Tíminn - 30.03.1972, Page 11
Fimmtudagur 30. marz 1972.
TÍMINN
11
Fram*dkttarfÍ6<<kurfrtn
Framkv*mdft5.ti(irií Kriítfirt Bflnftdlkfssöti, Rintjótsrt ÞárarirtH
Þórarinsson iftljl, Artdtés Krlflfíánss<m, ión Hfl>9flit>rtf thdrlðli
G. rtorsteinsson og Tómfts Kftrfsson. Aogtýslngftíljórl: Stelrt-
ffrífrtor G-íslason. THtsfiómarflkrffstofur f FddtlTfúíirtU/ ifmflt
léaóo — Ifi305. Skrifstofyr Bankftstræfi 7. ~ Aforelðsiusfnvi
:14i23,:: :Auglýsi‘ngasrmi:: 19523^: Aðrar: skrjfstofur : :slm|: :T8300,
Áskrlftargfflld : :kr; : :Í2S,0Q : á : mánuSt: :lnnanlands. : f:: lartsasölu
ktv lí.öO fllntflktS. — SlflSaprertt h.f. (0«Sflt|
Efnahagsmálin
Það kemur stöðugt betur og betur i ljós, að
efnahagsvandinn, sem fyrrverandi rikisstjórn
lét eftir sig, er miklu meiri en menn hafa álitið
til þessa. Ný og ný atriði eru að koma til sög-
unnar, sem skýra þetta betur. Velmegun sú,
sem fylgt hefur hagstæðu verðlagi á út-
flutningsvörum, hefur dregið athyglina um of
frá þessum staðreyndum.
Sú mynd, sem nú blasir við i efnahags-
málum, er i meginatriðum þessi:
Viðskiptahallinn við útlönd varð um 4000
milljónir króna á síðastl. ári, og verður ekki
minni á þessu ári, að óbreyttri stefnu.
Fjárlögin hafa hækkað stórlega sökum
þess, að útgjöld voru vanreiknuð á fjárlögum
1971 og fyrrv. stjórn hafði stofnað til mikiila
útgjalda, sem ekki komu til framkvæmda
fyrr en á þessu ári.
Verulegum verðhækkunum hafði verið
frestað fram yfir kosningar með bráða-
birgðaverðstöðvun, en þær verða ekki
dregnar endalaust á langinn.
Vegasjóður og húsnæðislánakerfið þurfa
stórauknar nýjar tekjur, ef starfsemi þeirra
á að haldast áfram með eðlilegum hætti.
Óhjákvæmilegar endurbætur á hraðfrysti-
húsunum og uppbygging togaraflotans kalla
á mikið fjármagn, sem ekki verður komizt
hjá að útvega með einum eða öðrum hætti.
Gera verður margháttaðar nýjar ráðstaf-
anir til að treysta jafnvægið i byggð landsins.
Þannig mætti halda áfram að telja upp stór-
felld efnahagsleg vandamál, sem að verulegu
leyti stafa af þvi, hve illa hefur verið á mál-
unum haldið á liðnum árum.
Við þetta getur svo það bætzt, að andstæð-
ingar okkar i landhelgismálinu reyni að beita
okkur efnahagslegum þvingunum til að neyða
okkur til undanhalds. Þótt vona verði i lengstu
lög, að til þessa komi ekki, er hyggilegast að
vera við öllu búin og gera nauðsynlegar
varúðarráðstafanir i tæka tið.
Allt það, sem hér er rakið, sýnir ótvirætt, að
óhjákvæmilegt verður að gera i nánustu fram-
tið meiriháttar ráðstafanir til að draga úr
gjaldeyrishallanum, til að hamla gegn verð-
bólgu, til að tryggja mikilvægustu fjár-
festingarsjóðum nægilegt fjármagn, til að
tryggja endurbætur frystihúsanna og upp-
byggingu togaraflotans og til að stuðla að
auknu jafnvægi i byggð landsins. Siðast, en
ekki sizt, þarf svo nauðsynlegan viðbúnað
vegna landhelgismálsins.
Þessar ráðstafanir verða vitanlega ekki
gerðar án einhverra fórna i bili. En þvi rót-
tækari og raunsærri, sem þær verða, þvi meiri
verður lika árangurinn til að tryggja batnandi
kjör i framtiðinni.
ERLENT YFIRLIT
Verður kona næsti
forseti Colombia?
Maria Eugenia er nú þjóðhetja í Colombia
Maria Gugcnia Kojas do Moreno Diaz
í COLOMBIA i Suður-
Ameriku stendur nú yfir hörð
kosningabarátta, en þar verð-
ur kosið til sveitar- og héraðs-
stjórna i næsta mánuði. Veru-
leg athygli beinist að þessum
kosningum, þvi að þær þykja
liklegar til að leiða i Ijós, hvort
kona verður kosin næsti for-
seti Colombia, en forsetakjör
á að fara þar fram eftir tvö ár.
Verði úrslit sveitar- og hér-
aðsstjórnakosninganna á þá
leið, að þjóðlega alþýðufylk-
ingin efli fylgi sitt, mun það
talin ótviræð visbending um,
að Maria Eugenia Rojas de
Moreno Diaz verði næsti for-
seti Colombia, ef ekki kemur
neitt óvænt fyrir. Eins og er
nýtur hún meiri persónulegra
vinsælda en dæmi eru um i
Colombia um langt skeið.
TIL ÞESS að fá nægilegt
yfirlit um þá stjórnmálaþró-
un, sem nú er i Colombia, þarf
að hverfa allt til ársins 1948.
Fram að þeim tima höfðu
tveir flokkar barizt um völdin
i Colombia, Frjálslyndi flokk-
urinn og Ihaldsflokkurinn, og
skipzt á að fara með þau. Arið
1948 var einn af leiðtogum
vinstri manna i Colombia
myrtur, og leiddi það til
borgarastyrjaldar, sem stóð i
nær fimm ár. Talið er, að um
200 þús. manns hafi fallið i
þessum átökum, en þau mögn-
uðust 1950, er afturhaldssam-
ur hershöfðingi, Gomes að
nafni, tók sér einræðisvald.
Arið 1953 steypti herinn
Gomes af stóli, og tók yfir-
hershöfðinginn, Gustavo
Rojas Pinilla, öll völd i sinar
hendur. Hann reyndist á ýms-
an hátt röggsamur stjórnandi.
M.a. tókst honum að binda
endi á borgarastyrjöldina og
koma á röð og reglu i landinu.
Hann hófst einnig handa um
ýmsar meiriháttar fram-
kvæmdir. Hins vegar þótti
hann ráðrikur og hlynna um of
að ýmsum vildarmönnum sin-
um. Nokkrir hershöfðingjar
gerðu þvi uppreisn gegn hon-
um og viku honum frá völdum
1957.
Þeir ákváðu að koma á lýð-
ræðislegri stjórn i landinu.
Eftir mikið samningaþóf milli
tveggja gömlu stóru flokk-
anna, Frjálslynda flokksins og
thaldsflokksins, náðist sam-
komulag um, að þeir skyldu
hafa með sér kosningabanda-
lag fram til 1974. Þetta skyldi
gerast á þann hátt, að þeir
skiptust á um að velja forseta
úr sinum hópi. Þetta samstarf
hefur gengið misjafnlega, en
hefur þó haldizt i stórum
dráttum fram á þennan dag.
1 FORSETAkosningunum 1970
var Misael Pastrana Borrero
forsetaefni stjórnarflokkanna,
en þrátt fyrir samstöðu þeirra
munaði minnstu að hann félli.
Astæðan var sú, að nú var
Rojas kominn til sögu á ný.
Eftir að honum var steypt af
stóli 1957, hafði hann orðið að
þola ýmsar raunir. Hann hafði
fyrst verið gerður útlægur, en
siðar neyddur til að snúa
heim, setið i fangelsi og verið
dæmdur fyrir embættisafglöp.
Að lokum hafði hann verið
náðaður, og notaði hann eftir
það fyrsta tækifæri til að hefja
stjórnmálaafskipti að nýju. í
forsetakosningunum 1970 bauð
hann sig fram fyrir nýjan
flokk, þjóðlegu alþýðufylking-
una (Alianza Nacional
Popular), og munaði minnstu
að hann næði kosningu. Hann
fékk 63. þús. atkvæðum færra
en Pastrana, en greidd af-
kvæði voru um fjórar milljón-
ir. Fylglsmenn Rojas halda
þvi hiklaust fram, að
kosningaúrslitin hafi verið
fölsuð, og raunverulega hafi
Rojas unnið kosningarnar.
1 REYND var þetta mikla
fylgi, sem Rojas hlaut, ekki
nema að takmörkuðu leyti
honum sjálfum að þakka. Það
var dóttir hans, Maria
Eugenia, sem átti mestan þátt
i þessum sigri. Hún hafði,
meðan hann sat i fangelsi,
unnið að þvi að skipuleggja
flokk fylgismanna hans og
annarra þeirra, sem voru
óánægðir með stjórn gömlu
flokkanna. Flokkurþessi hlaut
brátt mikiö fylgi, og er það
öðru fremur þakkað áróðurs-
hæfileikum og skipulagsgáf-
um Mariu Eugeniu. Bæði hún
og maður hennar, Samuel
Moreno Diaz, höfðu náð kosn-
ingu til öldungadeildar þings-
ins, þar sem hún hélt uppi
mjög skeleggum áróðri. I
forsetakosningunum 1970
ferðaðist hún miklu meira um
landið en faðir hennar og hélt
marga fundi daglega. Henni
tókst betur að ná eyrum
alþýðumanna en nokkrum
stjórnmálaleiðtoga öðrum.
Eftir að úrslit forsetakosning-
anna höfðu verið tilkynnt,
kvaddi hún sér hljóðs i
öldungadeildinni til aö mót-
mæla, en var neitað um orðið.
Hóf hún mál sitt eigi að siður,
og lét forsetinn þá þingverði
bera hana út. Myndir af þeim
atburði voru birtar i sjónvarpi
og blöðum og drógu ekki úr
vinsældum hennar. Þvert á
móti þótti þetta sýna kjark
hennar.
I FYRSTU var stefna þjóð-
legu alþýðufylkingarinnar
fremur óljós, en hefur smám
saman verið að fá á sig aukinn
svip vinstri sinnaðrar þjóð-
ernisstefnu. Þannig beitir hún
sér fyrir þjóðnýtingu á oliu-
vinnslu og öðrum námu-
rekstri, á útflutnings- og inn-
flutningsverzluninni og
bankakerfinu. Hins vegar hef-
ur hún ekki þjóðnýtingu jarð-
eigna á stefnuskrá sinni, held-
ur boðar aukið landnám, en
mikið land i Colombia er enn
litt ræktað.
Meginþorri almennings i
Colombia býr við lélegustu
kjör og virðist tengja miklar
vonir við valdatöku þjóðlegu
alþýðufylkingarinnar. Fylgi
hennar má nokkuð ráða af þvi,
að hún ræður nú yfir þriðjungi
þingsæta bæði i öldungadeild
og fulltrúadeild þingsins, hef-
ur meirihluta á 16 af 22 fylkis-
þingum og meirihluta i
borgarstjórnum fimm stærstu
borganna. Maria Eugenia er
forseti borgarstjórnarinnar i
Bogota, sem er höfuðborg
landsins.
MARIA EUGENIA er 37 ára
að aldri. Hún haföi fyrst af-
skipti af stjórnmálum fyrir
fáum árum. Þegar faðir henn-
ar var rekinn fra völdum 1957,
fluttist hún til Bandarikjanna
með manni sinum, og bjuggu
þau á Miami i allmörg ár. Þar
fæddust tvö börn þeirra. Það
var fyrst eftir að faðir hennar
hafði verið kvaddur heim úr
útlegðinni og málaferli hófust
gegn honum, að hún fór að láta
stjórnmál sin taka. Engum
þótti þá liklegt, að Rojas ætti
eftir að koma við sögu stjórn-
mála i Colombia. Menn
gleymdu þá r.ð reikna með
dóttur hans.
Um þessar nr.cidir fer hún
fram og aftur um landið, og
henni er hvarve*.ia tekið sem
þjóðhetju. Hú" segir, að hún
muni þvi aðein^ gefa kost á sér
i forsetakosningunum 1974, að
faðir hennar hafi ekki heilsu
til að vera i framboði. Þar sem
Rojas er orðinn 71 árs og mjög
heilsuveill, þykir vafalitið, að
það verði dóttir hans, sem þá
heldur uppi merki þeirra.
- Þ.Þ.
Þ.Þ.