í veg fyrir fleiri smit. Haraldur segir báða mennina sem sýktust hafa orðið alvarlega veika. Annar sé á batavegi og von- andi verði eins með hinn. Báðir liggja mennirnir á Landspítalanum. Starfsmaður Alcan, sem Frétta- blaðið talaði við, segir menn afar uggandi um sig og sína nánustu. Hann segir flesta eiga börn og barnabörn og samvera með þeim hafi eðlilega verið mikil yfir hátíð- arnar. Sjálfur á hann tvö börn. Haraldur segir þegar búið að bólusetja alla nítján ára og yngri við heilahimnubólgu C, um 80 þúsund Íslendinga. Langflestir ættu því að vera úr hættu. „Sjúkdómurinn hefur hingað til hegðað sér þannig að um stök tilfelli er að ræða og aðaláhættuhópurinn er ungt fólk. Það er óvenjulegt að þetta komi upp á sama stað og sama tíma.“ Haraldur segir vinnustaðinn ekkert hafa með þetta að gera. „Það er tilviljun og geta tilfelli komið upp hvar sem er.“ Hann sagði sem dæmi að þrjú tilfelli hafi komið upp á skömmum tíma á Sauðárkróki fyr- ir sjö árum. Samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Landlæknisembættisins er dánartíðni þeirra sem veikjast há, þrátt fyrir öflugar nútímalækn- ingar, tæp 9 prósent hér á landi. kolbrun@frettabladid.is Ráðist á karlmann: Kona ákærð fyrir nauðgun NOREGUR Saksóknarar í Hörðalandi í Noregi hafa gefið út ákærur á hend- ur ungri konu sem grunuð er um að hafa gert tilraun til að nauðga manni á fertugsaldri. Vinur konunnar, sem tók myndir af árásinni, hefur einnig verið ákærður. Fórnarlambið leitaði sjálft til lögreglu. Í skýrslu sem tek- in var af manninum kemur fram að hann hafi sofnað í sófa í íbúð í Bergen og vaknað þegar konan var að ráðast á hann. Hljóp hann þá út úr íbúðinni og heim til unnustu sinnar. Að sögn lögreglu var ekki um eigin- lega nauðgun að ræða heldur annars konar grófa kynferðislega misbeit- ingu. Ákærðu neita sök. ■ Iceland Express: Fólk á leið út Jónína Kristín Ármannsdóttir „Ég er að fara til Kaupmanna- hafnar með börnin að heimsækja systur mína, það er ekki hægt að láta þetta fara framhjá sér. Ég hefði líklega ekki farið nema af því þetta er svo ódýrt,’’ segir Jónína. Karen Elíasdóttir „Ég er að fara til London, ég bý þar og þarf því bara aðra leiðina og ekki verra að fá hana frítt, þarf eingöngu að greiða flugvallar- skattinn,“ segir Karen. Hubert ‘’Ég var að kaupa miða fyrir vin minn sem býr í Danmörku og hefur aldrei komið til Íslands. Sjálfur hef ég ferðast með Iceland Express og finnst það mjög þægi- legt og loksins hægt að ferðast fyrir normal pening,’’ segir Hubert. ■ ERFIÐ LEIT Skilyrði til leitar eru mjög erfið þar sem sjórinn er um 800 metra djúpur þar sem flugvélin hrapaði. Leitað að flugrita: Engin merki um hryðju- verk EGYPTALAND Egypskir og franskir björgunarmenn eru enn að leita að flugrita Boeing 737-flugvélar egypska flugfélagsins Flash Air- lines sem hrapaði í Rauða hafið á laugardaginn með þeim afleiðing- um að 148 manns fórust. Engin brunasár eru á þeim lík- amsleifum sem fundist hafa í sjónum og þykir það staðfesta að ekki hafi orðið sprenging um borð í vélinni. „Við höfum enga ástæðu til að ætla að um árás hafi verið að ræða,“ segir aðstoðarutanríkis- ráðherra Frakka, Renaud Museli- er. Egypskir embættismenn segja að flest bendi til þess að slysið megi rekja til vélarbilunar. ■ Starfsmenn á Kárahnjúkum: Teknir með smygl SMYGL Áfengi, tóbak, hass og ósoðið kjöt fannst í farangri manna sem vinna við framkvæmdir á Kára- hnjúkum. Mennirnir voru að koma með flugvél frá Portúgal en þaðan var flogið beint til Egilsstaða. Um er að ræða nokkurt magn áfengis og tóbaks og um fimm grömm af hassi. Varningurinn fannst í fórum á milli tuttugu og þrjátíu manna. Málið er í rann- sókn. ■ SÍÐASTI DAGURINN Þrettándinn er síðasti dagurinn sem leyfilegt er að sprengja flugelda. Um- hverfisstofnun vill koma því á framfæri til almennings að geyma ekki skotelda fram yfir daginn í dag. Söluaðilar flugelda taka við ónotuðum flugeldum. ALMANÖK Bandaríska alríkislögreglan biður laganna verði að vera á varðbergi gagnvart fólki með almanök. FBI berst gegn hryðjuverkum: Varar við almanökum WASHINGTON, AP Bandaríska alrík- islögreglan, FBI, hefur beðið lög- reglumenn í Bandaríkjunum að vera á varðbergi gagnvart þeim sem ganga með almanök þar sem sá möguleiki sé fyrir hendi að þetta fólk sé að skipuleggja hryðjuverk. FBI sendi tilkynningu þessa efnis til um 18.000 lögreglustöðva á jóladag. Þar kemur fram að hryðjuverkamenn séu líklegir til að notast við almanök sem inni- haldi nákvæmar upplýsingar um staðhætti með tilheyrandi kortum og ljósmyndum. Lögreglumenn eru því hvattir til að svipast um eftir almanökum þegar þeir eru að sinna störfum sínum. FBI bendir þó á að einnig sé hægt að nota almanök í heiðarleg- um tilgangi. ■ Hljóðupptaka með rödd Osama bin Ladens: Fordæmir friðarviðræður LUNDÚNIR Ný hljóðsnælda með rödd hryðjuverkaleiðtogans Osama bin Ladens var leikin á arabísku sjónvarpsstöðinni Al- Jazeera. Upptakan er nú til rann- sóknar hjá bandarísku leyniþjón- ustunni, CIA, en sérfræðingar segja að fyrstu athuganir bendi til þess að hún sé ósvikin, að því er fram kemur á fréttavef BBC. Á upptökunni hvetur bin Laden múslima til að halda áfram að halda áfram að berjast í heilögu stríði í Mið-Austurlöndum í stað þess að taka þátt í friðarviðræð- um. Hann fordæmir leiðtoga arabaríkja sem studdu innrásina í Írak og heldur því fram að Banda- ríkjamenn ætli sér að hernema öll löndin við Persaflóa til að komast yfir verðmætar olíulindir. Bin Laden fordæmir einnig þau ríki sem hafa stutt vegvísinn til friðar í Mið-Austurlöndum og hinn óformlega Genfarsáttmála Ísraela og Palestínumanna. „Við verðum að frelsa heim íslams úr klóm krossfara með því að heyja heilagt stríð í nafni guðs,“ segir röddin á segulbandinu. ■ MIKIÐ AÐ GERA Í MIÐASÖLU Mikið var að gera hjá starfsfólki Iceland Ex- press í gær þrátt fyrir að langflestir panti á Netinu. OSAMA BIN LADEN Talið er að bin Laden sé í felum í fjalllendi á landamærum Afganistans og Pakistans. „Það er óvenjulegt að þetta komi upp á sama stað og sama tíma. STARFSMAÐUR BÓLUSETTUR Dánartíðni þeirra sem veikjast er há, tæp 9 prósent hér á landi. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.