Fréttablaðið - 06.01.2004, Page 15

Fréttablaðið - 06.01.2004, Page 15
15ÞRIÐJUDAGUR 6. janúar 2004 Orkuveita Reykjavíkur veitti ígær viðurkenningar fyrir jóla- skreytingar á veitusvæði sínu. Kirkjan og kirkjugarðurinn að Lágafelli í Mosfellsbæ fékk viður- kenningu fyrir sérlega smekklega og samræmda lýsingu, sem skapar fallega og heildstæða mynd. Gróttuviti fyrir skemmtilega lýsingu og viðeigandi framtak sem eykur gildi útivistarsvæðisins á Gróttu. Hlyngerði 12 í Reykjavík fyrir dæmi um umfangsmikla lýsingu sem vakið hefur mikla athygli veg- farenda undanfarin ár. Fjallalind, Kópavogi, fyrir smekklega og stílhreina lýsingu þar sem íbúar í nýju hverfi hafa tekið höndum saman um sameigin- lega lýsingu götunnar. Jörundarholt 176, Akranesi, fyr- ir einfalda og fallega jólaskreytingu sem ber smekkvísi íbúanna vitni. ■ Jólaskreytingar fengu viðurkenningu HLYNGERÐI 12 Fékk viðurkenningu fyrir dæmi um umfangsmikla lýsingu sem vakið hefur mikla athygli vegfarenda undanfarin ár. SMEKKLEGT Kirkjan og kirkjugarðurinn að Lágafelli í Mosfellsbæ fékk viðurkenningu fyrir sérlega smekklega og samræmda lýsingu, sem skapar fallega og heildstæða mynd. GRÓTTUVITI Fékk viðurkenn- ingu fyrir skemmtilega lýs- ingu og viðeigandi framtak sem eykur gildi útivistar- svæðisins á Gróttu. BRÚÐKAUP Árni Bergþór Sveinsson og Gréta Sævars- dóttir voru gefin saman þann 19. júlí síð- astliðinn. Heimili þeirra er að Bláskógum 14, 109 Reykjavík. JÓHANN PÁLL VALDIMARSSON Hefur keypt útgáfurétt að bókum Guð- bergs Bergssonar, Vigdísar Grímsdóttur, Fríðu Á. Sigurðardóttur og Ólafs Gunnars- sonar. Kaupir útgáfurétt fjögurra höfunda Ég hef verið með þetta á bakvið eyrað frá stofnun útgáf- unnar,“ segir Jóhann Páll Valdi- marsson, formaður og stofnandi JPV útgáfu, sem hefur nú keypt útgáfurétt og birgðir á öllum eldri verkum Guðbergs Bergs- sonar, Vigdísar Grímsdóttur, Fríðu Á. Sigurðardóttur og Ólafs Gunnarssonar. „Það er mikil- vægt að það sé sami útgefandi sem fer með allt höfundarverk, að bækur og útgáfuréttur sé ekki dreifður víða. Við erum bú- in að vera í viðræðum við Eddu í tvö ár um kaup á þessum rétti og við reiknum með að kaupa fleiri. Það eru fleiri höfundar á okkar vegum þar sem útgáfu- réttur eldri verka liggur hjá Eddunni. Það á svo eftir að koma í ljós hvað verður gert við þessi eldri verk. Við ætlum okk- ur í sókn á erlendum markaði og þá er mikilvægt að við séum með erlendan útgáfurétt á öllum verkum höfundar.“ ■ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.