Fréttablaðið - 28.02.2004, Blaðsíða 29
29LAUGARDAGUR 28. febrúar 2004
Tyrfingsson ehf. á Selfossi hefurgert samning við þýska umboðs-
fyrirtækið Süverkrüp Automobile
um sölu á nýjum Mercedes-Benz
bifreiðum hér á landi, sendibílum,
vörubílum, rútugrindum, fullbún-
um rútum og fólksbílum.
Tyrfingsson ehf., sem er dóttur-
fyrirtæki Guðmundar Tyrfingsson-
ar ehf., hefur séð um yfirbyggingar
á nýjum hópferðabílum fyrir móð-
urfyrirtækið og viðhald á bifreiðum
þess, en auk þess starfrækir fyrir-
tækið smurstöð og sinnir tjónaskoð-
un fyrir einstaklinga og trygginga-
félög.
Tyrfingsson ehf. hóf fyrir þrem-
ur árum innflutning á nýjum
Mercedes Benz bifreiðum og rútu-
grindum fyrir móðurfyrirtækið.
„Við höfum mjög góða reynslu af
viðskiptum við þetta umboð og höf-
um á síðustu þremur árum flutt inn
tólf bíla og rútugrindur. Auk þess
höfum við flutt inn fimm M.B.Vario
sendibíla, þar af tvo fjórhjóladrifna
og höfum innréttað þá sem 20 far-
þega hópferðabíla. Eins höfum við
flutt inn M.B. Sprintera, og innrétt-
að þá bæði sem hjólastólabíla og
hópferðabíla,“ segir Benedikt G.
Guðmundsson hjá Tyrfingssyni ehf.
Aðspurður um stærri rútur
sagði Benedikt að í fyrravor hefði
fyrirtækið flutt inn eina 50 far-
þega M.B. Intouro lúxusrútu með
öllum búnaði. „Áður höfðum við
flutt inn rútugrind sem byggt var
yfir í fyrravetur og þessa dagana
er verið að byggja 50 farþega hóp-
ferðabíl á grind sem við fluttum
inn fyrr í vetur. Bíllinn verður fjöl-
nota hópferðabíll með öllum þæg-
indum og er hann hugsaður jafnt
til hótelferða sem hálendisferða.
Þá erum við með tvo nýja bíla til
viðbótar í pöntun sem koma til
landsins í mars og apríl.“ ■
Toyota Prius:
Bensín- og
rafmagnsbíll
Nýr og mikið breyttur Prius verð-ur kynntur hér á landi í mars.
Toyota Prius hefur verið valinn
bíll ársins 2004 af fréttamönnum í
N-Ameríku. Við hönnun bílsins var
mikið lagt upp úr að nýta alla þá
orku sem í gegnum hann streymir
enda. er Prius hvorttveggja í senn
bensínbíll og rafmagnsbíll, með svo-
kallað hybrid-kerfi. Hann er knúinn
bensínvél sem nýtist bílnum í venju-
legum akstri. Þegar ekki er þörf á
mikilli orku, svo sem á ljósum,
drepur bensínvélin á sér og raf-
magnsmótorinn tekur við. Prius er
fyrirferðarlítill og hagkvæmur bíll,
hljóðlátur og vel útbúinn. ■
Tyrfingsson ehf. á Selfossi:
Flytja inn Mercedes Benz
Allt sem bíllinn þarf fyrir veturinn
Michelin • Cooper • Loftbóludekk
• Ódýr jeppadekk • Bremsuklossar
• Bremsuviðgerðir
Smur, bón og
dekkjaþjónustan
Sætúni 4, sími 562 6066
Opið virka daga frá kl. 8-18
UMFELGUN OG
BALANSERING
VETRARDEKK
Þvottur og bón • Olís smurstöð
• Rúðuþurrkur • Allar perur
• Rafgeymar
Hekla kynnir Shuttle:
Leysir Caravelle af hólmi
Volkswagen kynntu í haust nýjalínu Volkswagen-vinnubifreiða,
sem hlotið hefur mjög góðar mót-
tökur og var ein gerðin, Volkswagen
Transporter, meðal annars kjörinn
vinnubíll ársins 2004.
Í þessari nýju línu eru þrjár
megingerðir bíla, Transporter,
Shuttle og Multivan, og hefur Tran-
sporter fengið það orð á sig að vera
kraftmikill vinnuhestur sem henti
vel við verktakavinnu, sendibíla-
akstur og þess háttar notkun.
Multivan er aftur á móti bifreið
sem hentar mjög vel stærri fjöl-
skyldum og fyrirhafnarakstri –
einskonar lúxusbifreið.
Shuttle leysir af hólmi Cara-
velle-bifreiðarnar og hentar mjög
vel til leigubílaaksturs og annarra
fólksflutninga. Shuttle-bifreiðin
er komin hingað til lands og er fá-
anleg bæði níu og 11 manna. Bíll-
inn er vel búinn, hljóðeinangraður
og fullklæddur í hólf og gólf.
Hann er fáanlegur sjálfskiptur og
beinskiptur og í haust verður
hægt að fá hann fjórhjóladrifinn
með beinskiptingu. Í boði eru fjór-
ar gerðir véla. Öflugar dísilvélar í
1.9 og 2.5 TDI útfærslum og 2.0
bensínvél. Aðstaða ökumanns er
góð og allt rými er hugsað til að
vinnurými hans sé sem best.
Caravelle-eigendum og öðrum
áhugasömum er boðið til kynningar
á bílnum í höfuðstöðvum Heklu við
Laugaveg í dag kl. 11–16. ■
„SÍÐASTI KRATINN“
Árni segist hafa verið að efna gamalt loforð við vinnufélagana þegar hann fékk sér
númerið „KRATI“.
Sagan bak við númersplötuna:
Vinnufélagarnir
eiga heiðurinn
Sagan á bak við númerið mitt,„KRATI“ á rætur að rekja til
áranna þegar ég vann sem raf-
virki í Straumsvík á áttunda ára-
tug síðustu aldar,“ segir Árni
Hjörleifsson, fyrrverandi bæjar-
fulltrúi í Hafnarfirði, sem nú býr
í Genf í Sviss þar sem kona hans,
Ingibjörg Davíðsdóttir, starfar á
vegum utanríkisþjónustunnar.
„Þetta var á þeim árum sem
kratar komust næst því að
þurrkast út. Það var mikið rifist
um pólitík í kaffiskúrunum í
Straumsvík og vegna slæmrar
stöðu krata var farið að kalla mig
„síðasta kratann“. Þetta átti svo
eftir að breytast eftir að Vilmund-
ir heitinn fór að hrista upp í póli-
tíkinni og eftir kosningasigurinn
1978 gat ég farið að bera höfuðið
hátt. Einhvern tíma komu einka-
númer í útlöndum til tals og þá
lýsti ég því yfir að ef þau yrðu
leyfð hér á landi þá myndi ég fá
mér númerið „KRATI“, en auðvit-
að bara í gríni. Þegar einkanúmer
voru svo leyfð hér á landi minntu
gömlu vinnufélagarnir mig svo á
þetta og ég varð auðvitað að efna
loforðið,“ segir Árni.
Aðspurður um viðtökurnar
sagði Árni að númerið hefði auð-
vitað vakið mikla athygli. „Það
var farið kalla mig „Árna krata“
þó svo að sú nafnbót hefði verið
frátekin, alla vega í Hafnarfirði.
Ég var ekkert meiri krati en aðrir
jafnaðarmenn og það má því segja
að gömlu vinnufélagarnir eigi
heiðurinn að þessu. En auðvitað
passaði þetta vel við því ég var á
kafi í pólitíkinni og bæjarfulltrúi í
Hafnarfirði fyrir Alþýðuflokkinn
í tvö kjörtímabil á árunum
1990–’98. Einu sinni fékk ég meira
að segja hól fyrir númerið á fundi
um umferðarmál þegar umferðar-
fulltrúinn á Suðurlandi sagði að
fleiri mættu taka sér þann sem
ætti þennan „KRATA“ þarna fyrir
utan til fyrirmyndar því andvirði
númersins rynni til umferðar-
mála.“ ■
NÝIR OG NOTAÐIR
Tyrfingsson ehf. hefur gert samning við þýskt umboðsfyrirtæki um sölu á nýjum og notuð-
um Mercedes Benz bifreiðum hér á landi.
VOLKSWAGEN SHUTTLE
Shuttle er bifreið sem leysir af hólmi
Caravelle-bílana og hentar mjög vel til
leigubílaaksturs og annarra fólksflutninga.