Fréttablaðið - 28.02.2004, Side 6

Fréttablaðið - 28.02.2004, Side 6
6 28. febrúar 2004 LAUGARDAGUR ■ Asía GENGI GJALDMIÐLA Bandaríkjadalur 69.85 -0.04% Sterlingspund 129.19 -0.79% Dönsk króna 11.62 -0.41% Evra 86.57 -0.41% Gengisvísitala krónu 120,12 -0,28% KAUPHÖLL ÍSLANDS Fjöldi viðskipta 561 Velta 4.563 milljónir ICEX-15 2.629 2,85% Mestu viðskiptin Pharmaco hf. 775.449 Landsbanki Íslands hf. 415.572 Íslandsbanki hf. 362.886 Mesta hækkun Líf hf 12,24% Tryggingamiðstöðin hf. 7,98% Eimskipafélag Íslands Hf. 7,53% Mesta lækkun Tangi hf. -22,73% MP BIO -3,85% Flugleiðir hf. -1,38% ERLENDAR VÍSITÖLUR DJ* 10.616,1 0,3% Nasdaq* 2.029,5 -0,1% FTSE 4.492,2 -0,5% DAX 4.018,2 0,3% NK50 1.400,0 0,2% S&P* 1.145,5 0,1% * Bandarískar vísitölur kl. 17. Veistusvarið? 1Hver er upplýsingafulltrúi Lands-bjargar? 2Hrókurinn blæs til fjölskylduhátíðar ídag. Hver er forseti Hróksins? 3Hvaða knattspyrnumaður er á förumfrá KR til Stabæk? Svörin eru á bls. 46 Bruninn í Hraunbergi: Söfnun hafin fyrir allslausa fjölskyldu FJÁRSÖFNUN „Þau eiga ekkert nema fötin sem þau voru í þegar ógæfan dundi yfir,“ segir Rósa Björnsdóttir, sem hefur opnað söfnunarreikning í Íslandsbanka á Eiðistorgi vegna son- ar síns og fjölskyldu sem misstu allt sitt í bruna og innbrotum 14. febrúar þegar bruni varð í íbúð þeirra Her- móðs Sigurðssonar og Önnu Maríu Sigtryggsdóttur. Lögreglurannsókn stendur yfir vegna brunans að Hraunbergi 9 þar sem Hermóður og Anna María bjuggu ásamt 11 ára syni hans, Ant- oni Helga. Bruninn er annað stórá- fallið sem drengurinn verður fyrir, því aðeins tveimur vikum fyrr mis- stu hann og systir hans, Kristín Harpa, móður sína með voveiflegum hætti. Anton Helgi býr hjá föður sín- um en Kristín Harpa hjá móður- ömmu sinni. Rósa segir að sonur hennar og fjölskylda hafi fengið leiguíbúð sem þau flytji væntanlega í um helgina. Hún segir að fjölskyldan sé þó í mik- illi fjárhagslegri neyð eftir brunann og þess vegna hafi hún gripið til þess að opna söfnunarreikning. „Ég hef safnað hjá vinum og ætt- ingjum og það hefur gengið vel. Til dæmis gaf einn frændi okkar 200 þúsund krónur,“ segir Rósa. Söfnunarreikningur vegna fjöl- skyldunnar er í Íslandsbanka á Eiðis- torgi, 0512-14-606000. Frásögn Fréttablaðsins í gær vakti mikil viðbrögð. Fólk hringdi til að spyrja um söfnunarreikning og dæmi voru um að einhverjir vildu gefa fjölskyldunni húsgögn. ■ Húskarlinn lýsir eftir húsbónda Ráðherrakreppa Framsóknarflokks blómstrar á vefsíðum. Varaþingmaðurinn Guðjón Ólafur Jónsson vill að Siv Friðleifsdóttir hverfi úr ríkisstjórn í haust. Siv talar um „húskarla“ og segir Guðjón Ólaf vega að ráðherra eigin flokks. Guðjón Ólafur segir málfrelsi ríkja. RÁÐHERRASKIPTI Mikill titringur er innan Framsóknarflokksins eft- ir að Guðjón Ólafur Jónsson, varaþingmaður í Reykjavíkur- kjördæmi suður, lýsti þeirri skoðun sinni afdráttarlaust í tví- gang að eðlilegt sé að Siv Frið- leifsdóttir umhverfisráðherra láti af ráðherradómi um leið og ráðuneyti hennar fellur í hlut Sjálfstæðisflokksins. Guðjón Ólafur lýsti þessu í grein á hri- flu.is og í sjónvarpsviðtölum. „Ekki verður séð af hverju einhver annar ætti að láta af embætti í stað hennar. Í þriðja lagi mætti svo auðvitað hugsa sér að stokkað yrði upp í ráð- herraliði flokksins og til að mynda þrír ráðherrar létu af störfum og tveir nýir kæmu í staðinn. Þetta myndi hley- pa nýju lífi í ríkisstjórnina í upphafi forsætisráð- herratíðar Halldórs Ás- grímssonar. Hinir nýju ráðherrar gætu til dæmis verið Hjálmar Árnason og Jónína Bjartmarz þó auð- vitað séu allir þingmenn flokksins vel til þess hæfir að gegna ráðherraembætti,“ segir Guðjón Ólafur á Hriflu. Siv brást ókvæða við eins og sjá má á heimasíðu henn- ar. „Með þessari yfirlýsingu hefur Guðjón Ólafur nú tvívegis vegið opinberlega að ráðherra síns eigins flokks á skömmum tíma, en hið fyrra skipti var í sjónvarpsþætti RÚV „Í brennidepli“ síðastliðinn sunnudag. Það er því greinilegt að húskarlar eru komnir á kreik,“ segir ráðherrann í dag- bók sinni. Siv vildi í engu tjá sig um málið við Frétta- blaðið þegar eftir því var leitað en vísaði á heima- síðuna. Guðjón Ólafur þvertók fyrir að vega að Siv með skoðun sinni og segist oft hafa hælt henni fyrir störf sem ráðherra. „Þetta er nú bara veruleik- inn eins og hann blasir við. Ég hef í mörg ár skrifað pist- la á Hrifluna og hef oft talað vel um Siv og það sem hún hefur gert,“ segir Guðjón Ólafur sem reyndar hefur oft valdið óró- leika með skrifum sínum og kveðst ánægður með það. Hann segist ekki átta sig á því hvað Siv sé að fara með um- mælum sínum um húskarla. Guðjón Ólafur er talinn vera í innsta hring Halldórs ásamt Árna Magnússyni félagsmála- ráðherra og Birni Inga Hrafns- syni aðstoðarmanni Halldórs. Margir hafa túlkað það sem Siv sé að ýja að því að hugsanlega tali Guðjón Ólafur í nafni for- manns flokksins. „Ég geng ekki erinda eins eða neins og hef ekki leitað eftir leyfi formanns til að tjá mig um menn og málefni. Ég veit ekki hvers húskarl ég er og lýsi eftir húsbónda mínum,“ segir Guðjón Ólafur. rt@frettabladid.is Launakönnun Kjara- rannsóknarnefndar: Kaupmáttur jókst um 2,5% KAUPMÁTTUR Regluleg laun hækkuðu um 5,1% milli 4. ársfjórðungs 2002 og 4. ársfjórðungs 2003 samkvæmt launakönnun Kjararannsóknarnefnd- ar. Á sama tímabili hækkaði vísitala neysluverðs um 2,6%. Samkvæmt því jókst kaupmáttur launa að meðal- tali um 2,5%. Launahækkun starfs- stétta var á bilinu 4,1% til 7,4%. Laun þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólks hækkuðu mest en iðnaðarmanna minnst. Laun kvenna hækkuðu um 6,1% á tímabilinu en laun karla um 4,7%. Laun á höfuðborgarsvæðinu hækkuðu um 5,3% en utan höfuð- borgarsvæðis um 4,9%. ■ Á KOSNINGAFERÐALAGI Vladimír Pútín er á kosningaferðalagi í Síberíu. Vladimír Pútín: Innrásin mistök MOSKVA, AP Það voru mistök hjá Bandaríkjamönnum og Bretum að gera innrás í Írak og þau hafa leitt til þess að hryðjuverkamenn hafa sig frekar í frammi í landinu en ella sagði Vladimír Pútín Rússlandsfor- seti í gær. „Við trúðum, og ég trúi enn, að þetta hafi verið mistök, og það sem hefur gerst síðan hefur staðfest það álit,“ sagði Pútín. „Sífellt fleiri láta lífið og hryðjuverkamenn láta fátt stöðva sig,“ sagði Pútín og bætti við að stjórn sín myndi leggja sitt af mörkum til að tryggja hlutverk Sameinuðu þjóðanna í Írak. ■ LAGERÚTSALA/ BARNAVARA Lagerútsala á barnavöru og barnafatnaði. Í boði verður m.a vagnar, rúm og bílstólar. Fatnaður og skór frá NIKE og OSHKOSH. Einnig mikið úrval af leikföngum. Opið laugardaginn 28/2 og sunnudaginn 29/2 Frá kl: 11-17 báða daga. Tökum við debet og kredit kortum LAGERÚTSALA Smiðsbúð 8 Garðabæ. (Inngangur inn í porti) ÖREIGAR Hermóður Sigurðsson og Anna María Sig- tryggsdóttir misstu allt sitt í innbrotum og bruna. SKORINORÐUR Guðjón Ólafur Jóns- son er hvergi bang- inn að lýsa því hvaða ráðherra eigi að hverfa úr ríkisstjórn. FÖST FYRIR Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra er föst fyrir á ráð- herrastóli. Hún er ævareið vegna ummæla vara- þingmannsins sem hún kallar húskarl. HERFERÐ GEGN VÆNDI Á BJÓR- KRÁM Lögreglan í Bombay á Ind- landi gerði áhlaup á yfir fimmtíu bjórkrár og handtók að minnsta kosti 1.500 dansmeyjar, starfsmenn og viðskiptavini. Krárnar eru ekki ólöglegar en grunur leikur á að á mörgum þeirra sé stundað vændi og boðið upp á nektardans.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.