Fréttablaðið - 28.02.2004, Síða 22
Hljómsveitin Mínus hefur mik-ið verið í umræðunni síðustu
vikur, bæði vegna deilu meðlima
hennar við æskulýðsfélög víða um
land sem og vegna þeirrar athygli
sem hún hefur fengið í útlöndum.
Mínus er nýkomin úr tónleika-
ferðalagi um Bretland og Þýska-
land og hélt nú fyrir helgi tónleika
á Ísafirði og Akureyri.
Æskulýðsfulltrúar fara offari
„Mér finnst þetta afskaplega
sorglegt mál,“ segir Frosti Loga-
son, gítarleikari Mínus, spurður
um þá ákvörðun forsvarsmanna
félagsmiðstöðva á Íslandi að
banna sveitinni að spila á fjöl-
mennum unglingatónleikum.
„Persónulega finnst mér æsku-
lýðsfulltrúar fara offari í þessu
máli og furðulegt hvað þeir hafa
haft mikla þörf fyrir að sannfæra
alla í kringum sig um að Mínus sé
hættulegasta hljómsveit Íslands,“
segir Frosti.
Mínus átti að spila á balli sem
Samtök félagsmiðstöðva á Íslandi
standa fyrir og á grunnskólahátíð
á vegum Íþrótta- og tómstunda-
ráðs Hafnarfjarðar. Samfés og
ÍTH kröfðust þess að meðlimir
sveitarinnar skrifuðu undir samn-
ing þar sem þeir lýstu því yfir að
þeir hefðu aldrei neytt eiturlyfja.
Mínus neitaði að skrifa undir
samninginn en lagði þess í stað
fram annan samning þar sem
meðlimir sveitarinnar sögðust
ekki ætla að spila undir áhrifum
vímuefna á skemmtunum. Það
töldu forsvarsmenn Samfés og
ÍTH ekki nóg og í kjölfarið var
Mínus meinað að spila.
Vilja ekki láta kúga sig
Ástæða þess að sveitin var beð-
in að skrifa undir samninginn var
sú að fjallað var um eiturlyfja-
neyslu Mínusliða í blaðinu Rock
Sound og í breska tímaritinu Bang
og töldu æskulýðsfulltrúar hljóm-
sveitina ekki gefa gott fordæmi.
„Umboðsmaður okkar var bú-
inn að láta Samfés og ÍTH vita af
þessum viðtölum. Forsvarsmenn
samtakanna sögðu hins vegar að
þetta væri allt í lagi. Það er því
einkennilegt að þau leggi síðan
fram svona samninga sem þau
vilja að við sendum frá okkur,“
segir Frosti. „Mér finnst mjög
slæmt fordæmi að láta kúga sig.
Það eru ekki skilaboð sem við vilj-
um senda frá okkur, hvorki æsk-
unni né öðrum. Þar að auki er
tjáningarfrelsi á Íslandi og inni-
falinn er rétturinn til að þegja.
Þetta ættu æskulýðsforkólfar að
vita. Meðlimir Mínuss munu
aldrei skrifa upp á syndakvittanir
og láta þannig undan þrýstingi
yfirvalda sem vilja stjórna í krafti
bannfæringa. Við viljum hvetja
alla til að fórna ekki frelsinu til að
tjá skoðanir sínar og tilfinningar í
ræðu, riti eða tónlist.“
Hafa prófað eitt og annað
Í Bang er haft eftir drengjun-
um að íslenskar stúlkur séu fúsar
til samræðis á klósettum veitinga-
staða gegn greiðslu í eiturlyfjum.
Frosti segir fjölmiðla og æsku-
lýðsfulltrúa hafa lesið rangt úr
greininni.
„Í Bang-blaðinu var ég að for-
dæma þá sorglegu staðreynd að
ungar stúlkur neyti harðra efna í
auknum mæli og láti svívirða sig
fyrir þau á veitingastöðunum. Í
blaðinu kom það hins vegar út
eins og við værum að neyða kóka-
íni ofan í þessar stúlkur, sem er af
og frá og á sér enga stoð í raun-
veruleikanum. Hins vegar tel ég
það hafa farið mest fyrir brjóstið
á þessum aðilum að við skyldum
segja svona opinskátt frá því hvað
við sjáumst gerast í Reykjavík, en
þeir verða þá bara að eiga það við
sig,“ segir Frosti.
„Í Rock Sound-blaðinu sagði ég
að við hefðum jú vissulega prófað
eitt og annað en sem betur fer
gerum við okkur grein fyrir hætt-
unni og skaðseminni sem fylgir
því. Ég sagði því að þeir sem ráf-
uðu út á þessa braut þyrftu að
gera sér grein fyrir þessum hætt-
um. Það verður svo hver og einn
að túlka orðin eins og hann vill.“
Hvorki englar né djöflar
Bassaleikari Mínuss lýsti því
yfir í síðarnefnda viðtalinu að
hann vildi frekar nota amfetamín
en kókaín. Hann sagðist jafnframt
ekki hafa áhyggjur af því að tala
um eiturlyf í svona viðtölum.
„Amma mín les ekki þetta blað!“
sagði bassaleikarinn meðal ann-
ars í viðtalinu.
Frosti segir þessi ákveðnu um-
mæli vera hreint og klárt grín.
„Enda segir enginn svona. Ég
varð mjög hissa að þjóðin skyldi
halda að Þröstur væri svona vit-
laus. Þetta var bara hroki og
spaug, rokkklisja sem hefur verið
notuð hundrað sinnum og þú þarft
að vera ansi vitlaus til að sjá það
ekki.“
Frosti viðurkennir fúslega að
þeir Mínusmenn séu engir englar.
„Ég held að það séu nú engir
englar gangandi um á Íslandi. En
við erum heldur engir djöflar –
erum ekki með horn og hala,“ seg-
ir gítarleikarinn.
Vont að lenda í nornaveið-
um
Frosti segir það að sjálfsögðu
koma sér illa fyrir sveitina að
vera meinað að spila á unglinga-
skemmtunum. „Það er vont fyrir
hvern sem er að lenda í svona
nornaveiðum. Við
viljum þó ekki
svíkja sjálfa
okkur með
því að láta
kúga okkur.
Það kemur
ekki til
greina að við
skrifum und-
ir svona samninga og göngum við
þess í stað frá þessu með höfuðið
hátt. Við buðumst til að skrifa
undir samning þar sem við sögð-
umst ekki ætla að spila undir
áhrifum vímuefna enda er það al-
veg sjálfsagt. Ég spila aldrei und-
ir áhrifum og engin ástæða til að
ætla að við hefðum gefið slæmt
fordæmi á þessum tónleikum.“
Þegar búið var að útiloka sveit-
ina frá áðurnefndum unglinga-
skemmtunum sendi hún frá sér
yfirlýsingu þar sem hún segir að
með ákvörðun Samfés styttist í að
Hitlersæskan verði endurvakin í
nýrri mynd hér á landi. Frosti seg-
ir að þeir hafi sent frá sér yfirlýs-
inguna en ætli að láta þar við
sitja.
„Það er fyrst og fremst verið
að brjóta á krökkunum í þessu
máli. Það eru þeir sem vilja sjá
Mínus en fá það ekki. Þetta er
leiðinlegt mál á milli æskulýðs-
fulltrúanna og krakkanna
sjálfra. Við erum
ekki að fara í neitt
stríð gegn einum
né neinum,“
segir Frosti.
Mínus æskan
Mínus hefur þó látið prenta
boli með áletruninni „Mínus æsk-
an“ sem augljóslega er beint gegn
þeim sem vildu láta sveitina
skrifa undir samninginn. „Okkur
finnst þetta mál forkastanlegt.
Við höfum verið með ýmiss konar
ádeilu á íslenskt samfélag í gegn-
um tíðina, til dæmis í textunum
okkar, og með bolunum erum við
að reyna að benda á að þetta er
ekki eðlilegt. Mér finnst það alveg
normal viðbrögð hjá okkur,“ segir
Frosti.
Þótt Mínus hafi verið meinað
að spila á unglingaskemmtunum á
vegum Samfés og ÍTH hefur
sveitin ekki gefið það upp á bátinn
að leika fyrir unglinga. Um næstu
helgi ætlar hún að efna til tónleika
í Reykjavík fyrir yngri kynslóð-
ina.
„Tónleikarnir verða eingöngu
settir upp fyrir ungt fólk en það
verða að sjálfsögðu allir velkomn-
ir. Barinn verður lokaður og eng-
inn vímuefni höfð um hönd,“ seg-
ir Frosti en með Mínus leikur
breska hljómsveitin Jarcrew.
kristjan@frettabladid.is
Í Rock Sound-
blaðinu sagði ég að við
hefðum jú vissulega prófað
eitt og annað en sem betur
fer gerum við okkur grein
fyrir hættunni og skaðsem-
inni sem fylgir því.
,,
22 28. febrúar 2004 LAUGARDAGUR
Mínus hefur verið á miklu tón-leikaferðalagi síðustu mán-
uði og lauk nýverið við tveggja
vikna tónleikaferðalag um Bret-
land og Þýskaland. Platan Hall-
dór Laxness hefur fengið góða
dóma í erlendum blöðum, þar á
meðal fullt hús stiga í rokktíma-
ritinu Kerrang!
„Við höfum verið að spila mik-
ið síðustu mánuði og þetta er
vinna sem vinnst hægt en örugg-
lega. Það komu alltaf fleiri og
fleiri á tónleikana okkar í London
nýverið og við sáum árangurinn
mjög greinilega,“ segir Frosti
Logason gítarleikari. „Þýska-
landstúrinn sem við fórum í um
daginn með The Distillers lofaði
einnig mjög góðu. Þýska pressan
hefur meðal annars farið fögrum
orðum um okkur svo við getum
ekki kvartað undan því.“
Frosti starfaði um tíma sem
dagskrárgerðarstjóri á X-inu 977
en hefur fengi leyfi um ókominn
tíma, enda orðið fullt starf að
vera rokkari. „Við gerum alla-
vega ekkert annað,“ segir hann
aðspurður hvort þeir lifi á rokk-
inu. „Vissulega er þetta ánægju-
legt að geta verið í rokkhljóm-
sveit eins og okkur hefur
dreymt um frá því við vorum
smáguttar. Árangur erfiðrar og
mikillar vinnu sem er loks að
skila sér.“
Mínus hefur alla tíð æft mjög
stíft og hefur lítið lát verið á æf-
ingum þótt sveitin hafi lagst í
víking. „Að öllu jöfnu eiga að
vera æfingar á hverjum degi
nema eitthvað annað komi upp á.
Ef það er laus dagur reynum við
að æfa frá tvö til sex,“ segir
Frosti, en sveitin hefur einnig
verið að semja nýtt efni. „Við
erum komnir langt með næstu
plötu og það gengur mjög vel.
Hún lofar góðu.“ ■
Hljómsveitin Mínus hefur verið milli tannanna á fólki eftir að viðtöl við meðlimi hennar birtust í erlendum tímaritum. Þar var fjallað um
eiturlyfjaneyslu þeirra, og í kjölfarið var þeim meinað að spila á unglingaskemmtunum. Í viðtali við Fréttablaðið svarar Frosti Logason
gítarleikari fyrir sig og félaga sína, en sveitin hefur lítið tjáð sig um málið hingað til.
Höfum hvorki horn né hala
Rokkarar í fullu starfi
MÍNUS
Hljómsveitin Mínus hefur verið í umræðunni síðustu vikur vegna viðtala sem birtust við meðlimi hennar í erlendum tímaritum.
FROSTI
Frosti Logason, gítarleikari Mínuss, segir
meðlimi hvorki vera engla né djöfla.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
U
N
N
AR
E
R
N
IR
Ég held að það séu
nú engir englar gangandi
um á Íslandi. En við erum
heldur engir djöflar – erum
ekki með horn og hala.
,,