Fréttablaðið


Fréttablaðið - 21.01.2004, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 21.01.2004, Qupperneq 2
HLUTABRÉF Pharmaco hefur hækk- að mest allra félaga í Kauphöll- inni undanfarið ár. Greiningar- deildir bankanna telja gengið mun hærra en greiningar þeirra á framtíðartekjum gefa til kynna. Félagið nýtur mikillar virðingar og sérfræðingar markaðarins eru allir sammála um að því hafi tek- ist einstaklega vel að halda utan um mikinn vöxt. Þeir telja erfitt að finna rök fyrir gengi félagsins samkvæmt hefðbundnum mæli- kvörðum við mat á fyrirtækjum. „Á sama hátt og segja má að greiningaraðilar hafi vanmetið félagið fyrir ári síðan er margt sem bendir til þess að fjárfestar séu ofurbjartsýnir á framtíð fé- lagsins,“ segir Stefán Broddi Guðjónsson, sérfræðingur hjá greiningu Íslandsbanka. Hann segir það valda vissum áhyggjum að gengið hækki skarpt þegar fréttir birtist af félaginu. Fyrir skemmstu flutti félagið út 300 milljónir taflna af hjartalyfinu Ramipril fyrir um 2,6 milljarða króna. Tilkoma lyfsins var í full- komnu samræmi við áætlanir og hefði ekki átt að koma markaðn- um á óvart. Fyrsta virka dag eftir söluna hækkuðu bréf Pharmaco um 5%. Heildarverðmæti fyrirtækisins jókst um ríflega tvöfalt verðmæti framleiðslunnar og margfalda framlegð af lyfinu. Pharmaco hyggur á skráningu í Kauphöllinni í London. Margir bíða spenntir eftir því hvernig er- lendir fjárfestar meta félagið. Ekkert er öruggt um trú erlendra fjárfesta, en erfitt getur reynst að flytja stemninguna sem er í kring- um félagið til London. Það eru því margir óvissuþætt- ir varðandi gengisþróun félagsins og þeir sem kaupa hlutabréf þess nú verða að vera viðbúnir því að brugðið geti til beggja vona um ávöxtun fjárfestingarinnar á næstunni. Almennt telja sérfræð- ingar að mikil bjartsýni ráði ríkj- um á innlendum hlutabréfamark- aði og gildi það um fleiri fyrirtæki en Pharmaco. Til þess sé horft vegna þess að það hefur leitt hækkanir markaðarins. Áætlanir félagsins gera ráð fyrir 15 til 20% innri vexti og sambærilegum ytri vexti. Flestir telja ágætar líkur á að staðið verði við áætlanirnar, en margir eru efins um að félagið geti gert miklu betur en þetta, eins og mat markaðarins virðist vera þessa stundina. haflidi@frettabladid.is 2 21. janúar 2004 MIÐVIKUDAGUR „Sækja þær ekki framá öllum sviðum – erum við karlar ekki að deyja út?“ Halldór Reynisson er verkefnisstjóri hjá Biskups- stofu. Sautján konur sóttu um stöðu prests í Mos- fellsbæ á móti fjórum karlmönnum. Spurningdagsins Halldór, eru konur að taka yfir stéttina? Mikil bjartsýni á framtíð Pharmaco Pharmaco hefur náð afar góðum árangri í útrás sinni. Gengi félagsins hefur hækkað mikið og margir eru efins um að það sé raunhæft. Þeir sem kaupa bréf félagsins nú verða að gera sér grein fyrir að hátt gengi eykur áhættuna af fjárfestingunni. FJÁRSVIK Fyrrum eigandi Fast- eignasölunnar Holts, karlmaður á fertugsaldri, hefur verið ákærður fyrir stórfelld fjársvik og fleiri brot, samtals upp á 160 milljónir króna. Um er að ræða skjalafals og fjársvik sem nema um 96 milj- ónum króna og fjárdrátt upp á 62 miljónir. Þá er honum gefið að sök að hafa ekki staðið skil á virðis- aukaskatti, tæpar þrjár milljónir króna. Rekstur fasteignasölunnar Holts var stöðvaður og húsið inn- siglað á seinni hluta ársins 2002. Skömmu síðar játaði eigandinn að hafa dregið sér tugi milljóna króna frá viðskiptavinum sínum. Talið er að svikin hafi staðið í rúmt ár og beindust þau gegn á annan tug viðskiptavina sem voru farnir að ganga hart á eftir pen- ingunum sínum. Sá ákærði, sem er lögfræðing- ur og löggiltur fasteignasali, var mjög umsvifamikill á fasteigna- markaði. Svikin fólust meðal annars í því að hann hélt eftir vörslufé sem hann tók við vegna viðskipta sem fóru í gegnum Holt. Maður- inn hafði einn prókúru fyrir fast- eignasöluna og annaðist þar af leiðandi meðferð allra fjármuna. Eftir að fasteignasalinn viður- kenndi brot sín fyrir lögreglu í október 2002 var fasteignasalan úrskurðuð gjaldþrota og námu kröfur alls 114 milljónum króna. Hæsta krafa frá einstaklingi nem- ur á tíundu milljón króna. ■ INNBROT Í SANDGERÐI Brotist var inn í Shell-skálann við Strandgötu í Sandgerði klukkan eitt í fyrrinótt. Gluggi hafði verið spenntur upp og við það fór þjófavarnarkerfi í gang. Þegar lögreglan kom á staðinn voru inn- brotsþjófarnir farnir af staðnum. FUNDU ÚÐAVOPN Lögreglan í Keflavík hafði afskipti af manni á gangi í Sandgerði á þriðja tímanum í fyrrinótt. Við leit á manninum fannst úðavopn sem lagt var hald á. SKEMMDARVERK Í GRINDAVÍK Skemmdarverk voru unnin á hraðbanka Sparisjóðsins í Grindavík á mánudag. Lögreglan í Keflavík telur líklegt að skemmdarvargurinn hafi náðst á myndbandstökuvél. KB banki: Lækkar vexti VIÐSKIPTI KB banki hefur ákveðið að lækka kjörvexti bæði óverð- tryggðra og verðtryggðra skulda- bréfalána um 0,50 prósentustig. Þannig lækka kjörvextir óverð- tryggðra skuldabréfa úr 8,45% í 7,95%. Kjörvextir verðtryggðra skuldabréfa lækka úr 6,10% í 5,60%. Samhliða þessari lækkun kjörvaxta tekur bankinn upp breytt áhættumat á skuldabréfa- lánum sem felur í sér aukið álag á skuldabréf tryggð með sjálfskuld- arábyrgð. ■ ÞJÓFAR GANGA LAUSIR Lögreglan hefur enn ekki komist að því hver braust inn í söluturn á virkj- anasvæði Kárahnjúka á nýárs- nótt. Peningum að andvirði um einnar og hálfrar milljónar króna var stolið. BREIÐÞOTA MEÐ HJARTALYF Pharmaco sendi fyrir rúmri viku úr landi farm af hjartalyfinu Ramipril að verðmæti 2,6 milljarðar króna. Fyrsta viðskiptadag eftir útflutninginn hækkaði markaðsvirði félagsins um ríflega tvöfalda þá upphæð. Fjársvik tengd fasteignasala talin nema 160 milljónum: Fasteignasali ákærður HOLT Í KÓPAVOGI Grunur um fjársvik vaknaði árið 2002. Fasteignasalan hefur hætt starfsemi. ■ Lögreglufréttir 27,1 Ágúst 2003 Janúar 2004 Gengisþróun Pharmaco síðustu 6 mánuði 46,2 ■ Lögreglufréttir SKATTAMÁL Geir H. Haarde fjár- málaráðherra segir hækkun á skattmati hlunninda vegna bif- reiða og fasteigna ekki vera skattahækkun. Geir segir að matið sem stuðst hafi verið við fram að þessu sé úr- elt og því sé um leiðréttingu að ræða. Hann segir að ekki sé búið að meta hvað þessar breytingar þýði í auknum tekjum fyrir ríkis- sjóð. „Ég tel að þetta mat hafi verið orðið of lágt,“ segir Geir. „Þarna er um að ræða ákveðin fjárhags- leg verðmæti sem launþegar fá frá vinnuveitendum sínum sem bera skattskyldu. Það ber að leit- ast við að tryggja að matið sem við gefum út endurspegli sem best þau fjárhagslegu verðmæti sem þarna eru í húfi.“ Bernhard Bogason, yfirmaður skattsviðs KPMG, segir ljóst að breyting hafi orðið á stefnu stjórnvalda, því árið 2002 hafi fjármálaráðherra mælst gegn sömu breytingum. Geir segir breytingarnar sem þá hafi verið lagðar til hafa verið víðtækari. Hann hafi lagst gegn þeim því honum hafi ekki þótt þær tillögur hafa verið nægilega vel undirbún- ar. Nú sé búið að fara ofan í saumana á málinu og því hafi ver- ið farið í þessar breytingar. „Það ber að taka það fram að þetta nær ekki til mjög margra manna, því fjöldi þeirra sem njóta þessara hlunninda er ekki mikill miðað við heildarfjölda laun- þega.“ Bernhard telur vafa leika á því hvort stjórnvöld hafi stjórnskipu- legt vald til að breyta skattmatinu þar sem stjórnarskráin kveði á um að ekki megi leggja á skatt nema með lögum. Geir hafnar þessu alveg. ■ Fjármálaráðherra um hækkun skattmats: Ekki skattahækkun GEIR H. HAARDE Fjármálaráðherra segir að ekki sé búið að meta hvað hækkunin þýði í auknum tekj- um fyrir ríkissjóð.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.