Fréttablaðið - 21.01.2004, Side 1
SKATTAMÁL Hlunnindi vegna afnota
af fasteignum og bifreiðum, sem
metin eru til skatttekna, hækka
verulega á þessu ári.
Greint var frá breytingum á
skattmati hlunninda í Stjórnartíð-
indum í gær. Samkvæmt þeim
hækkar mat á hlunnindum vegna
bifreiða tveggja ára og nýrri um
30%, úr 20% af verði bifreiðar í
26%. Mat á bifreiðum eldri en
tveggja ára hækkar um 40%, úr
15% af verði bifreiðar í 21%. Mat
á hlunnindum vegna fasteigna
hækkar um 25%, úr 4% af fast-
eignamati í 5%.
Bernhard Bogason, yfirmaður
skattasviðs KPMG, telur veruleg-
an vafa leika á því hvort stjórn-
völd hafi stjórnskipulegt vald til
að taka ákvarðanir um breytingu
á skattmati sem séu íþyngjandi
fyrir borgarana.
„Samkvæmt stjórnarskránni
má ekki leggja á skatt nema með
lögum,“ segir Bernhard. „Í þessu
tilviki hefur fjármálaráðherra, að
fengnum tillögum frá ríkisskatt-
stjóra, ákveðið að hækka það hlut-
fall sem ræður útreikningi hlunn-
inda. Vissulega má deila um það
hvort um sé að ræða hækkun á
skattstofni eða breytingu á mats-
aðferð. Í nágrannalöndum okkar
eru ákvarðanir sem þessar víðast
hvar teknar af þjóðþingum en
ekki embættismönnum. Þannig er
það til dæmis í Danmörku.“
Bernhard segir hækkunina nú
einnig athyglisverða í því ljósi að
á árinu 2002 hafi ríkisskattstjóri
lagt fram sömu breytingar en þær
hafi verið afturkallaðar að tilmæl-
um fjármálaráðuneytisins.
„Hækkanirnar og aðrar breyt-
ingar töldust þá ekki vera í sam-
ræmi við vilja ríkisstjórnarinnar.
Ljóst er að breyting hefur orðið
þarna á,“ segir Bernhard.
Ef tekið er dæmi af starfsmanni
sem hefur nýja þriggja milljóna
króna bifreið til afnota hjá vinnu-
veitanda þýðir breytingin að hann
þarf að borga tæpum 70 þúsund
krónum meira skatt á þessu ári en
hann gerði í fyrra. Ef viðkomandi
hefur einnar milljónar króna bif-
reið til afnota hækka skattarnir um
23 þúsund. Í dæmunum er miðað
við að starfsmaðurinn greiði
38,58% tekjuskatt. Hækkunin hefur
einnig áhrif á útreikning vaxtabóta.
Sjá nánar bls. 2
trausti@frettabladid.is
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 23
Sjónvarp 28
MIÐVIKUDAGUR
HAUKAR MÆTA ÍBV Fjórir leikir
verða í Remax-deild kvenna í kvöld.
Klukkan 9.15 mætast: Haukar - ÍBV,
Grótta KR - KA/Þór og Valur - Stjarnan.
Fram mætir FH klukkan 20. Tveir leikir
verða í 1. deild kvenna í körfubolta
klukkan 19.15. KR tekur á móti Keflavík
og ÍR sækir Njarðvík heim.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
LANDIÐ ALLT Í HLÝJU LOFTI
Minniháttar úrkoma á víð og dreif, nema
þó suðvestanlands þar sem úrkomusvæðið
er nokkuð eindregið. Frystir á ný um
helgina. Sjá síðu 6.
21. janúar 2004 – 20. tölublað – 4. árgangur
● frá eddu til sölku
Kristín Ómarsdóttir:
▲
SÍÐA 30
Skiptir um
útgefanda
● 70 ára í dag
Svavar Guðni Svavarsson:
▲
SÍÐA 16
Bakveikur en
hrukkulaus
● fagnar ári apans
Dong Qing Guan:
▲
SÍÐA 30
Kínversk
áramót
● listfræðiæði ● draumasmiðjan
Vill enda á
Hallgrími
nám o.fl.
Jón Böðvarsson:
▲
SÍÐA 18 og 19
MIKIL HÆKKUN Pharmaco hefur náð
afar góðum árangri í útrás sinni. Gengi fé-
lagsins hefur hækkað mikið og margir eru
efins um að það sé raunhæft. Sjá síðu 2
ORSAKIR ÓKUNNAR Óttast er að
átján manns hafi farist þegar norska flutn-
ingaskipinu Rocknes hvolfdi undan strönd-
um Noregs. Orsakir slyssins eru ókunnar.
Farið hefur verið fram á sjópróf. Sjá síðu 4
160 MILLJÓNA FJÁRSVIK Fyrrum
eigandi Fasteignasölunnar Holts, karlmaður
á fertugsaldri, hefur verið ákærður fyrir
stórfelld fjársvik og fleiri brot, samtals upp
á 160 milljónir króna. Sjá síðu 2
MEST RÖSKUN HJÁ HJÚKRUNAR-
FRÆÐINGUM Röskun verður á starfi
nær 150 hjúkrunarfræðinga á Landspítala-
háskólasjúkrahúsi vegna sparnaðaraðgerða
stjórnar spítalans. Hnífnum er brugðið á öll
svið spítalans, þar með talinn nýjan barna-
spítala. Sjá síðu 6
KJARASAMNINGAR „Það hefur verið
ágætis gangur í viðræðum við rík-
ið undanfarnar tvær vikur. Við
fengum gögn frá samninganefnd
ríkisins um ýmis efnisatriði kjara-
samninganna, veikindarétt og
önnur réttindamál og fleira.
Myndin er því farin að skýrast,“
sagði Björn Snæbjörnsson, sviðs-
stjóri sviðs starfsmanna ríkis og
sveitarfélaga hjá Starfsgreina-
sambandinu, í gærkvöld.
Krafa Starfsgreinasambands-
ins er og hefur verið að samræma
réttindi félagsmanna sambands-
ins við réttindi launafólks hjá hinu
opinbera. Starfsgreinasambandið
er með 14 mismunandi kjara-
samninga við ríki og sveitarfélög
og stendur vilji manna til að sam-
eina þá í einn heildarkjarasamn-
ing. Gögnin sem samninganefnd
ríkisins lagði fram í gær eru í
raun fyrstu drög að samræmdum
kjarasamningi fyrir starfsmenn
ríkisins sem falla undir aðildar-
félög Starfsgreinasambands Ís-
lands.
Hópur sem vinnur að saman-
burði launataflna starfsfólks á al-
mennum markaði og hjá hinu opin-
bera skilar væntanlega af sér í
dag. Út frá þessu er svo ætlunin að
vinna einn samræmdan kjara-
samning Starfsgreinasambandsins
og ríkisins og er ætlunin að taka til
við þá vinnu hjá ríkissáttasemjara
næstkomandi mánudag. ■
Skattmat hækkað
um 25-40 prósent
Skattmat á hlunnindum vegna bifreiða og fasteigna hækkar um 25 til 45 prósent á þessu ári.
Yfirmaður skattasviðs KPMG telur vafa leika á því hvort stjórnvöld hafi stjórnskipulegt vald
til að breyta matinu.
Kjaraviðræður Starfsgreinasambandsins og ríkisins:
Myndin tekin að skýrast
LANDSLIÐIÐ LENT Í LJUBLJANA Íslenska landsliðið í handknattleik kom til Slóveníu í gærkvöld og hér sjást Ólafur Stefánsson og
Jaliesky Garcia með farangur sinn á flugvellinum í Ljubljana, rétt eftir lendingu. Fyrsti leikur liðsins verður gegn heimamönnum og verður
hann sýndur beint í Sjónvarpinu klukkan 19.30.
Látinn tannlæknir:
Stundar enn
lækningar
PAKISTAN, AP Þúsundir Pakistana
leggja vikulega leið sína að helgri
grafhvelfingu múslimska dýr-
lingsins Amir Ghazi Baba í Pes-
hawar til þess að fá bót á tann-
pínu. Kirkjugarðsvörðurinn,
Murad Ali, segist ekki vita af
hverju Baba hafi verið tekinn í
dýrlingatölu en hann hafi í lifanda
lífi verið besti tannlæknirinn í
bænum.
Ali segir að til þess að fá lækn-
ingu þurfi að reka nagla í timbur-
fleka við hlið grafhvelfingarinnar
þar sem fleiri naglar komist ekki í
hurðina. Að sögn Alis er Baba enn
vinsælasti tannlæknirinn í bæn-
um þó hann sé löngu dauður. ■
Sjía-múslimar:
Vilja lífláta
Saddam
BAGDAD, AP Þúsundir sjía-múslima
gengu um götur Bagdad til að
krefjast þess að Saddam Hussein,
fyrrum Íraksforseti, yrði tekinn af
lífi. „Saddam er stríðsglæpamaður
en ekki stríðsfangi. Takið Saddam
af lífi,“ kallaði mannfjöldinn.
Kröfugöngur fóru einnig fram í
tveimur öðrum borgum í Írak.
Saddam Hussein var hand-
samaður 13. desember og hafa
bandarísk stjórnvöld lýst því yfir
að hann njóti stöðu stríðsfanga.
Sjía-múslímar, sem eru um sextíu
prósent írösku þjóðarinnar, voru
kúgaðir af súnní-múslimum í
valdatíð Saddams. Þúsundir sjía-
múslima, þar á meðal fjöldi
klerka, voru teknar af lífi að til-
skipan Saddams. ■
EINN SAMNINGUR Í STAÐ FJÓRTÁN
Samninganefnd ríkisins lagði í gær fram
fyrstu drög að samræmdum kjarasamningi.
M
YN
D
/D
EL
O