Tíminn - 28.03.1972, Síða 8
8
TÍMINN
Þriöjudagur 28. marz 1972.
JÖRÐIN BRÆÐRATUNGA
Stokkseyri, er til sölu. Ræktað land ca. 10
ha. Hús sæmilega góð. Upplýsingar gefur
Jakob Árnason, simi 92-1661.
Fiskvinnsluskól
inn á Isafirði
BÍLSTJÓRAR
Steingrimur Hermannsson og Halldór Kristjánsson
leggja til að skólinn verði þar
Viljum ráða vana vörubilstjóra i vega-
gerð. Vaktavinna.
ÍSTAK
íslenzkt Verktak hf.
Suðurlandsbraut 6, Simi 81935.
EB-Reykjavik.
Steingrimur Hermannsson (F)
og Halldór Kristjánsson (F) hafa
lagt fyrir efri deild Alþingis
frumvarp til laga um að fisk-
vinnsluskólinn verði staðsettur á
Isafirði.
í greinargerð með frumvarp-
inu, minna flutningsmenn á, að
fiskvinnsluskólinn hafi verið
stofnaður með lögum, sem sam-
þykkt hefðu verið á Alþingi
GEFJUN AKUREYRI
Til hamingju með
ferminguna
og til hamingju á ferðum þínum í
framtíðinni, með góðan svefnpoka, sem
veitir þér öryggi og hlýju hvernig sem viðrar
Til hamingju meö svefnpoka
frá Gefjtm
dralon
BAYER
Úrva/s trefjaefni
/T\
(bayer
2.april i fyrra. „Lögin voru af-
greidd á allra siðustu dögum
þingsins. Nokkrar umræður urðu
um staðsetningu skólans, og
gerðar voru á 6. gr. þær
breytingar, að skólanum var á-
kveðinn staðurá Suðvesturlandi i
stað Reykjavikur. Hins vegar var
timi hvergi nærri nægur til þess
að kanna það mál til hlitar. Meðal
annars náðu áskoranir utan af
landi ekki eyrum þingmanna
vegna hins nauma tima, sem var
til afgreiðslu málsins. Svo fór
m.a. um ábendingu frá Akureyri
og frá tsafirði um staösetningu
skólans á tsafirði”, segja flut-
ningsmenn i greinargerðinni:
I. grein frumvarpsins er svo-
hljóðandi:
,,6-grein laganna orðist þannig:
Skólinn skal staðsettur á tsa-
firði. Auk þess skal stofnaður
fiskvinnsluskóli i Vestmanna-
eyjum, sem útskrifi fiskiðnaðar-
menn og fiskvinnslumeistara
samkvæmt 1. og 2. töluliö 2. gr.,
og skal námi við skóiann skipt i
þrjár deildir, sbr. 1.-3. tölulið 10.
gr' ,
Á árunum 1972-75 skal enn
fremur undirbúa stofnun fisk-
vinnsluskóla 1. og 2. stigs á Suð-
urnesjum, Akranesi og i stærstu
fiskiðnaðarstöðum i öðrum lands-
hlutum.
Heimilt skal, að fengnu sam-
þykki ráðuneytisins, aö setja á
stofn framhaldsdeildir við skól-
ann utan Isafjarðar, sbr. 4. gr.,
þegar skilyrðii eru fyrir hendi.
Ráöuneytið skipar hverjum
skóla þriggja manna skólanefnd
tilíjögurra ára i senn. Skal einn
þeirra tilnefndur af Rann-
sóknarstofnun fiskiönaðarins,
annar af samtökum fiskiðnaðar-
ins á hverjum stað, en hinn þnðja
skipar ráðuneytið án tilnefningar,
og skal hann vera formaður
nefndarinnar.
Varamenn skulu skipaðir á
sama hátt.
Lög þessi gilda um fiskvinnslu-
skóla utan tsafjarðar, að þvi er
varðar greiðslu kostnaðar og
annað, sem við getur átt að dómi
raouneytisms og almarkaðskal i
reglugerð.”
1 2. grein frumvarpsins er lagt til,
að rikið komi upp hentugu kenn-
slu- og heimavistarhúsnæði á Isa-
firði fyrir fiskvinnsluskóla. — Þá
er að lokum i frumvarpinu svo-
hljóðandi ákvæði til bráðabirgða:
,,Þar til komið hefur verið upp
nauðsynlegri aðstöðu á Isafirði
fyrir fiskvinnsluskólann, er
heimiltað starfrækja han i Reyk-
javik.”
Kjörinn staður fyrir fisk-
vinnsluskóla
1 greinargerð frumvarpsins
segir m.a.:
Steingrimur llalidór.
„Vestfirðir eru eitt mikilvæg-
asta fiskvinnslusvæði .'landsins.
Sjávarútvegur og fiskvinnsla eru
þar að tiltölu mikilvægari at-
vinnugreinar en viðast annars
staðar. A Isafirði eru einhver
glæsilegustu frystihús landsins og
fiskvinnsla fjölbreytt. Þar mundi
fást hin hentugasta aðstaða til
þjálfunar fyrir nemendur fisk-
vinnsluskólans.
Nú er að risa á Isafirði mennta-
skóli. Bygging skólahúsnæöis er
hafin og aðsókn að skólanum
mikil. Á Isafirði er þvi að risa
menntamiðstöð Vestfjarða.
Með tilliti til þess, sem nú hefur
verið rakið, virðist Isafjörður
vera kjörinn staður fyrir fisk-
vinnsluskóla. Auk þess eru
kennarar við fiskvinnsluskólann
mjög fáir enn, sem komið er, og
ætti það ekki að valda erfið-
leikum, enda getur reynzt æski-
legt að nýta betur t.d. kennslu-
krafta, sem þegar eru við hinn
nýja menntaskóla.
Ljóster, aö hið opinbera verður
að koma upp hentugu húsnæöi
fyrir hvern þann skóla, sem út á
land flytzt, og heimavist verður
einnig fljótlega nauðsynleg. Að
þvi leyti er staðsetning skólans
utan Reykjavikur nokkru kost-
naðarmeiri en almennt þarf að
vera á höfuöborgarsvæðinu.
Nauðsynlegt er að horfast i augu
við þetta. Þvi er lagt til, að i lög
um fiskvinnsluskóla verði bætt
grein, sem taki af allar efasemdir
um þetta atriði og skuldbindi
rikið til þess að koma upp nauð-
synlegri aðstöðu á Isafirði. Engu
að siður má vel vera, að við at-
hugun komi i ljós, að unnt sé að
staðsetja fiskvinnsluskólann til
bráðabirgða i hinu nýja húsnæði
menntaskólans. Þetta þarf að
kanna.”
Mælti Steingrimur Hermanns-
son fyrir þessu frumvarpi á fundi
i efri deild Alþingis s.l. miðviku-
dag, en auk hans tóku til máls
þeir Jón Helgason (F) og Jón
Arnason (S),
Aðalfundur
Verzlunarbanka Islands hf. verður hald-
inn i veitingahúsinu Sigtúni, laugardaginn
8. april 1972 og hefst kl. 14.30.
Dagskrá skv. 18. gr. samþykktar fyrir
bankann.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar til
fundarins verða afhentir i afgreiðslu
bankans Bankastræti 5, miðvikudaginn 5.
april, fimmtudaginn 6. april og föstudag-
inn 7. april kl. 9.30 — 12.30 og kl. 13.30 —
16.00.
í bankaráði Verzlunarbanka íslands hf.
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson Þ.
Guðmundsson
Magnús J. Brynjólfsson.