Fréttablaðið - 07.01.2004, Blaðsíða 4
4 7. janúar 2004 MIÐVIKUDAGUR
Hvað finnst þér um endurgreiðslu
KB banka á þjónustugjöldum?
Spurning dagsins í dag:
Á að setja lög sem skylda stjórnmálaflokka
til að birta reikninga sína opinberlega?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
42,9%
21,6%
Auglýsingatrikk
35,4%Júdasariðrun
Höfðingleg
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
■ Evrópa
Réttarrannsókn á dauða Díönu prinsessu:
Lögreglan rannsakar samsæriskenningar
BRETLAND Michael Burgess, dánar-
dómstjóri bresku konungsfjöl-
skyldunnar, hefur fengið virtan
breskan lögreglumann til að fara
ofan í saumana á þeim samsæris-
kenningum sem sprottið hafa upp
í kringum dauða Díönu prinsessu
og unnusta hennar Dodi Al Fayed.
Díana og Dodi létust í bílslysi í
París árið 1997 en lögreglunni er
ætlað að rannsaka hvort hugsan-
legt sé að brögð hafi verið í tafli.
Réttarrannsókn á dauða Díönu
hófst í gær en henni var frestað til
ársins 2005 til að gefa lögreglunni
færi á að rannsaka málið, að sögn
Burgess.
Dagblaðið Daily Mirror
greindi frá því í gær að Díana
hefði óttast að fyrrverandi eigin-
maður sinn, Karl Bretaprins, ætl-
aði sér að reyna að ráða hana af
dögum í sviðsettu bílslysi. Þetta
mun hafa komið fram í bréfi sem
prinsessan ritaði tæpu ári fyrir
bílsslysið og skildi eftir í vörslu
bryta síns, Pauls Burrells. Bryt-
anum verður gert að afhenda dán-
ardómstjóranum bréfið.
Frönsk yfirvöld rannsökuðu
á sínum tíma bílslysið sem
leiddi til dauða Díönu og Dodis.
Niðurstaða rannsóknarinnar
var að bílstjóri þeirra hefði ver-
ið undir áhrifum áfengis og
ekið of hratt. ■
Á annan tug fórust í sprengjuárás í Kandahar:
Fjöldi barna lét lífið
AFGANISTAN Að minnsta kosti þrett-
án manns létu lífið og hátt í sextíu
særðust þegar öflug sprengja
sprakk í borginni Kandahar í suð-
urhluta Afganistans. Meirihluti
fórnarlambanna var börn á aldr-
inum sjö til fimmtán ára á leið
heim úr skóla.
Sprengjunni hafði verið komið
fyrir á reiðhjóli sem stóð við götu
í íbúðahverfi í austurhluta borg-
arinnar, skammt frá afganskri
herstöð. Rúður brotnuðu í nálæg-
um húsum og fjöldi bifreiða varð
fyrir skemmdum.
Lögreglan handtók mann sem
sást hlaupa af vettvangi skömmu
fyrir árásina, að sögn Amanullah
Popolzai, afgansks hermanns.
Popolzai segir að maðurinn hafi
litið út fyrir að vera talíbani.
Bandaríski herinn er með
bækistöðvar í Kandahar og þustu
tugir bandarískra og afganskra
hermanna á vettvang eftir
sprenginguna til að umkringja
svæðið.
Hermenn og íbúar Kandahar
hafa orðið fyrir ítrekuðum árás-
um á undanförnum vikum og
mánuðum og er talið að vígamenn
talíbana séu þar að verki. Á mánu-
dagskvöldið var handsprengjum
varpað á skrifstofur flóttamanna-
hjálpar Sameinuðu þjóðanna í
borginni. ■
DESKÖTTUR
Kínverjar áforma að lóga þúsundum
deskatta sem seldir eru sem fæða á mörk-
uðum í Kína.
Maður með
bráðalungnabólgu:
Útskrifaður
af sjúkrahúsi
PEKING, AP Kínverskur karlmaður
á fertugsaldri sem veiktist af
HABL í síðasta mánuði hefur náð
fullum bata. Maðurinn, sem er sá
fyrsti sem smitast í Kína í sex
mánuði, var útskrifaður af sjúkra-
húsi þar sem hann hafði verið ein-
kennalaus í rúma viku.
Á mánudag staðfesti Alþjóða-
heilbrigðisstofnunin að maðurinn
hefði veikst af bráðalungnabólgu.
Ekki liggur fyrir hvernig hann
smitaðist en hann býr í Guang-
dong-héraði, þar sem sjúkdómur-
inn kom fyrst upp í nóvember árið
2002.
Yfirvöld í Kína hafa þegar haf-
ist handa við að lóga desköttum og
öðrum skyldum dýrum en grunur
leikur á að þessar skepnur beri
HABL-veiruna til manna. ■
VÖRUSKIPTI Í NÓVEMBER Í
MILLJÓNUM KRÓNA
Ár 2003 2002
Útflutningur 16.155 16.819
Innflutningur 14.908 16.241
Vöruskiptin við útlönd:
Aukinn inn-
flutningur
EFNAHAGSMÁL Vöruskiptin við út-
lönd voru hagstæð um 0,6 millj-
arða króna í nóvember samanbor-
ið við 1,2 milljarða árið áður. Töl-
ur Hagstofunnar voru nokkuð í
samræmi við væntingar. Hallinn
af vöruskiptum fyrstu ellefu mán-
uði ársins er 13,7 milljarðar sam-
anborið við 13,5 milljarða afgang
árið áður.
Mestu munar um minna verð-
mæti útflutnings sjávarafurða.
Verðmæti vöruútflutnings dróst
saman um 6% milli ára. Sjávar-
útvegurinn vó 62% í vöruútflutn-
ingi og dróst verðmæti hans sam-
an um 8%. Innflutningur jókst um
1,3 milljarða í nóvember 2003
miðað við nóvember 2002. Á sama
tíma lækkaði verðmæti útfluttrar
vöru um 700 milljónir. ■
GOTT FÆRI Í BREKKUNUM
Árið byrjar vel fyrir skíðaáhugafólk, ekki
verið jafn gott í mörg ár.
Skíðasvæðin opin:
Mikill snjór
og gott færi
SKÍÐI Mun meiri snjór er á skíða-
svæðunum nú í janúar en á sama
tíma í fyrra og betra færi en hef-
ur verið í mörg ár.
Skíðasvæðið í Bláfjöllum var
opnað í gær í fyrsta sinn á nýju
ári. Nokkur snjókoma var í síð-
ustu viku og er færið því mjög
mjúkt og gott. Skálafell er lokað
vegna framkvæmda en nægur
snjór. Ráðgert er að opna svæðið
seinna í mánuðinum.
Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli á Ak-
ureyri var opnað 2. janúar. Snjór-
inn er harður en að öðru leyti gott
færi og mikill snjór. Á Ísafirði
hefur verið opið frá fyrsta janúar.
Þar er mikill snjór og gott færi. ■
Sjö mánuðir liðu milli
kæru og rannsóknar
Rúmlega sjö mánuðir liðu frá því að stúlka lagði fram kæru til lögreglu og þar til sakborningur
var kallaður fyrir hjá lögreglunni á Ísafirði og honum kynnt kæran. Héraðsdómur dæmdi hann
sekan um kynferðisbrot. Hann sleppur hins vegar við refsingu, þar sem sök dæmdist fyrnd.
DÓMSMÁL Nýfelldur dómur Hér-
aðsdóms Vestfjarða yfir miðaldra
karlmanni í fyrradag varðaði veru-
lega gróf kynferðisbrot gegn
stúlkubarni. Brotin stóðu yfir um
nokkurra ára skeið, sannanlega frá
1985 fram á mitt ár 1988, sam-
kvæmt niðurstöðum dómsins.
Í dómsskjölum kemur meðal
annars fram, að í apríl 1994 héldu
formaður barnaverndar á staðnum
og héraðslæknir fund með mannin-
um. Efni fundarins var meint
áreitni hans við stúlkubörn. Hon-
um var veitt „formleg viðvörun“
og honum gert ljóst að bærust
fleiri kvartanir yrði hann kærður
til lögreglu.
Fram kom að ákærði væri
„leiður yfir þessu máli“ og að
hann vildi að samband yrði haft
við þá sem tengdust því og þeir
látnir vita að hann myndi endur-
skoða framkomu sína við börn og
unglinga. Í greinargerð héraðs-
læknisins sem lögð var fram í
málinu kom fram fullyrðing fólks
þess efnis að ákærði hefði klæmst
við tvær stúlkur og haft uppi kyn-
ferðislega tilburði. Þá hefði hann
káfað á stúlkum í sundlauginni.
Barnaverndarnefnd hafðist ekki
að í málinu að öðru leyti en að
veita manninum þessa formlegu
viðvörun.
Það var svo í september 2002
sem stúlkan, sem sætti kynferðis-
brotum af hendi mannsins um
árabil, kærði málið til lögreglu.
Það var hins vegar ekki fyrr en í
maí 2003, rúmum sjö mánuðum
síðar, sem manninum var kynnt
kæran.
Hann var síðan ákærður fyrir
að hafa framið brotin gegn
stúlkunni á árunum 1985-1989, en
þá var hún barn að aldri.
Samkvæmt niðurstöðu dóms-
ins er talið sannað að maðurinn
hafi framið þau brot sem honum
voru gefin að sök í ákærunni, allt
fram á mitt ár 1988. Hann var
fundinn sekur um kynferðisbrotin
en þarf ekki að taka út refsingu,
sem getur numið allt að 12 árum
fyrir brot af þessu tagi. Ástæðan
er sú, að fyrningarfrestur mála
sem taka á háttsemi sem um ræð-
ir í þessu tilviki, hófst þegar
ákærði hætti að brjóta gegn
stúlkunni á miðju ári 1988.
Vegna þess hve alvarleg brotin
eru fyrnist sök á 15 árum. Sökin
fyrntist því nokkrum dögum áður
en ákærði var kallaður til yfir-
heyrslu.
Vegna niðurstöðu um fyrningu
sakar vísaði héraðsdómur frá
bótakröfu stúlkunnar, sem nam 3,5
milljónum króna auk vaxta. Þá
felldi dómurinn allan sakarkostnað
á ríkissjóð. jssfrettabladid.is
DÍANA OG DODI
Díana prinsessa og Dodi Al Fayed voru nýkomin frá strandbænum St. Tropez í Suður-
Frakklandi þegar þau létust í bílslysi í París í ágúst 1997.
BÖRN AÐ LEIK
Að minnsta kosti átta börn á leið heim úr skólanum fórust í spengjuárásinni í Kandahar.
LIVINGSTONE AFTUR Í VERKA-
MANNAFLOKKINN Ken Living-
stone, borgarstjóri Lundúna, hef-
ur verið tekinn aft-
ur inn í breska
Verkamannaflokk-
inn. Livingstone
var rekinn úr
flokknum árið 2000
eftir að hann hafði
farið í borgarstjóraframboð gegn
vilja forráðamanna flokksins.
Livingstone hefur gagnrýnt inn-
rásina í Írak en nýtur vinsælda
meðal almennings.