Fréttablaðið - 21.01.2004, Side 17
17MIÐVIKUDAGUR 21. janúar 2004
Ég tók við í haust, þegar AndrésJónsson var kjörinn formaður
Ungra jafnaðarmanna í Reykjavík
þar sem ég var varaformaður. Þeg-
ar haldinn var nýr aðalfundur var
ég formlega kjörinn formaður,“
segir Sverrir Teitsson, formaður
UJR. „Það er töluvert af nýju og
hressu fólki sem kemur inn í
stjórnina. Með því koma eflaust
nýjar áherslur en það kemur allt í
ljós. Það er gaman að fá fólk sem er
virkt í félagslífinu í framhaldsskól-
um.“
Sverrir gat sér fyrst frægð þeg-
ar hann keppti í Gettu betur fyrir
hönd MS en hann vill ekki meina að
sú reynsla muni nýtast honum sér-
staklega í stjórnmálum. „Öll
reynsla sem maður viðar að sér
nýtist manni, hvort sem hún kemur
frá stjórnmálum, námi eða störf-
um.“ Nú er hann á þriðja ári í laga-
námi við Háskóla Íslands. Áhugann
á stjórnmálum segir Sverrir hafa
kviknað í kringum borgarstjórnar-
kosningarnar 1994. „Þetta voru
fyrstu kosningarnar sem ég fylgd-
ist með. Síðan þá hefur maður
þroskast í viðhorfum og sjónarmið-
um. Ég stend fyrir hófsemi og
skynsemi og vil ekki öfgar af neinu
tagi,“ segir hann til að útskýra af
hverju hann hafi fundið sér stað hjá
ungum jafnaðarmönnum. „Það úti-
lokaði marga aðra.“ ■
PLACIDO DOMINGO
Stórtenórinn á afmæli í dag. Hann fæddist
árið 1941.
Tímamót
SVERRIR TEITSSON
■ Formlega kjörinn formaður UJR.
SVERRIR TEITSSON
Var kjörinn formaður Ungra jafn-
aðarmanna í Reykjavík. Tók
reyndar við í haust en hefur ver-
ið endurkjörinn á aðalfundi.
Dökkblá herrataska sem inniheldur
Blue Lagoon sturtugel, næringarkrem og
greiðu. Tilvalin í ferðalagið eða sportið.
lagoon@bluelagoon.is • www.bluelagoon.is • 420 8800
á bóndadaginn
Fyrir hann
Bláa Lónið – verslun, Aðalstræti 2
Verð 2.590 kr.
Minnum á gjafakortin
– ávísun á einstaka upplifun.
Boðsmiði fyrir tvo
í Bláa lónið – heilsulind
fylgir öllum töskum.
Áhuginn kviknaði
fyrir áratug
Listvænt Seltjarnarnes
Starf Listvinafélags Hall-grímskirkju hefur gefist
ákaflega vel. Það er blómlegt og
til fyrirmyndar og því gott for-
dæmi að fylgja,“ segir Ólafur
Egilsson, sem er í undirbúnings-
nefnd að stofnun Listvinafélags
Seltjarnarneskirkju.
Stofnfundur félagsins verður
haldinn í kvöld klukkan 20 í
safnaðarheimilinu. Þá er áætlað
að setja félaginu lög, kjósa
stjórn og gera grein fyrir
áformum um listahátíð í maí á
þessu ári og er bæði Seltirning-
um og öðru áhugafólki boðin að-
ild að félaginu.
„Við vonum að sem flestir
komi og við erum viss um að
þegar út í starfið kemur muni
margir sýna því áhuga og taka
þátt,“ segir Ólafur. Stofnfundin-
um lýkur með menningardag-
skrá, þar sem Gunnar Kvaran
mun meðal annars leika þætti úr
sellósvítu eftir Bach og Einar
Már Guðmundsson mun lesa
upp úr verkum sínum. Það vek-
ur athygli að Seltirningarnir
sækja rithöfundinn upp í Graf-
arvog. Af tónlistarfólki eiga þeir
hins vegar nóg, en á Nesinu búa
meðal annarra Bubbi Morthens,
Monika Abendroth og svo vita-
skuld Gunnar Kvaran og eigin-
kona hans Guðný Guðmunds-
dóttir konsertmeistari. ■
ÓLAFUR EGILSSON
Sóknarnefnd Seltjarnarneskirkju hefur
staðið fyrir listahátíðum með nokkru milli-
bili. Hún verður bakhjarl félagsins en með
tilkomu þess stefnir í að listviðburðir verði
dreift jafnar yfir árið.
Listalíf
■ Seltirningar eru bæði listrænir og list-
kærir og munu væntanlega taka stofnun
Listvinafélags Seltjarnarneskirkju fagn-
andi.