Fréttablaðið - 15.02.2004, Side 38
15. febrúar 2004 SUNNUDAGUR
Ég er ekki vinsæll miðað viðmarga aðra,“ segir Kristján
Kristjánsson, umsjónarmaður
Kastljóss, en hann stjórnaði
tveimur fundum um helgina. Ann-
ars vegar á ráðstefnu hjá
Öryrkjabandalaginu sem haldin
var á föstudag og hins vegar á
málþingi hjá Kvenréttindafélagi
Íslands í gær.
En hvað veldur þessari gífur-
legu ásókn í Kristján sem fundar-
stjóra. Hefur hann til að bera ein-
hverja sérstaka eiginleika sem ein-
kenna þurfa góðan fundarstjóra?
„Ég get lítið dæmt um það sjálfur,“
svarar hann af mikilli hógværð.
„Sjálfsagt spilar það stórt hlutverk
að ég er þekkt andlit úr sjónvarp-
inu. Ég vona að ég sé ekki boðaður
vegna þess að ég sé bjáni.“
Kristján bætir því við að hann sé
afar vandlátur á hvaða verkefni
hann tekur að sér og segist ekki
gera mikið af því.
Kristján er spurður út í veislu-
stjórn. „Ég geri lítið af því að taka
að mér þannig verkefni og lít ekki
á mig sem skemmtikraft. Menn
verða að þekkja sín takmörk.“
Þróttarar eru greinilega undan-
tekning á reglunni en Kristján var
veislustjóri á þorrablóti hjá þeim í
gærkvöld. „Þróttarar njóta sér-
staks velvilja hjá mér enda er ég
gallharður stuðningsmaður.“ ■
Fundarstjórn
KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
■ sjónvarpsmaður er vinsæll
fundarstjóri. Stjórnaði tveimur
fundum á jafnmörgum dögum.
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
16,3 milljarðar króna.
Forseta Íslands,
Ólafi Ragnari Grímssyni.
PharmArctica.
!"#$ %&%'()!*#)
+& &(* $,- .%&
!"#$
%
&"'"##"()
* +
,
-./00"()
&1234
%
&005&6"7'()
86$03"7'0
1&9"(7#
0(7#$
Í nýrri auglýsingaherferðTennet’s-bjórtegundarinnar er
íslenska þjóðin tekin fyrir á mjög
spaugilegan hátt. Íslenska konan
er í öndvegi. Kynnt er til sögunn-
ar kjarnakvendið Sigga sem
finnst fátt betra en að sötra bjór í
stingandi gaddi í sauðskinnsgæru
á meðan hún gæðir sér á lunda.
Því næst sést hún í Bláa lóninu
þar sem hún tilkynnir að á Íslandi
séu sex kvenmenn um hvern karl-
mann. Skemmtanalífið er gert lít-
ilfjörlegt og er engu líkara en að
atriði sem á að sýna fólk í biðröð
inn á skemmtistað sé tekið upp á
jökli.
„Þessi auglýsing var gerð fyrir
einu og hálfu ári síðan,“ segir
Birna Hafstein leikkona sem leik-
ur Siggu í auglýsingunni. „Ég fór í
prufu úti í London þar sem ég bý
og þá voru þeir víst búnir að vera
að leita að leikkonu fyrir hana í
langan tíma en fundu aldrei það
sem þeir vildu.“
Birna er stödd hér á landi til þess
að leika í Chicago og In Transit sem
frumsýnt var á Litla sviði Borgar-
leikhússins á sunnudag.
„Það sem ég held að þeir hafi
verið að reyna segja er að á Ís-
landi býr svolítið öðruvísi fólk.
Eins og sést á útliti stúlkunnar.
Ég er ljóshærð í alvörunni en
þeir vildu alls ekki hafa týpískt
skandinavískt útlit á þessu. Þess
vegna er Sigga rauðhærð. Þeir
völdu nokkur lönd til þess að
taka auglýsingarnar í. Með því
eru þeir að reyna að segja að
þessi bjór sé drukkinn alls stað-
ar í heiminum og á furðulegum
stöðum. Ég veit t.d. að ein aug-
lýsingin var tekin í Indlandi.“
Auglýsingin er gerð af
breskri auglýsingastofu en
Pegasus aðstoðaði við tökurnar
hér. ■
KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
Þessi röggsami stjórnandi Kastljósþáttanna
er eftirsóttur fundarstjóri.
Vona að ég sé ekki bjáni
TENNET’S-AUGLÝSINGIN
Auglýsing Tennets bjagar og gerir grín
að íslenskum veruleika. Birna Haf-
stein leikur aðalhlutverkið í henni.
Auglýsingar
BIRNA HAFSTEIN
■ leikur íslenskt kjarnakvendi í
bjórauglýsingu. Auglýsingin dregur upp
spaugilega hlið af Íslandi.
Bjórauglýsing
gerir grín að Íslandi