Fréttablaðið - 21.01.2004, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 21. janúar 2004
LAUMUFARÞEGAR Laumufarþegarnir
þrír sem fundust um borð í Skóga-
fossi Eimskipafélagsins þegar
skipið kom til hafnar á Nýfundna-
landi á laugardag verða trúlega
sendir til baka til Íslands á kostn-
að Eimskipa.
Háseti á Skógafossi sá menn-
ina þrjá laumast frá borði þegar
skipið lagðist að bryggju í
Argentia. Hann náði að handsama
einn þeirra en hinir hlupu í land.
Lögreglu var gert viðvart og náði
hún þeim sem hlupu í land.
Mennirnir höfðust við í vélar-
rúmi Skógafoss þá viku sem tók
að sigla yfir Atlantshafið.
Kanadíska útvarpið segir að þeir
hafi náð sér í vatn með því að
sleikja rakann af veggjum vélar-
rúmsins.
Mennirnir eru frá Afríku, Íran
og Írak. Beiðni þeirra um hæli hér
á landi var synjað og biðu menn-
irnir þess að þeim yrði fylgt úr
landi.
Ekki er ljóst hvenær þeir laum-
uðust um borð en Skógafoss lét úr
höfn í Reykjavík 10. janúar síðast-
liðinn. Fyrir brottför var leitað í
skipinu samkvæmt venju en ekk-
ert fannst.
Fyrir 1. júlí næstkomandi verð-
ur innleitt öryggiskerfi hjá Eim-
skipi í samræmi við samþykktir
Alþjóða siglingamálastofnunar-
innar. Tilgangurinn er meðal ann-
ars að stórefla eftirlit með hafnar-
svæðum Eimskips og aðgangi að
þeim. ■
BANDARÍKIN John Kerry, öldunga-
deildarþingmaður frá Massachus-
etts, vann í gær óvæntan en
glæsilegan sigur í fyrstu forkosn-
ingum demókrata um tilnefningu
fyrir forsetakosningarnar í nóv-
ember. Hann hlaut 37,7 prósent
atkvæða, tæpum sex prósentum
meira en öldungadeildarþingmað-
urinn John Edwards frá Norður-
Karolínu, sem hlaut 31,8 prósent.
Howard Dean, fyrrverandi
ríkisstjóri í Vermont, sem lengst
af hefur mælst vinsælastur í
skoðanakönnunum, hlaut aðeins
18 prósent atkvæða og þarf því
nauðsynlega á sigri að halda þeg-
ar kosið verður í New Hampshire
í næstu viku.
Hann bar sig þó mannalega og
sagði að baráttan væri rétt að
byrja. „Við munum aldrei gefast
upp,“ sagði Dean.
Fyrir tveimur vikum mældist
Dick Gephardt í öðru sæti, aðeins
fimm prósentum á eftir Dean, en
hann hlaut aðeins 10,8 prósent og
er þar með úr leik í baráttunni. Að
sögn náins aðstoðarmanns
Gephardts mun hann ekki lýsa
yfir stuðningi við neinn frambjóð-
enda heldur styðja þann sem
stendur uppi sem sigurvegari.
Aðrir frambjóðendur hlutu
mun minna fylgi en þeir Joe
Lieberman og Wesley Clark voru
ekki með í Iowa þar sem þeir
töldu skynsamlegra að einbeita
sér að New Hampshire. ■
Þrír laumufarþegar um borð í Skógafossi:
Sendir til baka á kostnað Eimskips
LAUMUÐUST UM BORÐ Í SUNDAHÖFN
Talið er að laumufarþegarnir þrír sem
fundust um borð í Skógafossi við komu
skipsins til Argentia á laugardag hafi laum-
ast um borð skömmu fyrir brottför. Líkleg-
ast er að þeim verði vísað úr landi og flutt-
ir til Íslands á kostnað Eimskips.
Forkosningar demókrata:
Glæsilegur sigur Kerrys
JOHN KERRY
Kerry fékk gott vega-
nesti fyrir aðra lotuna í
New Hampshire í
næstu viku.