Fréttablaðið - 15.02.2004, Síða 35
SUNNUDAGUR 15. febrúar 2004
■ TÓNLEIKAR
35
SÝND kl. 2, 4 og 6 M/ísl. tali
Ath. miðaverð 500
SÝND kl. 8 og 10.20 B. i. 14 ára
SÍMI 553 2075
SÝND kl. 5.40, 8 og 10.20 B. i. 16 ára
SÝND kl. 6
SÝND kl. 8
FORSÝNING kl. 4
SÝND kl. 7
SÝND kl. 4, 6.30 og 9
SÝND kl. 5.45 8 og 10.30
SÝND kl. 1, 2, 3, 4 og 5 M. ÍSL. TALI
SÝND kl. 9 B. i. 14 ára
SÝND kl. 2
Tilnefnd til Óskarsverðlauna
sem besta teiknimyndin
Frábær gamanmynd!
Charlize Theron vann
Golden Globe-verðlaun
fyrir besta
leik í aðalhlutverki og er
einnig tilnefnd til Óskars-
verðlauna
HHH Kvikmyndir.com
HHH H.J Mbl.
HHH Kvikmyndir.com HHH H.J Mbl.
B.Ö.S Fínasta skemmtun Fréttablaðið
Með hinni efnilegu
Beyoncé Knowles,
fimmföldum
Grammy verðlauna-
hafa og
Óskarsverðlauna-
hafanum Cuba
Gooding Jr.
SÝND kl. 5.20, 8 og 10.40 SÝND kl. 3, 5.30, 8 og 10.30 B. i. 16 ára
★★★1/2 SV MBL
★★★★ BÖS FBL
★★★ Kvikmyndir.com
★★★ ÓTH Rás 2
★★★★ ÓTH Rás 2
★★★1/2 HJ MBL
SÝND kl. 3, 5.40, 8 og 10.20SÝND kl. 3.30, 6, 8.30 og 22.40 B. i. 16 ára
4 TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
2 TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
HHH1/2 SV MBL
HHHH Kvikmyndir.com
HHH ÓHT RÁS 2
kl. 2FINDING NEMO ÍSL. TAL
undur.is
Þeir nefna sig Dixieland Dverg-ana og eru allir mjög svo í
yngri kantinum, flestir aðeins á
17. eða 18. aldursári. Í kvöld spila
þeir á skemmtistaðnum Jóni for-
seta í elsta húsi Reykjavíkur við
Aðalstræti.
„Við einbeitum okkur að því að
spila eins fjölbreytta tónlist og við
getum, eins og djass, blús og fönk,
reggí og tangó. Eiginlega hvað
sem er,“ segir Kristján hljóm-
borðsleikari. „Við reynum líka að
koma fram hvar sem við getum.
Stundum erum við kannski með
þrenna tónleika á þremur dögum,
og svo getur verið ekkert að gera
í nokkra mánuði.“
Þeir hafa spilað saman í rúm
tvö ár, eða allt frá því að þeir voru
allir saman í tíunda bekk Haga-
skóla. Flestir eru þeir núna í
Menntaskólanum í Reykjavík,
nema Örvar trommuleikari, hann
er í Fjölbrautaskólanum í Ármúla.
Og allir eru þeir jafnframt í tón-
listarskóla. Daníel trompettleik-
ari er í klassísku tónlistarnámi, en
hinir eru í tónlistarskóla FÍH.
Dixieland Dvergarnir hafa að-
stöðu til æfinga í Hljómskálan-
um, og þar verja þeir flestum frí-
stundum sínum. „Tíminn fer
voða mikið í æfingar. Við leggj-
um mikinn metnað í þetta.“ ■
DIXIELAND DVERGARNIR
Kristján spilar á hljómborð og harmoniku, Arnljótur á bassa, Daníel á trompett og Snorri á
saxófón. Á myndina vantar Örvar trommuleikara.
Dvergarnir í dixielandi
Kvikmyndaheitið „sálfræði-tryllir“ hefur sjaldan átt bet-
ur við. Gothika er nefnilega tryll-
ir um sálfræðing. Það er franski
leikstjórinn Mathieu Kassovitz
sem er við stjórnvölin, sá hinn
sami og gerði hina eftirminnilegu
Hatur (La Haine) sem sýnd var
hér á landi fyrir allnokkru. Sú
mynd var frumleg, hrá og ódýr.
Það sama er ekki hægt að segja
um þá nýjustu, þvert á móti er
Gothika ófrumleg, mjög vel gerð
og áreiðanlega rándýr í fram-
leiðslu. Spennuatriðin ganga ótrú-
lega vel upp, eins og mar á hand-
legg mínum bera vitni um (konan
mín notar mig sem öryggispúða á
hryllingsmyndum).
Leikarar standa sig með prýði
og vel hefur tekist til við að raða
réttu fólk í öll hlutverkin. Halle
Berry er trúverðug sem sálfræð-
ingur og fórnalamb og fær sam-
kennd áhorfandans alla leið.
Vandræðagemsinn Robert Down-
ey jr er alltaf jafn góður og Pen-
elope Cruz sýnir hófstilltan leik í
frekar litlu hlutverki. Kvik-
myndataka og öll tæknileg vinna
er gallalaus. En peningur og bestu
fagmenn í bransanum geta ekki
bætt upp fyrir gallað handrit. Það
eru gloppur og gryfjur í sögu-
þræðinum sem ná að eyðileggja
heildarupplifunina. Það koma
fleiri spurningar en svör í furðu-
legri fléttu sem er eins og dauða-
dæmt reikningsdæmi sem aldrei
á eftir að ganga upp. Þegar nær
dregur endanum missir myndin
algjörlega flugið sem er synd því
að flugtakið var vel heppnað og
þjónustan um borð mjög fag-
mannleg.
Kristófer Dignus
UmfjöllunKvikmyndir
GOTHIKA
Leikstjóri: Mathieu Kassovitz
Aðalhlutverk: Halle Berry, Penelope Cruz,
Robert Downey jr.
Gölluð
geðveiki 1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
X-IÐ 977 – VIKA 7
ARE YOU GONNA BE MY
GIRL? – Jet
MEGALOMANIAC – Incubus
THE LONG FACE – Mínus
Y’ALL WANT A SINGLE? – Korn
I HATE EVERYTHING ABOUT
YOU – 3 Days Grace
MAD WORLD – Gary Jules
FORTUNE FADED – Red Hot
Chili Peppers
REPTILIA – The Strokes
A SELFISH NEED – Maus
MEANT TO BE – Switchfoot
THE UNNAMED FEELING –
Metallica
RACE CITY – Quarashi
HYSTERIA – Muse
HOLD ON – Good Charlotte
THE OUTSIDER – A Perfect
Circle
11
12
13
14
15
Topp 20