Fréttablaðið - 07.01.2004, Page 6
6 7. janúar 2004 MIÐVIKUDAGURVeistusvarið?
1Hvað heitir nýr framkvæmdastjóriAtlantshafsbandalagsins?
2Á hvaða hjúkrunarheimili voru 80vistmenn settir í sóttkví um jólin?
3Hvað heitir nýráðinn þjálfari hol-lenska knattspyrnuliðsins Feyenoord?
Svörin eru á bls. 30
Engin ný heilahimnubólgutilfelli hjá Alcan:
Eru báðir á batavegi
HEILBRIGÐISMÁL „Ég er vongóður að
engin ný tilfelli komi upp meðal
starfsfólks Alcan. Ef meira en
vika líður og engin einkenni eru
komin fram eru allar líkur á að
ekkert meira gerist,“ segir Har-
aldur Briem sóttvarnalæknir.
Hann segir ekki um farald að
ræða.
Tveir starfsmenn Alcan grein-
dust með heilahimnubólgu C í síð-
ustu viku. Báðir eru á batavegi að
sögn vakthafandi læknis á gjör-
gæslu Landspítala-háskólasjúkra-
húss í Fossvogi. Þá er annar mað-
urinn laus úr öndunarvél.
Allt starfsfólk Alcan, rúmlega
fimm hundruð manns, var bólusett
við heilahimnubólgu C í gær. Þá
hefur nákomnum ættingjum og
starfsmönnum mannanna tveggja
sem greindust verið gefið fyrir-
byggjandi sýklalyf. Mennirnir
unnu á sama verkstæðinu í álver-
inu í Straumsvík. ■
Erlend íbúðalán
hafa mikil áhrif
Aukin erlend lán draga úr virkni innlendrar hagstjórnar.
Krónan er sterk og erlendir vextir lágir. Veikari króna og hækkandi
erlendir vextir myndu þyngja greiðslubyrði verulega.
EFNAHAGSMÁL Erlend lán heimila
draga enn frekar úr virkni stýri-
vaxta Seðlabankans. Lánin eru
tengd vaxtastigi og gjaldmiðlum
annarra hagkerfa. „Það er hægt að
spyrja hversu virkt vaxtatækið er,
auðvitað er það virkt en spurningin
er hversu virkt,“ segir Bolli Þór
Bollason, skrifstofustjóri efnahags-
skrifstofu fjármálaráðuneytisins.
Hann segir að auknir möguleikar á
erlendri lántöku
geri meiri kröfur
á hagstjórnina
með þeim hætti
að hegðun hag-
kerfisins verði
stöðugri og líkari
því sem gerist í
helstu viðskipta-
löndum okkar.
Erlendum lán-
um fylgir gengis-
áhætta og hætta
af erlendum
vöxtum. Þetta
getur hvort tveg-
gja þróast með
öðrum hætti en
innlent efnahagslíf. Bolli segir ým-
islegt jákvætt við aukna fjölbreytni
í lánamöguleikum fólks: „Það ætti í
samkeppnisumhverfi að leiða til
lægri vaxta á lánum.“
Þorsteinn Þorgeirsson, hagfræð-
ingur Samtaka iðnaðarins, tekur
undir þetta. „Hins vegar virðist
tímasetningin á slíkri breytingu,
þegar uppsveifla vegna stóriðju-
fjárfestinga fer í hönd og gengi
krónunnar er sögulega hátt, ekki
vera góð. Í þeirri uppsveiflu sem
fer í hönd ýtir slíkt undir þensluna
og eykur vanda hagstjórnar.“ Hann
segir ójafnvægi í erlendum við-
skiptum geta leitt til kröftugrar
lækkunar krónunnar þegar dregur
saman í hagkerfinu. Við það aukist
greiðslubyrði af þessum lánum mik-
ið. „Að mínu mati ættu heimilin að
fara sér hægt í að auka skuldsetn-
ingu á allra næstu árum og bank-
arnir að sýna aðgát í útlánum.“
Tryggvi Þór Herbertsson, for-
stöðumaður Hagfræðistofnunar,
tekur undir það að varlega beri að
fara í slíka lántöku. Hann segir
slíka lántöku draga úr virkni stýri-
vaxta, verði hún almenn. „Við bent-
um á það á sínum tíma að aukin er-
lend lántaka fyrirtækja drægi úr
biti stýrivaxta.“ Hann segir að fólk
verði að gera sér grein fyrir sveifl-
unum í afborgunum slíkra lána.
Vextir í viðskiptalöndum okkar séu
lágir og gengi krónunnar sterkt í
sögulegu samhengi. Veikist krónan
og erlendir vextir hækki, muni
greiðslubyrði af slíkum lánum
þyngjast. haflidi@frettabladid.is
Nýr fjárfestingarbanki
verður til:
Umsókn
samþykkt
VIÐSKIPTI Fjármálaeftirlitið hefur
samþykkt umsókn Straums um
leyfi til fjárfestingarbankastarf-
semi. „Þetta er mjög jákvætt
skref fyrir okkur og eflir okkur í
því sem við erum að gera,“ segir
Þórður Már Jóhannesson, fram-
kvæmdastjóri Straums.
Straumur hefur vaxið mikið
undanfarin misseri og á nú stóran
hlut í ýmsum fyrirtækjum. „Þetta
gefur okkur tækifæri til þess að
koma að verkefnum okkar bæði
sem fjárfestar og lánardrottnar,“
segir Þórður. ■
GÓÐ TÍÐINDI
Utanríkisráðherra Indlands, Yashwant
Sinha, tilkynnir blaðamönnum um fyrir-
hugaðar friðarviðræður Indverja og
Pakistana.
Sögulegar friðarviðræður:
Kasmír í
brennidepli
ISLAMABAD Indverjar og Pakistan-
ar stigu mikilvægt skref í átt til
friðar þegar þeir samþykktu að
hefja samningaviðræður um
helstu ágreiningsmál sín þegar í
næsta mánuði. Viðræðurnar
munu að stórum hluta til snúast
um þrætueplið Kasmír.
Utanríkisráðherrar landanna
tveggja sendu frá sér yfirlýsingu
þessa efnis í lok leiðtogafundar
Suður-Asíuríkja í Islamabad. Atal
Behari Vajpayee, forsætisráð-
herra Indlands, hafði mætt til
Islamabad og rætt við Pervez
Musharraf, forseta Pakistans, í
fyrsta sinn í þrjú ár.
Á leiðtogafundinum var einnig
ákveðið að koma á fót fríverslun-
arsambandi og lögð drög að sam-
eiginlegri áætlun í baráttunni
gegn hryðjuverkum. ■
STARFSMENN ALCAN BÓLUSETTIR
Haraldur Briem sóttvarnalæknir er vongóður um að engin ný tilfelli heilahimnubólgu
greinist meðal starfsfólks Alcan í Straumsvík.
HIRÐING JÓLATRJÁA Starfsmenn
Gatnamálastjóra í Reykjavík
munu annast hirðingu jólatrjáa
til 9. janúar. Þeir borgarbúar sem
vilja nýta sér þjónustuna eru vin-
samlegast beðnir að setja jóla-
trén út fyrir lóðamörk og verða
þau þá fjarlægð. Eftir 9. janúar
eru íbúar beðnir um að snúa sér
til gámastöðva Sorpu.
„Að mínu
mati ættu
heimilin að
fara sér hægt
í að auka
skuldsetningu
á allra næstu
árum og
bankarnir að
sýna aðgát í
útlánum.
TRYGGVI ÞÓR HERBERTSSON
Forstöðumaður Hagfræðistofnunar segir að almenningur ætti að fara varlega í að taka er-
lend lán til að fjármagna íbúðakaup.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Afnám húsbréfa:
Bréfin
stöðugri
VERÐBRÉF Jafet Ólafsson, forstjóri
Verðbréfastofunnar, segist ekki
vera búinn að átta sig á því til
fulls hvaða áhrif afnám húsbréfa-
útgáfu muni hafa á starfsemi
Verðbréfastofunnar. „Það verða
gefin út fasteignabréf og ein-
hverjir munu þurfa að sjá um
uppkaup á þeim. Við munum
áfram sinna slíkri þjónustu.“
Jafet segir að kosturinn við
þessi nýju bréf séu að þau séu
stöðugri fjárfesting. „Yfirverð
húsbréfa gat gert það að verkum
að menn höfðu lítið upp úr krafs-
inu ef það gekk til baka.“ ■
■ Sorphirða
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 69,49 -1,12%
Sterlingspund 126,52 0,12%
Dönsk króna 11,89 -0,52%
Evra 88,57 -0,53%
Gengisvísitala krónu 121,57 -0,23%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 339
Velta 4.440 milljónir
ICEX-15 2.110 0,34%
Mestu viðskiptin
Landsbanki Íslands hf. 201.866.005
Íslandsbanki hf. 94.269.318
Grandi hf. 67.950.009
Mesta hækkun
Jarðboranir hf 2,02%
Kaldbakur hf. 1,75%
Bakkavör Group hf. 1,64%
Mesta lækkun
Tryggingamiðstöðin hf. -7,33%
Hampiðjan hf. -4,84%
Nýherji hf. -3,41%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ* 10.520,5 -0,2%
Nasdaq* 2.051,9 0,2%
FTSE 4.505,2 -0,2%
DAX 4.035,4 -0,0%
NK50 1.371,0 0,0%
S&P* 1.120,2 -0,2%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00