Fréttablaðið - 11.05.2004, Blaðsíða 40
BAKÞANKAR
KRISTÍNAR HELGU
GUNNARSDÓTTUR
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R
Handbók þjón-
ustufulltrúans
Stokkaðu upp fjármálin
Þú getur auðveldlega samið um hagstætt lán hjá Frjálsa fjárfestingar-
bankanum, sem er kjörið til að skuldbreyta óhagstæðum lánum á borð við
skammtímabankalán. Þannig lækkarðu greiðslubyrðina hjá þér og eykur
fjárhagslegt svigrúm. Lánið er veitt til allt að 40 ára gegn veði í fasteign.
Ráðgjafar okkar veita allar nánari upplýsingar. Þú getur litið inn í Ármúla
13A, hringt í síma 540 5000 eða sent tölvupóst á frjalsi@frjalsi.is
www.frjalsi. is
– með hagstæðu fasteignaláni
H
im
in
n
o
g
h
a
f/
90
40
12
4
Vextir % 5,40% 5,95% 6,50% 7,50%
30 ár 5.610 5.960 6.320 6.990
40 ár 5.090 5.470 5.850 6.580
2 4.500 4.960 5.420 6.250Afborgunar-laust *
*1 Lán með jafngreiðsluaðferð án verðbóta
Dæmi um mánaðarlega greiðslubyrði
af 1.000.000 kr.*
50% afsláttur álántökugjalditil 1. júlí
SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
Það er orðið býsna algengt aðmeirihluti þjóðarinnar lýsi sig
andvígan ýmsum ákvörðunum stjórn-
valda. Það er daglegt brauð að á lofti
séu vangaveltur um hvort eitt eða
annað standist stjórnarskrá – sem
virðist nokkuð götótt og teygjanlegt
plagg. Það tíðkast líka oftar en ekki
þessi dægur að mannfjöldi safnist
saman á Austurvelli til að lýsa andúð
sinni á margskonar aðgerðum þjón-
ustufulltrúanna í þinghúsinu. Vörður
hafa verið reistar við fundarsali ráða-
manna, hönskum kastað, málningu
slett og foringjunum færðir banana-
klasar að gjöf. Að auki er það algeng-
ara en ekki að opinber ráð geri alvar-
legar athugasemdir við vinnubrögð
þjónustufulltrúanna. Sérfræðingar
koma jafnvel erlendis frá, slá sér á
lær og furða sig á hugmyndaauðgi
landsfeðranna á landinu bláa.
ÞRÝSTINGUR af þessu tagi skapar
afskaplega mikið álag á þjónustufull-
trúana. Þá reynir á hversu slyngir
þeir eru. Margir þeirra hafa brugðist
snilldarlega við áreitinu og beita
fyrir sig kænsku og þrautseigju sem
finna má í handbók þjónustufulltrú-
ans. Ein leið hefur reynst af-
bragðsvel, og er sennilega kennd á
byrjendanámskeiðum ungliðahreyf-
inganna, en hún er að nýta sér langar
og loðnar orðræður með tilheyrandi
flækjum og skrautflúri svo áheyr-
endur fyllist vanmáttarkennd og
lotningu fyrir yfirvaldinu.
HALDI áreitið samt áfram má grípa
til þess að láta ekki ná í sig. Það skal
gera í nokkra daga og þá ætti öldur
að lægja. Gangi það ekki skal taka
upp áætlun þrjú, en hún er sú að lýsa
álitsgerðir sérfræðinefnda á viðkom-
andi málefnum ómarktækar. Einnig
má reyna afskipti af verkefnavali
slíkra nefnda eða leggja til að þær
verði aflagðar.
NENNI þjónustufulltrúarnir ekki að
standa í umræðu af nokkru tagi er
afar farsælt að niðursjóða tillögur á
síðustu stundu og keyra þær í gegn í
svefnleysi, tímaleysi og úrræðaleysi,
en sé þessari aðferð beitt er afskap-
lega mikilvægt að sem fæstum gefist
ráðrúm til umhugsunar. Regla númer
eitt er þó að grípa aldrei til afsakana
og þaðan af síður afsagna. Hafa ber í
huga að það er ekkert hættulegt að
mála sig út í horn því í þessu horni
eru leynidyr sem auðvelt er að
lauma sér út um. Þar hafa margir
verið áður og komist klakklaust út í
sólskinið. ■
Íslandsbanki lánar fólki í framkvæmdahug
Ef þér finnst kominn tími á endurbætur skaltu skoða öll þau hagstæðu lán
sem Íslandsbanki býður fólki í framkvæmdahug. Við bjóðum verðtryggð
og óverðtryggð lán auk láns í erlendum gjaldmiðli til lengri og skemmri
tíma. Fáðu nánari upplýsingar hjá þjónustufulltrúum okkar, á isb.is eða í
þjónustuveri bankans í síma 440 4000.
Skuldabréf – bæði verðtryggð og óverðtryggð með breytilegum vöxtum
Húsnæðislán – óverðtryggð lán í íslenskri og/eða erlendri mynt
Fastvaxtalán – verðtryggð með föstum vöxtum
Hagstæð lán – standa sjóðfélögum Almenna lífeyrissjóðsins til boða
Yfirdráttur – góð skammtímafjármögnun
Víxill – skammtímafjármögnun